Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 SKOÐUN 15
S:
Sjálfstæðisflokkur í sókn í skoðanakönnun DVum fylgi flokkanna:
Framsókn tapar
mjög miklu fylgi
SKOÐANAKANNANIR
Haukur L. Hauksson
hlh@dv.is
Sjálfstæðisflokkurinn stóreykur
fylgi sitt samkvæmt skoðana-
könnun DV, sem gerð var á
þriðjudagskvöld, en Framsókn
geldur hins vegar afhroð. Sam-
fylkingin bætir við sig en Frjáls-
lyndir og Vinstri-grænir tapa
fyigi-
Niðurstöður könnunar DV urðu
þær að 6,5 prósent sögðust myndu
kjósa Framsóknarflokkinn, 31,3
prósent Sjálfstæðisflokkinn, 4,2
prósent Frjálslynda flokkinn, 25,3
prósent Samfylkinguna, 5 prósent
Vinstri hreyfinguna - grænt fram-
boð og 0,3 prósent aðra flokka. 13,8
prósent sögðust óákveðin í afstöðu
til flokkanna og 13,6 prósent neit-
uðu að svara, eða samanlagt 27,4
prósent. Þannig tóku 72,6 prósent
afstöðu í könnuninni sem er hærra
hlutfall en í könnunum DV fyrir
kosningarnar í vor.
Samanlagt fengju
stjórnarfíokkarnir
því 33 þingmenn,
samanborið við
34 í kosningunum.
Ef aðeins er litið til þeirra sem af-
stöðu tóku til flokkanna sögðust 8,9
prósent myndu kjósa Framsókn
sem er mun minna fylgi en flokkur-
inn fékk í kosningunum í vor, 17,7
prósent. Fylgið hefur þannig hrap-
að um 8,8 prósentustig. I fyrstu
könnun DV eftir kosningarnar 1999
jókst fylgi Framsóknar eilítið en
hrapaði síðan þegar leið á veturinn
og var rúmum 5 prósentustigum
undir kjörfylginu um áramót.
í sókn og vörn
- breyting á fylgi fiakka i
prósentustigum frá kosningum
HORFST í AUGU V© FYLGISTAP: HalldórAsg
Bjartara er yfir Sjálfstæðisflokkn-
um en 43,1 prósent sögðust myndu
kjósa hann, eða 9,4 prósentustigum
fleiri en í kosningunum í vor, þegar
íylgið var 33,7 prósent.
Frjálslyndir tapa fylgi, fengju 5,7
prósent samkvæmt þessari könnun
DV en fengu 7,4 prósenta fylgi þeg-
ar talið var upp úr kjörkössunum.
Samfylkingin fagnar fylgisaukn-
ingu, fengi 34,9 prósent samkvæmt
könnuninni en fékk 31 prósent í
kosningunum. Munurinn er 3,9
prósentustig.
Þá tapa Vinstri-grænir fylgi,
fengju 6,9 prósent samkvæmt
könnun DV en fengu 8,8 prósent í
kosningunum, tapa 1,9 prósentu-
stigum.
Þrátt fyrir fylgistap Framsóknar
bæta stjórnarflokkarnir við saman-
lagt fylgi sitt sem er nú 52 prósent
miðað við 51,4 prósent í kosning-
unum.
Úrtakið í könnun DV var 600
manns, jafnt skipt milli kynja og
hlutfallslega milli höfúðborgar-
rímsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur ekki ástæðu til mikillar gleði í kjölfar skoðanakönnunar DV.
svæðis og landsbyggðar. Spurt var:
Hvaða lista myndir þú kjósa ef
þingkosningar færu fram núna?
Niðurstöðurnar má sjá í meðfylgj-
andi gröfum.
Framsókn höfðar til
landsbyggðarfólks
Sjálfstæðisflokkurinn er enn
sterkari ef aðeins er litið til kjós-
enda á höfuðborgarsvæðinu en
meðal þeirra mælist fylgi hans 46,9
prósent. Sama er að segja um Sam-
fylkinguna en fylgi hennar mælist
35,4 prósent á höfuðbogarsvæðinu.
Fylgi annarra flokka er hins vegar
minna á höfuðborgarsvæðinu en
landsbyggðinni og á það sérstak-
lega við um Framsókn. Hún mælist
með 5,8 prósenta fylgi á höfuð-
borgarsvæðinu.
Á landsbyggðinni snýst dæmið
við en þar fagnar Framsókn 13,6
prósenta fylgi og fylgi Vinstri-
grænna mælist 7,4 prósent. Sjálf-
stæðisflokkur mælist þar með 37,5
prósenta fylgi og Samfylkingin 34,1
prósents fylgi.
Skipting þingsæta
skv. könnun DVog breytingar miðað viö kosningar 2003
U tuu
Y iniii.inituii.uiii.tm.
W 1U
• MiiiMiimii
^ IMI
iMIMM
K Nýrþingmaöur Tapaöurþingmaður
FYLGI STJÓRNMÁLAFLOKKA í KÖNNUNUM DV
u Y Offj Jp •
26.08.03 8,9 43,1 5,7 34,9 6,9
Kosningar 17,7 33,7 7,4 31 8,8
08.05.03 15,9 35,7 9,3 29,5 8,1
29.04.03 17 33,9 9,5 29 9,1
03.04.03 12,8 37,6 9,8 30,2 8,4
31.03.03 15 42,7 5,6 27,1 9,4
04.03.03 12,2 42,3 3,3 34,5 7,7
25.02.03 17,1 38,8 1,1 33,7 9,3
07.01.03 12,3 37,1 2,7 39,4 8,1
30.09.02 13,8 47,3 1,9 23,7 13
02.06.02 25,6 39,7 4,5 17,5 12
04.03.02 21,3 40,4 3 18,5 15,3
24.10.01 13 45,6 3,9 13,5 24
07.08.01 12,7 42,1 4,8 18 20,9
07.06.01 17,1 35,6 5,9 15,8
28.01.01 14,8 37,3 2 16,5 29,3
12.01.01 9,7 37,4 1,4 27 24,1
29.09.00 11,4 46,5 4,4 17,7 19,4
22.03.00 12,5 40,6 2,8 25,6 18,4
29.12.99 13,2 51,6 2,5 15,5 16,8
20.10.99 14,3 51 2 17,7 14,5
13.09.99 18,9 48,9 4,7 17,1 9,8
Kosningar 18,4 40,7 4,2 26,8 9,1
Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndi
flokkurinn höfða frekar til karla en
kvenna en Framsókn, Samfylkingin
og Vinstri-grænir hafa meiri fót-
festu meðal kvenna.
Skipting þingsæta
Þegar þingsætum er skipt miðað
við atkvæðafjölda í könnuninni
fengi Framsókn 5 þingmenn, tapaði
7 frá kosningunum í vor. Sjálfstæð-
isflokkur fengi 28 þingmenn, bætti
Efaðeins er litið til
þeirra sem afstöðu
tóku til flokkanna
sögðust 8,9 prósent
myndu kjósa Framsókn
sem er mun minna fylgi
en flokkurinn fékk í
kosningunum í vor,
17,7 prósent. Fylgið
hefur hrapað um 8,8
prósentustig.
við sig 6. Samanlagt fengju stjórnar-
flokkarnir því 33 þingmenn, sam-
anborið við 34 f kosningunum, tapa
sem sagt manni. Til að hafa meiri-
hluta í þinginu þarf 32 þingmenn.
Samfýlkingin fengi 23 þingmenn
samkvæmt könnun DV, bætti við
sig 3. Vinstri-grænir fengju 4 þing-
menn, töpuðu einum, og Frjáls-
lyndi flokkurinn 3 þingmenn, tap-
aði sömuleiðis einum manni.