Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Blaðsíða 27
DV-mynd Hari
DV Fókus
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 27
„Þetta er kvöld sem haldið er í tilefni af út-
i gáfu plötu Ghostigital og við fáum nóg af góð-
um gestum. Yfirskrift kvöldsins er Harður
heimur - harður taktur sem rímar vel við
Ghostigital því þar koma við sögu allar gerðir el-
ektrónískrar taktmúsíkur. Þess vegna langaði okkur
að finna þá sem eru harðastir hér á landi og búa til
kvöld með hörðustu tónlist sem til er á íslandi," seg-
ir Birgir Örn Thoroddsen, Bibbi Curver, sem í félagi
við Einar Örn Benediktsson, fyrrum Sykurmola, stend-
ur fyrir tónleikum á Kapital í kvöld. Bibbi vann að plötu
Ghostigital með Einari Erni og skipuleggur kvöldið
með honum.
Auk þeirra félaga í Ghostigital koma fram Kritikal
Mazz og Twisted Minds Crew úr hip hop geiranum, Exos
og Tómas T.H.X. sem fulltrúar teknótónlistarinnar og
Dj Bjöggi sem spilar drum&bass-tóniist. „Svo ætla
ég að spila gamalt digital hardcore noise," segir
Bibbi ákveðinn og til útskýringar segir hann að
því svipi kannski helst til Atari Teenage Riot.
„Hugmyndin með þessu er að draga sam-
an danstónlist og hip hopið á einn stað.
Þessu er alltaf skipt upp, þessir heimar
virðast ekki hafa runnið nógu vel
saman, en okkur langaði að prófa
hvort ekki væri hægt að gera
eitthvað skemmtilegt með
öllum þessum böndum."
Eruð þið ekkert
hræddir um að hip-
hopararnir verði
hræddir þegar
„Maður er eiginlega farinn að
upplifa sig sem mjög gamian,
það eru allir orðnir svo „melló
Ég þarfnú samt ekki að hafa
svo miklar áhyggjur því Einar er
miklu eldri en ég og hann er
ennþá harðari!"
teknógaurarnir fara að spila og öfugt?
„Við í Ghostigital erum í miðjunni á þessu
öllu saman enda blöndum við þessum tónlist-
arstefnum saman. Það er bara vonandi að
einhverjir hip-hoparar verði eftir og hlusti á
teknómennina og að teknófólkið mæti
sneinma og hlusti á hina.“
En þú lofar góðu kvöldi?
„Já, við viljum bara að fólk komi og fái harða
tónlist beint í æð. Það virðist vera minnkandi
áliugi á harðri tónlist hjá unga fólkinu, það er ekki al-
veg nógu hart,“ segir hann og hlær. „Það kostar 800 kail
inn og það fylgir eitthvað áfengi með. Ég vil bara að fólk
komi þarna bláedrú og útúrvírað. Tónlistin á að vera nóg
til aö koma því f gang. Maður er eiginlega farinn að upp-
lifa sig sem mjög gamlan, það eru tillir orðnir svo
„melló“. Við reynum að breyta því, en ég þarf nú samt
ekki að hafa svo miklar áhyggjur því Einar er rniklu eldri
en ég og hann er ennþá harðari!"
DSQS