Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Qupperneq 14
T4 SKOÐUN FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 ------ — Fylgisflandur milli stjórnarflokka Wmmm Athyglisvert er að skoða stöðu stjórnmála- flokkanna nú þegar líður að hausti. Hveiti- brauðsdagar nýrrar ríkisstjórnar eru liðnir, enda komið á fjórða mánuð frá þingkosningunum í vor. Raunar sat sama ríkisstjórn áfram, með nokkrum mannabreytingum þó, svo varla er hægt að tala um hveitibrauðsdaga hennar. í skoðanakönnun um fylgi flokkanna, sem DV birtir í dag, felast helstu tíðindi í miklum fylgis- flutningum milli stjórnarflokkanna. Fylgi stjórn- ar og stjórnarandstöðu breytist hins vegar lítið. Segja má að Framsóknarflokkurinn gjaldi af- hroð séu niðurstöður könnunarinnar bornar saman við úrslit þingkosninganna í vor. I kosn- ingunum náði Framsóknarflokkurinn að vinna varnarsigur. Fylgi hans hafði mælst lítið í skoð- anakönnunum í aðdraganda kosninganna og lengi þótti tvísýnt að flokksformaðurinn næði kjöri í nyrðra Reykjavíkurkjördæminu. Með snarpri kosningabaráttu tókst Framsóknar- flokknum að hífa fylgið upp svo hann mátti, þrátt fyrir fylgistap, þokkalega við una þegar úr- slit kosninganna lágu fyrir. Fylgið sem Framsóknarflokkurinn ávann sér í kosningabaráttunni er hrunið af honum. Flokk- urinn fékk 17,7% í kosningunum en fylgið nú mælist aðeins 8,9%. Þótt skoðanakönnunin mæli aðeins fylgið á þessum tiltekna tíma sýnir hún óviðunandi stöðu fýrir flokkinn. Erfitt er að segja til um hvað veldur þessu fýlgishruni. Flokkurinn hefur ekki lent í neinum sérstökum hremmingum frá kosningum. Líklegri skýring er að hann hefur mikið til horfið úr huga almenn- Það er því Framsóknarflokkurinn sem horfir á eftir fylginu yfir til samstarfs- flokksins í ríkisstjórninni. Því fylgi hlýtur hann að reyna að ná til baka. ings. Hvorki Framsóknarflokkurinn né helstu forystumenn hans hafa verið áberandi undan- farna mánuði. Hann hefur hreinlega týnst. Ráð- herrar Framsóknarflokksins hafa verið Iítt áber- andi, kannski að frátöldum hinum nýja félags- málaráðherra, Árna Magnússyni. Þessu er öfugt farið með Sjálfstæðisflokkinn. Hann varð fyrir áfalli í alþingiskosningunum, tapaði verulega og jafnvel svo að sjálfur flokks- formaðurinn varð að gefa eftir fyrsta þingsæti kjördæmis síns. Skoðanakönnun DV sýnir að flokkurinn hefur náð vopnum sínum á ný. Fylgi hans var 33,7% í kosningunum en könnunin sýnir mikla aukningu. 43,1% sögðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar fram nú. Aukningin er 9,4 prósentustig. Fylgið hefur þannig í meginatriðum flust milli stjórnarflokkanna. Að sönnu hefur meira borið á sumum ráðherrum Sjálfstæðisflokksins í sum- ar en kollegum þeirra í Framsóknarflokknum. Þar hefur farið fyrir forsætisráðherrann, Davíð Oddsson. Óhætt er að fullyrða að flestir telji honum til tekna snöfurmannlega meðferð á málefnum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, boðaða brottför flugdeildar liðsins. Hann tók það mál í sínar hendur og kom í farveg, mál sem í raun heyrði undir formann Framsóknarflokks- ins, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Sveiflurnar eru minni hjá stjórnarandstöðu- flokkunum. Samfylkingin bætir við sig 3,9 pró- sentustigum og styrkir stöðu sína nokkuð en hinir flokkarnir, Vinstri-grænir og Frjálslyndi flokkurinn, tapa nokkru fylgi. í heild er fylgi stjórnar og stjórnarandstöðu nánast það sama og var í kosningunum í vor þrátt fyrir hið mikla fylgistap Framsóknarflokks- ins. Fylgi stjórnarflokkanna var 51,4% í kosning- unum en er nú 52%. Það er því Framsóknar- flokkurinn sem horfir á eftir fylginu yfir til sam- starfsflokksins í ríkisstjórninni. Því fylgi hlýtur hann að reyna að ná til baka. í því sambandi er rétt að minna á að eftir rúmt ár verða hús- bændaskipti í ríkisstjórninni. Þá tekur Halldór Ásgrímsson við forsætisráðuneytinu af Davíð Oddssyni. Hvort það skilar sér í fylgisaukningu Framsóknarflokksins skal ósagt látið. Klemman Þetta hefur verið bölvuð klemma sem konugreyið hefur verið í. Það hefur reynt á ýmsa eiginleika henn- ar og því miður hefur hver senni- lega þvælst fyrir öðmm. Þarna var möguleiki á embætti og hún er eins og flestir vita ákaflega veik fyrir embættum. Á hinn bóginn var maður fyrir í embættinu og hann vildi ekki standa upp. Það þýddi að hún hefði þurft að berjast fyrir því en slíkt forðast hún í lengstu lög. Á móti því kemur að hún var búin að lýsa því svo oft yfir opinberlega að hún sæktist ekki eftir þessu emb- ætti að löngunin í það var að verða óbærileg. Þetta var því engan veg- inn auðvelt viðfangs og í raun að- eins fyrir sérfræðing að finna lausn sem fallið gæti að öllum þessum eiginleikum hennar. En á vissum sviðum er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hins vegar sér- fræðingur. Þegar kemur að því að „hanna atburðarás" - sem er orða- lag sem enginn íslendingur hefur notað oftar en einmitt hún - þá er hún þaulvön. Þegar kemur að því að túlka eigin orð með allt öðmm hætti en allir aðrir hafa gert þá er hún í landsliðsklassa. Þegar kemur að því að útiloka sig frá öllu öðm en eigin metnaði þá ber hún höfuð og herðar yfir aðra. Og þar sem hæfi- leikar hennar á þessum afmörkuðu sviðum em svo miklir sem raun ber vitni þá fann hún þá lausn sem öðr- um hefði sést yfir. Hún hefur alltaf ætlað sér að verða leiðtogi Samfylk- ingarinnar en einnig verið staðráð- in í að verða það baráttulaust og hún fann leið til að láta báða þessa drauma rætast. Formaður án formennsku Þegar síðasta vinstristjórn á ís- landi þurfti að afla sér stuðnings Frjálslynda flokks þess tíma, Borg- araflokksins, þá stakk Steingrímur Hermannsson upp á því að Júlíus Sólnes, formaður Borgaraflokksins, fengi það að launum að verða „ráð- herra án ráðuneytis“. Þessi hug- Það skiptir engu máli hvernig Össur Skarp- héðinsson mun standa sig næstu tvö árin. Það skiptir engu hvar Sam- fylkingin mun standa eftir tvö ár. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er búin að ákveða að hún sjálf verði formaður eftir rúm tvö ár og ekk- ert annað skiptir máli í hennar huga. mynd strandaði á því að fyrir henni var nákvæmlega engin heimild í stjórnskipun landsins enda hafa ís- lenskir ráðherrar einkum það hlut- verk að stýra ráðuneytum. Hug- myndin um ráðherra án ráðuneytis hefur ekki heyrst hér á landi síðan kaupskapur Steingríms og Júlíusar stóð sem hæst en nú virðist Sam- VARAFORMANNSEFNISAMFYLKINGAR; „En á vissum sviðum er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hins vegar sérfræðingur. Þegar kemur að því að „hanna atburðarás" - sem er orðalag sem enginn (slendingur hefur notað oftar en einmitt hún - þá er hún þaulvön." fylkingin vera á góðri leið með að innleiða nýtt hugtak, litlu síðra. Eft- ir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur tilkynnt þá ákvörðun sína að verða varaformaður Samfylkingar- innar næstu tvö árin en verða kjör- in formaður að þeim tíma liðnum, þá er ljóst að Össur Skarphéðins- son verður aldrei annað en formað- ur án formennsku. Formanninum hent út Það skiptir engu máli hvernig Össur Skarphéðinsson mun standa sig næstu tvö árin. Það skiptir engu hvar Samfylkingin mun standa eft- ir tvö ár. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir er búin að ákveða að hún sjálf verði formaður eftir rúm tvö ár og ekkert annað skiptir máli í henn- ar huga. Það skiptir hana engu að næstu tvö árin mun Samfylkingin verða með formann sem allir vita að er ekki formaður. Það skiptir hana engu að sá sem í orði kveðnu verður leiðtogi Samfylkingarinnar næstu tvö árin mun alltaf vita að það skiptir engu hvernig hann stendur sig; varaformaður hans, þessi sem ætti að vera nánasti sam- starfsmaður hans, ædar eftir tvö ár að henda honum út, hvað sem tautar og raular. Hún veltir þessu ekki einu sinni fyrir sér. Ekkert skiptir Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur máli annað en að verða leið- togi Samfylkingarinnar. Embættum úthlutað Nú er þetta markmið í augsýn og Ingibjörg Sólrún byrjuð að telja dagana. Þangað til stóra stundin rennur upp mætir hún sigri hrós- andi í sjónvarpsviðtöl og segir þar hvað sem henni dettur í hug. í Kast- ljósviðtali í vikunni sagði hún, án þess að blikna, að hún hefði það nú ekki fyrir sið að láta úthluta sér embættum og hvorugum spyrjand- anum - eða hvaða menn þetta ann- ars voru - virtist detta í hug að spyrja hver það hefði verið sem þrí- vegis lét skipa sig borgarstjóraefni R-listans og skipa sig í baráttusæti og allt án prófkjörs. Þaðan af síður datt þáttastjórnendum í hug að spyrja hver það hefði verið sem lét skipa sig „forsætisráðherraefni" og „talsmann" eigin flokks, fram fyrir lýðræðislega kjörinn formann og það án þess að nokkur einasta stofnun flokksins væri spurð. Nei, þótt íslenskir fjölmiðlamenn kunni ýmislegt fyrir sér, þá er listin að yf- irheyra Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur ekki þar á meðal. Og þess vegna veitist henni létt að spinna sig út úr flóknustu klemmum. « E E D í opna skjöldu „Það virðist því hafa komið forsvarsmönnum nýhafinna hvalveiða við (slandsstrendur al- gjörlega f opna skjöldu að er- lendir stjórnmálamenn hafi skoðun á veiðunum. En við hverju bjuggust þeir? Vita þeir ekki manna best að stjórnmála- menn láta oft hafa eftir sér það Einn af hvalveiðiþátunum siglir í land. sem þeir telja að fólkið vilji heyra, oft að áeggjan þrýstihópa, og alltaf eftir línu pólitlsks rétt- trúnaðar?" Grimur Sigurðsson á Pólitlk.is Einneræðstur „Ætli ekki megi ímynda sér að á flestum fréttastofum sé ein- hver einn maður æðstur og hafi vald til að skera úr um álitamál. Það hvort þessi maður á fjölmið- ilinn eða ekki skiptir ekki máli. Það hvort þessi maður er Karl Garðarsson fréttastjóri, SigurðurG. Guðjónsson forstjóri eða Jón Ólafsson aðaleigandi er frá almennu sjón- armiði aukaatrði." Vefþjóðviljinn á Andríki.is Karl Garðarsson. Dýrðardagar að baki „Þessi sérkennilega persónu- dýrkun rímar illa við jafnaðarstefn- una. Hún snýst um hugsjónir en stendur ekki og fellur með einni manneskju. Fyrir nú utan það að þessi ofuráhersla á Ingibjörgu Sól- rúnu stenst ekki skoðun. Það kom greinilega í Ijós í vor að hún vinn- ur enga kosningasigra nema með stuðningi annarra flokka og þeir dýrðardagar eru að baki." Andrés Magnússon á Strik.is l 1 I i i 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.