Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Blaðsíða 9
i :• ■ ' i 'W.Ví Síminn kaupir TÆKNI: Síminn hefur fest kaup á fjar- kennslu- og netfundakerfinu Webdemo af Dulkóðun Islandia. Mun kerfið gera starfsmönnum Símans um allt land kleift fara á innra net Símans og sækja þar námskeið sem haldin eru fyrir starfsmenn. Geta starfsmenn þá setið námskeið í rauntíma og feng- ið hljóð og mynd senda beint. Ríkið selur land LANDAKAUP: Ríkissjóður hefur selt Kópavogsbæ rúmlega 13 hektara landspildu við Þinghól úr landi Kópa- vogshælis í Kópavogi, auk nokkurra húseigna sem eru á landinu sem selt var. Ritað var undir samninginn í Gerðarsafni í Kópavogi í gær. Ríkis- sjóður seldi eignirnar á 260 milljónir króna og kaupverðið var greitt við undirritun. Sala Sementsverksmiðjunnar hf: Gengið frá í þessum mánuði Ekki er enn búið að ganga end- anlega frá samningum vegna sölu á Sementsverksmiðjunni á Akranesi. Verksmiðjan var seld með fyrirvara í júlí og var ráð- gert að klára málið um mánaða- mótin júlí-ágúst. Páll Magnússon, aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að nú sé stefnt að því að klára málið fyrir lok september. Hann sagði það hafa taflð frágang málsins að erfitt hafi verið að ná saman mönnum sem að þessu koma. Hann sagði ekkert hafa komið inn á borð ráðuneytis- ins sem benti til að tafir væru á málinu vegna þess að snurða hefði hlaupið á þráðinn. Framkvæmdanefnd um einka- væðingu og Islenskt sement ehf., sem er í eigu Framtaks íjárfestinga- banka hf„ BM Vallár ehf., Norcem AS og Björgunar ehf„ náðu sam- komulagi um kaup fjárfestanna á öllum hlutabréfum í Sementsverk- smiðjunni hf. í júlí. Söluverð er 68 milljónir króna en nafnverð hluta- bréfa ríkisins í verksmiðjunni var Skrifa átti undir samn- inga um mánaðamótin júií/ágúst skráð 450 milljónir króna. Það var sú tala sem nefnd var í auglýsing- um Framkvæmdanefndar um einkavæðingu þegar hlutabréfin voru auglýst til'sölu fyrr á þessu ári. Ástæða lágs söluverðs var m.a. sögð bág staða verksmiðjunnar, en skattalegt tap hennar var um 700 milljónir króna og þar af um 500 milljónir síðan árið 2000. Heildar- skuldir Sementsverksmiðjunnar voru taldar vera um 1.100 milljónir króna og þar á móti eru eignir og óinnheimtar viðskiptakröfur. í tengslum við söluna mun rfkis- sjóður yfirtaka lífeyrisskuldbind- ingar og yfirtaka tilteknar eignir í eigu Sementsverksmiðjunnar sem tengjast ekki rekstri hennar. Ekki hefur fengist uppgefið hvaða eignir eru undanskildar en fyrirtækið á hluti í nokkrum fyrirtækjum, þar á meðal Speli. hkr@dv.is SEMENT: Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið gerir ráð fyrir að gengið verði endanlega frá sölu Sementsverksmiðjunnar hf. á Akranesi fyrir lok þessa mánaðar. Reiknivél Hjartaverndar á www.hjarta.is: Fólk getur reiknað hættu á hjarta- og æðasjúkdómum Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra opnaði í gær nýja vefsíðu Hjartaverndar þar sem kynnt er reiknivél fyrir áhættumat á kransæðasjúkdómi. Sérfræðingar Hjartaverndar hafa þróað reiknivélina þar sem setja má inn áhættuþætti fyrir hjarta- og æðasjúkdóma og reikna út áhættu einstaklinga á fá kransæðasjúkdóm á næstu 10 árum. hættulíkanið byggist á rannsóknum Hjartavernd- ar á síðustu 35 árum og er hluti af markvissu starfi Hjartaverndar við að koma forvörnum á hjarta- og æðasjúkdómum til almennings. Áhættureiknivél er ein leið til Hjartaverndar til að koma niður- stöðum úr rannsóknum sínum til almennings. Áhættureiknivélin er á slóðinni www.hjarta.is og er öllum opin. Reiknivélin gefur fólki mögu- leika á að sjá hversu mikilli áhættu það er í með tilliti til hjarta- og æða- sjúkdóma. Til þess að reiknivélin geti reiknað út þessa áhættu þarf að setja inn upplýsingar um mælda áhættuþætti og blóðfitu, blóðþrýst- ing, hæð, þyngd auk upplýsingar um reykingar. Þess ber að geta að niðurstöður eru ekki sjúkdóms- greining á nokkurn hátt. Reiknivélin miðar við einstaklinga á aldrinum 35-75 ára. Niðurstöður eru ekki marktækar fyrir þá sem hafa fengið kransæðasú'flu, hafa farið í hjarta- aðgerð eða í kransæðaútvíkkun. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 9 mmammiBaaBsam v TERRA NOVA -JSOL - 23 ARA OC TRAUSTSIItS VCRB ' • „iaÉ KttMÉÉÍÉll Hver vinnur ferð til London eða Kaupmannahafnar? Nú fer aö draga til tíðinda í átakinu okkar “Notaðu fríið til að hætta að reykja!”, því 26. september verður dreginn út heppinn þátttakandi, sem vinnur flugfar fyrir 2 til London eða Kaupmannahafnar. Allir þeir, sem skráðu sig í átakið á sínum tíma, eiga möguleika á að vinna ferðina að uppfylltum vissum skilyrðum, en þau eru: 1. Að hafa skráð sig í átakið fyrir 15. júlí sl. 2. Að hafa hætt að reykja á tímabilinu og vera ennþá reyklaus. 3. Að geta tilnefnt tvö vitni, sem staðfesta að viðkomandi hafi hætt að reykja og sé enn reyklaus. 4. Að fara inn á dv.is og staðfesta þátttöku sína, með því að smella á þar til gerðan reit og fylgja síðan fyrirmælunum! Meðal annars þarf að rekja í stuttu máli, hvernig til tókst í átakinu! Missið ekki af þessu frábæra tækifæri, þ.e.a.s. þið sem skráðuð ykkur á sínum tíma. Ef þið vitið um einhverja, sem skráðu sig í átakið, þá ættuð þið að láta viðkomandi vita hvað stendur til, svo að þau missi ekki af tækifærinu! ... staðfestu þáttöku fyrir september Nicöti Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notad sem hiá sfni til ad hætta eöa draga úr reykingum. Þaö inniheldur nikótln sem losnar þegar iw, w i • « mi • i .ii .v.ii i y v.wi » -*• —«1 'w • WIIW.IIMIII, W.W. V* II I 1« | I IW I MV/ * w I II, wy IUVI , I 111\0 IU U y UI 111 I ^ U I I I Iwllll II slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótfnlyf nema í samráði við lækni. Nicotinell tyQgigúmmí er ekki ætlað'börnum yngri en 15 ára nema f samráði við lækm. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem............................................. r sem börn hvorki ná til né sjá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.