Helgarblaðið - 03.04.1992, Blaðsíða 4
Helgar 4 blaðið
Slitnaði uppúr
Samningaviðræðum aðila vinnu-
markaðarins var slitið um síðustu
helgi og er óvíst um framhaldið.
Samningar launafólks hafa verið
lausir frá því um miðjan september
í íyrra.
Bronsið í Austurríki
Islenska karlalandsliðið í hand-
bolta hreppti þriðja sætið í B-
keppnini í Austurríki. Það nægði
til að tryggja íslenska liðinu far-
seðilinn á HM í Svíþjóð á næsta
ári.
Enginn Óskar
Kvikmynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar, Böm náttúmnnar, hlaut
ekki óskarsverðlaunin sem besta
erlenda myndin við veitingu verð-
Iaunanna í vikunni. Öilum að
óvömm var það ítölsk mynd sem
hreppti hnossið.
Lóðsbót hvolfdi
Það slys varð á hafnarsvæðinu
við jámblendiverksmiðjuna á
Gmndartanga að lóðsbátnum frá
Akranesi hvolfdi þegar verið var
að aðstoða skip við að leggjast að
bryggju. Tveir menn vom á bátn-
um og bjargaðist annar en hinn
fannst látinn
Fullvinnsla borgar sig
Fullnýting sjávarfangs um borð í
vinnsluskipum á sjó er þjóðhags-
lega hagkvæm og mundi skila
hlutaðeigandi aðilum miklum arði
þrátt fyrir að ráðast þurfi í viða-
miklar fjárfestingar á flotanum.
Þetta kom fram í athugun sem gerð
var hjá Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins.
Fækkar hjó hernum
Vegna breyttra aðstæðna í ör-
yggismálum á alþjóðavettvangi
hefúr verið ákveðið að senda
bandarísku AWACs ratsjárflugvél-
amar til síns heima í sumar.
Mikligarður söðlar um
Sú breyting hefur verið gerð á
verslun Miklagarðs við Holtaveg
að þar hefúr vömnúmemm verið
fækkað, dregið hefur verið úr
þjónustu og vömverð lækkað. Að
sögn forráðamanna fyrirtækisins er
þetta gert til að koma til móts við
sjónarmið neytenda.
Landsmenn hlaupa
1. apríl
Eins og fyrr hlupu landsmenn 1.
apríl í vikunni. Flestir fjölmiðlar
gerðu sér mat úr deginum og
sögðu frá og fluttu misvel heppn-
aðar ekkifréttir.
Sjónvarpaö fró Alþingi
Ákveðið hefúr verið að hefja
sjónvarpssendingar ffá Alþingi og
verða þær hjá Sýn. Þetta var til-
kynnt á aðalfúndi íslenska útvarps-
félagsins sem kaus sér nýja stjóm í
vikunni.
Ekkert Geysisgos
Á fúndi Náttúmvemdarráðs fyrir
skömmu var ákveðið að framvegis
yrðu ekki framkölluð gos í Geysi í
Haukadal.
EB á dagskró
Aðild Islands eða ekki að Evr-
ópubandalaginu komst aftur á dag-
skrá í vikunni þegar skýrsla utan-
ríkisráðherra var rædd i þinginu.
Hefðu ekki á móti því að Jón segði af sér
Mikil átök hafa að undan-
fomu átt sér stað í þing-
flokki Alþýðuflokksins
vegna frumvarps Jóns Sig-
urðssonar viðskiptaráð-
herra um að gera Lands-
bankann og Búnaðarbank-
ann að hlutafélögum.
Ýmsirþingmenn Alþýðuflokks-
ins em andvígir því að þetta frum-
varp ráðherrans verði lagt fram, að
sinni a.m.k., og vilja fyrst sjá
stjómarfmmvarp gegn hringa-
myndun. Jóhanna Sigurðardóttir,
varaformaður fiokksins, og Össur
Skarphéðinsson þingfiokksfor-
maður hafa leitt andófið gegn Jóni
Sigurðssyni í þessu máli.
Þótt Jón Sigurðsson neiti því i
fjölmiðlum að komió hafi til
greina að hann Icgði
ráðherrastólinn að veði í þessu
máli herma heimildir Helgarblaðs-
ins að sá möguleiki hafi verið
ræddur í hópi andstæðinga
frumvarpsins og þeir ákveðið að
standa fast á sínum skoðunum.
Þrátt fyrir þaó að Jón Baldvin hafi
lagt nafna sínum lið í slagnum í
þingfiokknum virðist það ekki
hafa dugað til og hafa jafnvel þær
raddir heyrst að andstæðingum
Jónanna verði hugsuð þegjandi
þörfin. Auk Jóhönnu og Össurar
munu Rannveig Guðmundsdóttir
og Gunnlaugur Stefánsson andvíg
frumvarpinu eins og það lítur nú
út.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
neitar ennfremur (réttilega) að
frumvarpið verði iagt fram sem
stjómarfrumvarp nema allir ráð-
herrar séu því fylgjandi og and-
staða Jóhönnu kemur því í veg fyr-
ir að Jón geti lagt fram stjómar-
fmmvarp. Andstaða Jóhönnu, Öss-
urar og félaga þeirra byggist ekki
síst á því að þeim finnst standa á
fmmvarpi frá sama ráðherra gegn
hringamyndun (samkeppnislög). í
sjónvarpsfréttum í gærkvöldi sagði
Jóhanna að hún teldi að viðskipta-
ráðherra hefði farið allt of geyst í
þctta mál og hún teldi það farsælla
að því yrði frestað til haustsins.
Nokkrir þingmenn Alþýðubanda-
lagsins hafa lagt fram tvö fmm-
vörp þessu tengd, annars vegar um
verðlag og samkeppni, sem m.a.
tekur á hringamyndunum, og hins
vegar um hlutafélög en því frum-
varpi er ætlað að auka áhrif al-
mennings og smærri hluthafa í at-
vinnustarfseminni, en hægt hefur
gengið hjá Jóni.
I tímaritinu Heimsmynd, sem
væntanlegt er á næstu dögum, er
því haldið fram að Jónamir hafi
verið tilbúnir að svipta Össur
þingfiokksformennsku ef hann léti
ekki af andstöðu sinni við skóla-
gjaldamálin sem vom til umræðu
fyrir áramótin. Ef það er rétt er
eins líklegt að þeir hafi endurtekið
hótanir sínar í þessu máli. Til að
spilla enn frekar andrúmslofiinu í
þingfiokki Alþýðufiokksins mun
Jón Sig. hafa gagnrýnt Rannveigu
Guðmundsdóttur harkalega fyrir
ummæli hennar á ráðstefnu um
einkavæðingu í síðustu viku, en
þar mun Rannveig hafa lýst efa-
semdum um allsherjar einkavæð-
ingu í atvinnulífinu.
I Helgarblaðinu fyrir skemmstu
var fjallað um rekstrarerfiðleika
Landsbankans og þar m.a. bent á
áhyggjur erlendra lánardrottna
bankans vegna einkavæðingarum-
ræðunnar. Ohjákvæmilegt er að sú
umræða komi aftur upp á yfirborð-
ið ef Jón Sigurðsson fær sínu
framgengt.
Það hefur mörgum þótt Jón Sig-
urðsson halda á þessu máli með
álíka klaufalegum hætti og álmál-
inu. Hann hafi í raun ætlað sér að
keyra þetta mál í gegn sama hvað
það kostaði og geti þess vegna
ekki tekið tapi. Til að bæta gráu
ofan á svart er nú útrunninn frestur
til að leggja fram ný þingmál,
þannig að viðskiptaráðherra þyrfti
að leita afbrigða til að fá að leggja
fram frumvarpið úr því sem komið
er. Þetta er að vísu tæknilega hægt
en það er ekki hægt að leggja fram
stjómarfrumvarp gcgn vilja eins
ráðherra. Líklegast er því að Jón
láti undan vinstri armi Alþýðu-
fiokksins og samþykki að frum-
varp gegn hringamyndun verði
fyrst að lögum til að koma einka-
væðingarlögum um ríkisbankana í
gegn.
Þau sjónarmið hafa þó einnig
heyrst að Jón þoli einfaldlega ekki
fleiri pólitísk áföll ef hann á að
eiga einhverja möguleika á að
halda áfram í pólitík. Þess vegna
sé svo mikið í húfi fyrir hann að
berja niður andstöðuna í þing-
flokknum. Hann hafi í raun allt að
vinna en engu að tapa úr því sem
komið sé.
Föstudagurinn 3. apríl
Er nema von að menn bíði
spenntir eftir fiokksþingi Alþýðu-
flokksins, en það verður haldið í
haust. Þar má búast við átökum
um skipan forystusveitar fiokksins
og í Pressunni í gær vildi Guð-
mundur Ámi Stefánsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, ekki neita því
að hann kynni að bjóða sig fram
gegn Jóni Baldvin Hannibalssyni
eða styðja Jóhönnu Sigurðardóttur
í formannsslag. Augljóslega er
komin ylur í kolin hjá Alþýðu-
fiokknum og svo kann að fara að
þegar kemur fram á haustið verði
þau farin að velgja Jónunum svo
undir uggum að þeir neyðist til að
finna sér önnur störf, a.m.k. annar
þeirra.
Hita-
veitunni
refsað
Hitaveita Reykjavíkur mun
þurfa að greiða 17 þúsund krónur
í refsitryggingu á dag til Húsa-
tiygging.'.r Reykjavíkurborgar
vegna ósamþykktra lampa senl
em á göngum og í eldhúsi Perl-
unnar á Öskjuhlíð. Á meðan
lampamir em ósamþykktir af
Rafmagnseftirliti ríkisins geta
starfsmenn Rafmagnsveitu
Reykjavíkur ekki samþykkt raf-
lagnir Perlunnar. Ástæðan fyrir
þessum refsigreiðslum til Húsa-
trygginga mun vera sú að eftir
stórbmnann í Gúmmívinnustof-
unni hér um árið, ganga Húsa-
tryggingamar mun harðar fram í
því að húseigendur hafi raflagnir
sínar samkvæmt settum reglum.
AFMÆLIS
TILBOÐ
SÉRSTAKUR 5% AFMÆLIS-
AFSLÁTTUR AF FLESTUM
VÖRUM VERSLUNARINNAR
10% EF STAÐGREITT ER.
RIPPEN* SAMICK* HVUnDPII
PÍANO OG FLYGLAR • DINO BAFFETTI
HARMONIKUR • SAMICK
GÍTARAR • OFL. TILBOÐIÐ
STENDUR FRÁ OG MEÐ
27.MARS TIL 5.APRÍL NK.
VERIÐ VELKOMIN
LtlFS H. A/IAGNÚSSONAR
GULLTEIGI 6 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91 - 688611