Helgarblaðið - 03.04.1992, Qupperneq 4

Helgarblaðið - 03.04.1992, Qupperneq 4
Helgar 4 blaðið Slitnaði uppúr Samningaviðræðum aðila vinnu- markaðarins var slitið um síðustu helgi og er óvíst um framhaldið. Samningar launafólks hafa verið lausir frá því um miðjan september í íyrra. Bronsið í Austurríki Islenska karlalandsliðið í hand- bolta hreppti þriðja sætið í B- keppnini í Austurríki. Það nægði til að tryggja íslenska liðinu far- seðilinn á HM í Svíþjóð á næsta ári. Enginn Óskar Kvikmynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar, Böm náttúmnnar, hlaut ekki óskarsverðlaunin sem besta erlenda myndin við veitingu verð- Iaunanna í vikunni. Öilum að óvömm var það ítölsk mynd sem hreppti hnossið. Lóðsbót hvolfdi Það slys varð á hafnarsvæðinu við jámblendiverksmiðjuna á Gmndartanga að lóðsbátnum frá Akranesi hvolfdi þegar verið var að aðstoða skip við að leggjast að bryggju. Tveir menn vom á bátn- um og bjargaðist annar en hinn fannst látinn Fullvinnsla borgar sig Fullnýting sjávarfangs um borð í vinnsluskipum á sjó er þjóðhags- lega hagkvæm og mundi skila hlutaðeigandi aðilum miklum arði þrátt fyrir að ráðast þurfi í viða- miklar fjárfestingar á flotanum. Þetta kom fram í athugun sem gerð var hjá Rannsóknastofnun fiskiðn- aðarins. Fækkar hjó hernum Vegna breyttra aðstæðna í ör- yggismálum á alþjóðavettvangi hefúr verið ákveðið að senda bandarísku AWACs ratsjárflugvél- amar til síns heima í sumar. Mikligarður söðlar um Sú breyting hefur verið gerð á verslun Miklagarðs við Holtaveg að þar hefúr vömnúmemm verið fækkað, dregið hefur verið úr þjónustu og vömverð lækkað. Að sögn forráðamanna fyrirtækisins er þetta gert til að koma til móts við sjónarmið neytenda. Landsmenn hlaupa 1. apríl Eins og fyrr hlupu landsmenn 1. apríl í vikunni. Flestir fjölmiðlar gerðu sér mat úr deginum og sögðu frá og fluttu misvel heppn- aðar ekkifréttir. Sjónvarpaö fró Alþingi Ákveðið hefúr verið að hefja sjónvarpssendingar ffá Alþingi og verða þær hjá Sýn. Þetta var til- kynnt á aðalfúndi íslenska útvarps- félagsins sem kaus sér nýja stjóm í vikunni. Ekkert Geysisgos Á fúndi Náttúmvemdarráðs fyrir skömmu var ákveðið að framvegis yrðu ekki framkölluð gos í Geysi í Haukadal. EB á dagskró Aðild Islands eða ekki að Evr- ópubandalaginu komst aftur á dag- skrá í vikunni þegar skýrsla utan- ríkisráðherra var rædd i þinginu. Hefðu ekki á móti því að Jón segði af sér Mikil átök hafa að undan- fomu átt sér stað í þing- flokki Alþýðuflokksins vegna frumvarps Jóns Sig- urðssonar viðskiptaráð- herra um að gera Lands- bankann og Búnaðarbank- ann að hlutafélögum. Ýmsirþingmenn Alþýðuflokks- ins em andvígir því að þetta frum- varp ráðherrans verði lagt fram, að sinni a.m.k., og vilja fyrst sjá stjómarfmmvarp gegn hringa- myndun. Jóhanna Sigurðardóttir, varaformaður fiokksins, og Össur Skarphéðinsson þingfiokksfor- maður hafa leitt andófið gegn Jóni Sigurðssyni í þessu máli. Þótt Jón Sigurðsson neiti því i fjölmiðlum að komió hafi til greina að hann Icgði ráðherrastólinn að veði í þessu máli herma heimildir Helgarblaðs- ins að sá möguleiki hafi verið ræddur í hópi andstæðinga frumvarpsins og þeir ákveðið að standa fast á sínum skoðunum. Þrátt fyrir þaó að Jón Baldvin hafi lagt nafna sínum lið í slagnum í þingfiokknum virðist það ekki hafa dugað til og hafa jafnvel þær raddir heyrst að andstæðingum Jónanna verði hugsuð þegjandi þörfin. Auk Jóhönnu og Össurar munu Rannveig Guðmundsdóttir og Gunnlaugur Stefánsson andvíg frumvarpinu eins og það lítur nú út. Davíð Oddsson forsætisráðherra neitar ennfremur (réttilega) að frumvarpið verði iagt fram sem stjómarfrumvarp nema allir ráð- herrar séu því fylgjandi og and- staða Jóhönnu kemur því í veg fyr- ir að Jón geti lagt fram stjómar- fmmvarp. Andstaða Jóhönnu, Öss- urar og félaga þeirra byggist ekki síst á því að þeim finnst standa á fmmvarpi frá sama ráðherra gegn hringamyndun (samkeppnislög). í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi sagði Jóhanna að hún teldi að viðskipta- ráðherra hefði farið allt of geyst í þctta mál og hún teldi það farsælla að því yrði frestað til haustsins. Nokkrir þingmenn Alþýðubanda- lagsins hafa lagt fram tvö fmm- vörp þessu tengd, annars vegar um verðlag og samkeppni, sem m.a. tekur á hringamyndunum, og hins vegar um hlutafélög en því frum- varpi er ætlað að auka áhrif al- mennings og smærri hluthafa í at- vinnustarfseminni, en hægt hefur gengið hjá Jóni. I tímaritinu Heimsmynd, sem væntanlegt er á næstu dögum, er því haldið fram að Jónamir hafi verið tilbúnir að svipta Össur þingfiokksformennsku ef hann léti ekki af andstöðu sinni við skóla- gjaldamálin sem vom til umræðu fyrir áramótin. Ef það er rétt er eins líklegt að þeir hafi endurtekið hótanir sínar í þessu máli. Til að spilla enn frekar andrúmslofiinu í þingfiokki Alþýðufiokksins mun Jón Sig. hafa gagnrýnt Rannveigu Guðmundsdóttur harkalega fyrir ummæli hennar á ráðstefnu um einkavæðingu í síðustu viku, en þar mun Rannveig hafa lýst efa- semdum um allsherjar einkavæð- ingu í atvinnulífinu. I Helgarblaðinu fyrir skemmstu var fjallað um rekstrarerfiðleika Landsbankans og þar m.a. bent á áhyggjur erlendra lánardrottna bankans vegna einkavæðingarum- ræðunnar. Ohjákvæmilegt er að sú umræða komi aftur upp á yfirborð- ið ef Jón Sigurðsson fær sínu framgengt. Það hefur mörgum þótt Jón Sig- urðsson halda á þessu máli með álíka klaufalegum hætti og álmál- inu. Hann hafi í raun ætlað sér að keyra þetta mál í gegn sama hvað það kostaði og geti þess vegna ekki tekið tapi. Til að bæta gráu ofan á svart er nú útrunninn frestur til að leggja fram ný þingmál, þannig að viðskiptaráðherra þyrfti að leita afbrigða til að fá að leggja fram frumvarpið úr því sem komið er. Þetta er að vísu tæknilega hægt en það er ekki hægt að leggja fram stjómarfrumvarp gcgn vilja eins ráðherra. Líklegast er því að Jón láti undan vinstri armi Alþýðu- fiokksins og samþykki að frum- varp gegn hringamyndun verði fyrst að lögum til að koma einka- væðingarlögum um ríkisbankana í gegn. Þau sjónarmið hafa þó einnig heyrst að Jón þoli einfaldlega ekki fleiri pólitísk áföll ef hann á að eiga einhverja möguleika á að halda áfram í pólitík. Þess vegna sé svo mikið í húfi fyrir hann að berja niður andstöðuna í þing- flokknum. Hann hafi í raun allt að vinna en engu að tapa úr því sem komið sé. Föstudagurinn 3. apríl Er nema von að menn bíði spenntir eftir fiokksþingi Alþýðu- flokksins, en það verður haldið í haust. Þar má búast við átökum um skipan forystusveitar fiokksins og í Pressunni í gær vildi Guð- mundur Ámi Stefánsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, ekki neita því að hann kynni að bjóða sig fram gegn Jóni Baldvin Hannibalssyni eða styðja Jóhönnu Sigurðardóttur í formannsslag. Augljóslega er komin ylur í kolin hjá Alþýðu- fiokknum og svo kann að fara að þegar kemur fram á haustið verði þau farin að velgja Jónunum svo undir uggum að þeir neyðist til að finna sér önnur störf, a.m.k. annar þeirra. Hita- veitunni refsað Hitaveita Reykjavíkur mun þurfa að greiða 17 þúsund krónur í refsitryggingu á dag til Húsa- tiygging.'.r Reykjavíkurborgar vegna ósamþykktra lampa senl em á göngum og í eldhúsi Perl- unnar á Öskjuhlíð. Á meðan lampamir em ósamþykktir af Rafmagnseftirliti ríkisins geta starfsmenn Rafmagnsveitu Reykjavíkur ekki samþykkt raf- lagnir Perlunnar. Ástæðan fyrir þessum refsigreiðslum til Húsa- trygginga mun vera sú að eftir stórbmnann í Gúmmívinnustof- unni hér um árið, ganga Húsa- tryggingamar mun harðar fram í því að húseigendur hafi raflagnir sínar samkvæmt settum reglum. AFMÆLIS TILBOÐ SÉRSTAKUR 5% AFMÆLIS- AFSLÁTTUR AF FLESTUM VÖRUM VERSLUNARINNAR 10% EF STAÐGREITT ER. RIPPEN* SAMICK* HVUnDPII PÍANO OG FLYGLAR • DINO BAFFETTI HARMONIKUR • SAMICK GÍTARAR • OFL. TILBOÐIÐ STENDUR FRÁ OG MEÐ 27.MARS TIL 5.APRÍL NK. VERIÐ VELKOMIN LtlFS H. A/IAGNÚSSONAR GULLTEIGI 6 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91 - 688611

x

Helgarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarblaðið
https://timarit.is/publication/259

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.