Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Page 4
4 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003 Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. Suzuki Baleno Wagon 4x4. Skr. 12/99, ek. 65 þús. Verð kr. 1150 þús. Grand Vitara 2,0, bsk. Skr. 8/00, ek. 62 þús. Verð kr. 1650 þús. Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk. Skr. 6/02, ek. 25 þús. Verð kr. 2070 þús. Ford Taurus GL st. 3,6 ssk. Skr. 7/96, ek. 123 þús. Verð kr. 690 þús. Honda Civic Sí 3 d., bsk. Skr. 8/98, ek. 81 þús. Verð kr. 730 þús. Peugeot 406 2,0 4 d., ssk. Skr. 4/98, ek 47 þús. Verð kr. 1050 þús. Honda HRV Sport, bsk. Skr. 4/99, ek. 91 þús. Verð kr. 1080 þús. Kia Sportage 2,0, bsk Skr. 6/02, ek. 42 þús. km. Verð kr. 1550 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI —////---------;---- SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100 Eignatjón í eldsvoða ELDSVOÐI: Töluvert eignatjón varð í raðhúsi við Álfhólsveg í Kópavogi í gær eftir að eldur kom upp í húsinu. Slökkviliði barst tilkynning um hálffjög- urleytið að eld legði út um glugga á húsinu. Slökkvilið var kvatt á staðinn og þegar að var komið var mikill reykur um allt hús. Slökkviliðsmenn sáu eld í stól undir stofu- glugga og brutu sér leið inn í stofuna. Fjórir reykkafarar fóru fyrstir inn en fljótlega varð Ijóst að húsið var mannlaust. Greiðlega gekk að ráða niður- lögum eldsins og hófst þá reykræsting. Töluverðar skemmdir urðu á innan- stokksmunum; einkum í stofu þar sem líklegt þykir að eldur- inn hafi komið upp. Áfrýjar dómi DÓMSMÁb Bandaríski varnar- liðsmaðurinn, sem dæmdur var nýverið í héraðsdómi til að sæta 18 mánaða fangelsi fyrir tilraun til manndráps, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. Varnar- liðsmaðurinn mun halda fast í kröfu sína um sýknu og hyggst láta reyna á neyðarvarnarákvæði í 12. grein almennra hegningar- laga. Mbl. greindi frá. Samfylkingin eyddi 81 milljón í kosningabaráttuna: Fór 30 milljónir fram úr áætlun ALLT KLÁRT: Það er ekki gefins að tryggja að kjósendur séu sífellt minntir á réttan málstað vikurnar fyrir kosningar. Kosningabaráttan kostaði Sam- fylkinguna um 81 milljón króna en tekjur af framlögum og sölu á varningi voru um 24 milljónir. „Við gerum ráð fyrir að eyða 50 milljónum," sagði Karl Th. Birgis- son, framkvæmdastjóri Samfylking- arinnar, í mars síðastliðnum þegar DV spurði alla flokka um fyrirhugað- an kostnað við kosningabaráttuna sem þá stóð fyrir dyrum. Samkvæmt því er ljóst að flokkurinn hefur farið ríflega 30 milljónir fram úr áætlun eða 60%. „Þegar leið á baráttuna kom í ljós að þetta markmið myndi aldrei nást og þess vegna breyttust áætlanir. Niðurstaðan varð að við myndum ekki komast hjá því að eyða svipað miklu og fyrir kosningarnar 1999,“ segir Karl spurður um þennan mun. Mikið í samanburði Samfylkingin eyddi 37 milljónum vegna birtingar á auglýsingum, 7 milljónum vegna starfsmannahalds, 5 milljónum vegna fundahalda og 5 milljónum vegna kosningabaráttu „Flokkurinn stendur ágætlega undir þessu og stendur raunar bet- ur fjárhagslega en nokkru sinni fyrr/'segir Karl Th. Birgisson. ungliða. Þessir liðir skýra alls 54 milljónir af 81. Þetta eru umtalsvert hærri útgjöld en hjá hinum flokkun- um tveimur sem birt hafa uppgjör - og einnig umtalsvert meiri framúr- keyrsla. Vinstrihreyfingin - grænt fram- boð eyddi alls tæpum 33 milljónum króna, þar af 15,5 milljónum í styrki til kjördæmafélaga flokksins, og fór um það bil 1,5 milljónir fram úr áætlunum. Frjálslyndi flokkurinn eyddi rétt ríflega 13 milljónum og hafði fýrir fram áætíað að eyða 12-13 milljónum. Bent skal á að kjördæmasambönd Samfylkingarinnar ráku sjálfstæða kosningabaráttu í hverju kjördæmi (þó sameiginlega í Reykjavikurkjör- dæmunum) og er kostnaður þeirra ekki reiknaður með hér. Hið sama gildir um Vinstrihreyfinguna - grænt framboð. Á skrifstofu Framsóknarflokksins fengust þær upplýsingar að uppgjör lægi ekki enn fýrir og ekki hefði heldur verið tekin afstaða til þess í framkvæmdastjórn hvort það yrði birt opinberlega. í mars sagðist Árni Magnússon, þáverandi fram- kvæmdastjóri flokksins, gera ráð fyr- ir að flokkurinn eyddi svipað miklu og fyrir kosningarnar 1999 eða um það bil 30 milljónum. Fram kom hjá fréttastofu Útvarps í morgun að flokkurinn hefði gefið það út eftir kosningar að baráttan hefði kostað um 70 milljönir, og hefur hann sam- kvæmt því keyrt enn lengra fram úr áætíunum en Samfylkingin. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að birta opinberlega upplýsingar um kostnað flokksins af kosninga- baráttunni en reikningar flokksins verða lagðir fram í miðstjórn hans. Stendur vel „Flokkurinn stendur ágætlega undir þessu og stendur raunar betur fjárhagslega en nokkru sinni fyrr,“ segir Karl Th. Birgisson. „Þetta er svipað og fyrir kosningarnar 1999 og miðað við það er ég sáttur við þenn- an kostnað þótt ég dragi ekkert úr því að þetta er umtalsverð fjárhæð," segir Karl, spurður hvort hann telji að útgjöldin hafl verið hæfileg. Þótt segja mætti að 57 milljóna króna tap hafi verið af kosningabar- áttu Samfylkingarinnar segist Karl ekki nota hugtökin „tap“ og „hagn- að“ í þessu sambandi og bendir á að að flokkurinn hafi átt fé í sjóði áður en baráttan hófst, en lán verði tekið fyrir restinni. Opið bókhald Karl segir að upplýsingarnar séu birtar f samræmi við stefnu flokksins um opin fjármál stjórnmálaflokka. Reikningar Samfylkingarinnar verða lagðir fram á landsfundi flokksins og gildir sú regla að birtar séu upplýs- ingar um hverjir styrkja flokkinn um meira en 500.000 krónur á ári. Karl segir að til þessa hafi enginn lagt svo mikið af mörkum. olafur@dv.is Stóriðjuframkvæmdir dragbítur á aðrar greinar Viðskiptablaðið birtir í dag nið- urstöður könnunar sem það gerði meðal 30 íslenskra sér- fræðinga í efnahagsmálum. Þeir telja áhrif stóriðjufram- kvæmda hafa neikvæð áhrif á aðrar atvinnugreinar. Svarhlutfallið í könnuninni var 63% og telur helmingur þeirra að svokölluð ruðningsáhrif stóriðju- framkvæmda á íslenskan efnahag verði mikil. Þar er átt við að umfang stóriðjuframkvæmdanna verði það mikil að gefa verði slfkri holskeflu aukið rými í hagkerfinu sem muni beint og óbeint draga úr umsvifum f öðrum greinum. Sérfræðingarnir telja aðhald ríkisins of lftið sem muni leiða til enn aukinna ruðn- ingsáhrifa í efnahagslífinu á næstu árum. Þessi áhrif muni’verða f ýms- um myndum og koma niður á sam- keppnishæfni íslensks atvinnulífs, ekki síst útflutningsatvinnuveg- anna. Ástæðan er m.a. mun sterkari staða krónunnar gagnvart erlend- um gjaldmiðlum sökum mikils inn- flæðis fjármagns sem þarf vegna stóriðjuframkvæmdanna. Níu af hverjum tíu telja ríkið ekki sýna nægilegt aðhald í efnahags- málum. Þrír af hverjum fjórum þátttakendum í könnuninni telja að vegna slakrar hagstjómar ríkis og sveitarfélaga muni auknar byrðar vera lagðar á Seðlabankann. Hann þurfa því að grípa til aðhalds í formi vaxtahækkana sem verði meiri en þyrfti ef ríkið bæri fulla ábyrgð á sínum þætti í hagstjórninni. Þetta muni draga úr fjárfestingum og auka vaxtakostnað fyrirtækja. Rúm- Níu afhverjum tíu telja ríkið ekki sýna nægi- legt aðhald í efna- hagsmálum. Iega 40% telja tímabært fyrir Seðla- bankann að hækka vexti en 37% vilja halda þeim óbreyttum, en þeir hafa staðið í 5,3% í átta mánuði. Þá telur þriðjungur svarenda að hagstjórn ríkis og sveitarfélaga verði beinlínis slæm, en það er tvö- falt hlutfall þeirra sem telja hana verða góða. Tæplega 60% svarenda telja fjár- lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar ekki byggt á raunhæfum forsend- um. Spurt var um hver meginmark- mið í fjármálum ríkisins ættu að vera á komandi árum. Flestir vildu sjá lækkun rfkisútgjalda, eða rúm- lega helmingur, en 42% vildu meina að tekjuafgangur ætti að vera meg- inverkefnið. Þegar spurt var um hvaða einkunn efnahagsstefna rík- isstjómarinnar ætti að fá gáfu lang- flestir henni einkunnina C af gefn- um möguleikum frá E upp í A. hkr@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.