Helgarblaðið - 03.04.1992, Síða 20
Helgar 20 blaðið
Engar venjulegar
pönnukökur
Arthur Pétursson, mat-
reiðslumaður á Hard
Rock Café, lét okkur í
té þessa framandi upp-
skríft sem á ættir að
rekja til Mexíkó og er
ætluð fyrir fimm
manns:
Chimi Changas
Mexikanskar pönnukökur
Tortillaskökur
Refried beans
800 gr nautakjöt
rifinn ostur
Refried beans:
240 gr nýmabaunir
1 tsk. smátt saxaður laukur
43 gr olía
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
300 gr niðursoðnir tómatar
1 1/2 tsk. chilipipar
Nýmabaunimar em mauk-
soðnar og síðan er öllu bland-
að saman i skál.
Marinering fyrir nauta-
kjöt:
0,5 ltr. salatolía
0,7 dl soyasósa
1 msk. Worchestershiresósa
1/2 tsk. hvítlauksduft
1/2 tsk. sítrónusafi
Öllu blandað saman, sí-
trónan kreist út í. Kjötið látið
liggja í marineringunni í
u.þ.b. 4 klst.
Picantsósa:
450 gr niðursoðnir tómatar
1 hvítlauksrif
75 gr laukur
40 gr gulrætur
1 tsk. kúmen
2 tsk. chiliduft
1 tsk. cayennepipar
2 tsk. kjúklingalaaftur
40 gr sellerí
40 gr steinselja
Laukur, gulrætur, sellerí,
hvítlaukur, allt saxað smátt,
sett í pott og brúnað ásamt
kryddinu, síðan em tóm-
atamir settir útí með
kjúklingakraftinum og
steinseljunni. Soðið i 1 klst.
Tortillaskökur
Fást í frystiborðum allflestra
matvömverslana.
Kjötið er skorið í strimla
sem blandað er saman við
baunimar og ostinn. Blönd-
unni er síðan pakkað inn í
tortillaskökumar og límt sam-
an með eggjarauðum. Djúp-
steikt í u.þ.b. 5 minútur. Bor-
ið ffam með hrísgijónum,
picantsósu og salati.
Fullt af fólki og fín
músík á Hard Rock Café
Hard Rock Café er, eins og
flestir vita, veitingastaður í
Kringlunni. Þangað er
ferðinni heitið að þessu
sinni og þótt þar geti að
líta fólk á öllum aldri
fannst okkur ekki nema
sjálfsagt að matargestir
Helgarblaðsins þar yrðu í
yngri kantinum. Við flett-
um upp í áskrifenda-
skránni og staðnæmdumst
við Heimi Björgúlfsson, 16
ára iðnsvein. Hann er
kannski ekki yngsti áskrif-
andi blaðsins en að óat-
huguðu máli er okkur til
efs að þeir séu margir
yngri. Heimir þekktist boð-
ið umhugsunarlaust og
bauð með sér Helga Þórs-
syni, vini sínum og skóla-
bróður.
... ...
: ■ '
Þeir félagar mættu á staðinn um
kvöldmatarleytið á þriðjudaginn
var og þar var þá fullt af fólki í
öllum aldursflokkum. Heimir
sagðist hafa borðað þarna áður og
líkað vel, þótt hann væri eiginlega
á móti því sem hann kallaði
keðjuveitingahús. Þarna væri líka
spiluð ágætis músik sem vel
mætti vera hærra stillt.
Ákaflega góbur matur
Fyrst fengu þeir sér súpu dags-
ins sem þeim kom saman um að
hefði verið alveg ágæt. Heimi
fannst þó að hún hefði mátt vera
meira soðin en Helga minna. Þá
var komið að piparsteik úr meyru
og bragðgóðu kjöti. Með henni
voru bornar fram franskar kartöfl-
ur og tómatar og hefði að ósekju
mátt vera meira af hvoru tveggja.
Kartöflumar hefðu líka mátt vera
meira steiktar, sagði Hcimir, og
svo hefði hann ekkert haft á móti
miklu meiri pipar á steikina. 1 eft-
irrétt létu þeir sig ekki muna um
að skella í sig risasneið af súkku-
Iaðiköku með ís og þeyltum
rjóma scm þeir skoluðu niður
Veitingar
með mjólkurhristingi. Þetta var
hið besta mál nema hvað Heimir,
sem greinilega tók hlutverk sitt
sem matargagnrýnandi mjög há-
tíðlega, hafði orð á því að kirsu-
berin sem skreyttu tertuna hefðu
mátt vera fleiri og gjaman fersk.
Niðurstaðan varð sú að maturinn
hefði verið ákaflega góður.
Gestir á Hard Rock Café geta
valið um ýmsar vín- og bjórteg-
undir til að drekka með matnum
en þegar maður er ekki nema
sextán ára þýðir lítið að skoða
lista yílr slíkar veigar. Og ekki
bar á öðru en appeisínið sem þeir
piltar teyguðu færi prýðilega í þá.
Þótt Heimir og Helgi væru ekki
beinlínis banhungraðir að máltíð
lokinni létu þeir ekki bjóða sér
það tvisvar að bragða á Kalifom-
íu-pizzu sem verið var að kynna
gestum staðarins. Sögðu þeir hana
firnagóða og spáðu henni miklum
vinsældum. „Þeir ættu að hefja
földáframleiðslu og senda jafnvel
út á land,“ bætti Heimir við.
Afbragós þjónusta
Þjónustan var afbragðsgóð og
nákvæmlega ekkert út á hana að
setja. „Þær ættu samt endilega að
vera í gúmmistígvélum, stelpum-
Heimir og Helgi vi& simaklefann sem er hluti innréttingarinnar ó
Hard Rock Cafe.
ar,“ sagði Heimir og brosti breitt
undan fjölmörgum smáfléttum
sem dönsuðu glaðlega um ennið á
honum við hverja minnstu hreyf-
ingu. „Já, og þær ættu líka að
vera miklu ákveðnari við tvítugu
uppana sem eru með karlrembu-
stæla. Það er alveg óþarfi að láta
svoleiðis gaura vaða yfir sig,“
bætti Helgi við.
Að því búnu þökkuðu þeir kær-
lega fyrir sig og vom svo roknir.
Framfarir koma í stökkum
Hannes Hlífar Stefáns-
son slakaði hvergi á klónni
á alþjóðlega mótínu í Hafn-
arborg sem lauk um síð-
ustu helgi. Þegar þrjár
umferðir voru eftír af mót-
inu þurftí hann tvo vinn-
inga til að gulltryggja sér
áfanga að stórmeistaratitli
og það gerði hann alveg
svikalaust, vann heima-
manninn Agúst Karlsson
og síðan fylgdu tvö jafnt-
efli. Lokaniðurstaðan varð
þessi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 8
1/2 v. 2. Jón L. Amason 8 v. 3.-5.
Margeir Pétursson, Þröstur Þór-
hallsson og Motwani 7 v. 6.
Conquest 5 1/2 v. 7.-8. Helgi Áss
Grétarsson og Levitt 5 v. 9. Ho-
well 4 v. 10. Björgvin Jónsson 3
1/2 v. 11. Björn F. Bjömsson 3 v.
12. Ágúst S. Karlsson 2 1/2 v.
Hannes Hlífar hefur um langt
skeið verið einn helsti vonarpen-
ingur íslenskrar skáklistar. Hæst-
um hæðum náði hann vorið 1987
er hann sigraði á heimsmeistara-
móti sveina í Austurríki þar sem
hann skaut aftur fyrir sig köppum
á borð við Mikhael Adams og
Gata Kamsky. Árið 1988 ákvað
hann að helga sig skáklistinni
óskiptur, varð fijótlcga alþjóðleg-
ur meistari en samt eins og drægi
úr framförum hans; alþckkt raun-
ar að eftir að vissum styrk hcfur
verið náð, vcrður hvert skref fram
á við æ erfiðara. Mönnum hefur
sýnst hvað varðar árangur þeirra
íslensku skákmanna sem fremstir
Ólafsson
sfanda, að framfarirnar hafi kom-
ið í stökkum; og ekki laust við að
þessi frægi afturkippur, sem lætur
á sér kræla á svo mörgum svið-
um, hafi á þeim bæ stundum ver-
ið hressilegri cn búist var við.
Hannes mátti sitja heima þegar
íslendingar sendu ólympíulið til
Grikklands 1988 og til Novi Sad
1990, en nú loks er sæti hans
gulltryggt og verður ekki betur
séð en að á næsta ólympíumóti
sem hefst í júníbyrjun í Manila á
Filippseyjum muni íslendingar
ciga „þéttara" liði á að skipa
heldur en oftast áður.
Skóksýning
Kasparovs
Menn hafa stundum reynl að
sanna að einn skákmaður sé óum-
dcilanlega mesti skákmaður allra
tíma. Nöfnum Fischers, Capa-
blancas og Garris Kasparovs hef-
ur í því sambandi margoft verið
haldið á lofti. Aðferðimar sem
fiestir hafa notast við byggjast á
einverjum tölulegum aðferðum
sem sneiða hjá ýmsum öðrum
þáttum. Sjaldan er spurt: hvað
stóðu þessir menn fyrir mörgum
skáksýningum?
Ekki er meiningin að rifja hér
upp helstu afrek Fischers og
Capablancas og samanburður við
Kasparov er ekki allskostar sann-
gjarn, þeir tefidu á mun færri
mótum og voru svo langt á undan
sinni samtíð að enginn mótstöðu-
maður þeirra gat kallað fram
þætti í fari þeirra sem einugis Ka-
sparov hefur náð að tileinka sér.
Kasparov var svo heppinn að
tefia nokkur einvígi við Anatolij
Karpov scm þá stóð á hátindi
getu sinnar. Áfraksturinn er yfir
160 skákir sem margar hverjar
eru hreinustu perlur.
Kasparov hefur unnið nálega
hvert einasta skákmót sem hann
hefur tekið þátt í síðustu tíu árin.
Ur þessum sigrum má finna ýms-
ar athyglisverðar tölulegar upp-
lýsingar, en gæði skákanna eru
mikli meiri en í sambærilegum
sigrum t.d. Anatolijs Karpovs.
Síðasta skáksýning Kasparovs var
í Linares á Spáni og þar varð
hann tveimur vinningum fyrir of-
an næstu menn, hlaut 10 vinninga
af 13 mögulegum. Lýsandi dæmi
um ferskleikann og kraftinn í tafl-
mennsku hcimsmeistarans er að
finna í skák hans við heimamann-
inn Illescas sem kom mjög á
óvart með ágætri frammistöðu.
Þeir taka til meðferðar fiókið af-
brigði af Sikileyjarvörn og eins
og fyrri daginn bregður Kasparov
nýju ljósi á það með afar frum-
legri meðhöndlun. Ganga kóngs-
ins upp
h- línuna er einn eftirminnilegasti
þáttur þessarar skákar:
Linares 1992, 10. umferð:
Garri Kasparov - Miguel lllesc-
as
Sikileyjarvöm
1. e4 c5 2. RO e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Rxc6
bxc6 7. e5 Rd5 8. Re4 Dc7 9. f4
Db6 10. c4 Re3 ll.Dd3 Rf5 12.
g4 Rd4 13. Bg2 h5 14. g5 Bb7
15. Be3 Rc2+ 16. Kf2 Rxe3 17.
Dxe3 Dxb2+ 18. Kg3 Ba6 19.
H?’ 1 h4 1 20. Kh3 Dc2 21. Hhcl
Dl 22. r -3 Ba3 23. Hc2 Be7
24 Hb3 0-0
25. Rf6+ gxf6 26. gxf6 Bc5 27.
Be4 Hfd8 28. Kxh4 Kf8 29. Hg2
Dxc4 30. Dxc4 Bxc4 31. Bh7
Bf2+ 32. Kh5
- og Illescas gafst upp.
Föstudagurinn 3. apríl