Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2003, Page 23
DV Sport FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 23 í dag verður dregið í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem fer fram í Þýskalandi árið 2006. ERFIÐASTI MÖGULEGI RIÐILLINN: Þegar nýjasti styrkleikalisti FIFA er skoðaður í samhengi við styrkleikaflokka undankeppninnar er hægt að mynda erfiðasta mögulega riðilinn sem Island getur lent í. (sland er sem stendur í 60. sæti listans, neðst iiðanna í fjórða styrleikaflokki. Fari svo að Island fari erfiðustu leiðina drögumst við með Frakklandi (2. sæti hjá FIFA), Hollandi (6.), Rúmeníu (24.), Ungverjalandi (67.), Albaníu (89.) og Kasakstan (135.) en aðeins þrír af átta riðlum innihalda sjö lið. Þessar þjóðir sjást merktar á kortinu hér tii hliðar. Þegar nýjasti styrkleikalisti FIFA er skoðaður í samhengi við styrkleikaflokka undankeppninnar er líka hægt að mynda léttasta mögulega riðilinn sem ísland getur lent í. ísland er sem stendur í 60. sæti listans, neðst liðanna í fjórða styrleikaflokki. Fari svo að ísland fari léttustu leiðina drögumst við með Portúgal (18. sæti hjá FIFA), Rússlandi (29.), Austurríki (65.), Norður (rlandi (118.), San Marínó (158.) og Lúxemburg (151.). Þessar þjóðir sjást merktar á kortinu hér til hliðar. Finnland Noregui Svíþjóð Rússland Eistland Hvíta Rússland Þýskaland Úkraína Tékkland Það er líka hægt að leika sér að því að mynda skemmtilegasta riðilinn í boði. Hér er skemmtilegasti riðillinn hugsaður að hafi tvö frábær og léttleikandi fótboltalið sem dragi að áhorfendur og peninga en restin byggist upp á andstæðingum sem henti okkar landsliði vel. Fari svo að Island fái allar óskir sínar uppfylitar drögumst við með Englandi (8. sæti hjá FIFA), Hollandi (6.), Skotlandi (50.), Eistlandi (73.), Færeyjum (127.) og Lúxemburg (151.) en þessi riðill er aðeins byggður á huglægu mati blaðamanns. Þessar þjóðir sjást merktar á kortinu hér til hliðar. Slóvakia Liechtensteii Austurríki Ungverjaland Rúmenfa Slóvenía Slóvenía Armenía, Aserbadjan, fsrael Georgía og Kasakstan eru ekki inn á kortinu. Bosnía Serbía og Svartfjalla land Búlgaría Makedóm Það er líka hægt að leika sér að því að mynda leiðinlegasta riðilinn í boði. Hér er leiðinlegasti riðillinn hugsaður að hafi sterkari þjóðir sem dragi ekki að sér áhorfendur og peninga og feli ennfremur í sér löng og erfið ferðalög. Fari svo að martröð íslands verði að veruleika drögumst við með Tryklandi (3. sæti hjá FIFA), Króatíu (20.), Grikklandi (30.), Makedóníu (96.), Moldavíu (105.) og Kasakstan (135.) en þessi riðill er aðeins byggður á huglægu mati blaðamanns. Þessar þjóðir sjást merktar á kortinu hér til hliðar. Trykland Grikkland Höfum ekki verið með 19 þjóðum í riðli sem taka nú þátt í undankeppni HM í Þýskalandi 2006: íslenska landsliðið í knattspyrnu hefur verið i undanriðli stórmóts (HM eða EM) með 32 afþeirri 51 þjóð sem tekur þátt i undankeppni HM i Þýskalandi. A kortinu hér fyrir ofan má sjá þær þjóðir sem við höfum mætt merktar með bláum lit en hinar sem við eigum eftir að fá að gllma við merktar með grænum lit. Mesta athygli vekur að við höfum ekki verið með Englendingum eða Itölum í riðli. LÉTTASTI MOGULEGI RIÐILLINN SKEMMTILEGASTI MOGULEGI RIÐILLINN LEIÐINLEGASTI MOGULEGI RIÐILLINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.