Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Page 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagiö DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRIISIJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýslngar auglysingar@dv.is. - Dreiflng: dreifing@dv.is Akureyrí: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Björgunaraðgerðir vegna Bonus Stores - frétt bls. 4 Milljarða laxeldi - frétt bls. 6 Skógrækt í sátt - frétt bls. 8-9 Huldufólk hefur ekkert miðsnes -Tilvera bls. 16-17 Drap næstum Gísla Martein - Fókus bls. 30 Grindavík og Fylkir úr leik í Evrópukeppninni - DV Sport bls. 30-31 Lúxusfangelsi fyrir ríka opnuð í Úkraínu Ríkir hvítflibbaglæpamenn, sem hlotið hafa fangelsisdóma í Úkraínu, þurfa ekki lengur aö hír- ast í klefuni með forhertum glæpamönnum, þvf yfirvöld hafa nýlega opnað tvö lúxusfangelsi sem ætluð eru þeim sem ráð hafa á. Annað þeirra er í bænum Dnipropetrovsk í austurhluta landsins en þar er pláss íyrir 180 lúxusfanga í þremur glæsiálm- um. Vistarverur fanganna eru hin- ar glæsilegustu á úkraínskan mælikvarða, með öllum helstu þægindum eins og sjónvarpi og uppbúnum rúmum, en þjónust- an kostar um 1.700 krónur á dag. Eldur á verkstæði ELDSVOÐI: Mikill reykur mætti slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins á lakkverkstæði á horni Auðbrekku og Skelja- brekku í Kópavogi á ellefta tímunum í gærkvöld. Slökkvi- lið var sent frá þremur stöðv- um, um tuttugu slökkviliðs- menn ásamt sjúkraliði og lögregu. Húsið var mannlaust þegar eldurinn kom upp. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu gekk slökkvi- starf vel.Talið er að upptök eldsins megi rekja til eiming- artækja sem hafi brunnið yfir. Slökkviliðsmenn höfðu lokið við að reykræsta verkstæðið um klukkan hálftólf. Ekki er að fullu Ijóst hversu mikið eignatjón varð en reyk- skemmdir munu töluverðar. Skjálftahrina JARÐSKJÁLFTAR: Hrina smá- skjálfta var á Reykjanesi í gær- kvöld. Fyrstu smáskjálftarnir mældust um klukkan 18 í gær og voru upptök þeirra um 7,5 kílómetra vestur af Reykjanestá. Á tólfta tímanum í gærkvöld höfðu mælst alls 33 skjálftar. Sá síðasti mældist um klukkan 22 og reyndist hann sá sterkasti í hrinunni, eða 2,2 á Richter. Neytendasamtök í nágrannalöndunum leggja ríka áherslu á sjálfstæði gagnvart hagsmunaaðilum: Þiggja enga styrki fra atvinnulífinu itXTEHDASAMT, Bresku og bandarísku neyt- endasamtökin leggja ríka áherslu á að þau þiggja enga styrki frá hagsmunaaðilum í at- vinnulífinu eins og verslunum, fyrirtækjum eða samtökum á þeirra vegum. Sænsku neyt- endasamtökin eru ríkisrekin að fullu með það fyrir augum að gæta hagsmuna neytenda. Dönsku neytendasamtökin sömuleiðis. f DV í vikunni var greint frá því að Neytendasamtökin þæðu fjög- urra milljóna króna framlag úr Pokasjóði verslunarinnar. Var þetta framlag veitt Neytendasamtökun- um að frumkvæði forstjóra Baugs. Samtökin voru meðal stærstu styrkþega sjóðsins í fyrra en hlut- verk þeirra er að gæta hagsmuna neytenda gagnvart þeim sem að honum standa. Nokkrir stjórnar- menn í Neytendasamtökunum ótt- uðust að styrkurinn skaðaði ímynd samtakanna en formaðurinn þver- tekur hins vegar fyrir að um hags- munaárekstur haft verið að ræða. Á vef bresku neyt- endasamtakanna, Consumers’ Associ- ation, er yfírlýsing sem segir að samtökin þiggi ekki styrki frá hags- Yfirlýsing sem segir að sam- tökin þiggi ekki styrki frá hags- munaaðilum í atvinnulífi, né samtökum, hvorki opinber- um né öðrum. munaaðilum í at- vinnulífi, né samtök- um, hvorki opinber- um né öðrum. Tekjur samtakanna koma frá sölu á útgefni efni Neytendasamtökun- umboðnar5milljónir á árí úr Pokasjóði 14 milljónirþrátt fyrir a 1 trúverðugltlkl biii hnt '££T'' SHœsS-s og samtökln þdiu 4 milljónír þntt fyrir ai stjómar- mnnittuötntað ttwerðugMkl blðl hntkki •SSBAs: .. -X mmi ^ ^ mm? sasar ANDSTÆÐAR SKOÐANIR: Sverrir Arngrímsson, fyrrverandi stjórnarmaður i Neytendasamtökunum, lagðist gegn styrkveitingu Pokasjóðs en hann sést hér skrafa við Jóhannes Gunnarsson, formann Neytendasamtakanna. ems ug neyteuuautaumu Which? og bókum. Á síðu bandarísku neyt- endasamtakanna, Consumers Union, segir að samtökin séu óháð hagsmunum atvinnulífs- ins Þau segjast ekki þiggja neinar auglýsingar og kaupa allar vörur sem notaðar eru í neytendakönnunum. Tekjur samtakanna koma frá sölu á neytendaskýrslum og annarri útgáfu auk upplýsingagjafar og þau þiggja fjárframlög frá óháðum stofnunum sem ekki eiga hagsmuna að gæta í at- vinnulífinu, opinberum styrkj- um og gjöfum. Dönsku neytendasamtökin, Forbrugerrádet, eru regnhlífar- samtök 26 landssamtaka. Þau fá fé til rekstrarins að öllu leyti frá ríkinu, frá félagsgjöldum og sölu neytendablaðsins, Tænk. Sama er að segja um sænsku neyt- endasamtökin, Konsument- verket. Miðað við áherslur neytenda- samtaka í öðrum löndum á sjálf- stæði sitt gagnvart hvers kyns hagsmunaaðilum kann að vekja grunsemdir um hagsmunaá- rekstra að Neytendasamtökin Dönsku neytendasam- tökin fá fé til rekstrar- ins að öllu leyti frá rík- inu, frá félagsgjöldum og sölu neytendablaðs- ins, Tænk. hér á landi skuli þiggja styrki úr sjóði á vegum verslunarinnar. Jó- hannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, viður- kenndi í DV í vikunni að það gæti orkað tvímælis að hagsmunasam- tök neytenda þiggi styrk frá versl- uninni í landinu en taldi ekki að þetta hafi stofnað trúverðugleika samtakanna í hættu. Helgarblað DV Norðurijósin loga Sigurður G. Guðjónsson, for- stjóri Norðurljósa, hefur siglt krappan sjó að undanförnu í tíð- um fféttum af vanskilum, tap- rekstri og átökum innan fýrirtæk- isins, að ógleymdum fjöídaupp- sögnum. Sigurður ræðir við Helg- arblaðið um alla þessa þætti, framtíðina, samkeppnina og segir frá málverkasöfnuninni sem er honum nokkur ástríða. ísland er áhrifavaldurinn Hvaða áhrif hafa erlendir lista- menn, sem hér hafa dvalist lang- dvölum, haft á íslenska listamenn? Á fsland eitthvert tilkall til alþjóð- legrar listasögu? Helgarblað DV skoðar sýninguna Innsýn/Insight í Listasafni Reykjavíkur og ræðir við sýningarstjórann, Ingólf Arnars- son, um þjóðerni og list- sköpun. Gengið um botn Hálsíóns Hér segir frá svaðilför 13 manna og kvenna sem í sumar gengu stóran hring um botn væntan- legs Hálslóns við Kára- hnjúka, eltu hreindýr og gæsir og gengu fyrir Kring- ilsá og Jökulsá á Dal á jökli sem fáir hafa gert. Heimsmet í kynlífi Helgarblað DV kannar rannsóknir og mælingar á ýmsum þáttum kynlífsins og greinir frá því hverjir fá það oftast, hverjir eru fljótastir, hverjir eru lengstir, bestir, stærstir og harðastir. Allt sem þú vildir vita um kynlíf en vissir ekki að svör væru til.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.