Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Side 10
W FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003
Ht
Útlönd
Heimurinn i hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Stjórnvöld sviku Kelly
BRETLAND: Ekkja breska
vopnasérfræðingsins Davids
Kellys sagði fyrir Hutton-nefnd-
inni, sem rannsakar aðdrag-
anda sjálfsvígs hans, að honum
hefði fundist stjórnvöld hafa
svikið sig.
Kelly svipti sig lífi eftir að hann
varð miðpunktur deilu stjórn-
valda og ríkisútvarpsins BBC
um áreiðanleika skýrslu um
gjöreyðingarvopn íraka. Dauði
Kellys hefur valdið stjórn Tonys
Blairs meiri vandræðum en
hún hefur áður ratað í.
„Honum fannst hann hafa ver-
ið svikinn," sagði Janice Kelly
fyrir nefndinni og aðspurð
sagði hún að hann hefði átt við
landvarnaráðuneytið þar sem
hann starfaði. Ein dætra Kellys
bareinnig vitni.
Samþykktur
GRÆNLAND: Grænlenska
heimastjórnin samþykkti í gær
umdeildan fiskveiðisamning
við Evrópusambandið sem
ýmsir segja að veiti ESB of mik-
il réttindi til veiða innan græn-
lenskrar lögsögu. Við lá að
stjórnarsamstarfið færi í háa-
loft. Samningurinn gefur
Grænlendingum rúmlega 3
milljarða íslenskra króna tekjur.
Saddam sver af
sér árásina í Najaf
Saddam Hussein, fyrrverandi
íraksforseti, sendi í gær frá sér
hljóðupptöku þar sem hann
neitar því að vera viðriðinn
sprengjuárásina á bænahús
sítamúslíma í heilögu borginni
Najaf á föstudag, sem varð hátt
í hundrað manns að bana og
þar á meðal síta-klerknum Mu-
hammed Baqer al-Hakim.
Upptakan barst Al-Jazeera-sjón-
varpsstöðinni í gær og neitar rödd-
in, sem sérfræðingar segja Sadd-
ams, framkomnum ásökunum um
að íylgismenn sínir hafi staðið fyrir
árásinni.
„Mörg ykkar kunnið að hafa
heyrt hvæsið í snákunum, þjónum
innrásarliðsins, sem eftir morðið á
al-Hakim voru fljótir að kenna
þeim sem þeir kalla stuðnings-
menn Saddams Husseins um árás-
ina. - Innrásarlið heiðingjanna
ásakar stuðningsmenn Saddams
Husseins án sannana. Saddam
Hussein hafði ekkert með þetta að
gera,“ segir Saddam á upptökunni
en aðeins hluti hennar var sendur
út á AJ-Jazeera-sjónvarpsstöðinni í
gær.
Hvetur til árása
LBC-sjónvarpsstöðin í Líbanon,
sendi upptökuna út í heild í gær-
kvöld og heyrðist Saddam þar
hvetja til frekari árása á innrásar-
liðið. „Þið miklu hetjur íraks, beitið
ykkur af öllu afli gegn erlenda árás-
arliðinu, hvaðan sem það kemur og
af hvaða þjóðerni sem það er.“
Þrátt fyrir þessa tilraun Saddams
til þess að bera af sér ásaknir munu
flestir sítamúslímar enn á þvf að
fylgismenn Saddams Husseins beri
ábyrgð á árásinni. Alla vega var svo
að heyra á meirihluta þeirra tuga
þúsunda íylgjenda al-Hakims sem
þátt tóku í sorgargöngunni löngu
frá Bagdad til Najaf.
Þar var greinilega kallað eftir
grimmilegri hefnd gegn fylgis-
mönnum Saddams en al-Hakim
var leiðtogi hóps sítamúslíma sem
kennir sig við æðstaráð íslömsku
byltingarinnar með aðsetur í íran,
en þar hafði al-Hakim dvalið í
meira en tvo áratugi í útlegð vegna
andstöðu við stjórn Saddams.
Hann sneri heim eftir fall Sadd-
ams í maí en vildi fara varlega í
stuðningi við innrásarliðið.
Útför al-Hakims ídag
Sorgargangan sem lagði upp frá
Bagdad á sunnudag náði til helgu
borgarinnar Karbala en þaðan var
göngunni haldið áfram til Najaf þar
sem útför al-Hakims fer fram í dag
en búist er við því að tugir þúsunda
sítamúslíma taki þátt í henni.
Útförin hefst með bænastund í
helgasta bænahúsi borgarinnar en
„Mörg ykkar kunnið
að hafa heyrt hvæsið
í snákunum, þjónum
innrásarliðsins, sem
eftir morðið á al-Hakim
voru fljótir að kenna
þeim sem þeir
kalla stuðnings-
menn Saddams
um árásina
trúarhefð sítamúslíma gerir ráð
fyrir því að einn æðstu klerkanna
leiði bænastundina fyrir jarðarför-
ina. Það var þó ekki ljóst í gær,
vegna ótta við hryðjuverk hvort
einn hinna fjögurra æðstu lderka
sítamúslíma yrði viðstdaddur
jarðarförina.
Skipað í ráðherrastöður
Á sama tíma og sorgargangan
nálgaðist Najaf tilkynnti íraska
framkvæmdaráðið loksins um
skipan 25 ráðherra í nýja ríkisstjórn
fraks en langþráð skipan f stjórnina
hefur tekið tvær vikur eftir mikið og
erfitt samingaþóf innan ýmissa
trúar- og þjóðarbrota, sem öll
þurftu fyrst að samþykkja sína
fulltrúa.
Ráðherraskipanin þykir mikil-
vægt skref í átt til lýðræðis í írak og
yfirtöku þeirra sjálfra á stjórn
landsins en í lykilstöðu innanrfkis-
ráðherra var skipaður sítamús-
líminn Nuri Badram, liðsmaður
Sameiningarhóps landflótta íraka
sem studdur var af Bandaríkja-
mönnum til andstöðu við Saddam.
I stöðu fjármálaráðherra var
skipaður sítamúslíminn Ibrahim
Muhammad Bahr al-Ulloum en yfir
fjármálaráðuneytið súnnímúslím-
inn Kamel al-Kailani. Ráðherra
utanríkismála verður kúrdinn
Hoshiar al-Zibari.
Þrátt fyrir síðustu atburði er
ekkert lát á skæruárásum á banda-
ríska hermenn í frak og var sú
síðasta gerð í morgun við lögreglu-
stöð í Bagdad með þeim afleiðing-
um að tveir írakar særðust. Áður
höfðu tveir bandarískir hermenn
fallið í sprengjuárás í nágrenni
Bagdad f gær auk þess sem sá þriðji
særðist illa.
SORGARGANGAN: Sorgargangan
nálgaðist Najaf í gær.
Þrír slökkviliðs- Enn einn Hamas-liðinn drep-
menn fórust í eldi inn í flugskeytaárás á Gaza
Þrír slökkviliðsmenn fórust í
gær í baráttunni við skógar-
elda nærri baðstrandarbæn-
um St. Tropez á Miðjarðar-
hafsströnd Frakklands. Rúm-
lega eitt þúsund slökkviliðs-
menn börðust við eldana.
Að sögn lögreglunnar króaði
eldurinn mennina þrjá inni í bíl
þeirra og brunnu þeir til bana.
Enn einn slölckviliðsmaður slas-
aðist alvarlega í nótt þegar hann
varð fyrir bíl.
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti lýsti yfir hryggð sinni yffir
dauða mannanna þriggja.
Nicolas Sarkozy innanríkisráð-
herra sagði á sunnudag að þegar
væri búið að handtaka 24 menn
sem grunaðir væru um að kveikja
eldana.
HARMAR DAUÐSFÖll: Jacques Chirac
Frakklandsforseti harmaði I gær dauða
þriggja slökkviliðsmanna sem börðust
við skógarelda á Miðjarðarhafsströnd
Frakklands, nærri St.Tropez.
ísraelar drápu í gær háttsettan
liðsmann vopnaðs arms Hamas-
samtakanna og særðu að
minnsta kosti 25 aðra í flug-
skeytaárás í Gaza-borg.
Maðurinn, sem hét Khader al-
Husari, liðsmaður al-Qassam-her-
deildarinnar, var á ferð í bíl sínum
ásamt aðstoðarmönnum þegar
þyrla hóf flugskeytaárás með þeim
afleiðingum að bíllinn varð strax
alelda.
Að sögn sjónarvotta skaut árás-
arþyrlan, sem fékk aðstoð F-16
orrustuþotna, á tvo bíla og munu
tveir hinna særðu hafa verið að-
stoðarmenn al-Husaris. Læknar
staðfestu að annar Hamas-liðinn
væri illa særður og ekki hugað líf.
„Þrjú flugskeyti hæfðu bíl al-
Husaris og hann varð strax alelda,"
AF ÁRÁSARVETTVANGI: Þremur flug-
skeytum var skotið að bílnum.
sagði einn sjónarvotta. Þetta er
sjötta flaugskeytaárásin sem
ísraelsmenn beina gegn liðs-
mönnum Hamas-samtakanna síð-
an sjálfsmorðsárásin mannskæða
var gerð í Jerúsalem þann 20. ágúst
sl. og hafa ellefu liðsmenn vopnaðs
arms samtakanna og þrír óbreyttir
borgarar fallið í árásunum auk þess
sem tugir hafa slasast.
Að sögn talsmanns fsraelshers
höfðu njósnir borist um að bflarnir
væru hlaðnir vopnum og sprengi-
efni og þess vegna hefði verið ráðist
til atlögu.
Shaul Mofaz, varnarmálaráð-
herra ísraels, sagði eftir árásina í
gær að ekkert yrði gefið eftir í að-
gerðunum gegn Hamas-liðum
meðan palestínsk stjórnvöld að-
hefðust ekkert. „Þau verða að taka
málið föstum tökum og hefja af-
vopnun," sagði Mofaz.