Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2003 TILVERA 17 De Niro greindist með krabbamein LÆKNISMEÐFERÐ: Stór- leikarinn Robert De Niro hefur verið greindur með krabba- mein í blöðruhálskirtli og gengst nú undir ótilgreinda læknismeðferð gegn meininu. Að sögn Stans Rosenfields, talsmanns leikarans, var meinið greint á fýrstu stigum þegar leikarinn gekkst undir venjubundna læknisskoðun á dögunum þannig að bata- horfur eru taldar góður. Talsmaðurinn neitaði að ræða nánar um veikindin og einnig hvers konar meðferð De Niro gengist undir. De Niro, sem er sextugur, hefur leikið í meira en sextíu kvikmyndum á fjörutíu ára ferli og þar á meðal í myndum eins ogThe Un- touchables, AnalyzeThis og Meet The Parents. Hann hefur sex sinnum verið tilnefndurtil óskarsverðlauna og í tvígang hlotið verðlaunin, í fyrra skiptið fyrir aukahlutverk í mafíumyndinni The Godfather II og seinna fyrir aðalhlutverkið í myndinni Raging Bull. Á flótta undan nöktum leikara VEISLA: Þau Angelina og Colin vinna um þessar mundir saman að gerð kvikmyndar um Alex- ander hinn mikla suður í Marokkó og að sögn kunnugra er það nú ekki eintóm skemmt- un. Jafnvel partíin eru ekki sú skemmtun sem þau eiga að vera. Á dögunum var sem oftar slegið upp veislu á hótelinu þar sem kvikmyndagengið heldur til. Þegar leikar stóðu sem hæst gat hinn írski Colin ekki stillt sig um að gera það sem honum finnst svona skemmtilegt, sem sé að opinbera alla sína eðlu lík- amsparta, Angelinu til mikillar skelfingar - svo að hún flýði hið snarasta út úr veislusalnum. „Colin sýnir alltaf á sér tólin þegar hann drekkur," segir ónafngreindur heimildarmaður. LOHMAN OG RUSH: Alison Lohman og Geofrey Rush þóttu hafa staðið sig vel á árinu og voru verðlaunuð sem bestu auka- leikarar. ANTHONY HOPKINS: Á að baki mörg af- rekin í kvikmyndum og Hollywood taldi hann verðugan heiðursverðlaunahafa. Árlega er haldin Kvikmyndahátíð Hollywoods (Hollywood Film Festival) þar sem sýndar eru fáar en útvaldar myndir. Hátíð þessi þykir ekki með merkilegri hátíðum, en hún má þó eiga það að á henni eru sýndar ódýrar kvikmyndir sem koma að mestu leyti frá óháðum kvikmyndaíyrirtækjum sem eiga á brattann að sækja. Opnunarmyndin var til að mynda kvikmynd sem heitir 11.14 og segir fjórar sögur sem allar hefjast kl. 11.14 að kvöldi til Hátíðin í ár stóð frá 15.-20. október. Auk þess sem verðlaunað er í mörgum flokkum þá vekur það yfirleitt mesta athygli hveijir eru verðlaunaðir fyrir framlag sitt til kvikmynda. Ekki er um neina keppni að ræða þar sem nöfnin em birt um leið og hátíðin hefst og má segja að verð launin séu meira heiðursverðlaun heldur en af- reksverðlaun fyrir eitthverja tiltekna mynd. Það var svo á galakvöldi í Beverly Hills í fyrr akvöld sem verðlauin voru af- hent og að sjálfsögðu mættu stjörnum- ar sem vissu fyrir fram að þær ættu að taka á móti verðlaunum sínum. Aðalheiðursverðlaunin í ár fengu Andtony Hopkins, Goldie Hawn, Ron Howard og Sydney Poliack. Það vom ekki aðeins þau sem fengu verð- laun, efnilegustu leikararnir vom valdir (Orlando Bloom og Scarlett Johansson), handritshöfund- ur (Ron Bass), kvikmyndatökumaður (John Toll), tónlistarhöfundur (Howard Shore), svo einhverjir séu nefndir af aukaverðlaunahöfum. SCARLETT JOHANSSON: Orlando Bloom og Scarlet Johannsson þóttu hafa staðið sig best nýliða og eiga fyrir höndum bjarta framtíð í Hollywood. GOLDIE HAWN: Hún brosir meðverðlaunagripinn í hendinni, hún Goldie Hawn, enda var hún heiðruð fyrir framlag sitt til kvikmynd- anna. LEIKSTJÓRINN: Ron Howard var talinn verðugur þess að vera sá leikstjóri í ár sem ætti skilið verðlaun fyrir afrek sín í leikstjórn. Ron Howard var áður barna- og unglingastjarna og hér er hann á tali við George Lucas, sem leikstýrði honum í American Graffiti. Hollywood verð- launar sitt fólk Gítarinn oiit. ********&******'*&***+**'&'******** ★ Stðrhöfða 27 r J, rj 1 sími 552-2125 og 895-9376 www.gitarinn.is gitarinn@gitarinn.is -I-H-tjjtj pi r is, J ££J£-{j{j éubcjú °£J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.