Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Side 12
72 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 Fréttir DV Megasfær heiðurslaun Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, fær heiðurslaun frá Alþingi. Megas, sem þingið veitir viðurkenningu með þessum hætti, er tónlistarmaður og skáld. Hann er einn af sex nýjum listamönnum sem bætast á 25 manna lista þeirra sem fá laun frá Alþingi. Hinir fimm eru Jóhann Hjálmars- son, skáld, Kristinn Halls- son, söngvari, Vigdís Grímsdóttir, skáld, Vilborg Dagbjartsdóttir, skáld og Rögnvaldur Sigurjónsson, píanóleikari. Gunnar I. Birgisson formaður menntamálanefndar mælti fyrir tillögu þessa efnis en Framsóknarflokkur og Samfylking stóðu einnig að henni. Vinstri-grænir stóðu ekki að tillögunni. Börnin fara til ömmu Michael Jackson vill að móðir sín, Catherine Jackson, fá forræði yfir börnum sínum verði hann dæmdur í fangelsi. Jackson hefúr sem kunnugt er verið ákærður fyrir kynferðisof- beldi gagnvart tólf ára dreng. Börn Jacksons eru sjö, fimm og eins árs og hafa alla tíð búið hjá föður sínum. Ekki virðist inni í myndinni að móðir tveggja þeirra elstu, Debbie Rowe, fái börnin. „Börnin verða að sjálfsögðu áfram hjá föður sínum. Verði breyting á högum Jacksons er eðli- legt að börnin fari til ömmu sinnar," segir talsmaður Jacksons. Vestfirðingar í æðri menntun Nú í desember munu 170 Vestfirðingar þreyta próf á háskólastigi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Þar af eru um 130 sem stunda íjarnám í sinni heimabyggð. Nemendurnir eru í sjö af níu háskólum landsins og eru flestir þeirra við Háskólann á Ak- ureyri og Kennaraháskóla Islands. Konur eru 70 pró- sent þeirra Vestfirðinga sem stunda ijarnám. Hall- dór Halldórsson, bæjar- stjóri á ísafirði, er meðal margra Vestflrðinga sem hafa kallað á að háskóla- samfélagi verði komið á fót á ísafirði sem liður í fram- sókn fjórðungsins. Ætla má að heildarkostnaður vegna þeirra hælisleitenda sem hingað koma í vax- andi mæli skipti tugum milljóna á ári hverju. Flestir eru sammála um að þeim á eftir að Qölga talsvert meira á komandi árum. Hælisleitendur Þær vikur sem farið eryfir mái hælisleitenda hér á landi bera íslenskarstofnanir allan kostnað afdvölþeirra. Hælisleitendur kosta nær 50 milljónir á ári „Kostnaður vegna hælisleitenda hefur aukist umtalsvert en er enn viðráðanlegur," segir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. Embætti hans ber talsverðan kostnað vegna fjölg- unar hælisleitenda hér á landi. Fyrirséð er að þeim mun fjölga frekar næstu árin. „Gróft áætlað hleypur kostnaðurinn á þessu ári á einhverjum milljónum en við höfum verið að bú- ast við aukningu um hríð þannig að þetta kemur okkur ekki í opna skjöldu. Fjöldinn er enn innan þeirra marka sem við gerðum ráð fyrir." Embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli þarf, ásamt Rauða Krossinum og Útlendingastofn- un, að greiða kostnað sem til fellur meðan mál hvers einstaklings er rannsakað. Hælisleitendum þarf að sjá fýrir gistingu, mat, nauðþurftum og allri nauðsynlegri þjónustu þessar 2-4 vikur sem það tekur að skoða máf hvers og eins. Einnig þarf að hafa gæslu og eftirlit með viðkomandi á meðan. Rauði Kross íslands hefur samkvæmt samningi við ríkið séð um uppihald hælisleitenda síðastliðin ár. Samningnum hefur verið sagt upp, að hluta til vegna endurskilgreiningar á hlutverki hans, en einnig vegna stóraukins kostnaðar sem orðið hefur vegna sívaxandi fjölda hælisleitenda. „Kostnaður Rauða Krossins á þessu ári er orð- inn 24 milijónir króna,“ segir Þórir Guðmunds- son, upplýsingafulltrúi Rauða Kross íslands. „Framlag ríkisins til okkar á ársgrundvelli er níu milljónir. Þarna er mikill munur á og við teljum fjármunum okkar betur varið til annarra brýnna starfa.“ Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, segir það sitt mat að Rauði Krossinn sé ekki að segja upp samningnum vegna fjárhagslegra að- stæðna. Þetta hafl staðið til lengi og gert sé ráð fýr- ir að Údendingastofnun taki við umönnun hælis- leitenda. Til standi að hækka framlag til þeirrar stofhunar um 20 milljónir vegna þessa. albert@dv.is Þeim þarfað sjá fyrír gistingu, mat,nauð- þurftum og annarri nauðsyniegri þjónustu. FJÖLDI HÆLISLEITENDA: 1999 17 2000 24 2001 52 2002 117 2003 90* * áætlað Borg allsnægtanna ekki fyrir útlendinga utan EES Haldið í mikilli fátækt Félagsmálaráðherra vill frekar lýsa Reykjavík sem borg allsnægta, heldur en borg eymdarinnar eins og forseti íslands, og segir flesta sem betur fer hafa það gott, ástandið hafl ekki versnað mikið. Formaður Samhjálpar segist hins- vegar sjá greinileg merki um vax- andi fátækt. Útlendingar frá svæð- um utan EES er einn af þeim vax- andi hópum sem stríðir við fátækt, enda beinist hann í láglaunastörf beinlínis vegna íslenskra laga. Rúmleg tíu þúsund erlendir rík- isborgarar áttu lögheimili á fslandi um síðustu áramót. 3000 þeirra koma frá löndum utan EES, flestir frá Asíu, eða 1700. Samkvæmt könnun Gallup frá sama tíma vinn- ur tæpur helmingur þeirra lág- launavinnu við ræstingar, fisk- vinnslu eða aðra verkamanna- vinnu. Broddi Sigurðarson, upplýs- ingafulltrúi Alþjóðahússins, segir þessa útlendinga oft lifa í mikilli fá- tækt. „Vandamálið snýst' að miklu leyti um það að þeir útlendingar sem koma hingað frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins fá ekki störf hér nema enginn annar fáist í þau, samkvæmt lögum. Störfln eru auglýst í þrjár vikur, og ef enginn fsfendingur finnst í þau, geta þau fengið störfin. Þess vegna er bróðurparturinn af þeim störf- um sem útlendingar utan EES fá, illa borguð eða störf sem litið er niður á. Þannig beinist þessi hóp- ur í láglaunastörf, eins og rann- sóknir hafa sýnt. Þeir útlendingar sem koma hingað utan EES fara hlutfallsfega fleiri í láglaunastörf en aðrir hópar. Stærsta vandamál þessa fólks er fátækt. Þetta hefur ekkert með mismunandi menn- ingu að gera, það er augljóst mál að það langar engan að gramsa í rusli. Þetta er vegna fátæktar og neyðar." brynja@dv.is Erlendir ríkisborgarar á íslandi eftir heimshlutum Rómanska Amerika Norður Amerika 6%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.