Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Side 31
FÖSTUDAGUR29. ÁGÚST2003 DVSPORT 31 Nýr leikmaður í Keflavík Birgir þjálfar Valsmenn Larry Bird rak Isiah Thomas KÖRFUBOLTI: íslands-og bikarmeistarar Keflavíkur hafa styrkt sig fyrir komandi átök í körfunni því í gær réðu þeirtil sín bandarískan leikmann fyrir veturinn. Nick Bradford heitir sá, er 25 ára og er um 2 metrar á hæð. Hann hefur leikið mest í stöðu framherja hingað til. Undanfarin ár hefur hann leik- ið í „neðri“ atvinnumanna- deildum í Bandaríkjunum en frá 1996-2000 lék hann með Kansas-háskólanum sem er einn sá allra öflugasti. Nick þykir fjölhæfur leikmaður og er að sögn heimasíðu Keflvík- inga afar grimmur varnarleik- maður. Bradford var með 9,4 stig, 6 fráköst, 3,4 stoðsending- ar og 2,1 stolinn bolta að meðaltali í leik með Kansas. KÖRFUBOLTI: Valsmenn hafa ráðið sér þjálfara í 1. deild karla í körfubolta en Valsliðið féll, eins og kunnugt er, úr INTER- SPORT-deildinni í vor. Birgir Guðfinnsson hefurtekið við stjórn meistaraflokks Vals í körfunni og mun stýra liðinu fyrst íValsmótinu sem hófst í gær og stendur al(a helgina. Birgir hóf feril sinn í Keflavík en lék sína síöustu leiki fyrir ÍR fyr- ir tveimur árum þar sem hann þjálfaði síðan yngri flokka í fyrra. Birgir mun taka við stöðu Ágústs Björgvinssonar sem tók við Valsliðinu um mitt mót í fyrra en er nú í Litháen að sækja sér meiri reynslu og þekkingu sem körfuboltaþjálf- ari. KÖRFUBOLTI: Larry Bird er þegar byrjaður að láta til sín taka sem forseti Indiana Pacers í NBA-körfuboltanum og í gær rak hann þjálfara liðsins til þriggja ára, IsiahThomas, en þeir tveir háðu einmitt marga hildina sem leikmenn hjá Boston Celtics og Detroit Pistons á 9. áratugnum. Indiana ætlar sér að klófesta Rick Carlisle, sem þjálfaði síðast Detroit með góðum árangri, en Carlisle lék einmitt með Bird hjá Celtic á árum áður. Stjarna Indiana, Jermaine O'Neal, varð mjög hvumsa við þessar fréttir og lét hafa eftir sér að hann hefði ekki skrifað undir nýjan samning ef hann hefði vitað að þetta stæði til. HVERNIG FÓRUÐ ÞIÐ AÐ ÞESSU? Það er engu líkara en Helgi Kolviðsson sé hér að hlæja upp í opið geðið á Ólafi Erni Bjarnasyni, fyrirliða Grindavíkur, en Grindvíkingar misstu unninn leik úr hönd- unum á lokasekúndunum. ar í ríki sfnu. Þá brugðu gestirnir á það ráð að skjóta langskotum í tíma og ótíma og kom fyrsta markskot leiksins á 22. mínútu. Nokkur ágæt skot lentu á marki Grindvíkinga en Helgi Már Helgason var öryggið uppmálað á milli stanganna. Aðeins mínútu síðar tók Ray Ant- hony Jónsson aukaspymu frá hægri kanti, af um 40 metra færi. Hann sendi háan bolta inn í teiginn sem vindurinn greip og mátti litlu muna að hann sigldi í markið en Goriupp í marki Kárnten var vandanum vax- inn. Pressan að marki Grindvíkinga jókst smám saman og maðurinn með „stutta" nafnið, Jose Carlos de Jesus Junior, komst í dauðafæri 7 mínútum fyrir leikhlé en Helgi varði glæsilega. Lftið breyttist í leik liðanna efdr hlé. Karnten sótti og Grindavík beitti skyndisóknum. Oli Stefán og Ray vom gríðarlega duglegir að hlaupa á eftir langsendingum fé- laga sinna en máttu eklö við margnum þegar þeir náðu boltan- um. Hefðu Grindvíkingar að ósekju mátt freista þess frekar að sækja upp kantana en ekki var hægt að tala um neitt vængspil hjá þeim að þessu sinni. Tæpum hálftíma fyrir leikslok varð síðan vendipunktur í leiknum. Þá fékk varnarmaðurinn Mario Heiblinger reisupassann hjá Eriks- son dómara fyrir gróft brot á Ey- í tvígang komst Óli Stefán i ákjósanlega stöðu sem honum tókst ekki að færa sér í nyt. steini Haukssyni. Fyrir vikið urðu Austurríkismennirnir að bakka og mesti broddurinn fór úr sóknarleik þeirra í kjölfarið. Það gaf Grindvík- ingum tækifæri til þess að taka leik- inn í sínar hendur og það gerðu þeir svikalaust. Aðeins fjómm mín- útum eftir rauða spjaldið komst Óli Stefán í dauðafæri, einn gegn markverði Karnten, en skaut rétt fram hjá. Tíu mínútum síðar skor- aði Ray beint úr aukaspyrnu - ná- kvæm eftirlíking af spyrnu hans í fyrri hálfleik nema að þessu sinni sigldi knötturinn yfir Goriupp og í markið. Glæsilegt mark. Kárnten færði sig framar við markið. Um leið fengu heimamenn færi á hröðum sóknum gegn fáum vamarmönnum og í tvígang komst Óli Stefán í ákjósanlega stöðu sem honum tókst ekki að færa sér í nyt. Undir lok leiksins drógu Grindvík- ingar sig of langt aftur og þegar leikklukkan sýndi 91 mínútu og 23 sekúndur skoraði Bosníumaðurinn Almedin Hota með skoti utan víta- teigs sem Helgi hefði reyndar átt að verja. Grindvíkingar lutu f gras og nánast grétu því nokkrum sekúnd- um síðar flautaði hinn sænski Eriksson af og Grindvíkingar úr leik. Þeir geta sjálfum sér um kennt hvemig fór að þessu sinni þvf þeir héldu ekld haus þegar mest á reyndi. Það er langur vegur frá því að þeir séu með lakara lið en Kárn- ten en ætla má að reynsluleysi hafl orðið þeim að falli að þessu sinni. Vörnin var frábær, með Ólaf örn og Kekic í fantaformi og Helga ör- uggan á milli stanganna. Miðjan stóð fyrir sínu og vinnuframlag Óla og Rays var aðdáunarvert. henry@dv.is sagði Bjarni Jóhannsson, hundfúll allt saman. Við fengum á okkur klaufamark af iöngu færi - alger markmannsmistök - en sem bet- | ur fór tókst okkur að setja eitt í lokin og það var mjög ljúft. Ann- ars fannst mér við spila þennan leik klaufalega. Við misstum mann út af á Idaufalegan hátt og létum þá ná skyndisóknum. Við vomm ekki nógu skynsamir í dag og það sem hefur verið að plaga okkur undanfarið, en það er að nýta ekki færin okkar, hélt áfram hér í dag. Þetta leit ekki vel út en slapp fyrir horn,“ sagði Helgi sem ber fulla virðingu fyrir liði Grindavíkur. „Mér finnst Grinda- víkurliðið mjög sterkt. Þeir spila mjög skipulagðan og agaðan fót- bolta. Við vissum að þeir væm í góðu formi og myndu ógna okkur með skyndisóknum því þeir em með fljóta menn frammi. Annars var mjög ljúft að komast áfram í keppninni og það er það eina já- kvæða sem ég sé hjá okkur í þess- um leik." henry@dv.is „Ég er mjög óánægður með úrslitin. Fyrir fram hefði maður verið sáttur við hvemig fór en eft- ir að hafa leikið úti sá ég ákveðna möguleika á að klekkja á þeim hér heima og mikið djöfull munaði litlu að það tækist," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, hundfúll í leikslok. „Við náðum ekki að halda haus í lok leiksins. Vera ekkert að djöfl- ast og skapa færi heldur bara halda boltanum og tefja Ieikinn síðustu mínúturnar. Ef við vær- um með aðeins reynslumeira lið hefði það kannski tekist. Mér fannst við spila alveg fantafínan fótbolta hér í sfðari hálfleik og þegar við náum upp stemningu í liðinu léikum við mjög vel. Því miður nær ævintýrið ekki lengra að þessu sinni en það munaði litlu að við fengjum eina Evrópu- ferð í viðbót." Lékum klaufalega íslendingurinn Helgi Kolviðsson átti ágætan leik í liði Kárnten og honum var létt í leikslok. „Ég á hreinlega ekki orð yfir þetta Djöfull munaði litlu Á RASSINUM: Þrátt fyrir að Ray Anthony Jónsson hafi skorað glæsilegt mark í gær sat hann eftir með sárt ennið í leikslok. DV-mynd Teitur Grindavík-Karnten 1-1 (0-0) Grindavíkurvöllur 28. águst 2003 - UEFA-Cup 1 -0 Ray A. Jónsson (74., beint úr aukaspyrnu af 35 metra færi eftir að brotið var á Gesti). 1-1 Almedin Hota (90., skot utan teigs I bláhornið). Samtals 11 menn..........38 Dómaii: Jonas Eriksson (3). Áhorfendun 975. Gul spjöld: Grindavík: Jack (30.) Karnten: Vorderegger (36.), Schillander (S7J, Zafarin (64.), Hota (72.) Rauð spjöld: Hieblinger(61J. Grindavík (4-4-2) Helgi Már Helgason .....5 Óðinn Árnason..... 4 ÓlafurÖrn Bjamason ......5 Sinisa Kekic ...........5 Gestur Gylfason ........3 Eysteinn Húni Hauksson ... 1 GuðmundurA.Bjarnason ..2 Mathias Jack....,.......2 (72., Alfreð Jóhannsson ..,. -) Paul McShane...........3 --—-----—— Ray Anthony Jónsson.....4 (á Óli Stefán Flóventsson..4 ?, -1 5 Hom: 3-2 Aukaspymur. 14-17 Rangstöðun 3-5 Varin skot: Helgi 4 - Goriupp 3. Karnten (3-5-2) Roland Goriupp ..........3 Sasa Papac...............3 Marlo Heiblinger ........4 Heimo Vorderegger .......2 Helgi Kolviðsson.........3 (84., Thomas Ambrovsis ... -) Júrgen Kampel............3 Robert Schellander.......2 (75., Thomas Höller ....-) Jose Carlos de Jesus Junior. 1 (46., Dave Zafarin .....2) Almedin Hota.............4 PeterKabat ..............2 Marijo Maric ............1 Samtals 12menn..........30 Maður leiksins hjá DV Sporti: Ólafur Ö. Bjarnason, Grindavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.