Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Side 4
4 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 Notaðir bílar hjá Suzuki bilum hf. Suzuki Liana 2WD, 5 d., bsk. Skr. 2/02, ek. 22 þús. Verð kr. 1350 þús. Suzuki Baieno Wagon 4x4. Skr. 7/99, ek. 59 þús. Verð kr. 1140 þús. Suzuki Wagon R+ 4x4. Skr. 5/00, ek. 13 þús. Verð kr. 890 þús. Nýr borgarlögmaður REYKJAVÍK: Borgarráð hefur samþykkt að ráða Vilhjálm H. Vilhjálmsson í starf borgarlög- manns í stað Hjörleifs B. Kvar- ans. Vilhjálmur er fæddur 1950. Hann lauk lögfræðiprófi frá Há- skóia (slands 1976 og hefur verið sjálfstætt starfandi lög- maðurfrá 1980 en einnig starf- að í Félagsdómi og við kennslu. Fiskeldi í umhverfismat UMHVERFI: Umhverfisráðu- neytið hefur úrskurðað að fram skuli fara umhverfismat vegna sjókvíaeldis í Seyðis- firði. Kæra barst frá Óttari Yngvasyni hrl. 30. apríl 2003 vegna ákvörðunar Skipulags- stofnunar frá 4. apríl 2003 um að ekki skuli framkvæmt mat á umhverfisáhrifum vegna eldis á laxi, regnbogasilungi og þorski í sjókvíum í Seyðis- firði, allt að 8.000 tonnum á ári. Úrskurður ráðuneytisins er hins vegar sá að fyrirhugað eldi Austiax ehf. skuli háð mati á umhverfisáhrifum þar sem líklegt sé að fram- kvæmdin kunni að hafa í för með sér umtalsverð umhverf- isáhrif. Tvö lögfræðiálit benda tilþess að Norðlingaölduveita geti ekki strandað í hreppsnefnd: Ekki á valdi hreppsnefndar að hafna framkvæmd jf m I Hyundai Santa-Fe 2,4, bsk. Skr. 2/01, ek. 42 þús. Verð kr. 1760 þús. Nissan Primera Comfort, bsk. Skr. 7/01, ek. 25 þús. Verð kr. 1370 þús. M-Benz A-140, bsk. Skr. 7/02, ek. 35 þús. Verð kr. 1490 þús. Peugeot 406 2,0, 3 d., ssk. Skr. 11/98, ek. 72 þús. Verð kr. 1480 þús. Alfa Romeo 156, bsk. Skr. 9/98, ek. 60 þús. Verðkr. 1180 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $SUZUKI ---////.-----------j SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, s(mi 568-5100 | FRÉTTAUÓS f ÓlafurTeiturGuðnason W olafur@dv.is Getur 500 manna sveitarfélag stöðvað framkvæmd sem stjórnvöld telja þjóðhagslegt framfaramál og hefur mikla þýðingu fyrir atvinnumál í margfalt stærra bæjarfélagi? Ótrúlega erfiðlega hefur geng- ið að fá skýr svör við þessari spurningu eftir að Skeiða- og Gnúpverjahreppur lýsti sig andvígan áformum Landsvirkj- unar um Norðlingaölduveitu. í fyrstu virðist blasa við að sveit- arfélag á hverjum stað hljóti að geta samþykkt eða hafnað fram- kvæmdum að vild og á eigin for- sendum. Þannig er til dæmis kveð- ið á um sjálfsákvörðunarrétt sveit- arfélaga f Stjórnarskrá lýðveldis- ins. f 78. grein hennar segir: „Sveit- arfélög skulu sjálf ráða málefnum sínum eftir því sem lög ákveða." Hvað Norðlingaöidu snertir liggja hins vegar fyrir tvö lögfræði- álit sem benda eindregið til þess, að andstaða Skeiða- og Gnúp- verjahrepps skipti litlu sem engu. f fljótu bragði virðist hreppurinn eiga einkum tvö úrræði; í fyrsta lagi að hafna framkvæmdinni við gerð skipulags og í öðru lagi að synja um framkvæmdaleyfi. Hvor- ug leiðin er hins vegar fær, að áliti Páls Hreinssonar lagaprófessors. Páll, sem kennir bæði stjórnsýslu- rétt og sveitarstjórnarrétt við laga- deild HÍ, vann fyrir ári tvö lög- fræðiálit fyrir iðnaðarráðuneytið sem varpa ljósi á málið. Miðhálendið Framkvæmd á borð við Norð- lingaölduveitu verður að vera í samræmi við samþykkt skipulag fyrir svæðið. Gerð skipulags er alla jafna á forræði hvers sveitarfélags, sem þar með hefur oftast nær vald til að koma í veg fyrir margs konar framkvæmdir. Um miðhálendið - þar sem Norðlingaölduveita er fýrirhuguð - gilda hins vegar sérstakar reglur. Samvinnunefnd um miðhálendið, skipuð 12 fulltrúum af öllu land- inu, sér um gerð svæðisskipulags þar. Einstök sveitarfélög hafa ekki my.s. 4M-08 pMiemwm# Á MIÐHÁLENDI: Tólf manna samvinnunefnd, skipuð fulltrúum af öllu landinu, gerir svæð- isskipulag fyrir miðhálendið. Að mati Páls Hreinssonar lagaprófessors er Skeiða- og Gnúp- verjahreppi skylt að taka framkvæmdir á svæðisskipulagi upp í aðalskipulag. Að því loknu sé hreppnum einnig skylt að veita framkvæmdaleyfi. © Fyrtl^ö, <§ u»«e«“ UA^vr m tLSAw ILim neitunarvald gagnvart þeirri vinnu og útlit er fyrir að breytt Norð- lingaölduveita hljóti náð fyrir nefndinni eins og eldri gerð henn- ar. „En bíðum við - hvað með aðal- skipulag?" er þá spurt. Jú, aðal- skipulag er eftir sem áður á hendi hvers sveitarfélags. En þá kemur að þætti Páls Hreinssonar. Páll kemst að þeirri niðurstöðu að aðalskipulag verði að vera í samræmi við svæðisskipulag. „Taka verður [...] upp í aðalskipu- lag þær framkvæmdir sem ákveðnar hafa verið með svæðis- skipulagi." Hendur sveitarstjórn- arinnar eru því bundnar. Ástæðan er tvíþætt að sögn Páls: í fyrsta lagi sé skýrt kveðið á um það í lögum að samræmi skuli vera á milli svæðis-, aðal- og deiliskipu- lags. í öðru lagi sé ljóst að svæðis- skipulag gangi framar aðalskipu- lagi. Framkvæmdaleyfi Eftir stendur þá framkvæmda- leyfi sem skylt er að afla hjá sveit- arstjórn áður en hafist er handa við framkvæmdir á borð við Norð- lingaölduveitu. Liggur kannski neitunarvald þar? Páll Hreinsson fjallar um þetta í annarri álitsgerð fýrir iðnaðar- ráðuneytið og kemst að þeirri at- hyglisverðu niðurstöðu að ákvörð- un um veitingu framkvæmdaleyfis sé ekki háð „frjálsu mati“ sveitar- stjórnar. í lögum eru tilgreind tvö skilyrði fyrir því að gefa megi út leyfi fyrir framkvæmd: hún verði að vera í samræmi við skipulagsáætlanir og úrskurð um mat á umhverfisáhrif- um þar sem það á við. Páll segir að þar sem um sé að ræða „lög- bundna stjórnvaldsákvörðun" verði að líta svo á að þetta sé tæm- andi upptalning og sveitarstjórn sé þar með ekki aðeins heimilt heldur beinlínis skylt að veita fram- kvæmdaleyfi, sé þessum tveimur skilyrðum fullnægt. Óhjákvæmilegt er að draga þá ályktun af þessum tveimur lög- fræðiálitum að engin sveitarstjórn hafi vald til að koma í veg fyrir framkvæmd á miðhá- lendinu af pólitískum ástæðum. Páll segir að þetta svipti sveitar- félögin ekki sjálfsákvörðunarrétti: „Fljótt á Iitið virðist framangreind niðurstaða svipta sveitarstjórn öll- um stjórnunarheimildum á þessu sviði. Það er hins vegar ekki rétt. Sveitarstjórn stjórnar landnotkun með skipulagsáætlunum að því leyti sem lög fela þeim slíkar stjórnunarheimildir.“ Eins og áður segir er skipulags- valdið hins vegar ekki á hendi hverrar sveitarstjórnar á miðhá- lendinu; þær eru bundnar af svæð- isskipulagi tólf manna samvinnu- nefndar og sjálfsákvörðunarréttur- inn virðist því fýrir bf. Marklaus andstaða Óhjákvæmilegt er að draga þá ályktun af þessum tveimur lög- fræðiálitum að engin sveitarstjórn hafi vald til að koma í veg fyrir framkvæmd á miðhálendinu af pólitiskum ástæðum. Það verði ekki gert nema á tæknilegum for- sendum, til dæmis ef framkvæmd samræmist ekki úrskurði um mat á umhverfisáhrifum. Sjaldan eða aldrei mun hafa reynt á þau álitmál sem hér eru uppi - enda væri vart þörf á lög- fræðiáliti ef svo væri. Og eins og gjarnan er með lögfræðileg álita- mál má gera ráð fyrir að fyrr eða síðar reyni á þau fyrir dómstólum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.