Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2003, Side 24
24 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2003
íslendingar
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Fimmtíu áro
Ölafur Helgi
Kjartansson
sýslumaður á Selfossi
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Selfossi, er fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Ólafur Helgi fæddist í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1972, embættisprófi í lögfræði við
HÍ 1978 og lauk námi í opinberri
stjórnsýslu og stjórnun við Endur-
menntunarstofnun HÍ 1999.
Á háskólaárunum starfaði Ólafur
Helgi m.a. hjá sýslumanninum og
bæjarfógetanum á ísafirði, var
dómarafulltrúi sýslumanns Árnes-
inga og bæjarfógetans á Selfossi
1978-84, settur bæjarfógeti á Siglu-
firði 1983, skattstjóri Vestfjarðaum-
dæmis 1984-91, sýslumaður ísa-
fjarðarsýslu og bæjarfógeti á ísa-
firði 1991-92 og sýslumaður þar til
2001 og er sýslumaður á Selfossi frá
því í desember 2001.
Ólafur Helgi var stundakennari
við Gagnfræðaskóla Selfoss, FSU og
MÍ.
Ólafur Helgi sat í stjórn Vöku
1973-74, í flokksráði Sjálfstæðis-
flokksins 1978-85, í stjórn FUS í
Árnessýslu 1978-85 ogvarformað-
ur 1979-81, í stjórn SUS 1979-85, í
bæjarstjórn Selfosskaupstaðar
1982-84 og í bæjarráði 1982-83 og
1984, sat í bæjarstjórn og bæjar-
ráði ísafjarðar 1986-91, var forseti
bæjarstjórnar og formaður bæjar-
ráðs 1990-91, sat í stjórn Orkubús
Vestfjarða 1986-91, var formaður
Fjórðungssambands Vestfirðinga
1990-91 og sat í héraðsnefnd og
héraðsráði ísafjarðarsýslu á sama
tíma og formaður skólanefndar MÍ
1996-2001. Hann er varaformaður
stjórnar Sýslumannafélags
íslands.
Fjölskylda
Ólafur Helgi kvæntist 3.10. 1976
Þórdísi Jónsdóttur, f. 3.10. 1958,
húsmóður, stúdent og hárgreiðslu-
konu. Hún er dóttir Jóns Magnúsar
Magnússonar, yfirverkstjóra í
Reykjavík, og Kristrúnar Bjarneyjar
HáJfdánardóttur húsmóður.
Börn Ólafs Helga og Þórdísar eru
Kristrún Helga, f. 29.10. 1980, nemi
í stjórnmálafræði við HÍ; Melkorka
Rán, f. 7.6. 1983, nemi við FS á
Selfossi; Kolfinna Bjarney, f. 5.7.
1992, nemi; Kjartan Thor, f. 6.7.
1992, nemi.
Hálfbróðir Ólafs Helga, sam-
mæðra, er Jökull Veigar, f. 21.12.
1948, rafvirki og símvirki, búsettur í
Bessastaðahreppi.
Alsystkini Ólafs Helga eru Skúli,
f. 1.9. 1954, viðskiptafræðingur og
MBA, búsettur í Colorado í Banda-
ríkjunum; Hjálmar, f. 1.3.1958, við-
skiptafræðingur og MBA í Reykja-
vík; Bergdís Linda, f. 1.8. 1963, BA í
íslensku og MA-nemi við HÍ og
kennari við MH.
Foreldrar Ólafs Helga eru Kjartan
T. Ólafsson, f. 24.7. 1924, fyrrv. vél-
fræðingur við írafossvirkjun, nú á
Selfossi, og k.h., Bjarney Ágústa
Skúladóttir, f. 26.10.1926, húsmóð-
ir.
Ætt
Systir Kjartans er Ragnhildur,
móðir Áma R. Árnasonar alþm.
Kjartan er sonur Ólafs Helga, út-
vegsb. á Látmm í Aðalvík Hjálmars-
sonar, b. í Stakkadal Jónssonar.
Móðir Hjálmars var Ásta Theóphíl-
usdóttir, b. á Látmm Ólafssonar.
Móðir Ástu var Gróa Árnadóttir frá
Látmm. Móðir Gróu var Ásta Guð-
mundsdóttir, pr. á Stað Sigurðs-
sonar, pr. í Holti Sigurðssonar, pró-
fasts þar Jónssonar, prófasts í
Vatnsfirði Arasonar, sýslumanns í
Ögri Magnússonar prúða. Móðir
Sigurðar Sigurðssonar var Helga
Pálsdóttir, prófasts í Selárdal
Björnssonar, sýslumanns á Bæ
Magnússonar, bróður Ara. Móðir
Helgu var Helga Arngrímsdóttir,
lærða á Mel Jónssonar og Sólveigar
kvennablóma Gunnarsdóttur,
sýslumanns á Víðivöllum. Móðir
Ólafs Helga á Látmm var Ragnhild-
ur Jóhannesdóttir frá Stakkadal en
móðir hennar var Herborg, systir
Sigurfljóðar, langömmu Árna
Gunnarssonar, fyrrv. aJþm, og syst-
ir Zakaríasar, langafa Rannveigar
Guðmundsdóttur alþm. Herborg
var einnig systir Ingibjargar,
langömmu skáldkvennanna Fríðu
og Jakobínu Sigurðardætra. Her-
borg var dóttir Zakaríasar, b. í
Stakkadal Zakaríassonar. Móðir
Zakaríasar yngri var Björg, systir
Gróu. Móðir Kjartans var Sigríður
Þorbergsdóttir, b. í Efri-Miðvík í
Aðalvík Jónssonar og Oddnýjar
Finnbogadóttur.
Bjarney Ágústa er dóttir Skúla,
skipasmíðameistara á fsafirði
Þórðarsonar Gmnnvíkings, fræði-
manns á ísafirði Þórðarsonar,
alþm. í Hattardal, bróður Hjalta,
föður Magnúsar á Þröm (Ljósvík-
ings). Þórður alþm. var sonur
Magnúsar, pr. á Rafnseyri Þórðar-
sonar. Móðir Þórðar alþm. var
Matthildur Ásgeirsdóttir, pr. í Holti
Jónssonar, bróður Þórdísar, móður
Jóns forseta. Móðir Matthildar var
Rannveig Matthíasdóttir, stúdents
‘á Eyri Þórðarsonar, ættföður
Vigurættar Ólafssonar, ættföður
Eyrarættar Jónssonar.
Móðir Bjarneyjar Ágústu var Sig-
rún Finnbjörnsdóttir, skipasmiðs í
Hnífsdal, bróður Hildar, tengda-
móður Einars Guðfinnssonar eldra
í Bolungarvík, afa Einars K. Guð-
finnssonar alþm. Finnbjörn var
sonur Elíasar, í Æðey Eldjárnsson-
ar. Móðir Sigrúnar var Ketilríður,
dóttir Árna Sigurðssonar í Skáladal
í Aðalvfk og Katrínar Gísladóttur frá
Þverdal.
Ólafur Helgi og Þórdís sækja
tónleika Rollings Stones í Glasgow
þessa dagana.
Stórafmæli
75 ára
Sigurbjörg Bergkvistsdóttir,
Hamarsgötu 8, Fáskrúðsfirði.
70 ára
Kristfn B. Bjamadóttir,
Þórsgötu 2, Patreksfirði.
Kristfn Ragnheiður Jakobsdóttir,
Klapparstíg 2, Dalvík.
Theódór Guðmundsson,
Vesturgötu 26a, Reykjavík.
60 ára
Anna Antoníusdóttir,
Berunesi 1, Djúpavogi.
Inga Marta Ingimundardóttir,
Flétturima 30, Reykjavík.
Kristný Pálmadóttir,
Völusteinsstræti 22, Bolungarvík.
50ára
Atli ísleifúr Ragnarsson,
Vesturbraut 16, Grindavík.
Dóra Kristín Halldórsdóttir,
Suðurengi 23, Selfossi.
FelixJósafatsson,
Sunnubraut 10, Dalvík.
Halina Galezka,
Hrannargötu 5, Keflavík.
Helga Stefánsdóttir,
Austurbraut 12, Höfn.
Jóhannes Valgeir Reynisson,
Vesturfold 48, Reykjavík.
Jón Ingólfur Magnússon,
Blönduhllð 22, Reykjavík.
Kristjana R. Þorbjörnsdóttir,
Fannafold 237, Reykjavík.
Sigurður Gunnarsson,
Hringbraut 2b, Hafnarfirði.
Sæmundur Jón Hermannsson,
Ugluhólum 8, Reykjavík.
40ára
Alexander Björn Gíslason,
Boðagranda 7, Reykjavík.
Dagnija Medne,
Árnesi, Varmahlíð.
Elzbieta Szelag,
Fannarfelli 12, Reykjavík.
Friðrún Hadda Gestsdóttir,
Hellisbraut 34, Króksfjarðarnesi.
Guöjón Baldursson,
Hæðargarði 46, Reykjavík.
Guðmundur Albertsson,
Bollagörðum 22, Seltjarnarnesi.
Helga Sigríður Runólfsdóttir,
Vallarbraut 19, Seltjarnarnesi.
Hrönn Ingvarsdóttir,
Hlíðarvegi 24, (safirði.
Oddný Steinunn Kristinsdóttir,
Skessugili 6, Akureyri.
Ólafía Ásgeirsdóttir,
Skerplugötu 11, Reykjavík.
Rúnar Þór Bjarnþórsson,
Furugrund 14, Kópavogi.
Sjöfn Sigurgfsladóttir,
Álfaheiði 32, Kópavogi.
Vignir Sigurólason,
Baughóli 44, Húsavík.
Fimmtíu ára
Filippía Þóra Guðbrandsdóttir
geislafræðingur og skrautritari
Filippía Þóra Guðbrandsdóttir
geislafræðingur, Rekagranda 4,
Reykjavík, er fimmtug í dag.
Starfsferill
Filippía Þóra fæddist á Siglufirði
og ólst þar upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá MA1973 og útskrifaðist frá
Röntgentæknaskóla fslands 1976.
Filippía vann á röntgendeild
Borgarspítalans í Fossvogi 1976-80,
var deildarstjóri röntgendeildar
Sjúkrahússins á Húsavík 1981-94,
starfaði hjá Læknisfræðilegri
myndgreiningu í Domus Medica
1994-2002, starfaði við Sjúkrahús
Akraness 2002-2003 og starfar nú
við myndgreiningadeild Landspít-
ala Háskólasjúkrahúss við Hring-
braut.
Filippía Þóra hefur jafnframt lagt
stund á skrautritun sem hún nam
af föður sínum en hann var einn
færasti skrautritari landsins. Hún
hélt sína fyrstu sýningu á skrautrit-
uðum verkum sl. desember en sýn-
ingin bar yfirskriftina Bækur, boð-
orð, Laxness og Einar Ben.
Fjölskylda
Unnusti Filippfu Þóru er Jóhann
Skarphéðinsson, f. 29.3. 1953, end-
urskoðandi. Hann er sonur Skarp-
héðins Guðmundssonar, fyrrv.
kaupfélagsstjóra, og Estherar A. Jó-
hannsdóttur húsmóður.
Börn Filippíu Þóru eru Freyja, f.
27.6. 1974, nemi, en börn hennar
eru Þórunn, f. 13.12. 1994, og Guð-
jón Freyr, f. 7.5.1999; Hlynur Þór, f.
12.9.1977, sjómaður en sonur hans
er Davíð Þór, f. 19.12. 2000; Berg-
lind Ósk, f. 26.5. 1980, nemi og
föðrunarfræðingur en maður
hennar er Stefán Pálsson, f. 24.6.
1979 og er dóttir þeirra Thelma Sif,
f. 12.5. 2003; María Sif, f. 22.5.1990,
grunnskólanemi.
Systkini Filippíu Þóru eru Skúli, f.
3.9. 1940, vélstjóri, búsettur í
Reykjavík; Hildur, f. 28.11. 1941,
búsett í Reykjavík; Anna Gígja, f.
22.5. 1946, búsett í Reykjavík;
Magnús, f. 16.12.1948, bifvélavirki,
búsettur í Reykjavík; Kristín, f. 30.9.
1950, kennari, búsett í Reykjavík;
Þorsteinn, f. 14.9. 1962, rekstrar-
hagfræðingur, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Filippíu 'Þóru: Guð-
brandur Magnússon, fyrrv. kennari
og skólastjóri Gagnfræðaskólans á
Siglufirði, og Anna Júlía Magnús-
dóttir húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Guðbrands voru
Magnús Steingrímsson, b. og
hreppstjóri á Hólum í Steingríms-
firði, og k.h., Kristín Árnadóttir
húsfreyja.
Faðir Önnu Júlíönu var Magnús,
sjómaður í Vestmannaeyjum Sig-
urðsson, b. á Lambhúshóli Sigurðs-
sonar. Móðir Magnúsar var Þor-
björg Sveinsdóttir.
Móðir Önnu Júlíönu var Filippía,
systir Rósu, móður Magnúsar Pét-
urssonar píanóleikara. Filippfa var
dóttir Þorsteins, útvegsb. á Upsum
Jónssonar, sjómannafræðara á
Mínervu Magnússonar. Móðir Þor-
steins var Rósa Sigríður, systir
Snjólaugar Guðrúnar, móður Jó-
hanns Sigurjónssonar skálds. Snjó-
laug var einnig móðir Jóhannesar
Baldvins, afa Benedikts Ámasonar
leikstjóra, og móðir Snjólaugar,
móður Sigurjóns, fyrrv. lögreglu-
stjóra í Reykjavík, föður Jóhanns,
forstjóra Hafró. Rósa Sigríður var
dóttir Þorvalds, b. á Krossum á Ár-
skógsströnd, Gunnlaugssonar, b. á
Hellnum Þorvaldssonar. Móðir
Rósu Sigríðar var Snjólaug Bald-
vinsdóttir. Móðir Filippíu Þor-
steinsdóttur var Anna Björg, dóttir
Benedikts Jónssonar úr Keldu-
hverfi.
Andlát
Ingileif Káradóttir,
Droplaugarstöðum, áður Espigerði
2, Reykjavík, lést að kvöidi föstud.
29.8.
Jón Pálmason, Ölduslóð 34,
Hafnarfirði, lést aðfaranótt
sunnud. 31.8.
Guðrún Agústa Samsonardóttir,
áður til heimilis á Patreksfirði,
andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði,
fimmtud. 28.8.
Birgitta Guömundsdóttir,
Kleppsvegi 30, lést aðfaranótt
föstud. 29.8.
Jarðarfarir
Hildur Arndfs Kjartansdóttir,
Ljósheimum 16b, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju
þriðjud. 2.9. kl. 13.30.
Helga Eyjólfsdóttir, Silfurbraut 8,
Hornafirði, verður jarðsett frá
Hafnarkirkju þriðjud. 2.9. kl. 14.00.