Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagiö DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: ðrn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRTTSTJÓRl: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Rltstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglysingar@dv.is. - Drelflng: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setnlng og umbroC Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Arvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins ( stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins íbúðin er að leggja mig í gröfina - frétt bls. 4 Fáskrúðsfjarðargöngin þegar orðin 700 metrar - frétt bls. 8-9 Spennandi verk á sviði Þjóðleikhússins - Menning bls. 12 Hasarleikarinn Bronson á fund feðranna -Tilvera bls. 16-17 KR-ingar unnu titilinn í 24. sinn í gær - DV Sport bls. 28-29 Skaginn í annað sætið - DV Sport bls. 30 Taíiendingur þakkar ormaáti góða heilsu Taílenskur 39 ára gamall slökkviliðsmaður þakkar ormaáti góða heilsu sfna og segist hafa étið þá sprelllifandi á hverjum degi í meira en þrjá áratugi. Maðurinn, sem heitir Paisit Chanta, segist hafa byrjað á þessu þegar hann var polli við veiðar í Nakhon Nayok-héraði og hafi sfðan ekki sleppt úr degi. „Þetta byrjaði þannig að ég hafði verið að veiða allan dag- inn og var orðinn mjög svang- ur. Þá datt mér í hug að fá mér orm frekar en svelta og þar með byrjaði þetta,“ sagði Chanta. „Byssumaður" handtekinn LÖGREGLA: Maðurvopnað- ur byssu vakti athygli og óhug ökumanna sem leið á áttu um Miklubraut í ná- grenni Snorrabrautar um ell- efuleytið í gærkvöld. Stóð maðurinn við götuna og mið- aði byssunni á bíla sem óku fram hjá. Skelkaðir ökumenn vissu ekki við hverju var að búast og gerðu lögreglu við- vart. Þegar lögreglan kom á staðinn reyndist maðurinn ölvaður og byssan heldur meinlaus enda úr plasti. Að sögn lögreglu var hins vegar óhuggulegt að sjá manninn munda byssuna í myrkrinu og viðbrögð ökumanna bæði skiljanleg og alveg hárrétt. Var maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöðina. Glerflóð ÓHAPP: Glerfarmurá flutningabíl rakst upp und- ir Höfðabakkabrúna seinni- partinn í gær með þeim af- leiðingum að stór hluti farmsins brotnaði. Dreifð- ustu hundruð kílóa af gleri um götuna á háannatíma og varð að loka veginum undir brúna meðan hreins- unarstörf fóru fram. Fannst látinn MANNSLAT: 32 ára karl- maðurfannst látinn við Grenlæksl.föstudag. Hann hafði verið að veið- um með tveimur félögum sínum. Þeir gerðu lögreglu íVík viðvart. Hinn látni hét Páll Guðmundsson, til heimilis að Fagradal 1, Vogum. Hann lætur eftir sig konu og þrjú börn. Flosa ekki sleppt úr fangelsi í Dubai Norðmönnum varneitað um að taka hann með sérí gærmorgun FLOSIARNÓRSSON: íslenskl stýrimaðurinn var ekki leystur úr haldi í gær. Flosi Arnórsson stýrimaður sit- ur enn í fangelsi i Dubai þrátt fyrir fregnír um að honum yrði sleppt í gærmorgun. Engar fregnir voru heldur um lausn fangans í morgun. Gleðifregniri um að Flosa stýri- manni frá ísafirði hafi verið sleppt úr fangelsi í Dubai snerist upp í andhverfu- sína í gærmorgun. Að sögn lónu Arnórsdóttur, systur Flosa, fékk hún fregnir um það í gegnum norska sendiráðið á ellefta tímanum í gærmorgun að Flosi væri enn í fangelsi. Samkvæmt úr- „Að fenginni reynslu, þá veit ég þó að fimmtudagar og föstu- dagar eru helgidagar þarna úti og þá er ekk- ert gert í svona málum." skurði æðra dómstigs í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær- morgun var ákveðið að láta Flosa lausan en honum gert að greiða 100.000 króna sekt. Átti að leyfa honum að fara heim til íslands um leið og hann væri kominn með vegabréf sitt og búið að ganga frá nauðsynlegum papp- írum. Jóna segist ekki hafa skilið það öðruvísi og taldi það öruggt að honum yrði hleypt úr fangelsinu í gærmorgun. Fiún hafi því beðið í gærmorgun eftir að heyra frá hon- um sjálfum. Norska sendiráðið greiddi sekt- ina strax eftir úrskurðinn og fóru sendiráðsmenn í fangelsið í gær- morgun til að sækja Flosa með úr- skurð dómstólsins upp á vasann. Þá var þeim tjáð að þeir fengju ekki að taka hann með sér. Skrifleg gögn vantaði um að hleypa mætti Fiosa út. Þá væri heldur ekki ljóst hvort sendiráðsmenn mættu fara með hann eða hvort honum yrði ekið í lögreglufylgd beint út á flugvöll. Sagði Jóna því ljóst af þessum við- brögðum að Flosi yrði að bíða enn um sinn eftir að losna og líklega í nqkkra daga. Hún sagðist hafa fengið fregnir um það í gær að það gæti tekið nokkra daga að ganga frá pappírsgögnum. Vonaðist hún til að það gæti orðið í þessari viku. „Að fenginni reynslu, þá veit ég þó að fimmtudagar og föstudagar eru helgidagar þarna úti og þá er ekkert gert í svona málum," sagði Jóna í samtali við DV í morgun. Hún taldi því að ef ekki yrði búið að ganga frá málinu fyrir fimmtudag, gæti það dregist fram á laugardag eða jafnvel fram í næstu viku. hkr@dv.is Eignarhaldsfélagið Brú á Selfossi gjaldþrota: Skuldar rúmar þúsund milljónir HÓTEL SELFOSS: Eigandi hússins, eignarhaldsfélagið Brú, er nú gjaldþrota. Eigi að síður er vonast til að rekstur hótelsins, sem er sjálf- stæður, geti haldið áfram í samráði við veðkröfuhafa og skiptastjóra. Eignarhaldsfélagið Brú, eigandi að fasteign Hótel Selfoss, er gjaldþrota samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Suðurlands í gær. Skuldir félagsins nema rúmum milljarði króna. Stærsti eigandi eignarhaldsfé- lagsins er Kaupfélag Árnesinga, með 63% eignarhlut, og sveitarfé- iagið Árborg á einnig hlut í félag- inu. Brú keypti á sínum tíma hótel- ið að Eyrarvegi 2 af sveitarfélaginu og farið var í viðamiklar endurbæt- ur og nýbyggingu við húsið. Reynd- ist þessi uppbygging mjög kostnað- arsöm en henni var þó ekki að fullu lokið þegar félagið komst í þrot. Vonast menn til að heimildir verði veittar hjá veðhöfum og skiptastjóra tilað halda áfram rekstrin- um og Ijúka uppbygg- ingu hótelsins. Skuldir félagsins eru nú rúmur einn milljarður króna, þar af eru veðskuldir um 550 milljónir króna. Kröfuhafar eru um 50 talsins. Langstærsti veðhafinn er Spari- sjóður Kópavogs. Fyrr í sumar var greint frá því í DV að sparisjóður- inn hefði verið með 56 veð á 1. veð- rétti auk tveggja veða á 2. og 3. veð- rétti, samtals að upphæð 381.452.000 krónur. Þá var Byggða- stofnun með um 90 milljóna króna veðlcröíu sem skráð er á 1. veðrétti á eftir kröfum SPK. Einnig var sveit- arfélagið Árborg með stórt veð, eða rúmar 28,7 milljónir króna, sem er á 4. veðrétti. Hótel Selfoss hefur þó verið rekið sjálfstætt og er það mat stjórnar- manna Brúar að rekstur’hótelsins geti haldið áfram þrátt fýrr gjaldþrot eignarhaldsfélagsins. Vonast menn til að heimildir verði veittar hjá veð- höfum og skiptastjóra til að halda áfram rekstrinum og ljúka uppbygg- ingu hótelsins en Steinunn Guð- bjartsdóttir lögmaður hefur verið skipuð skiptastjóri. hkr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.