Dagblaðið - 18.10.1975, Qupperneq 8
8
nagblaðið. Laugardagur 18. október 1975.
Spurning
dagsins
Finnst þér mikið um misnotkun
rikisbila?
Mikael Franzson auglýsinga-
teiknari: Nú þori ég ekki aö
segja, það er ákaflega erfitt að
gizka á, þó maður sjái bilana veit
maður ekki hvort það eru einka-
erindi eða annað.
Unnur Sæmundsdóttir húsmóðir:
Misnotkun rikisbifreiða? Ég hef
ekkert vit á þvi, ég tek voðalega
litið eftir bilum.
Hildur Þorstcinsdóttir verzlunar-
stjóri: Ég er nú ekkert inni i þvi
en það mætti sjálfsagt takmarka
það eitthvað. Ég las i dagblaði i
Bretlandi um eiginkonu rikis-
starfsmanns sem notaði strætis-
vagnakort mannsins sins og var
sektuð.
Jón Þorleifsson, útskúfaöur
verkamaður: Ég þekki ekki til
rikisbila, en einn bill, bill Dags-
brúnar, er notaður sem einkabill
Guðmundar J. Guðmundssonar
til hans eigin þarfa.
Sveinn Gústavsson fram-
kvæmdastjóri: Enga hugmynd
um það, ekki hugsað'svo mikið
um það, maður fylgist ekki með
bilunum svo mikið dags daglega.
María Jóhannesdóttir sendill: Ja,
ég bara veit það nú ekki en það er
allavega mikið til af þessum rik-
isbifreiðum.
AÐ TREYSTA A NEF SITT
Tékkneskur tónlistarmaður,
sem um tima bjó á Húsavik,
sagði frá þvi siðar, að honum
hefði likað stórvel á Islandi ekki
sizt maturinn, þó alveg sérstak-
lega margs konar álegg. „En ég
gat aldrei vanið mig á þetta sem
heitir Júgursmyrsl,” sagði
hann.
Það var ekki að undra, þótt
hann teldi þetta undarleg krem
með þvi, sem ætti að smyrja of-
an á brauð, þvi við eigum hér
ýmislegt i plastkirnum nauða-á-
þekkum þeim, sem júgur-
smyrslið er selt i. Þar að auki er
að minnsta kosti á sumum dós-
um júgursmyrsla hin fegursta
teikning af kú, og hvað er eðli-
legra en að saklausir útlending-
ar telji þetta eina af hinum frá-
bæru landbúnaðarafurðum okk-
ar — þegar það nú ofan á annað
er i ámóta dollum og til að
mynda mysingur?
Það væri til dæmis við að bú-
ast, að hrekklausir útlendingar,
sem ætluðu að kaupa sér eitt-
hvert heilsulyf á borð við lýsi,
létu glepjast af tekkoliu, sem er
fáanleg i nákvæmlega sams
konar ilátum og þessi kjör-
drykkur islenzkra kraftmenna.
Og ekki er að minnsta kosti
langt siðan vitissóti var fáan-
legur i dósum sem eru engu lik-
ari en dósum með gerdufti. Það
gæti verið þokkaleg kaka sem
með vitissóta væri bökuð.
Ég hef keypt þynni i gos-
flösku, og frostlögur, sápulögur
og ávaxtasafi fæst i nákvæm-
lega sams konar brúsum, svo
dæmi sé tekið. Það eru ekki
margar vikur siðan maður, sem
lengi hefur dvalið erlendis, varð
uppiskroppa með bland eitt
kvöld er hann sat við teiti i húsi
foreldra sinna i Stórreykjavik.
Hann fór nú að kynna sér birgð-
ir móður sinnar til að vita hvort
hann fyndi ekki eitthvað not-
hæft. Ekki hafði hann lengi leit-
að, þegar á vegi hans varð hvit-
ur brúsi með mynd af girnileg-
um ávöxtum sundurskornum
utan á. Hann hellti svolitlu af
þessum þykka essensi, með
sterkri sitrónulykt, i glasið sitt,
fór svo með það inn i betri birtu,
bætti þar i það vænum vodka-
Háaloftið
sjússi og lét svo buna kalt vatn
ofan á. Eldhúsið fylltist sætasta
(eða kannski öllu heldur súr-
asta) sitrónuilmi, en þar sem
maðurinn er bráðskarpur, þótti
honum ekki einleikið hvað
mjöðurinn freyddi. Hann fór nú
að gá á brúsann og sá þá að á-
vextirnir góðu voru ekki til að
leggja sér til munns, heldur var
þetta sápulögur meö iblönduðu
ávaxtagutli, að sögn til að betr-
umbæta hendur þvottafólks.
Framleiðendur og innpakkar-
ar hafa allt fram undir þetta lát-
ið sér fátt um það finnast, þótt
likar umbúðir gætu valdið stór-
misskilningi og stórslysum
raunar. Þeim hefur þótt rétt að
nota þær umbúðir, sem þeim
voru ódýrastar og hentastar, án
tillits til þess, hverjir aðrir not-
uðu sér nákvæmlega sams kon-
ar umbúðir. Það má heita gott,
meðan sápuframleiðendur og
aðrir ámóta fara ekki að selja
vöru sina á fernum, hyrnum og
múrsteinum, svo maður eigi
auðveldara að villast á þeim og
hvers kyns mjólkurvarningi.
Þótt plastbrúsarnir, sem hér
hefur meðal annars verið rætt
um, séu um margt ágætis ilát,
hafa þeir þó einn galla sem ilát
undir svo fjölbreyttan varning
sem raun ber vitni: Limdir mið-
ar vilja gjarnan losna af þeim.
Þá er litill vegur að vita hvað i
þeim er. Ég á brúsa hér úti i
bllskúr, sem þannig er ástatt
um, og nú verð ég að treysta á
nef mitt og þefvisi til að finna
hvað i honum er. Þeir vökvar,
sem helzt koma til greina, eru
þessir: þynnir, terpentina,
frostlögur, matarolia, sápulög-
ur, herðir i plastmálningu, djús,
semplast, klór, sótthreinsunar-
lögur. Og sjálfsagt eitthvað
fleira.
En nú væri gott að vita lengra
en nef manns nær.
ÞAÐ VAR FYRSTI
SLAGURINN, SEM
ÚRSLITUNUM RÉÐ
verður að gefa okkur tvo siðustu
slagina á tigul.
Svona var spilið.
4 KG
f A5
♦ A G 9 8 6 5
4 AD9
A 10 3 4 D G 8 4
J K D 10 8 2 JG4
’------- ♦ K D 10 7 2
*K G 7 5 4 2 * 10 3
♦ A 9 7 6 5
V 9 7 6 3
♦ 4 3
♦ 86
Eftir fimm umferðir i tvi-
menningskeppni Bridgefélags
Reykjavikur er staða efstu
þannig.
1. Sigfús Þórðarson —
Vilhjálmur Pálss. 940
2. Jón Baldursson —
Guðmundur Arnarson 929
3. Hjalti Eliasson —
örn Arnþórsson 914
4. Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartars. 913
5. Daniel Gunnarsson —
Steinberg Rikarðsson 910
6. Hörður Arnþórsson —
Þórarinn Sigþórsson 889
7. Einar Þorfinsson —
Páll Bergsson 883
8. Halla Bergþórsd. —
Kristjana Steingrimsd. 881
Sjötta og siðasta umferð keppn-
innar verður spiluð nk. mið-
vikudagskvöld.
Það er oft fyrsti slagurinn
sem ræður úrslitum i mörgum
spilum. Siöastliöinn miðvikudag
kom fyrir eftirfarandi spil hjá
Bridgefélagi Reykjavikur. út
kom hjartakóngur i 2 spöðum
suðurs dobluðum.
NORÐUR
4 A G 9 8 6 5
♦ A D 9
SUÐUR
♦ A 9 7 6 5
V 9 7 6 3
♦ 43
♦ 86
gerir maður með þvi að gefa
vestri fyrsta slag á hjartakóng.
Austur kallar meö gosa og vest-
ur spilar áfram hjarta. Nú,
austur átti tvö hjörtu, sýndi
hátt-lágt, og þá tökum við
spaöakóng og spaðaás, spilum
tigli og vestur á engan tigul,
þannig að við látum tiguláttu úr
blindum.
Austur getur tekið sina tvo
spaðaslagi og spilað laufi — þaö
er bezt — en við tökum þá laufa-
ás og drottningu og trompum
lauf heim. Nú spilum við tigli og
látum áttu og aumingja austur
Sagnir gengu:
Vestur Norður Austur Suður
lhjarta dobl pass lspaði
2lauf 2 tfgl. dobl 2 sp. /
pass pass dobl pass
pass pass
Sagnir eru kannski ekki til
fyrirmyndar, en nú er að spila
spilið. Út kom hjartakóngur og
hvað á að gera?
Vestur hefur sagt hjarta og
lauf. Austur hefur doblað tigul
og spaða. Til að eiga einhverja
möguleika að vinna spilið verð-
ur að slita samganginn á milli
handa austurs og vesturs. Það
Selfyssingarnir Sigfús Þórðarson og Vilhjálmur Pálsson hafa haft
forustu I tvimenningskeppni Bridgefélags Reykjavlkur. A DB-mynd
Bjarnleifs að ofan eru þeir aö spila við Guðlaug Jóhannsson og As-
mund Pálsson (lcngst til hægri) á keppniskvöldi Bridgefélagsins.