Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 14.10.1975, Qupperneq 1

Dagblaðið - 14.10.1975, Qupperneq 1
l.árg. — Þriðjudagur 14.október 1975 — 30. tbl. Ritstjórn Síðumúla 12, simi 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 ------ ------ - TUGMILLJÓNATJÓN AF ELDI Á EYRARBAKKA o TVÖ HÚS, TRILLA OG VEIÐAR- FÆRI BRUNNU TIL KALDRA KOLA Milljónatjón varð i eldsvoða á Eyrarbakka i nótt. Þar brann skreiðarskemma Hraðfrystihúss Eyrarbakka h.f. og Gamla tré- smiðjan. Þessi hús voru sam- byggð og i þeim voru geymd veiðarfæri, aðallega troll og eitt- hvað af netum. Vegna eldfimi slikra hluta varð bálið gifurlegt og má mildi kalla að slökkviliðinu tókst að verja næstu hús, sem eru ibúðarhús. Halldór Jónsson verkstjóri Hraðfrystihússins er jafnframt i slökkviliöi Eyrarbakka. Haftn var ræstur rétt fyrir kl. 3 i nótt og slökkviliðið var komið á staðinn fáum minútum siðar. Er að var komið voru bæði húsin alelda og fallin að hluta til öðrum megin. Húsin stóðu vestast i þorpinu en vindur var af suðri og leit illa út um tima að takast mætti að hefta útbreiðslu eldsins. En vindátt snerist til SA-áttar og stóð þá eld- hafið vestur af húsunum framhjá næstu húsum við brunastaðinn. Slökkviliðið á Stokkseyri kom á vettvang og veitti góða aðstoð við slökkvistarfið, sem aðallega beindist að þvi að dæla á næstu hús og forða þeim frá þvi að verða eldinum að bráð. Það tókst. Slökkvistarfi var lokið um kl. 7, en þá voru húsin og allt sem i þeim var, m.a. trillubátur auk veiðarfæranna, brunnin til'kaldra kola. —ASt. Jarðskjálfta- hœttan á Suðurlandi: VIÐ EIGUM AÐ GEFA HÆTTUNNI GAUM „Hættulegasta jarðskjálfta- svæði Islands fyrir byggð i' land- inu er tvimælalaust þver- sprungan, sem liggur yfir þvert Suðurlandsundirlendið, frá Hellisheiði austur til Heklu. A þessu svæði urðu mestu jarð- skjálftar, sem orðið hafa frá upphafi tslandsbyggðar, árið 1784 og þar urðu aftur stórfelldir jarðskjálftar 1896,” sagði Svein- björn Björnsson eðlisfræðingur hjá Raunvisindadeild Háskól- ans er blaðið ræddi við hann um þessi mál. Nú eru nær 80 ár frá siðasta stór-skjálfta á þessari þver- sprungu. Eðlisfræðingar telja þvi vist að spenna sé orðin mikil i berginu i iðrum jarðar. Hvort eða hvenær það brestur getur enginn sagt um. En vert er að gefa hættunni gaum og gera i tima þær varúðarráðstafanir, sem hægt er að gera. Eðlisfræðingar telja að höfuð- borgarsvæðið sé ekki i jafnmik- illi jarðskjálftahættu og oft hef- ur verið talað um. A bls. 11 er nánar fjallað um jarðskjálfta og jarðskjálfta- svæði i samtali við Sveinbjörn Bjömsson. —ASt. „Olle" „Olle" í Dankersen! ,,011e” — „Olle” hrópa áhorf- endurnir og eftirvæntingin leyn- ir sér ekki. „Olle” er i miðri kösinni á vitateigslinunni með knöttinn i hægri hendinni. Þannig hefst viðtal við Ólaf H. Jónsson, fyrrum fyrirliða isl. landsliðsins i handknattleik, sem leikur nú með þýzka liðinu Dankersen i Vestur-Þýzkalandi — og er þar ákaflega vinsæll. Magnús Gislason, fréttamaður DAGBLAÐSINS, heimsótti ný- lega nokkra þeirra islenzku i- þróttamanna, sem nú gera garðinn frægan á meginlandi Evrópu — og fyrsta viðtal hans er f dag i iþróttaopnunni. Sjá iþróttir bls. 12,13 og 14. Enginn bað um silungasýni úr Kirkjuf ellsvatni - bls. 18 Sjúlfsmorðsalda brúða á Indlandi Dularfull alda sjálfsmorða á Indlandi hefur neytt yfirvöld i Punjab-fylki til að hefja opin- bera rannsókn á þvi, hvort mögulegt sé að ungar brúðir sæti svo iilri meðferð af hálfu tengdafólks sins, að þær fremji sjálfsmorð i örvæntingu sinni. Astæðan fyrir hinni illu meðferð er sögð vera sú, að tengdafólk — og eiginmennirnir ungu — séu ekki ánægt með heiman- mundinn. Sjá fréttir bls.6-7.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.