Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Síða 28
28 DVSPORT FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003
DV Sport
l Kepprti í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sfmi: 550 5885 ■ 550 5887 • 550 5889
Kelli White í sögubækurnar
FRJÁLSAR: Kelli White frá
Bandaríkjunum varð í gær
fyrsta konan í 12 ártil þess að
vinna 100 og 200 metra hlaup
á sama heimsmeistaramótinu
en þýska stúlkan Katrin Krabbe
lék þann leik síðast á heims-
meistaramótinu ÍTókýó árið
1991.
White sigraði í 100 metra
hlaupi á sunnudagskvöldið og
gerði sér svo lítið fyrir og vann
200 metra hlaupið í gær.
„Ég sagði við þjálfarann minn,
þegar ég fór á brautina, að
orka mín væri á þrotum. Ég var
algjörlega búin. Ég er búin að
keppa í átta hlaupum og er
orðin virkilega þreytt. Ég átti
ekki einu sinni til orku til þess
að fagna sigrinum. Mér fannst
ég eiga orku í fyrstu 12-15
skrefin en svo hljóp ég það
sem eftir var hlaupsins á viljan-
um einum saman," sagði
White. Eftir hlaupið varð hún
veik og þurfti á aðhlynningu
að halda.
Hún gerir sér því vart grein fyr-
ir því afreki sem hún hefur
unnið fyrr en seinna í dag.
AFREKSKONA: Kelli White sigraði
í 100 og 200 metra hlaupi á HM.
Dregið í riðla fyrir meistaradeild Evrópu í gær:
Meistararnir í sterkum riðli
' Auðveldur riðiil hjá Man. Utd en ekki hjá Arsenal og Chelsea
Það var mikil spenna í Mónakó í
gær þegar dregið var í riðla fyr-
ir meistaradeildina. Meistarar
AC Milan eru í erfiðum riðli þar
sem þeir mæta meðal annars
Ajax enn og aftur. Ensku liðin
voru misjafnlega heppin en
United á kannski greiðasta leið
áfram en Arsenal og Chelsea
bíður erfitt verkefni að tryggja
sér farseðilinn í næstu umferð.
Bretar voru mjög ánægðir með
það að Man. Utd og Glasgow
Rangers skyldu lenda saman í riðli.
■S Peter Kenyon, stjórnarformaður
Man. Utd, var hæstánægður með
dráttinn og hlakkar til að takast á
við skosku meistarana.
„Það eru ekki til neinir litlir leikir
í meistaradeildinni en það er sér-
stakt að fá að mæta Rangers og all-
ir hjá United eru mjög spenntir yfir
þessum drætti. Annars erum við
mjög sáttir við hann í heild sinni en
stórleikirnir eru gegn Rangers,"
sagði Kenyon skömmu eftir að
dregið var í gær. Starfsbróðir
Kenyons hjá Rangers, John McClel-
land, var einnig ánægður.
„Það verður rafmagnað and-
rúmsloft þegar þessi lið mætast. Ég
er þegar orðinn mjög spenntur.
Þetta verða frábærir leikir sem allir
á Bretlandi eru örugglega þegar
farnir að bíða spenntir eftir.“
Bates vill hefnd
Ken Bates, stjórnarformaður
Chelsea, var ánægður með dráttinn
og sérstaklega var hann sáttur við
lenda í riðli með Lazio svo að Chel-
sea gæti hefnt ófaranna frá árinu
2000 þegar Lazio lagði Chelsea á
Stamford Bridge.
„Þetta var áhugaverður dráttur.
Við förum til Istanbul en við eigum
ánægjulegar minningar frá því við
spiluðum þar síðast. Lazio er eina
liðið sem hefur sigrað okkur á
Stamford Bridge í meistaradeild-
inni svo að það er gaman að fá
tækifæri til að hefnda. Þetta er erf-
iður riðill en ég tei góðar líkur á að
við komumst áfram og það er líka
frábært að taka aftur þátt í þessari
keppni. Claudio Ranieri og leik-
mennirnir gerðu vel í að koma okk-
ur þangað og miðað við það hversu
sterkur leikmannahópur okkar er
orðinn er ekki ástæða til annars en
að vera bjartsýnn."
David Dein brattur
Varastjórnarformaður Arsenal,
David Dein, var brattur þótt
Arsenal eigi erfitt verkefni fyrir
höndum þar sem það mætir Inter
og liðum frá Rússlandi og Úkraínu.
„Við fáum að minnsta kosti
marga flugpunkta. Ég tel að það sé
alltaf erfitt að taka þátt í þessari
keppni og skiptir þá litlu hvert þarf
að fara en við erum með sterkan
hóp og vonandi komumst við
lengra en í fyrra. Við höfum einnig
reynslu gegn ítölskum liðum því að
við höfum mætt Juventus og Roma
áður og því sé ég ekkert því til fyrir-
stöðu að okkur gangi vel gegn Int-
er.“
henry@dv.is
MEISTARAR ÆFA: Meistaradeildarmelstarar AC Milan mæta UEFA-meisturunum í Porto í
leiknum um Super Cup í dag. Hér sjást leikmenn Milan á æfingu i gær. Reuters
SPENNANDI
FÆST I OLLUM HELSTU
Ezzxsai sff
UVERSLUNUNn' -- ' Jmboósoi® - s:5333800 - Lcng^o-tsveg: 111 -Ryk
MEISTARADEILD
A-riðill:
Bayern Munchen
Olympique Lyon
Celtic
Anderlecht
B-riðill:
Arsenal
1nter
Dynamo Kiev
Lokomotiv Moskva
C-riðill:
Deportivo la Coruna
PSV Eindhoven
AEKAþena
AS Monaco
D-riðill:
Juventus
Galatasaray
Olympiakos
Real Sociedad
E-riðill:
Manchester United
Panathinaikos
Glasgow Rangers
Stuttgart
F-riðill:
Real Madrid
Porto
Marseille
Partizan Belgrade
G-riðill:
Lazio
Chelsea
Sparta Prag
Besiktas
H-riðill:
AC Milan
Celta Vigo
Ajax
Club Brugge
Fyrsta umferðin I keppninni verður
leikin 16. og 17. september. Úrslita-
leikurinn fer fram á heimavelli
Schalke í Gelsenkirchen 26. maí á
næsta ári.
henry@dv.is