Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Qupperneq 3
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 3
Ógeðið
Ég er lítið spenntur fyrir stórum
valdaeiningum, stjórnvöldum og
einkasamsteypum. En eins og stað-
an er í dag flnnst mér það vera mjög
skýrt að séu ríkisreknir fjölmiðlar
reknir lýðræðislega og sjálfstætt frá
ríkisstjórnum og stórfyrirtækjum
eru þeir langsamlega bestu upplýs-
ingamiðlar okkar tíma. BBC, ríkis-
stöðvarnar á Norðurlöndunum og
þar með talið fréttastofa ríkisút-
varpsins falla undir þetta. Annað
rekstrarform RÚV mun ekki færa
okkur neitt betra þótt það hljóti nú
að vera til einhver skárri leið við að
innheimta afnotagjöldin. Sjálfstæð-
isflokkurinn er konungur ríkisaf-
skipta þegar kemur að RÚV og þegar
fólk er orðið hundleitt á því, spretta
upp einhverjar SUS drullur og
benda á hversu vont það er að hafa
fjölmiðla í ríkiseign. En það er ekki
vont að hafa fjölmiðla í ríkiseign.
Það er vont að hafa sjálfstæðismenn
í ríkiseignum, í ríkisstjórn og út-
varpsráði haldandi að þeir séu ríkið.
Glerharðir galdramenn á
göngunum
Ef hugmyndir Björns Bjarnason-
ar um íslenskan her væru orðnar að
veruleika myndu ef til vill núna ber-
ast fréttir af drepnum Islendingum
niðri í írak. Nú er komin enn ein
vond hugmynd frá honum. Ég er
virkilega að reyna að skilja þetta. Ég
hef fylgst með þessarri umræðu og
hef ekki enn séð neinn rökstuðning,
formlegar kvartanir eða yfir höfuð
dæmi nefnd um vinstrislagsíðu
Spegilsins. Markús Örn lagði fram
gögn ásökun sinni til stuðnings.
Kvörtun Reynis Tómas Geirssonar
um að aðstandendur Spegilsins
höfðu þrýst óþarflega á um viðtal við
starfsmann Landsspítalans. Reynir
virðist á engan hátt vilja að kvörtun
hans sé notuð í þessum tilgangi.
Enda þyrfti ekki bara „glerharðan
hægrimann", heldur líka glerharðan
galdramann til að sjá einhverja stað-
festingu á vinstrislagsíðu út úr
Bakarí Bernhöfts Tertan var dýr og lög-
maðurinn hringdi.
Sagan af
tertunni dýru
Vilhjálmur Þórisson skrifar:
Fyrir nokkru hringdi móðir mín í
Berhöftsbakarí til að panta tertu.
Eins og gengur og gerist fékk hún
uppgefið verð á tertunni, 4900 kr.
Tveimur dögum síðar sótti hún tert-
una en var látin greiða 7900 kr. Við
þetta gerði hún athugasemd en var
sagt að uppgeftð verð hefði verið
Lesendur
rangt og sá sent gaf það upp ætti að
biðja hana afsökunar. Ekki var boðið
upp á leiðréttingu vegna mistak-
anna.
Næsta dag hringdi ég í eiganda
fyrirtækisins, sem mundi eftir að
hafa tekið við pöntuninni, nema að
hann hefði gefið upp verðið 7900 kr.
Þarna var semsagt um að ræða orð
gegn orði. Ég spurði hvort hann
hefði hug á að koma til móts við
hana. Hann svaraði því til að áður en
hann tæki ákvörðun um slíkt, ætlaði
hann ræða við lögmann sinn, vegna
3.000 krónanna og hafa svo aftur
samband við mig. Þá sagðist ég ætla
að kynna mér málið hjá Neytenda-
samtökunum. Símtalið var af beggja
hálfu kurteisislegt.
Síðar um daginn hringdi lögmað-
ur fyrirtækisins í mig. I stað þess að
í speglinum
Erpur Eyvindarson
skilur ekkert í Birni og
Markúsi
Kjallari
kvörtun Reynis. Og ef það er vinstri
slagsíða að ræða gagnrýnið um Irak-
stríðið sem Spegillinn hefur gert þá
eru 80 - 90% íslendinga með
vinstrislagsíðu. Sem væri nú alveg
ágætis tilbreyting en engu að síður
bull.
Af hverju?
Af hverju lætur Björn svona, og
þar af leiðandi Markús? Er það
vegna þess að Mogginn, tryggasti
miðill Flokksins, er búinn að missa
sína yfirburðastöðu? Er það kannski
vegna þess að Kolkrabbinn virðist
vera að hruni kominn? Er það vegna
þess að kellingin í rfkisstjórnarsam-
bandinu leyftr ekki landsföðurnum
að vera forsætisráðherra út kjör-
tímabilið? Er það vegna þess að
margir af stærstu atvinnurekendum
landsins eiga ekki samleið með
„markaðshyggjuflokki fslands"? Er
það-vegna þess að enginn styður
fraksstríðið? Er það vegna þess að
hinir glerhörðu hægrimenn sem val-
hoppa um ganga Ríkisfjölmiðilsins
eru brandari, þar sem allir vita að
Hannes er sagnfræðingur Flokksins
ekki fólksins og Ólafur Sigurðsson á
fréttastofu sjónvarps er í besta falli
með öllu óskiljanlegur? Heimildir
Björns fyrir þessu koma úr mjög
óhefðbundinni átt. Björn tekur Þrá-
in Bertelsson á orðinu og það virðast
vera einu rök hans í málinu. Síðan
hvenær fór Björn að taka mark á
Þráni og öðrum „vinstriöfga-
mönnum"? Ef það er ný regla hjá
Birni að taka því sem vinstrimenn
hafa að segja svona hátíðlega, hlust-
aðu þá á þetta: „Hættu í pólitík og
farðu að skrifa eða eitthvað. Þú gæt-
ir gerst sagnaritari Davíðs núna þeg-
ar hann hefst handa við skriftir á
einhverjum ódauðlégum verkum.
Svipað og Rudolf Hess fyrir Hitler. Já
og gerðu þetta núna. Strax!"
Vanþróaðir fjölmiðlar
Ég veit við erum ung þjóð og höf-
um endalausar afsakanir fyrir því að
hafa nær eingöngu vanþróaða íjöl-
miðla. Fjölmiðla sem þora tæplega
að ráðast gegn ráðamönnum og fyr-
irtækjaeigendum sem íyrir vikið
virðast komast upp með allt. Ólíkt
hinum Norðurlöndunum. En frétta-
skýringarþátturinn Spegillinn á RÚV
er að gera nákvæmlega það sem íjöl-
miðlar vilja hreykja sér af, að vera
sjálfstæður og ákveðinn fjölmiðill.
Það er spennandi að sjá hvernig
þessu máli lyktir. Ég myndi segja
það prófmál á hvort alvöru fjölmiðl-
un nái að dafna undir Sjálfstæðis-
flokknunt. Kannski eru allir speglar
heima hjá Birni brotnir. Kannski eru
speglar almennt í molum í Valhöll.
Ef þú lítur í spegil og sérð eitthvað
ógeð þá þýðir ekkert að brjóta speg-
ilinn. Þú hættir ekki að vera ljótur
þótt spegillinn hætti að vera til stað-
ar til að sýna þér það. Spegillinn er
ekki að gera neitt rangt með því að
spegla, sama hversu erfitt það er að
taka því. Og ef þér tekst að mölva
spegil þá er eins gott að þú passir þig
á brotunum.
Spurning dagsins
Er boxið búið?
Ástæðulaust að berja aðra...
"Það mætti alveg klára sig sem keppnisgrein en
menn mættu gjarnan nota hreyfinguna við æf-
ingar - hún er holl hverjum manni. En það er
ástæðulaust að berja aðra."
Jónas Jónasson,
útvarpsmaður
og áhuga-
boxari.
"Ég er í hópi
þeirra sem er
lítið hrifinn af
þessari íþrótt -
svokölluðu.
Mér finnst hún
ógeðfelld og
óskiljanlegt að
það sé farið að
stunda hana
hér á landi. Þannig að efboxið er búið
er það að minu mati ekki degi of
snemma."
Svanhildur Konráðsdóttir,
forstöðumaður Höfuðborgarstofu.
"Þessi tvö nýj-
ustu áföll eru
líkleg til að
ganga afbox-
inu dauðu.
Þegarþað
byrjarsvona
þá segir það
sig sjálft að
menn spyrja;
hvernig verður framhaldið?"
"Er ekki miklu
betra að hafa
þessa menn,
sem hafa gam-
an afboxi og
hafa gaman af
því að boxa
hvern annan,
einhvers stað-
ar inni í hring
þar sem þeir geta lamið hvern annan í
stað þess að þeir séu á berja á einhverj-
um öðrum? Efþessir gæjar hafa gaman
afþví að berja í hausinn hver á öðrum
er að minnsta kosti betra að það sé gert
með lækni viðstaddan."
Ásgeir Davíðsson,
veitingamaður á Goldfinger.
"Ég held að
þetta sé ein-
faldlega í box-
inu. Ég heftrú
á þvi að for-
svarsmenn
hnefaleika-
manna á Is-
landi muni
finna farsæla
lausn á þessum málum."
ræða málið frekar tilkynnti hann
mér að ég hefði verið æstur og með
hótanir í garð eiganda Bernhöfts-
bakarís. Ég bað hann um að útskýra
þessi orð betur og kom þá fram að
hótunin fólst í því að eftir að eigand-
inn sagðist ætla að tala við lögmann
sinn, sagðist ég ætla að tala við
Neytendasamtökin. Einnig spurði
ég lögmanninn hvort hann kannað-
ist við þá óskráðu reglu, að við-
skiptavirturinn hafi oftast rétt fyrir
sér. Hann játti því, en sagði að það
ætti ekki við í þessu tilfelli.
Eftir að hafa fengið þessi við-
brögð er ekki hægt annað en vera
undrandi. Ég var ekki einu sinni bú-
inn að nefna það að fá 3.000 krón-
urnar endurgreiddar. Ætlunin var að
fá sanngjörn viðbrögð sem svo snér-
ust uppí undarlegt símtal frá lög-
manni. Það er umhugsunarvert að
kaupmaður líti á Neytendasamtökin
sem hótun, nema þá ef viðkomandi
hefur eitthvað að óttast.
Bensínstöðin á Öskjuhlíð Bannað að
pissa - afspyrnu léleg þjónusta.
Matthíasi er mál
Matthías Ó. Gestsson hringdi:
Ég kom á bensínstöðina í Öskju-
hlíð þegar ég brá mér til Reykjavíkur
um daginn. Þar eru átta olíudælur
og full þjónusta, en ekki hægt að fá
að fara á salerni. Mér var synjað um
það og þurfti að keyra í snarhasti á
næsta stað í spreng. Þetta þykir mér
afspyrnu léleg þjónusta svo ekki sé
meira sagt. Á öllum olíustöðvum á
Akureyri og annarsstaðar á lands-
byggðinni þar sem ég hef komið hef
ég fengið að nota salerni. Einnig á
litlum stöðvum þar sem aðeins er
ein dæla. Það er greinilega önnur
þjónustulundin í Reykjavík.
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
iesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
Björn Leifsson,
eigandi World Class.
Guðný Hrund Karlsdóttir,
sveitarstjóri á Raufarhöfn.
Hnefaleikaíþróttin á undir högg að sækja eftir að blæddi inn á
heila hnefaleikamanns og tveir aðrir voru handteknir í landsliðs-
búningi með 400 grömm af kókaíni.
Frábær jólagjöf
Frábær nýjung á íslenskum markaði. Heilsukoddinn er úr 100%
V1SCOELAST1C efni sem er hitanæmt “memory” efni í hæsta
gæöaflokki. Þessi koddi ásamt hæðastillinum mynda saman ótrúlega
þægilega og heilsusamlega lausn sem hentar hverjum sem er óháð
axlabreidd og þyngd.
Hæðastillandi tæki
fyrir heilsukoddann.
Hitanæmt “memoty" efni
sem dregur úr álagspunktum
Hægt er að fá heilsukoddann
með eða án hæðastillis.
Lagar sig aö þínum likama
og hreyfingum sem tiyggir
hámarks þægindi
Laus við ofnæmis-
valdandi efni s.s. CFC
og formaldaíð
Skiftanlegt koddaver sem
þolir þvott
ara abyrgð
Ml MBI HÍ
Verslunin Rúmtiott Smiðjuwgi 2 -Kópavogi Sími 544 2131
Opið til jóla: Laugardaga kl. I I til 16 Sunnudaga kl. I 2 til 16