Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Síða 12
12 SKOÐUN MIÐVIKUDAQUR 22. OKTÓBER2003 Enn skal reynt á Norður-írlandi Kosningar til heimaþings á Norður-írlandi verða 26. nóvember. Þingið verður þá endur- reist en það og heimastjórnin voru leyst upp í fyrra. Heimastjórnin, sem helstu flokkar kaþ- ólskra og mótmælenda áttu aðild að, var leyst upp fyrir ári eftir að upp komust njósnir frska lýðveídishersins í höfuðstöðvum þingsins í Stormont. Kosningarnar í næsta mánuði eru drjúgur þáttur í þeim alvarlegu tilraunum sem nú eru gerðar til þess að koma friðarferlinu á Norður- Irlandi af stað á ný. Liður í því voru viðræður Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og Aherns, forsætisráðherra írlands, í gær við leiðtoga Sinn Fein, stjórnmálaarms írska lýðveldis- hersins, annars vegar og hins vegar leiðtoga sambandssinna á Norður-Irlandi. Grundvallaratriði í þessu samkomulagi er afvopnun Irska lýðveldishersins. Staðfest var í gær af John de Chastelain, hershöfðingja og yfirmanni nefndar um afvopnun á Norður-ír- landi, að írski lýðveldisherinn hefði eytt tals- verðu magni vopna og sprengiefnis. Um væri að ræða meira magn en lýðveldisherinn hefði áður losað sig við. Sambandssinnar lýstu að vísu yflr óánægju sinni með yfirlýsingu Johns de Chastelains í gær. Þeir sögðu ekld nógu skýrt kveðið á um afvopnun írska lýðveldis- hersins. Þótt sú afstaða hefði heldur slegið á vonir um að samkomulag næðist skjótt hljóta menn engu að síður að leita allra leiða til þess að koma friðarferlinu af stað á ný enda hafði David Trimble, leiðtogi sam- bandssinna, áður lýst þvf yfir að hann væri vongóður um samkomulag stríðandi afla. Slfkt samkomulag byggðist hins vegar á því að írski lýðveldisherinn af- vopnaðist. Hætti írski lýðveldisherinn vopnaðri baráttu sinni Kosningar og ný heimastjórn í kjöl- far þeirra ættu að stuðla að friðsam- legra ástandi á Norður-írlandi. Vissulega ber að fagna hverju skrefi í friðarátt en sagan hefurþó kennt mönnum að ofmikil bjartsýni er óvarleg. fyrir sjálfstæði Norður-Irlands eru það mikil tíðindi. í gærmorgun lýsti Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, því yfir að flokkurinn væri andvígur valdbeitingu í pólitískum tilgangi eða hótunum um slíkt. Flokkurinn hefði skuldbundið sig til að beita friðsamlegum og lýðræðislegum aðferðum til lausnar deilumála. Samkomulag um frið á Norður-írlandi væri rós í hnappagat Blairs, forsætisráðherra Bret- lands. Hann mun því leggja þunga áherslu á að ná þeim árangri. Honum veitir ekki af enda hefur pólitísk staða hans ekki verið verri á ferli hans. Ráða þar mestu erfið mál á alþjóðavett- vangi og heima fyrir í kjölfar Íraksstríðsins. Þegar ríkisstjórn Blairs tók við völdum, fyrir sex árum, fékk hann strax að kynnast því hve erfitt var að fá stríðandi fylkingar á Norður-ír- landi til að setjast að samningaborði til að reyna að finna friðsamlega lausn á deilu sem kostað hefur mörg þúsund manns lífið und- anfarna áratugi og um leið eitrað daglegt líf al- mennings. Ofbeldið var svo yfirgengilegt að öllum blöskraði. Lausnir allar voru hins vegar erfiðar í blindu hatri á báða bóga, hefndum og eilífri skírskotun til sögunnar. Markmið öfgafyllstu samtaka kaþólskra annars vegar og mótmælenda hins vegar voru algerlega andstæð. Mótmælendur, sem vildu áfram vera hluti Bretaveldis, máttu ekki til þess hugsa að Norður-írland sameinaðist frska lýðveldinu, sem var krafa Sinn Fein. Kosningar og ný heimastjórn í kjölfar þeirra ættu að stuðla að friðsamlegra ástandi á Norður-frlandi. Vissulega ber að fagna hverju skrefi í friðarátt en sag- an hefur þó kennt mönnum að of mikil bjartsýni er óvarleg. Stjórnarmyndunin ræðst af úrslitum kosn- inganna. Komist harðlínumenn beggja fylkinga í oddaaðstöðu eftir kosningarnar kann að reynast erfitt að mynda nýja heimastjórn. I .} KJALLARI Ögmundur Jónasson alþingismaöur Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, skrifar grein í DV17. október sl. sem ber heitið Ögmundur Jón- asson og Kárahnjúkar. Greinin eru viðbrögð við blaða- grein sem ég skrifaði í DV fyrir skömmu þar sem ég sakaði Lands- virkjun um að hafa þjónað rflds- stjórninni í blindni og staðið á vafasaman hátt að útboðum við framkvæmdir við Kárahnjúka. Landvirkjun ekki alltaf þögul Þorsteinn segir að talsmenn Landsvirkjunar hafi jafnan forðast að taka þátt í deilum um Kára- hnjúka, aðeins „leitast við að veita greinargóðar upplýsingar" til þeirra sem um málið fjalla. Hann segir hins vegar að í skrifum mín- um hafi verið vegið að „heiðarleika og einurð" starfsmanna og væru staðhæfingar mínar réttar hefði „stór hluti þeirra 250 starfsmanna sem vinna hjá Landsvirkjun og fjöldi manns á verkfræðistofum og ráðgjafafyrirtækjum úti í bæ ... lát- ið hafa sig í að hagræða niðurstöð- um, bregðast trúnaði og fremja grafalvarleg brot. Meinar ög- mundur að allt þetta fólk hafi verið þvingað til að þegja ... eða á það að hafa verið með á nótunum og gert þetta af fúsum og frjálsum vilja? - ég held að fáir trúi því?" Það er rétt hjá Þorsteini Hilmars- syni að fáir myndu trúa þessu, enda hefur enginn haldið slíku fram. Ásakanir mínar beinast að stjórnendum Landsvirkjunar og að sjálfsögðu ríkisstjórninni og skal ég glaður gera nánar grein fyrir mínu máli. Þess má geta að Þorsteinn Hilmarsson segir réttilega að ég hafi hvatt sig til að skýra sitt mál opinberlega. Ég er á því að Landsvirkjun hefði mátt gera meira af því að segja hátt og snjallt út í þjóðfélagið sem sagt var á heldur lægri nótum um títt- nefnda Kárahnjúkavirkjun. Til dæmis að Landsvirkjun hefði aldrei ráðist í þessa framkvæmd ef fyrirtækið væri hlutafélag í leit að arðsömum verkefnum! Það er hins vegar ekki rétt hjá Þorsteini að tals- menn Landsvirkjunar hafi alltaf verið þögulir. Þegar þurfti að verja ákvarðanir ríkisstjórnarinnar stóð sjaldan á því að þeir létu frá sér heyra. Leiðitöm Landsvirkjun Sjálfur tók ég þátt í umræðunni um Kárahnjúka allar götur frá því hún hófst og tel mig hafa fylgst nokkuð vel með allri framvind- unni. Með reglulegu millibili fékkst það staðfest að ríkisstjórnin og þá sérstaklega ráðherrar Framsóknar- flokksins litu á málið sem pólitískt metnaðarmál sem yrði framkvæmt hvað sem tautaði og raulaði. Um þetta get ég tekið nánast endalaus dæmi. Og því miður er það líka staðreynd að Landsvirkjun reynd- ist mjög leiðitöm í þessum dansi. ítrekað voru viðhafðar blekking- ar. Þannig var því margoft lýst yfir af hálfu rikisstjórnarinnar að ekki yrði ráðist í neinar framkvæmdir fyrr en orkusamningar lægju fyrir. Þetta var staðhæft á Alþingi og einnig að ekki yrði framkvæmt fyrr Ég er á því að Lands- virkjun hefði mátt gera meira afþví að segja hátt og snjallt út í þjóð- félagið sem sagt var á heldur lægri nótum um títtnefnda Kárahnjúka- virkjun. Til dæmis að Landsvirkjun hefði aldrei ráðist í þessa framkvæmd effyrir- tækið væri hlutafélag í leit að arðsömum verkefnum! en lögformlegt umhverfismat hefði farið fram, Bæði á Alþingi og í blaðagreinum, m.a. í þremur greinum í Morgunblaðinu vorið 2001, gekk ég eftir þessum loforð- um gagnvart iðnaðarráðherra en án þess að vera virtur svars. Þetta var sama sumarið og reynt var að þvinga lífeyrissjóðina til þátttöku í framkvæmdinni. Þá lét fjármálastjóri Landsvirkjunar svo lítið að blanda sér í umræðu við mig um arðsemi framkvæmdar- innar með þeim orðum í grein sem hann birti í Morgunblaðinu, að áhyggjur mínar af afkomu Lands- virkjunar mættu „ekki hafa forgang umfram þá ábyrgð og áhyggjur", sem mér bæri að hafa af „ávöxtun þeirra sjóða“ sem mér væri „treyst fyrir“. Hér var vísað til stjórnarsetu minnar í lífeyrissjóði. Og þegar ég kvartaði yfir því að framkvæmdir væru hafnar án lög- formlegs umhverfismats spurði þessi sami talsmaður Landsvirkj- unar með nokkrum þjósti: „Hvern- ig taka menn viðskiptaákvarðanir? Hver eru rökin fyrir þvi að bíða þurfi eftir öllum leyfum áður en mál eru skoðuð og metin?“ Er það þetta sem Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi á við þegar hann segir talsmenn Landsvirkj- unar hafa reynt að halda sig til hlés í hinni pólitísku orrahríð, aðeins „leitast við að veita greinargóðar upplýsingar"? Svikin loforð og vafasöm vinnubrögð Staðreyndin er sú að Landsvirkj- un hefur í einu og öllu og að því er virðist mótþróalaust þjónað ríkis- stjórninni í þessu stórmáli. Allur þessi ferill er varðaður sviknum loforðum og að mínu mati mjög vafasömum vinnubrögðum. Er þá komið að þeim ásökunum Ögmundu SKJAUARI Þorsteinn Hllmarison upptýsumfuUninmkwl(iiiiw Miklð hefur verið deilt um Kára- hnjúkavlrkjun undanfarin miss- eri, Talsmenn Landsvirkjunar hafa foröast a6 taka þátt I póli- tiskum deilum um þau mál en hafa fremur leltast v!6 að veita grelnargóðar upplýsingar tll þeirra sem um málið fjalfa á op- inberum vettvangi. Vejjl ixMiiiskur mnlflutnlngur að holðarleíka og elnurð siarfsmanna fyriruekisins kunn þó en(iu uft siftur aft vera eölilont aö smiast tíl varnar, haft tel éu oljja vift um atrlftl i mál- flutntngi Ogmundar lónassonur al- þlngtsmanns í blaftagrcin scm Umm skrifaöi nýlega i OV, Undlniutftur átti þttss kttst aft rtufta vift Ogmuml ttm skrlfin og aft hans ftsk koma hér vifthrftgft min fram tipinberlega, Flókin samningagerö ögmumlur holftur þvf fram aft tll þess aft mi samníngttm um bygg- ingu Kárahnjftkavlrkjunar - i gftfttm Hver GREIN ÖGMU ttma fyrir Umftsvirkjt aft ðtvtlanlt unarkostna «Bin leií framkvtumt lega niötir verkaftlst h síftan ftthfti rtskir Umft; þitnn skolli hattft upp f aftarverft ht tilUoðsopm sem Þorsteinn Hilmarsson gerir að umtalsefni. Ég gagnrýndi þau vinnubrögð sem voru viðhöfð við útboð á stíflu og göngum í desem- ber árið 2002. A þessum tíma var vitað hver grundvöllur orkuverðs- Baugurog Neytenda- samtökin Tilviljanir geta verið hreint með ólíkindum. Kannski muna lesend- ur eftir fréttum DV fyrir nokkru um vænan styrk Pokasjóðs verslunar- innartil Neytendasamtakanna, sem var veittur að frumkvæði for- stjóra Baugs. Spurningarvöknuðu óhjákvæmilega um hvort eðlilegt væri að fyrirtæki sem Neytenda- samtökin og fleiri hafa gagnrýnt vegna yfirburðastöðu þess á mat- vörumarkaði tæki þátt í að fjár- magna starfsemi samtakanna. Bæði forstjóri Baugs og formaður Neytendasamtakanna vísuðu þvl alfarið á bug að nokkuð væri óeðlilegt við þetta. Fram kom að ’ styrkurinn frá versluninni yrði not- aður I afmörkuð verkefni, meðal annars yrði gerð skýrsla um trygg- ingamarkaðinn. I fýrradag var þessi skýrsla kynnt. Samkvæmt Frá vöruhúsl Baugs. henni eru tryggingafélögin að okra á neytendum í skjóli fá- keppni. Úff, hvað gera neytendur þá? Hvað er til ráða? Hvert geta þeir snúið sér, annað en til þessara „vondu" fyrirtækja sem fyrir eru? Jú, þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Þennan sama dag til- kynnti nefnilega Baugur að fyrir- tækið ætlaði að hefja þátttöku í al- hliða tryggingastarfsemi með tryggingafélaginu Verði á Akur- eyri. Já, þær eru stundum með óllkindum, tilviljanirnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.