Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 Ui VERA 25
Spuming dagsins: Hver er uppáhaldsliturinn þinn?
AnnaHlífÁmadóttirnemi: Jónlna Rakel Sigurðardóttir nemi: Katrfn Ámadóttir nemi: Helga Þórsdóttir nemi:
Blár, f áttina að kóngabláum. Blár og þá frekar í dekkri kantinum. Dökkgrænn því að hann fer mér vel. Bleikur, ég er svo mikil stelpa.
Jóhanna Katrfn Bjamadóttin
Kóngablár, virkilega fallegur litur.
Anfta Bjarnadóttir, 9 ára:
Ljósblár.
Stjörnuspá
Vatnsberinn/2o./an.-fg.febrj
Gildir fyrir laugardaginn 30. ágúst
Ljóniðcj. júll- 22. ógúst)
Fyrri hluti dagsins verður
óvenjulegur og skemmtilegur. Þú ert
í góðu skapi og fullur atorku. Þú ættir
að fara í heimsókn í kvöld.
Treystu á eðlishvötina í sam-
skiptum við aðra. Fjölskyldan verður
þér efst í huga í dag og þú nærð góðu
sambandi við þá sem eru þér eldri.
^ Fiskarnirf7g.fefrr.-20.mgn;
Þú ættir að vera spar á gagn-
rýni því að hún gæti komið þér í koll.
Vertu tillitssamur við þína nánustu.
Happatölur þínar eru 13,14og 18.
Meyjan 121 ágúst-22. sept.)
Þú gætir þurft að leiðrétta
misskilning sem kom upp ekki alls
fyrir löngu.
Happatölur þínar eru 3,17 og 47.
T Hrúturinn (21. mars-19. april)
Þú hefuráhrif á ákvarðanir
fólks og verður að gæta þess að
misnota þér það ekki.
Happatölur þínar eru 19,28 og 44.
o Vogin (23.sept-23.okt.)
Næstu dagar verða nokkuð
fjölbreyttir og það verður mikið að
gera hjá þér. Kvöldið verður rólegt
í faðmi fjölskyldunnar.
Ö
Nautið (20. april-20. mai)
Ef þú ert að reyna við eitt-
hvað nýtt er skynsamlegt að fara var-
le^a og taka aðeins eitt skref í einu.
Happatölur þínar eru 2, 36 og 44.
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n6v.)
Þú verður líklega nokkuð
óþolinmóður fýrri hluta dags og
verður að gæta þess að halda ró
þinni. Kvöldið notarðu til að slappa
af.
n
IVÍbumm (21. mai-21.júní)
Dagurinn verður mjög
ánægjulegur og þú eyðir honum
með fólki sem þér líður vel með.
Ástin blómstrar um þessar mundir.
Bogmaðurinn/22.nw.-2;.fcj
Einhver breyting verður á
sambandi þínu við ákveðna mann-
eskju. Haltu gagnrýni fyrir sjálfan þig
þar sem fólk gæti tekið hana nærri sér.
Krabbinn (22.jún/-22.#5
O
Þú færð kjörið tækifæri til að
sýna væntumþykju þína í verki í dag.
Einnig mætirðu góðvild frá öðrum
og færð þá hjálp sem þú þarfnast.
Happatölur þínar eru 29, 30 og 43.
^ Steingeitin(22.rfffl.-;9./onj
Þú gætir lent í erfiðleikum
með að sannfæra fólk um það sem
þérfinnst. Þú mátt ekki taka það per-
sónulega þó að hugmyndir sem þú
hefur fram að færa mæti andstöðu.
Krossgáta
Lárétt 1 þilfar, 4 bifur,
7 kind, 8 hangs, 10 góð,
12 skagi, 13 áforma,
14 lík, 15 bónda,
16 þyngdareining,
18 ískra, 21 traðki,
22 kjáni, 23 fengur.
Lóðrétt: 1 gröf, 2 stía,
3 hvítvoðungur,
4 sárfátæka, 5 nudd,
6 upphaf, 9 málmur,
11 þjáfun, 16varg,
17 hlóðir, 19 eyri,
20 flýtir.
Lausn netst á sítunni.
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvítur á leik!
Ingvar Þór Jóhannesson heíur
komið einna mest á óvart á mótinu
í Hafnarfirði. Hann var kominn
með 3 v. af 4 og deildi öðru sæti
með Þresti Þórhallssyni stórmeist-
Lausn á krossgátu
ara. Ingvar er í skákfélaginu Hrókn-
um og hefur verið ein aðaldrifjöður
þess félags. Hann tekur skákina al-
varlega og er mikill keppnismaður.
Efstur er hins vegar Hannes H. Stef-
ánsson stórmeistari og hann teflir
vel. Það verður greinilega erfitt fyr-
ir hina keppendurna að þjarma að
Hannesi þó hugur standi til þess.
Hvítt: IngvarÞór Jóhannesson
Svart: Guðmundur Halldórsson
Skákþing íslands,
Hafnarfirði (1), 24.08. 2003
27. Bb4 c5 28. dxc5 Hd7 29. c6
Rxc6 30. Hxe6 Rxb4 31. He8+ Kc7
32. Hjdb4 Hb6 33. Hc4+ Kd6 34.
Hd4+ Kc7 35. Hxd7+ Kxd7 36. Hg8
g6 37. Hg7+ Kd6 38. Hxb7 Kc5 39.
Hxb7 Hxb7 40. Bxb7 1-0
‘|se 0J'j!J6L'ois/t'JI0 9l
'öugae 11 'unje| 6 Toj g '6eí s 'egneuseiq p 'ujeqeujo>| £ 'ojs\ z 'sÁp i qjgJ991
•|ge £Z 'uog zz 'IQojj iz 'e6jn 8t 'esun 91
'enq st 'jibu t'L 'epæ ei 'sau zi 'jæ6y oi 'J°|S8 '6||oj l 'Jofq t' ‘>l>|sp l WJKI
Ég held að það eigi
að henda beinunum
yfir vinstri öxlina.
Hrollur, veistu hvernig réttir
borðsiðir eru við þetta tilefni?
Myndasögur
Hrollur
Andrés önd
Hækkandi hiti
DAGFARI
Vilhjálmur Hansen
kip@0v.is
Hitinn undanfarin misseri er.
með því hæsta sem mælst hefur hér
á landi og eru margir á því að við
séum að fara í gegnum hlýinda-
skeið. Gróður hefur tekið vel við sér
í sumar og víða er vöxtur með því
mesta sem þekkst hefur. Hver hefði
til dæmis trúað því fyrir nokkrum
árum að kornskurður hæfist í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu í lok ágúst og að
það yrði stunduð maísrækt undir
Eyjafjöllum?
Hækkandi hiti leiðir einnig til
þess að tegundum í smádýraríkinu
fjölgar. í sumar hafa fundist tor-
kennileg fiðrildi víða um land og
fjöldi geitunga á höfuðborgarsvæð-
inu hefur aldrei verið meiri. Hlýind-
in síðastfiðinn vetur oilu því einnig
að sitkafús dafhaði sem aldrei fyrr
og enn má víða sjá merki þess á
grenitrjám. Ég get reyndar ekki
ímyndað mér hvað verður um
grenitrén ef komandi vetur verður
jafnmildur og sitkalúsin heldur
áfram að herja á grenið. Ég leyfi mér
að efast um að það þoli aðra eins
árás.
Einkennilegust áhrif hækkandi
DV-mynd Erling Ólafsson
hitastigs eru þó verðskrárhækkanir
Orkuveitunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Hækkunin er í andstöðu við öll
markaðslögmál. Hvar annars staðar
myndi fólk sætta sig við að með
minnkandi eftirspurn sé hægt að
hækka verðið í skjóli einokunar?