Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Side 21
DfV Fókus
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 21
Ein af leyndum perlum í útgáfuflórunni fyrir jólin er safnplatan Sándtékk sem 2112
gefur út. Sjö hljómsveitir eiga lög á plötunni og hægt er að fullyrða að þetta er
eigulegasti gripur. Þetta eru kannski ekki þekktustu hljómsveitir landsins en þær
eru nokkuð sjóaðar eftir að hafa spilað stíft á börum bæjarins undanfarin misseri.
„Þetta byrjaði þegar við héldum hljómsveita-
keppni Sánd. Þá sendi fullt af hljómsveitum og
tónlistarmönnum inn tónlist og það var Fritz
sem sigraði. Sigurlaunin voru að þeir fengu að
fara í stúdíó hjá IMP og fljótlega í kjölfarið kvikn-
aði sú hugmynd að gera þetta. Hljómsveitirnar
sem eiga lög á diskinum tengdust eiginlega allar
stúdíóinu og þannig var valið á plötuna," segir
Franz Gunnarsson, einn þeirra sem stendur að
útgáfu á safnplötunni Sándtékk nú fyrir jólin.
Hljómsveitirnar sem eiga lög á plötunni eru
Moody Company (skipuð áðurnefndum Franz
og Krumma söngvara úr Mínus), Tenderfoot,
Indigo, Rúnar, The Flavors, Fritz og Dr. Spock og
segir Franz þetta vera bönd sem hafl verið að
spila mikið saman á tónleikum. Þær eigi líka
margt sameiginlegt, komi allar úr „þessum alt-
ernative-, kántrý-, blúsgeira" sem virðist vera
vinsæll hér á landi í dag. „Þetta er svona sveita-
legur íslenskur blús, sameiginlegt einkenni er
kassagítarinn. Þetta er voðalega mikil skírskotun
í gamlar lietjur," segir Franz.
Safnplötur ættu að koma
„Við ákváðum að gera þessa tilraun til að sjá
hvort þetta virkaði og ef vel gengur gerum við
ráð fyrir að halda aðra hljómsveitakeppni. Þá
munum við kannski breyta reglunum aðeins,
taka inn fleiri tónlistarstefnur og hafa úr fleiri
böndum að velja. Við bjuggum þessa plötu til í
kringum sigursveitina. Þessi lög á plötunni eru
eins og „snapshot" aflögum sem munu væntan-
lega koma út í annarri mynd á' plötum með
hljómsveitunum. Þetta er svona bragð af því sem
koma skal," segir Franz.
Það hefur frekar lítið af safnplötum komið út
hér á landi undanfarin ár. Hvað finnst þér um
þennan markað?
„Já, það hefur frekar lítið komið út af safn-
plötum ef Svona er sumarið er undanskilið. Það
hefur eiginlega ekkert komið út síðan Spírur
komu út fyrir um það bil fimm árum, sællar
minningar. Hún gat af sér skemmtileg bönd eins
og Bang Gang, 200.000 naglbíta og fleiri. Það er
vonandi að hljómsveitirnar á Sándtékk komist til
samskonar hylli. Það er heilmikill ftlingur sem
hefur myndast í kringum þessa plötu. Ég hef
sjálfur tekið þátt í öðrum safnplötum eins og til
dæmis Heyrðu og þær hafa aldrei gert neitt fyrir
mig. Safnplötur virðast í seinni tíð hafa verið
gerðar að peningamaskínum, ég hefði frekar
haldið að þetta ætti að koma í staðinn fyrir smá-
skífumarkaðinn á íslandi. Það eru allir í svo mikl-
um bissness og gleyma að þarf að vera hugsjón
með, annars er engin sál í því sem þú ert að
gera."
Mikil uppsveifla í tónleikahaldi
Franz segir að aðall hljómsveitanna á Sánd-
tékk hafi verið að leika á tónleikum fram að
þessu. Hann hrósar þeirri endurnýjun sem orðið
hefur í tónleikahaldi hérlendis undanfarið; mik-
ið af ungum hljómsveitum hafi komið fram og
þær hafi verið duglegar við gefa út efni sitt
sjálfar. „Það hefur verið mikil upp
sveifla, sem er jákvætt."
Hvernig verður svo framhaldið?
„Við höldum að sjálfsögðu
nokkra tónleika til að kynna plöt-
una. í kvöld verða upphitunar-
tónleikar á Kránni þar sem nokk-
ur af böndunum koma fram
Það verður ókeypis inn og við
höldum þetta bara til að gefa
fólki smá nasasjón af tónlist-
inni. Á fimmtudagskvöldið í
næstu viku verðum við svo
með aðra upphitunartón-
leika á Gauknum, þar sem
við ætlum líka að bjóða öðr-
urn böndum sem eru að
gefa út sjálf fyrir jólin, að
koma og spila með okkur.
Útgáfutónleikarnir sjálfir
verða svo sunnudags-
kvöldið 14. desember í
Þ j ó ðleikhúskj allaranum.
Þar koma öll böndin
fram nema kannski Dr.
Spock því það er alltaf
svo erfitt að koma þeim
saman. Svo geri ég ráð
fyrir að allar þessar
hljómsveitir eigi eftir
að dúkka upp víðsveg-
ar um bæinn þegar líð-
ur að jólum. Þegar
jólastressið nær há-
marki þá er fínt að
þessi bönd hjálpi til
við að róa íslendinga
niður. Aðeins að slá á
jólageðveikina."
Franz Gunnarsson
Eirm þeirra sem standa að ó útgófu
á safnplötunni Sándtékk. Sjö hljóm-
sveitir eiga iög á plötunni og spila þær
Islenskan sveitablús að sögn Franz.
• Stebbi
Hilmars og
félagar í
Sálinni
halda dans-
leik á
Players.
• B3 tríó leikur á Kaffi Central
klukkan 21.30. Central er undir
Skólabrú.
Lífið eftir vinnu
•
Hljóm-
sveitin
Rfláð
heldur
útgáfu-
tónleika
sína
vegna
plötunnar Seljum allt á Grand
Rokk í kvöld ldukkan 23. Mynd-
bönd verða einnig sýnd. Ókeypis
inn.
• Grúvbandið Muldphones spil-
ar á Pravda fyrri part kvölds, svo
takaKáriogÁkivið.
• Blús-
menn
Andreu
spila á Húsi
Sillaog
Valda ef það
nafn verður
enn við lýði,
gamla
Vídalín.
• Dj Valdi heldur sætu stelpun-
um og fótboltastrákunum heitum
á Hvetfisbamum í kvöld.
• Útvarpsmaðurinn ÞórBæring
verður í búrinu á Felix.
• í svörtum fötum spila á sveittu
balli á Gauknum.
• Dj MAT. spilar á Setustofunni
sem er í Lækjargötu 10.
• Níu listamenn opna vinnu-
stofusýningu í Skipholti 33b, fyrir
aftan gamla Tónabíó, klukkan 20.
Listamennirnir eru Þórunn Inga
Gísladóttir, Ásta Guðmundsdóttir,
Sandra María Sigurðardóttir,
Heiðar Þór Rúnarsson, Karen Ósk
Sigurðardóttir, Hrund Jóhannes-
dóttir, Hermann Karlsson og Mar-
grét Norðdahl.
■.-O.
Brítney
Spears
In theZone ■/
★ M
Jive/Skífan
In The Zone er fjórða
plata Britney Spears. Á
þeirri síðustu sem hét ein-
faldlega Britney var slatti af
flottum lögum, bæði eitur-
ferskt ný-fönk úr smiðju
The Neptunes og vel gerðar
poppbaílöður. Nýja platan
Plötudómar
er hins vegar afleit. Tónlist-
arlega er reynt að elta allar
tískubylgjur dagsins. Það er
meira að segja skotið inn
indversku grúví í ætt við
Punjabi MC og ekki ómerk-
ari aðilar en Moby, R. Kelly
og Madonna fengnir til liðs.
Án árangurs. Það eru ekki
öll lögin hér jafn vonlaus og
fyrsta smáskífan, Me Aga-
inst The Music, en heildin
er samt handónýt. Og ekki
bjargar það að stelpugreyið
tönnlast á því út alla plöt-
una hvað hún sé sexí. Fátt
jafn ósexí.
Trausti Júllusson
Underworld
1992-2002
★ ★★★
V2/Smekkleysa
Breska hljómsveitin
Underworld er búin að vera
í fremstu röð í danstónlist
frá því að hún var stofnuð í
byrjun tíunda áratugarins.
Hér gerir hún upp fyrstu 10
árin á ferlinum. Og hvílík
sending! 1992-2002 er tvö-
föld og inniheldur 16 lög,
næstum allt upprunalegu
(og löngu) 12i útgáfurnar. Á
fyrri plötunni eru lög frá
þeim tíma þegar sveitin var
lítt þekkt, en á þeirri seinni
eru smellir eins og Born
Slippy, Cowgirl og Push Up-
stairs. Tónlistin er kraftmik-
ið og hugmyndaríkt sam-
bland af teknói og döbbi.
Það er hvergi veikur punkt-
ur hér og gripurinn virkar
sértaklega vel sem heild.
Skyldueign!
TraustiJúlíusson
Starsailor Silence is Easy ★ f |
Tt
EMI/Skífan
Þetta er önnur plata
Starsailor sem vöktu nokkra
athygli með plötunni Love
is Here fyrir skemmstu, en
þar bar kannski hæst Poor
Misguided Fool. Starsailor
var hampað sem einni af
bjartari vonum Breta og líkt
við bönd á borð við Cold-
play og Travis. Staðreynd
málsins er aftur á móti sú að
Starsailor er mun leiðin-
legra band en flestöll hin
bresku böndin. Söngvarinn
James Walsh er með leiðin-
legan og vælandi söngstíl og
tilraunir með sönginn,
strengjaútsetningar og
fleira til að gera einhverja
dramatík eru misheppnað-
ar. Ég veit ekki hvort að-
koma morðingjans Phils
Spector að plötunni (hann
pródúserar tvö lög) hefur
ruglað drengina í ríminu, en
niðurstaðan er alla vega
einföld: Hundleiðinleg
plata.
• Einar Sonic spilar á Ellefumii í
kvöld frá klukkan 22.
Höskuldur Daði Magnússon