Dagblaðið - 18.10.1975, Qupperneq 1
p
l.árg,— Laugardagur 18. október 1975 — 34.tbl.
Ritstjórn Síöumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022
I
I
í
SVORT
SKÝRSLA
Minnka þarf þorsk-
veiðar við landið
um 25-40%
Skýrsla samin af fiskifræðingum Haf-
rannsóknarstofnunarinnar liggur nú
fyrir stjórnvöldum og lýsir hún
óhugnanlegu ástandi fiskimiðanna við
island og ástandi fiskistofnanna og þá
ekki sizt þorskstofnsins. Leggja fiski-
fræöingarnir til að mjög verði dregið úr
þorskveiðum umhverfis ísland til þess
að reyna að forða algerri fiskþurrð i ná-
inni framtið. Skýrslan var afhent al-
þingismönnumi gær en fæst ekki afhent
fjöimiðluni fyrr en á mánudagsmorgun.
i skýrslunni munu fiskifraíðingar leggja
tii að dregið verði úr þorskveiðum sem
nemur 25-40% frá þvi sem nú er.
VARÐ FYRIR
VODASKOTI
— 18 ára piltur slasast á Seyðisfirði,
úr hœttu
Atján ára gamall piltur varð
fyrir voðaskoti úr haglabyssu i
gær austur á Seyðisfirði. Var
pilturinn fluttur á sjúkrahúsið á
Seyðisfirði og siðan með flugvél
til Reykjavikur. Að sögn Hauks
Árnasonar, læknis á Slysavarð-
stofu Borgarsjúkrahússins, var
hinn slasaði ekki i lifshættu en
rannsókn varekki alveg lokið er
DAGBLAÐIÐ spurðist fyrir um
liðan hans.
Pilturinn, Þorsteinn
Baldvinsson, var að koma af
rjúpnaveiðum. Hafði hann ein-
hleypta haglabyssu liggjandi i
aftursæti bifreiðar sinnar. Ók
hann að frystihúsi Norðursildar,
þar sem tveir kunningjar hans
komu upp I bifreiðina. Annar
þeirra handlék byssuna og hljóp
þá skot úr henni og i gegnum
bakið á sæti ökumanns og i bak
Þorsteins.
Varð nærstatt fólk strax vart
við skothvellinn og voru læknir
og lögregla látin vita þegar i
stað. Kom sjúkrabillinn að
vörmu spori og læknirinn,
Magni Jónsson, einnig.
Var farið með hinn slasaða á
sjúkrahúsið. Gerði læknirinn að
sárum hans til bráðabirgða og
kannaði þau. Siðan var farið
með Þorstein og Magna lækni
upp á Egilsstaði, þar sem Flug-
leiðaflugvél i áætlunarflugi beið
þeirra tilbúin að fara i loftið.
Hafði verið tilkynnt um komu
þeirra og beið flugvélin eftir
þeim og fór læknirinn með
Þorsteini til Reykjavikur.
,,Þáð er ekki ennþá lokið við
að röntgenmynda sjúklinginn,”
sagði Haukur Arnason læknir,
,,en eftir þvi sem bezt verður
séð er ástæða til að ætla að hann
sé ekki i lifshættu.”
Þetta er fyrsta slysið, sem
verður eftir að rjúpnaveiði-
timinn hófst i ár, og vonandi um
leið það siðasta.Vonandi verður
þaö til alvarlegrar áminningar
um að menn gæti ytrustu
varkárni i meðferð skotvopna.
,,Ekki er hægt að sjá annað en
þetta hafi verið óviljaverk,”
sagði Erlendur Björnsson,
bæjarfógeti á Seyðisfirði i við-
tali við fréttamann
DAGBLAÐSINS. —BS
Gekk út með þýfið undir hendinni
um húbjartan dag
— með samþykki starfsstúlku — Baksíða
Sjómennirnir fengu heimsókn - Baksíða
Þœr allra síðustu snúa heim..................
Það er vist ekki seinna vænna fyrir kindurnar að fara aö láta sjá sig,
liafi þær ekki komið fram i leitum og eftirleitum. Svalviðrin köldu
fara senn að leika um okkur i byggð, og á fjöllum uppi cru heldur
rysjótt veður fyrir nokkru farin að leika um þær sauðþráu sauðkind-
ur sem þar hafast enn við. Þessa hittum viö nýkomna niður á lág-
lcndi með lambið sitt. Bak við liana er iiekla. (DB-MYND,
Björgvin).
A