Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.10.1975, Qupperneq 2

Dagblaðið - 15.10.1975, Qupperneq 2
2 Hagblaðið. Miðvikudagur 15. október 1975 ... MED AD VERÐA - LIFANDI EDA Þeir skildu skemmuna eftir hérna Amerfkanarnir og ég flutti inn seinni part árs 1945. Hef búið hér sfðan og öngva hef ég borgað leiguna Jóhannes Agúst Guðjónsson frá Akranesi er 76 ára og var hafnarverkamaður við Reykja- vlkurhöfn i 35 ár. Hann hefur búið einn i herbragga, eða skemmu eins og hann kallar það, siðan siðla árs 1945. „Þetta hét Herskólahverfið hér áður fyrr,” segir Jóhannes. „Nú er þetta allt gjörbreytt —búiö að byggja hér stórhýsi allt i kring ábyggilega fyrir mörg hundruð milljónir. Hér bjuggu áður fjölskyldur með mörg börn bæði hér, þar sem rústin er fyrir vestan skemmuna, og svo i Múla- kampinum. Þetta flutti allt inn eftir að herinn fór þvi það var ekkert annað að hafa. Svo fór það að byggja þessi smáhús hér tvist og bast, i leyfisleysi og ekki i leyfisleysi. Það skipti sér enginn af þvi á þeim timum.” Skemman stendur við Suður- landsbraut, er númer 49, en Jóhannes hélt, að hana ætti að telja til götunnar, sem liggur meöfram henni. Sú gata hefur víst ekkert nafn og hefur senni- lega aldrei haft. „Þetta er nú plássið, eins og maður segir,” segir Jóhannes og klmir. „Ég hef hér þrjá ofna, sem ég hita með vatni frá kolakabyssunni fram i eldhúsi. Svo safna ég spýtum og öðru ruslihér inn til kyndingarinnar, þvi það er alltaf að verða erfið- ara aö fá kol.” „Það komu hingað einhverjir menn i fyrra eða hitteðfyrra og Ályktun LÍV um lífeyrissjóðsmál: Sióðirnir tryqqi ellilífevri N en hœtti að vera lánasjóðir „Frumhugsjónin með stofiiun lifeyrissjóða hinna einstöku stétta var ekki sú að lifeyris- sjóðfélagar fengju út i formi ellilauna aðeins það sem þeir heföu greitt til sjóðsins heldur að sjóöurinn tryggði þeim eitt Þekkir einhver Colin S. Plant? Okkur hefur borizt bréf og meðfylgjandi mynd frá Orkneyjum. Colin S. Plant, er gegndi herþjónustu við flotastjórn brezka flot- ans hér á striðsárunu- m, segir myndina vera tekna i april 1942 og að þvi er okkur virðist við Grýtu i Hveragerði. Hann er að leita að Kristinu og Kristjáni Guðjónssyni sem eru með Plant á myndinni. Heimilisfang Plants er: ,,01ath”, Finstown, Orkney Isles Scotland. hvert ákveðið lágmark til lifs- viðurværis, að aflokinni starfs- ævi,” sagði Björn Þórhallsson form. LÍV, er við inntum hann eftir nýstárlegri samþykkt ný- afstaðins LÍV-þings varðandi lifeyrissjóðsmál. Samþykkt þings LÍV taldi nú- verandi ellilifeyriskerfi úrelt og ekki fá staðizt til frambúðar. Rikjandi skipulag feli I sér gifúrlegan mismun ellilifeyris og slikt þjóðfélagslegt ranglæti að ekki verði við unað. Þingið telur að til greina komi að tengja saman hiö almenna tryggingakerfi og lifeyrissjóð- ina þannig að sjóðirnir tækju i framtiðinni að sér hlutverk al- menna ellilifeyristrygginga- kerfisins. Almennu trygging- arnar yrðu grunntryggingar, sem allir ellilifeyrisþegar nytu. Ofan á þær kæmu greiðslur Ur lifeyrissjóðnum i réttu hlutfalli við ellilífeyrisréttindi hvers sjóðfélaga. I ályktun sem gerð var á þing- inu um þessi mál, segir að lif- eyrissj. séu stórfelldustu kjara- bætur á sviði trygginga- mála sem verzlunarfólk hafi samið um. Með núverandi skipulagi séu þeir að verða gagnslausir launþegum, sem trygging fyrir lifsframfæri á elliárunum, og sé verðrýmun peninganna meginorsökin. Taldi þing LtV að taka bæri upp harða baráttu fyrir þvi að sjóðfélagi sem hefur greitt til sins lifeyrissjóðs fullan tima, fái Hfeyri frá sjóönum sem nemur 60—70% af launum siðustu árin oggreiðslurnar breytistsiðan til samræmis við breytingar þær sem verða á þeim launaflokki sem sjóðfélagi var i, þannig að raungildi lifeyris haldist óskert þrátt fyrir breytingar á krónu- tölu. Alyktun þingsins hafnar söfn- unargrundvelli almennra lif- eyrissjóða en vill taka upp svo- nefndt „gegnumstreymiskerfi” þannig að sjóðirnir greiði full- nægjandi lifeyri af árlegum tekjum og standi þannig við skuldbindingar við lifeyrisþega i samræmi við framfærslu- kostnað á hverjum tima. Björn Þórhallsson sagðist ætla að sú túlkun, sem fælist i ályktun LtV um þessi mál, ætti stöðugt vaxandi fylgi. Lifeyris- sjóðirnir ættu ekki að vera lána- sjóðir heldur gegna frumhlut- verki sinu að tryggja lifeyri á elliárum sjóðfélaga. Ef nauðsyn kreföi yrði að hækka iðgjöld sjóðfélaga til að tryggja að til- gangi þeirra yrði náð. ÞesSum málum verður ekki komið I framkvæmd nema i gegnum nýja launasamninga. Ekkert mun þvi gerast i þessum málum hjá LÍV fyrr en i iiæstu launasamningum en vonandi hefjast viðræður um þá i desem- ber. —ASt

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.