Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2003, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÚBER 2003 DVSPORT 31 Kluivert eftirsóttur Izzet fær að heyra það Blakið byrjað BLAK: íslandsmótið í blaki hófst í gærkvöld með tveim leikjum. Þrótturfrá Reykjavík var í sviðsljósinu en karlalið fé- lagsins tók á móti (S en laut í lægra haldi, 3-2. Kvennaliðfé- lagsins gerði mun betur þegar það fékk HK í heimsókn. Leik- urinn var eign Þróttara frá upphafi sem unnu öruggan sigur, 3-0. KNATTSPYRNA: Hollenski framherjinn Patrick Kluivert er eftirsóttur þessa dagana. Við greindum frá því fyrir skemmstu að forráðamenn Newcastle hefðu flogið til Barcelona til viðræðna við for- ráðamenn félagsins um kaup á Kluivert en nú hafa Lundúna- félögin Arsenal og Chelsea stokkið í slaginn. Forráðamenn Barca hafa skipulagt fundahöld á fimmtu- dag sem talin eru munu ákveða framtíð Kluiverts. „Newcastle er eina liðið sem hefur talað við okkur beint en Arsenal og Chelsea hafa lýst yfir áhuga á Kluivert við okk- ur," sagði Juanjo Castillo, tals- maður spænska félagsins. HEITUR: Kluivert er eftirsóttur þessa dagana. KNATTSPYRNA: Umboðsmað- ur Freddie Kanoute, leikmanns Tottenham, hefur farið fram á það við enska knattspyrnu- sambandið að það refsi Muzzy Izzet, leikmanni Leicester, fyrir gróflega tæklingu á Kanoute í leik Spurs og Leicester um helgina sem kemur tii með að halda Kanoute frá keppni næstu tvo mánuðina. „Mér er algjörlega misboðið og ég verð mjög hissa ef knatt- spyrnusambandið tekur ekki á málinu. Freddie var kominn fram hjá honum en þá var honum slátrað," sagði um- boðsmaður Kanoute. Fram- herjinn var heppinn að brotna ekki við tæklinguna því þá hefði hann ekki leikið meira í vetur. Sjóðandi Shearer skoraði tvö mörk og lagði upp eittþegar Newcastle lagði Fulham Alan Shearer var hetja Newcastle United enn eina ferðina í gærkvöld þegar hann fór á kostum gegn Fulham á Loftus Road. Fulham náði tveggja marka forystu eftir 7 mínútna leik en Shearer lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Laurent Robert og sá svo um að skora tvö þau næstu og kláraði leikinn. „Alan var ótrúlegur," sagði Bobby Robson, stjóri Newcastle, eftir leikinn en hann var óspar á lýsingarorðin í garð framherjans sí- unga. „Hann var frábær og hreint út sagt magnaður. Hann vann marga bolta í loftinu, hélt boltan- um vel, hreyfði sig vel, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Mörkin eru samt bara hluti af sögunni því leik- ur hans í heildina var stórkostlegur. Hann er sterkur persónuleiki. Hann er 33 ára leikmaður sem er í aðdáunarverðu formi og sífellt á hreyfmgu. Samt verður ekki Iitið fram hjá þeirri staðreynd að til þess að vinna upp tveggja marka forskot þurfa allir 11 að leika vel. Þeir réðu ferðinni algjörlega í byrjun en fyrsta markið okkar kom á góðum tíma og við sögðum í hálfleik að við myndum valta yfir þá sem við og gerðum.“ Það var samt ekki eintóm gleði í herbúðum Newcastle í gær því Craig Bellamy fór þá í aðgerð og verður því ekki klár í slaginn á ný fyrr en í febrúar. „Hann er búinn að fara í aðgerð- ina og fór í hana hjá besta skurð- lækni heims. Nú þarf hann bara að „Hann var frábær og hreint út sagt magnað- ur. Hann vann marga bolta í loftinu, hélt bolt- anum vel, hreyfðisig vel, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Mörk- in eru samt bara hluti afsögunni því leikur ÓTRÚLEGUR: Alan Shearer sneri við töpuðum leik gegn Fulham með því að skora tvö mörk og leggja upp eitt. Hér sést hann skora seinna mark sitt og jafnframt sigurmark leiksins. ÚRVALSDE ENGLAND ' L D H f*JÍ Fulham-Newcastle 2-3 1-0 Lee Clark (5.), 2-0 Louis Saha (7.), 2-1 Laurent Robert (15.), 2-2 Alan Shearer, víti (50.), 2-3 Alan Shearer (55.). Arsenal 9 7 2 0 18-7 23 Man. Utd 9 7 1 1 17-3 22 Chelsea 9 6 2 1 19-9 20 Birminqh. 9 4 4 1 8-5 16 Man. City 9 4 3 2 20-11 15 Fulham 9 4 3 2 17-12 15 Charlton 9 4 2 3 13-12 14 S'hampton 9 3 4 2 14-9 13 Portsm. 9 3 3 3 11-9 12 Newcastle 9 3 3 3 12-12 12 Liverpool 9 3 2 4 12-10 11 Tottenham9 3 2 4 10-13 11 Everton 9 2 3 4 12-14 9 Aston V. 9 2 3 4 8-12 9 Blackburn 9 2 2 5 15-17 8 Bolton 9 1 5 3 8-18 8 Leeds 9 2 2 5 8-18 8 M'boro 9 2 j 6 7-15 7 Wolves 9 1 3 5 3-18 6 Leicester 9 1 2 6 11-17 5 Reuters Crewe-Preston 2-1 Norwich-Derby 2-1 WBA-Wimbledon 0-1 Watford-Coventry 1-1 Crystal Palace-lpswich 3-4 Reading-Walsall 0-1 Sunderland-Rotherham 0-0 Wigan-Sheff. Utd. i-i Wigan 15 8 6 1 21-11 30 WBA 14 9 1 4 20-13 28 Sheff. Utd.14 8 3 3 23-14 27 Sunderl. 14 8 3 3 19-10 27 Ipswich 15 8 2 5 28-21 26 West Ham13 7 4 2 17-9 25 Norwich 14 7 4 3 20-15 25 Millwall 15 6 5 4 19-15 23 Reading 14 6 3 5 21-17 21 N. Forest 13 6 2 5 25-16 20 Crewe 14 6 2 6 16-18 20 Cardiff 13 5 4 4 23-15 19 Preston 14 6 1 7 19-18 19 Burnley' 14 5 3 6 22-27 18 Walsall 14 4 4 6 15-16 16 Coventry 13 4 4 5 18-20 16 C. Palace 14 4 4 5 20-23 16 Stoke 14 4 3 7 16-19 15 Derby 15 3 5 7 15-25 14 Watford 13 3 4 6 13-16 13 Gillingh. 14 3 4 7 13-23 13 Rotherh. 15 2 7 6 10-22 13 Bradford 14 3 3 8 13-23 12 Wimbled. 14 2 1 11 14-34 7 það best sjálfir að við erum ekki nógu góðir til þess að leika á 75% hraða. Ef við keyrum ekki 100% all- an leikinn þá munum við tapa. Þrátt fyrir að hafa tveggja marka forystu eftir 10 mínútur þá vitum við að leikurinn er ekki búinn ef maður eins og Alan Shearer er í hinu lið- Barnsley á siglingu Komið í 4. sæti ensku 2. deildarinnar eftirsigur á Peterborough hans í heildina var stór- kostlegur." vera jákvæður og koma sterkur inn eftir áramót," sagði Robson en það var hinn eini sanni Richard Steadm- an sem skar Bellamy upp en hann hefur séð um flesta bestu knatt- spyrnumenn heims undanfarin ár sem hafa lent í erfiðum meiðslum og nær undantekningalaust með góðum árangri. Undir á öllum sviðum Chris Coleman, stjóri Fulham, var ekki alveg jafn hress f Ieikslok og skal engan undra því hans menn fóru með fjölda góðra færa í leikn- um. „Við létum þá taka okkur í bólinu. Við vorum undir á öllum sviðum og töpuðum návígjum út um allan völl. Ég er mjög vonsvikinn þar sem leik- urinn á laugardag var ekkert sér- stakur og þessi h'tt betri. Við vitum ínu. Wimbledon vann WBA Fjölmargir leikir fóru fram í ensku 1. deildinni í gærkvöld og þar vakti helst athygli mjög óvæntur sigur Wimbledon á WBA. Wimbledon hafði aðeins unnið einn leik áður en það mætú WBA sem er í toppbar- áttu í deildinni en Wimbledon var og er langneðst. „Við sendum endalaust af send- ingum í teiginn hjá Wimbledon en það mætti bara enginn til þess að taka á móti þeirn," sagði stjóri WBA, Gary Megson, svekktur. „Við vorum með boltann 75% af fyrri hálfleik og lfklega meira í- seinni hálfleik en samt tókst okkur ekki að vinna." Stuart Murdoch, stjóri Wimble- don, var að sjálfsögðu sáttur við sína menn. „Ég bað strákana um að fara út á völlinn og sýna smá- karakter, sem þeir og gerðu. Það var líka mik- ilvægt að kynnast sigurtilfinning- unni á nýjan leik og hún er mjög góð." henry@dv.is Það er rífandi gangur á Guð- jóni Þórðarsyni og lærisvein- um hans hjá Barnsley en í gær unnu þeir glæsilegan útisigur gegn Peterborough, 3-2. Fyrir vikið eru þeir komnir í 4. sæti deildarinnar en Peterborough, sem er fyrrum lið Helga Vals Daníelssonar, situr nálægt botninum eða í 20. sæti. Það hefur ekki unnið heimaleik í fimm mánuði. Það var þó margt sem benti til þess að heimamenn myndu loks landa heimasigri þegar Leon Mc- Kenzie hafði skoraði tvö mörk og komið Peterborough í 2-1 þegar flautað var til leikhlés. Sú gleði stóð þó stutt því Isiah Rankin skoraði glæsilegt mark með skoti af 20 metra færi í upp- hafi síðari hálfleiks. Steve Carson kláraði svo leikinn fyrir Barnsley 25 mínútum fyrir leikslok þegar hann skilaði sendingu frá Kevin Betsy í netið. „Seinna markið var frábært hjá Carson en ég er ekki alveg viss hvað Rankin var að gera. Þetta voru frá- bær mörk engu að síð- ur og það er ávallt Ijúft að vinna leiki eftir að hafa verið undir." „Ég var mjög ánægður með að fá sigur," sagði Guðjón Þórðarson sem var mjög sáttur í leikslok. „Mér fannst við vera of linir í fyrri hálfleik og vorum seinir að svara áhlaupum Peterborough. Við gáf- um boltann frá okkur allt of auð- veldlega allt frá byrjun. Okkur tókst að komast inn f leikinn aftur og mér fannst við eiga tækifæri til þess að taka yfirhöndina en það gekk ekki eftir,“ sagði Guðjón en hálfleiksræða hans hafði góð áhrif á hans menn eins og svo oft áður. „Við fórum yfir ákveðna hluti í hálfleik og einblíndum á að við þyrftum að færa okkur meira upp völlinn. Við skoruðum svo tvö mörk fyrir vikið og fengum þrjú stig sem var mjög ánægjulegt. Seinna markið var frábært hjá Carson en ég er ekki alveg viss hvað Rankin var að gera. Þetta voru frábær mörk engu að síður og það er ávallt ljúft að vinna leiki eft- ir að hafa verið undir.“ henry@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.