Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Page 13
3>V Fréttir
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 13
Faðir býður
nýra til sölu
Bretinn Peter Randall
hefur auglýst annað nýra
sitt til sölu á uppboðsvefn-
um eBay. Randall vonast til
að fá 10 millj-
ónir króna fyrir
líffærið. Hann
ætlar að nota
peningana til
að borga fyrir læknismeð-
ferð sex ára dóttur sinnar.
„Ég get lifað með eitt nýra.
Þetta er lítil fórn fyrir að fá
að sjá litlu stúlkuna mína
stíga fýrstu skrefin," segir
Randall. Dóttir hans, Alice,
þjáist af lömunarveiki.
Læknismeðferð Alice hefur
þegar kostað nokkrar millj-
ónir og miklu meira þarf til.
Randall bindur vonir við að
með réttri meðferð þá eigi
Alice eftir að ganga óstudd
að fáeinum árum liðnum.
Fleiri erlend
leikskólabörn
Erlendum leikskóla-
börnum í Reykjavík hefur
fjölgað talsvert undanfarin
ár. Frá því í fyrra hafa 84
börn af erlendu bergi brot-
in bæst í hópinn, og eru
þau nú 506 að tölu. Erlend
leikskólabörn tala 54 mis-
munandi tungumál og eru
330 þeirra tvítyngd. Flest
þeirra tala ensku sem fýrsta
tungumál, eða 74, og næst-
flest spænsku.
Enginn í rjúpu
fyrir norðan
„Við þraukum ennþá enda eru
nokkrirsem enn fara til veiða,"
segirJónas Þór Hallgrímsson,
áhugamaður um skotveiði og
eigandi Hlað sf. á Húsavík, en
fyrirtækið framleiðir hagla-
skot. Rjúpnaveiðibannið sem
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra setti á hefur gert at-
vinnureksturinn erfiðan.
- Þið eruð ekki enn farnir á
hausinn eins og margir óttuð-
ust í sumar?
„Við þraukum enn þá. Sem
betur fer eru til menn sem
skjóta gæs og hreindýr þannig
aðsal-
Landsíminn
ekki
alveg stöðnuð. Hins vegar hef-
ur bannið gert mörgum gramt
í geði. Sérstaklega núna fyrir
jólin þegar fólk gerir sér grein
fyrir að úrval afrjúpu fyrir
jólaborðið verður kannski ekk-
ert."
- Eru engir norðanmenn að
laumast til heiða eftir rjúp-
unni?
„Það efast ég um. Ég hefalla
vega ekki heyrt um það. Hins
vegar skilst mér að margir
hyggist prófa hreindýrakjöt í
jólamatinn ístað hinnar
venjulegu rjúpu."
- Hvað gerist efrjúpnaveiði-
bannið stendur?
„Þá er ekki i mörg hús að
venda. Ráðherra þarfhins
vegar að gera sér grein fyrir að
meðan minka- og tófustofnar
hér á landi stækka ár frá ári,
þá á rjúpnastofninn sér litla
framtíð."
Samtök blökkumanna og prestar eru æfir vegna dauða Nathaniels Jones sem lést
af völdum barsmíða lögreglumanna. Þess er krafist að lögreglustjórinn segi af sér.
Reynir að standa upp Jones reynir að reisa sig upp en megnarþað ekki enda láta lögreglumenn höggin dynja á honum. Myndin er úr vídeómyndskeiði lögreglunnar.
bitastaðnum White Castle. Lögregla hafði verið
kvödd á vettvang vegna einkennilegrar hegðunar
Jones en hann mun m.a. hafa stigið danspor á
staðnum.
Á myndbandinu sem fýrr er getið sést greinilega
þegar tveir lögreglumenn hefja barsmíðar og láta
kylfúhöggin dynja á Jones eftir að hann virðir ósk
þeirra um að standa kyrr að vettugi. Jones gerði síð-
an tilraun til að kýla annan lögreglumanninn. Lög-
reglumennimir hættu ekki barsmíðum fyrr en Jones
féll í gólfið og héldu þeir áfram að berja hann áður
en þeir handjárnuðu. Jones var fluttur með sjúkrabfl
á næsta sjúkrahús en var úrskurðaður látinn við
komuna.
Lögmaður fjölskyldu Jones segir Jones hafa gert
tilraun til upggjafar eftir að átökin hófust. „Á mynd-
bandinu sést að þegar Jones reynir að rísa upp og
leggjast á hnén að
lófar hans em flatir
en ekki krepptir, sem
væri eðlilegt ef hann
ætlaði berja frá sér.
Ég tel að Jones hafi
gert tilraun til að gef-
ast upp.“
Jones væri á lífi
Varnarlaus Lögreglu-
menn berja Jones aftur og
aftur með kylfum.
Dauði Nathaniels Jones sefn lést f kjölfar bar-
smíða lögreglumanna í Cincinnati í Bandaríkjunum
á sunnudagskvöld hefúr vakið mikla reiði meðal
íbúa sem ráðamanna. Þess er krafist að lögreglu-
stjóri segi af sér vegna málsins.
Lögreglumyndband sem sýnt hefur verið í sjón-
varpi hefur vakið upp óhug meðal fólks enda sést
þar hvernig lögreglumenn ganga í skrokk á manni
og bókstáflega murka úr honum lífið. Alls vom fimm
lögreglumenn á vettvangi; fjórir hvítir og einn svart-
ur.
Árekstur Jones og lögreglunnar hófst á skyndi-
Borgarafundur Lögreglumenn
svara spurningum íbúa Cincinnati
um dauða Jones. Mikil reiði er með-
al margra ibúa vegna ofbeldis lög-
reglunnar.
Krufningarskýrsla lá fyrir í gær og sam-
kvæmt henni er dánarorsök Jones talin áverkar
af völdum barsmíðanna. Dauði Jones er því
flokkaður sem manndráp. Jones var stæðilegur
maður sem þjáðist af offitu, vó 159 kfló, og var
með stækkaðan hjartavöðva. Við krufningu
kom í ljós að hann hafði neytt kókaíns
nokkrum stundum fyrir andlátið. Margir mar-
blettir fundust á líkinu og þykir fullvíst að þeir
eru eftir lögreglukylfurnar.
Dánardómstjórinn, Carl Parrot, segir að Jones
hafi fengið hjartsláttartruflanir sem hafi leitt
hann til dauða. „Jones hefði ekki látist á þessum
tímapunkti hefði ekki komið til átaka," segir Par-
rot.
Sú staðreynd að lögreglumennimir sem eiga í
hlut eru hvítir á hörund og fórnarlambið svart
hefur vakið mikla reiði. Fyrir þremur árum brut-
ust út óeirðir í Cincinnati eftir að svartur ung-
lingur lést eftir átök við lögreglumann. Damon
Lynch, forseti Samtaka blökkumanna, segir at-
burðinn sýna nauðsyn þess að hreinsa til í lög-
regluliði borgarinnar. „Við þurfum nýja yfir-
stjórn í lögreglunni og ný viðhorf."
Þá hafa svartir leiðtogar kirkjunnar boðað til
mótmælagöngu á sunnudag. Fjölskylda Jones og
Samtök blökkumanna ætla að krefjast sjálfstæðr-
ar rannsóknar á atburðinum. Á meðan vinnur
bandaríska alríkislögreglan, FBI, og starfsmenn
dómsmálaráðuneytis að rannsókn málsins.
arndis@dv.is
Gunnar Örlygsson kominn úr fangelsi og inn á þing.
„Mér var tekið vel"
„Mér hefur verið mjög vel tekið hér á þing-
inu og fengið hlýjar kveður. Undanfarnir mán-
uðir hafa verið lærdómsríkir og það eru algjör
stakkaskipti að öðlast frelsi aftur,“ segir Gunnar
Örlygsson, þingmaður Frjálsynda flokksins,
sem settist á þing í gær aftur í fyrsta sinn eftir að
hann lauk afplánun fyrir brot gegn bókhalds-
lögum, tollalögum og lögum um stjórn fisk-
veiða. Hann flutti ræðu um lyfjaverð í utandag-
krárumræðum um morguninn, en í vor sat
hann á þingi í tvo daga, við þingsetningu og
daginn eftir. Hann vildi lítið ræða vistina í fang-
elsinu. „Ég hef öðlast ákveðna reynslu er varðar
dóms- og fangelsismál, sem mun nýtast mér í
þingstörfum," segir Gunnar, sem mun leggja
áherslu á sjávarútvegsmál, málefni íþrótta-
hreyfingarinnar og málefni fátækra f þingstörf-
um sínum. „Fyrsta frumvarpið sem ég mun
mæla fýrir birtist líklega á vordögum." Gunnar
leyndi samflokksmenn sina því að hann ætti
yfir höfði sér málshöfðanir vegna umferðar-
lagabrota, eftir að fyrri málin komu upp. Hann
missti prófið vegna ölvunaraksturs en hélt
áfram akstri þrátt fyrir það. Magnús Þór Haf-
steinsson, varaformaður flokksins sagði þá að
hann hefði ekki viljað fá Gunnar örn í framboð
hefði hann vitað hvernig í pottinn væri búið.
„Ég tel ekki svo vera að Magnús hafi verið með
atlögu gagnvart mér heldur að hann hafi verið
að vernda hagsmuni flokksins. Fullar sættir
hafa náðst milli mín og allra flokksmanna," seg-
ir Gunnar.
GunnarÖrlygsson
„Ég tel ekki að Mag'nús hafi verið með atlögu gagnvart mér
heldur aðhann hafi verið að vemda hagsmuni flokksins.