Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Vel við skál
í Leifsstöð
Tveir karlmenn og ein
kona voru handsömuð í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í
fýrrakvöld. Fólk-
ið, sem var vel
við skál, hafði
smyglað sér um
starfsmannagang
og þannig komist
í brottfararsal stöðvarinnar.
Tollverðir sáu hvers kyns var
ogstöðvuðu fólkið en ekki
liggur fyrir hvaða erindum
það ætlaði að sinna. Þre-
menningarnir eru rúmlega
tvftugir og fengu að dúsa í
fangageymslu þar áfengis-
víman var runnin af þeim.
Að sögn Jóhanns R. Bene-
diktssonar, sýslumanns á
Keflavíkurvelli, er atvik sem
þetta litið mjög alvarlegum
augum.
Fyndnasti
íslendingurinn
Gísli Pétur, fyndnasti maður
fslands.
„Mér finnst Davíð Þór
Jónsson bera af í fyndni á
íslandi. Sá maður á heiður
skilið fyrir fallega framsetn-
ingu og góða heilsusam-
lega, íslenska fyndni. Hann
hefur einstaka sýn á sam-
tímann en er einnig fall-
valtur og mannlegur
karakter.
Það eru fáir sem komast
upp með að vera Radíus-
bróðir, nema presturinn,
ritstýra Bleiks og Blás og
fara þaðan í að þýða og
leiklesa barnaefni. Snilling-
ur! I framtíðinni vil ég sjá
Davíð halda áfram í uppi-
standi enda er hann frum-
kvöðull á því sviði. Davíð
Þór, æ salút jú!
Hann segir / Hún segir
Helga Braga, leikkona.
Ég get ekki bent á neinn
einn. Steinarnir mínir,
Steinn Ármann og Þorsteinn
Guðmundsson, koma einna
fyrst upp í hugann. Steinn
Armann er auðvitað einn
besti leikari á íslandi og hef-
ur hráan „spontant" húmor.
Þorsteinn er svo með lúmsk-
an og dásamlegan húmor
jafnframt því að vera frábær
rithöfundur. Lærimeistari
minn, Edda Björgvins, er
mikill grínist og alvöru leik-
kona. Svo er Ólafía Hrönn
með „djúsí" húmor og býr til
skemmtilegar týpur.
Allt eru þetta gjörólíkir
listamenn og með sinn
perónulega stfl. Húmor er
dásamleg sýn á lífið, guðs-
gjöf sem er úthlutað til
fárra.“
Skotveiðimenn eru æfir vegna þeirrar ákvörðunar umhverfisráðherra að endur-
greiða ekki veiðikort sem öllum, er hyggjast stunda skotveiði, er gert að kaupa á
ári hverju
Ráðherra í stríð
við veiðimenn
Umhverfisráðuneytið hyggst ekki endur-
greiða þeim skotveiðimönnum sem keyptu
svokölluð veiðikort, áður en bann við rjúpna-
veiði var ákveðið í sumar. Vísar ráðuneytið þar til
iaga um friðun rjúpunnar og telur sér ekki skylt
að endurgreiða þeim tæplega hundrað veiði-
mönnum sem formlega höfðu óskað eftir slíku.
Öllum skotveiðimönnum er gert að kaupa
slíkt veiðikort á ári hverju en það eingöngu veitt
gegn framvísun veiðiskýrslu viðkomandi árið
áður. Kortið kostar 2.200 krónur.
„Þetta er alveg dæmalaust," segir Sigmar B.
Hauksson, formaður Skotvís, félags skotveiði-
manna. „Tölur okkar
benda til að yfir 60%
þeirra sem stunda
skotveiði að ein-
hverju marki
stundi ein-
göngu rjúpna-
veiðar. Til að
mega skjótahana
þarf veiðikort og
þetta þýðir að
þeir sem keyptu
slíkt í góðri trú í
vor fá ekki neitt
fyrir sinn snúð."
Sigmar segir
ljóst að sið-
ferðilega hefði
verið rétt að
endurgreiða
veiðimönnum
sem þess óskuðu
en með þessu
Rjúpnaveiðimenn Kallað er eftir aðgerðum
irman þeirra raða vegna ákvörðunar umhverf-
isráðherra.
framtaki sé Siv Friðleifsdóttir,
umhverfisráðherra, komin í
stríð við veiðimenn.
„Það var nógu slæmt að fá
illa ígrundað bannið við veið-
unum. Með þessum úrskurði
er verið að snúa hnífnutn í
sárinu og strá salti lauslega
yfir."
„Niðurstaðan er sú að
við teljum engar lagalegar
forsendur til endur-
greiðslu," segir Sigríður
Auður Arnardóttir, skrif-
stofustjóri í Umhverfis-
ráðuneytinu. „Sam-
Með þessum úrskurði er verið
að snúa hnífnum / sárinu og
strá salti lauslega yfir
kvæmt lögum sem sett voru 1994 er rjúpan frið-
uð. Heimilt er að víkja tímabundið frá því og hef-
ur það verið gert undanfarin ár. Nú er hins vegar
veiðibann á henni og þess vegna er ekki um slík-
ar undanþágur að ræða."
Innan raða skotveiðimanna er talað um gagn-
aðgerðir. Að líkindum mun það þýða að þær
veiðiskýrslur sem ráðuneytið fær frá veiðimönn-
um á ári hverju og notaðar eru til rannsókna
verði mun lakari að gæðum en raun hefur verið
hingað til.
atben@dv.is
R-listinn kynnir fjárhagsáætlun með 92 þúsunda
skuldaaukningu á fjögurra manna íjölskyldur
Skatttekjur streyma
inn og skuldirnar vaxa
R-listinn ætíar að herða á skulda-
söfnun og auka tekjur borgarsjóðs um
tæp 9% á næsta ári.
Meirihluti R-listans lagði fram fjár-
hagsáætíun næsta árs í borgarstjórn í
gær. í henni kemur fram að tekjur
borgarsjóðs sjálfs - án stofnana og fýr-
irtækja borgarinnar - munu vaxa úr
34,7 milljörðum króna í 37,7 milljarða,
eða um 8,7%. Hækkunin er fýrst og
fremst vegna aukinna skatttekna þó
sjálf skattprósentan hækki ekki.
Á sama tíma og reiknað er með að
borgarsjóður verði rekinn með 1,4
milljarða afgangi á næsta ári munu
heildarskuldirnar aukast um 1,1 millj-
arð. Skuldir borgarsjóðs munu þá
nema 21,2 milljörðum í lok ársins
2004.
Skuidaaukningin er sögð vera
vegna flýtiframkvæmda og verðbóta á
innlend lán borgarsjóðs. A hvern íbúa
nemur skuldaaukningin 23 þúsund
krónum. Það svarar til 92 þúsunda
króna á hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu.
R-lista fólk segir fjárhagsfrumvarp
sitt bera þess merki að nokkur óvissa
ríki í efnahagsmálum. Borgin hafi
ákveðið að auka framkvæmdir á sín-
um vegum árin 2003 og 2004 eftir að
ríkisstjórnin bað opinbera aðila að
draga úr á nýframkvæmdum á árun-
um 2005 og 2006 - þegar stórfram-
kvæmdirnar á Austurlandi nái há-
marld.
„Þrátt fyrir þetta hefur atvinnustig
á höfuðborgarsvæðinu verið lægra en
spáð var. Þótt áformað sé að ráðast í
Þórólfur Árnason Borgarstjóri og bak-
hjarlar hans iR-listanum kynntu i gær frum-
varp að fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar.
virkjanaframkvæmdir á Nesjavöllum,
Hellisheiði og við Svartsengi á árinu
2004 ríkir engu að síður talsverð
óvissa um atvinnustigið á suðvestur-
horni landsins," segir í greinargerð
með fjárhagsáætíuninni.
gar@dv.is