Dagblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 5
Dagblaöið. Laugardagur 18. október 1975.
/
5
„Það er dóðst að smekk sumra
— við matseldina"
„Það er stórfint að kenna karl-
mönnunum matreiðslu. Hér rikir
afar mikil vinnugleði,” segir As-
laug Þorgeirsdóttir matreiðslu-
kennari þegar við litum inn í Hús-
mæðraskóla Reykjavikur fyrir
helgi. „Já, það er góður frágang-
ur á öllu og vel talið upp i öllum
skúffum. Allt gert af stakri sam-
þegar að þvi kæmi að hann gifti
sig. Hann mælir tvimælalaust
með jafnrétti.
Matreiðslunámskeiðið
afmælisgjöf
frá kærustunni
„Ég fékk i afmælisgjöf frá kær-
Óttar hrærir af kappi I gerinu ásamt öðrum bráöflinkum á nám-
skeiðinu.
ustunni að fara á matreiðslunám-
skeið. Ég hef svo ekkert á móti
þviheldur. Nei, nei, hún þarf ekki
að skipta um dekk á bilnum neitt
frekar,” segir Óttar Ólafsson
lika menntaskólanemi og bætir
við að skipta eigi með sér verkum
eftir þörfum i búskapnum. Hann
ber sig vel við að hræra þurrger-
inu i volgt vatn. En hann er i
hornabakstrinum i kvöld.
,,Ef þörf er á verða menn að
taka þátt i matseldinni,” segir
Árni Pétursson kennari um leið
og hann vigtar i ákafa hveitið i
deigið fyrir innbakaða fiskinn.
Engin aðskilnaðar-
stefna — viljum lika
karlmenn inn í skólann
„Nei það rikiralls ekki aðskiln-
aðarstefna hérna i skólanum,”
segir Jakobina Guðmundsdóttir
skólast jóri.
Hún segir okkur að það hafi að
visu verið einn og einn karlmaður
sem sótti matreiðslunámskeið
áður en þeir hafi verið allt of fáir.
„Þeir virðast hafa haft svolitla
minnimáttarkennd gagnvart
kvenfólkinu i þessum efnum.
Þess vegna auglýstum við sérstök
matreiðslunámskeið fyrir karl-
menn,” segir hún.
Og fyrsta námskeiðið er fullt og
mikið spurt um það næsta sem
verður i nóvember. Þetta eru 5
vikna námskeið og kennt er tvisv-
ar i viku. Jakobina segir að eigin-
vizkusemi og skerpu eins og karl-
mönnum er lagið, bætir skóla-
stjórinn Jakobina Guðmundsdótt-
ir við.
Það er ekki laust við að þeir
beri sig kunnuglega að verki
sumir karlmannanna á þessu
fyrsta matreiðslunámskeiði fyrir
karlmenn i Húsmæðraskólanum.
Ekki alveg
viðvaningur
„Nei, ég er ekki alveg viðvan-
ingur i þessum efnum en það
kostar ekkert að bæta svolitlu við
sig,” segir Guðmundur Arason
forstjóri og flakar ýsu af mikilli
snilld. Hann segir að ekki saki að
geta gripið inn i verkahring kon-
unnar þó hann hafi ekki hugsað
sér að hafa neitt af frúnni. „Ég
mæli hiklaust með svona nám-
skeiði, mér lizt vel á það. Hér er
finn „húmor”, segir hann og
bætir við að þegar þeir séu búnir
að laga matinn, sé sameiginlegt
borðhald. „Þá er dáðst að smekk
„sumra”. Maturinn er nefnilega
óneitanlega misjafnlega krydd-
aður”.
Þetta kvöld hljóðaði matseðill-
inn upp á: Djúpsteiktan fisk með
remolaðisósu og soðnum kartöfl-
um og blaðlaukssúpu með nýbök-
uðum hornum. Ekki amalegt það.
Við Bjarnleifur höfðum þvi miður
ekki tima til aö borða með þeim
og gátum þvi ekki dæmt um dá-
semdirnar.
„Ha, á að skilja rauðuna frá
hvltunni”, varð Ingvari Blængs-
syni að oröi, en hann átti að búa
til majonesinn i remolaðisósuna.
Ingvar er menntaskólanemi og
sagðist verða að kunna að elda
V'ið viljum lika fá karlmenn inn i skólann, segir skólastjórinn
Jakobina Guðmundsdóttir,
Guðmundur flakar fisk af mikilli leikni, en Ingvar skilur að eggið i
majonesinn sem hann ætlar að fara að búa til. Ljósm. Bjarnleifur
Þeir lesa sér til af kappi karlmennirnir I Húsmæöraskólanum og
Áslaug matreiðslukennari leiðbeinir þeim.
konurnar og kærusturnar vilji
gjarnan koma með, en það vilji
skólinn ekki að svo komnu máli á
meðan verið er að reyna að fá
karlmenn inn i skólann lika.
Matreiðslunámskeið eru -auð-
vitað lika fyrir kvenfólk i Hús-
mæðraskólanum og standa
venjulega i fimm vikur. Þá eru
einnig matreiðslunámskeið á
daginn frá 1.30-4.40, sem standa
ýmist i tvo eða þrjá daga. Er þá
venjulega aðeins eitt efni tekið
fyrir svo sem eins og gerbakstur,
glóðarsteiking, fiskréttir og
smurt brauð. t fyrsta skipti i ár
var kennd sláturgerð og frysting
grænmetis og var góð aðsókn.
Jakobina sagði að öll nám-
skeiðin væru vinsæl og væri
bókað i flest til 20. nóvember.
Mikið um
námskeiðahald
,,Já, það má segja að við höfum
bókstaflega hvolft okkur út i
námskeiðahald,” segir Jakobina.
sem er farin að hlakka til fimm
mánaða hússtjórnarskólans. sem
byrjar eftir jólin, en þá hætta
námskeiðin. Það er búið að veita
30stúikum skólavist, 24 geta búið
i heimavist og 6 úti i bæ. En
Jakobina segir að ekki sé vist að
allar stúlkurnar skili sér svo að ó-
hætt væri fyrir fleiri að sækja um.
Þær fari þá á biðlista.
Þrir hússtjórnarkennarar auk
Jakobinu kenna við skólann og
kennir Jakobina lika vefnað, svo
eru tveir saumakennarar.
Þvi má bæta við að það eru ekki
aðeins i gangi matreiðslunám-
skeið þessa dagana i Húsmæðra-
skólanum, heldurstanda lika yfir
þrjú saumanámskeið. þar sem
kenndur er barnafata- og kven-
fatasaumur. Þá geta menn lika
lært vefnaö.
Já það er svo sannarlega nóg
hægt að gera viö tómstundirnar
fvrir þá. sem hafa einhverjar.
—EVI