Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2003, Qupperneq 20
48 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 4 „ Tilvera Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl Netfang: tilvera@dv.is Sfmi: 550 5824-550 5810 Madonna kannaðist ekki við Enid Blyton BARNABÓKAHÖFUNDUR: Madonna verður seint talin til bókaorma þó að hún hafi sjálf gefið út sína fyrstu barnabók, The English Roses, sem kom í hillur bókaverslana í byrjun vikunnar. Lítil bókhneigð poppdrottn- ingarinnar þótti koma vel í Ijós þegar hún var spurð um það við kynningu bókar sinnar um helgina hvernig henni fyndist það að vera lýst sem hinni nýju Enid Blyton. „Hver er það?" spurði Madonna og sagðist aldrei hafa heyrt hennar getið sem rithöfundar. Blyton var, eins og flestir vita, einn þekktasti barnabókahöf- undur heims og á heiðurinn að sígildum ævintýraflokkum, til dæmis um brúðustrákinn Dodda og hin fimm fræknu svo eitthvað sé nefnt. Madonna sagði að einhverra hluta vegna hefði hún misst af Blyton en hennar eftirlæti hefði verið Bangsímon eftir breska rithöfundinn AA Milne. LfTTÐ BÓKHNEIGÐ: Madonna verður seint talin til bókaorma. Vestur-íslendingará vegum Snorra-plús: ‘Hafa mikinn áhuga á landi forfeðranna Nokkrir frændur okkar og frænkur úr Vesturheimi eru stödd á landinu til að kynna sér sögu, tungu, matarvenjur og atvinnulíf þjóðarinnar - eftir því sem hægt er á tveimur vik- tum. Líka til að leita uppi ætt- ingja og treysta tengslin. Þetta er átta manna hópur sem hér er á vegum nýs samstarfsverkefnis Nor- ræna félagsins og Þjóðræknisfélags ís- lendinga í Vesturheimi. Verkefnið ber heitið Snorri-plús. Hópurinn tekur þátt í fjölbreyttri dagskrá en milli atriða gafst smátækifæri til að ræða við tvo af gestunum. Við byrjum þó á verkefnis- stjóranum, Ástu Sól Kristjánsdóttur: „Við höfum verið með Snorraverk- efnið undanfarin fimm sumur sem hef- ur gefið ungu fólki af íslenskum upp- runa í Norður-Ameríku tækifæri til að heimsækja land forfeðra og -mæðra, kynnast ættingjum sínum hér á landi JL og mynda varanleg tengsl við land og þjóð. Alls hafa 75 ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum komið á vegum Snorraverkefnisins en við urðum líka vör við mikinn áhuga þeirra eldri á að vera með. Við viðruðum því þá hug- mynd á þingi Þjóðræknisfélags íslend- inga í Vesturheimi vorið 2001 að bjóða þrjátíu ára og eldri upp á svipaða ferð og fengum dynjandi lófaldapp og húrrahróp um leið og við komum henni á framfæri. Nú er sú hugmynd sem sagt komin til framkvæmda." Elda íslenskan mat Snorra-plús-hópurinn hlýðir meðal annars á röð fyrirlestra í Þjóðmenning- arhúsinu um sögu Islands, fslenska menningu, samfélag og viðskiptalíf, auk þess sem famar em heimsóknir á Alþingi og í forsætisráðuneytið. Meðal fyrirlesara em Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur, Sigurborg Hilmarsdótt- ir íslenskufræðingur, Ari Trausti Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur og Árni Björnsson þjóðháttafræðingur, sem ræða hver um sína grein, og Róbert Trausti Ámason, fv. sendiherra, gefur þátttakendum í verkefriinu innsýn í ís- lenskt atvinnulíf og Svanborg Sigmars- dóttir stjómmálafræðingur mun fræða fólkið um íslenskt samfélag. Þau í hópnum sem em útivinnandi vestra fá að fara í svipuð fyrirtæki og þau vinna hjá. Einn þátttakandinn er til dæmis kennari og hún fer í MR og Aust- urbæjarskólann og kokkurinn f hópn- um fær að kynnast starfsbræðmm sfn- um í Rúgbrauðsgerðinni og í Hótel- og matvælaskóla Menntaskólans í Kópa- vogi. Gestimir munu líka kynna sér ís- lenskar hefðir í matargerð og spreyta sig á matreiðslu úr íslensku hráefni því að Þorfinnur Ómarsson ætlar að elda með þeim eitthvað gott og svara fyrir- spumum. Út í Drangey Ásta Sól segir að reynslan af Snorra- verkefninu sýni að þátttakendur verði hugfangnir af landi og þjóð oghafi mik- inn hug á að rækta áfram tengslin við Island. Að hennar sögn stendur til að fara með þennan hóp að Gullfossi og Geysi og keyra þaðan norður á Hofsós því að þriggja daga dagskrá hefur verið skipulögð í Skagafirði. „Vesturfarasetr- ið verður miðstöðin og auk þess að skoða sýningamar þar verður farið á Síldarminjasafhið, í hestaréttir og út í Drangey. Úr Skagafirðinum verður haldið til Akureyrar og púlsinn tekinn á höfuðstað Norðurlands. Síðustu sólar- hringunum verður svo varið í Hafnar- firði og við vonum að fólkið fái rólegan tíma í lokin til að hafa samband við ein- hveija ættingja. Það fékk, hvert um sig, ættartré í gær og þar er margt forvitni- legt. Það óskar þess mjög að geta haft einhvers konar aðgang að íslendinga- bók.“ Heim til Hóla Elva Jónasson er einn gestanna að vestan. Hún talar góða íslensku. „ís- lenskan er mitt móðurmál og ég talaði hana eingöngu þar til ég fór í skólann vestra, sex ára gömul. Eftir það sögðu mamma og pabbi mér að tala bara ensku heima svo að yngri bræður mín- ir lærðu hana. Svo tók ég bara upp þráðinn aftur fyrir fimm ámm. En eig- inmaður minn talar hreina íslensku." Fred Bjamason talar ekki málið en kveðst hafa haft áhuga á landinu frá fyrstu tíð. Hann kom til íslands með fjölskyldu sinni árið 1995 og fór þá hringinn. „Við fundum nokkra ættingja þá úr móðurætt en nú veit ég um nokkra úr föðurættinni. Þeir búa á Rangárvöllum og í Hrunamanna- hreppi, meðal annars." Fred kveðst hafa verið á fyrirlestri hjá ættfræðingi og er kominn með ný símanúmer hjá ættingjum sem hann ætlar að hringja í. Elva kom fyrst til Islands í fyrra. „Við komum fjögur saman sem vomm nem- endur í íslensku við Háskólann í Mani- toba. Skólinn styrkti okkur til fararinn- ar. Ég vildi endilega koma aftur og með manninn með mér. Afi hans var söng- maður í Hóladómkirkju áður en hann fór til Kanada og á ferð okkar um Skagafjörð ætlum við að stansa þar og taka lagið." gun@dv.is í matarhléi: Verkefnisstjórinn, Ásta Sól, ásamt þeim Fred og Elvu. GJÖRNINGUR: Svipmynd frá gjörningi sem Ásdís Sif Gunnarsdóttur fremur. Gjörningiir íglugga Safh, samtímalistasafti á Lauga- vegi 37, hefur verið starfandi sfðan í vor og fjöldi gesta komið í heimsókn. Nú stendur til að hefja vetrarstarfið annað kvöld með opnun heimasíðu og gjörningi um kvöldið. Gjömingurinn, sem hefst kl. 20.00 á fimmtudagskvöldið, verður í glugga Safns sem vísar að Laugaveginum. Þar mun Ásdís Sif Gunnarsdóttir koma fram en hún er efnilegur lista- maður sem dvalið hefur í Bandaríkj- unum við listnám undir stjóm Pipilotti Rist og Paul MacCarthy. Ás- dís hefur aðallega framið gjöminga og gert innsetningar sem endur- spegla mannleg samskipti og tilfinn- ingar. Hún nefnir gjöminginn ÁrsU'ð- imar. Gestum er bent á að koma tím- anlega og klæða sig eftir veðri þar sem þeir þurfa að standa á Laugaveg- inum til að njóta gjömingsins sem varir í um hálfa klukkustund. Fram undan í Safni er meðal annars sýning á nýju verki eftir breska listamanninn Adam Barker Mill og kynning á lista- manninum Hreini Friðfinnssyni. Á nýrri heimasíðu, www.safn.is, er að finna frekari upplýsingar um dag- skrá, ýmsar upplýsingar um safn- eignina og annað sem viðkemur Safríi. Aðgangur að Safríi er ókeypis, það er opið miðvikudaga til föstudaga frá kl. 14-18 og 14-17 laugardaga og sunnudaga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.