Dagblaðið - 04.11.1975, Page 5
Pagblaðið. Þriðjudagur 4. nóvember 1975.
Utvarp
Sjónvarp
Skólamál í útvarpinu kl. 19,35:
Kenning bandarísks uppeldisfrœðings
frá 1949 enn í fullu gildi
í kvöld kl. 19:35 er á dagskrá
útvarpsins erindi er nefnist
„Kenning Tylers um námskrár-
gerð”, flutningsmaður er Guðný
Helgadóttir.
Við ræddum við Guðnýju og
spurðum hana um efni erindis-
ins, sem eins og nafnið ber með
sér, fjallar um skólamál.
Tyler þessi er bandariskur
uppeldisfræðingur sem setti
kenningar sinar fram árið 1949,
Að skoða og skilgrcina:
Fréttaskýringaþátt-
ur fyrir unglinga
á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 20,50
Kl. 20.50 i kvöld er á dagskrá
útvarpsins þátturinn ,,Að skoða
og skilgreina”. Umsjónarmað-
ur er Kristján Guðmundsson,
kennari við Menntaskólann við
Tjörnina.
Við ræddum við Kristján og
báðum hann að segja okkur frá
efni þáttarins.
Þátturinn i kvöld er eins kon-
ar fréttaskýringaþáttur fyrir
unglinga með tónlistarivafi og
verða tekin fyrir ýmis vanda-
mál þróunarlandanna, offjölg-
unarvandamál þeirra og ósam-
komulag innbyrðis og leitazt við
að gefa skýringu á þessu. Þá
verður einnig tekin fyrir mark-
aðsaðstaða þróunarlandanna
gagnvart iðnaðarlöndunum.
Rætt verður við Björn Þor-
steinsson framkvæmdastjóra
stofnunar um þróunarhjálp Is-
lands, sem sett var á stofn með
lögum árið 1971.
Meðal athyglisverðra hluta
sem i ljós koma í þættinum i
kvöld er að ísland þiggur ivið
meira en það lætur i té til þró-
unarlandanna.
A sl. ári greiddu Islendingar
tæplega 30millj.kr. til þróunar-
landánna en fengu rúmlega 30
milljónir i sinn hlut, —■ sem þá
væntanlega þróunarland!
Kristján sagði okkur að ætl-
unin væri að þátturinn ,,Að
skoða og skilgreina” yrði hálfs-
mánaðarlega i vetur og er þetta
fyrsti þátturinn.
Kristján Guðmundsson mennta-
skólakennari sér um þáttinn
,,Að skoða og skilgreina”. Ljós-
mynd Bj. Bj.
Sfðar i vetur hyggst Kristján
taka fyrir sérvandamál ung-
linga, en hann treystir ungu
fólki fullkomlega til þess að
hafa áhuga á alheimsvanda-
málum,eins og verða á dagskrá
þáttarins i kvöld.
—A.Bj.
Skólamálin eru ofarlega á baugi
um þessar mundir, l'jallað er
um þau bæði i útvarpi og sjón-
varpi. Myndin sýnir nemendur i
Kellaskóla i friminútum. Ljós-
invnd B.P.
en þær eru enn i fullu gildi og er
stuðzt við þær bæði hérlendis og
erlendis.
Guðný fjallar m.a. um hvert
eigi að vera markmið eða til-
gangur skólanáms, hún fjallar
um ýmsa þætti svo sem þarfir
og áhuga nemandansog leiðir út
frá þvi. Einnig fjallar hún um
þarfir þjóðfélagsins og hverjum
árangri má ná með tilliti til
þroska nemendanna og þann
tima sem verja má til námsins.
Þá nefnir hún dæmi um náms-
ERNA V. 1
INGOLFSDOTTIR
skrá, sem byggir á þessum
þörfum.
Guðný Helgadóttir, sem
starfar i skólarannsóknadeild
menntamálaráðuneytisins
sagði okkur að erindi hennar
væri hið fjórða i erindaflokki
sem fluttur er i samvinnu við
Kennara háskóla nn.
Erindi þessi voru flutt á
vegum Kennaraháskólans á s.l.
sumri á ráðstefnu fyrir starf-
andi kennara.
A.Bj.
í
I
^Sjónvarp
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Pagskrá og auglýsing-
ar.
20.35 Þjóðarskútan. Þáttur
um störf Alþingis. M.a.
verður viðtal við Jón Árna-
son formann fjárveitinga-
nefndar og litið inn á fund
hjá f járveitinganefnd.
Einnig verður fjallað um
vandamál frystihúsanna.
Umsjónarmenn: Björn
Teitsson og Björn Þor-
steinsson.
21.15 Svona er ástin. Banda-
risk gamanmyndasyrpa.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.05 Utan úr heimi. Umræður
um Shakarof málið. Þátt-
takendur : Gunnar
Gunnarsson, Halldór Lax-
nessog Matthias Johannes-
sen.
Stjórn-andi Gunnar G.
Schram.
22.50 Skólamál. Hlitarnám. í
þættinum er fjallað um
hlitarnám — megininntak
kenningarinnar kynnt og
sýnd dæmi. Þátturinn er
gerður i samvinnu við
Kennaraháskóla tslands og
sendur út i tengslum við tvö
útvarpserindi, sem flutt
voru 2. og 4. nóvember.
' Umsjónarmaður Helgi
Jónasson fræðslustjóri.
23.05 Dagskrárlok.
17.00 Lagið mitt. Anne Marie
Markan sér um óskalaga-
þátt fyrir börn yngri en tólf
ára.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Kenning Tylers um
námsskrárgerð. Guðný
Helgadóttir flytur erindi.
20.00 Lög unga fólksins.
Sverrir Sverrisson kynnir.
20.50 Að skoða og skilgreina.
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.30 Tónlist eftir Robert
Schumann. Wilhelm
Kempff leikur á pianó..
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins. Dr. Jakob Jóns-
son flytur fyrsta þátt.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Kjarval” eftir Thor
Vilhjálmsson. Höfundur les
(9).
22.40 Skákfréttir.
22.45 Harmonikulög
Laiho-bræður leika
23.00 A hljóðbergi. Sagan af
Plútó og Próserpinu i
nur ögn gnathnil ghvaw-
horne. Anthony Quayle les.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Sjónvarpið í kvöld kl. 20,50:
Svona er ástin
#/
#/
Ástin og bannfœrða bókin
Ástin og fyrsta nóttin"
Ástin og kóngurinn
//
„Svona er ástin” er á dagskrá
i kvöld og að venju eru það þrjár
myndir sem við sjáum. Fyrsta
myndin nefnist „Ástin og bann-
færða bókin.” Hún fjallar um
hermann nokkurn er kemur
heim til sin til -Bandarikjanna
eftir að hefa gegnt störfum er-
lendis. Þá er kona hans búin að
skrifa metsölubók. Auðvitað
fjallar bókin um ástir og segir
frá konu er hefur átt tólf elsk-
huga. Hermaðurinn hefur konu
sina grunaða um að vera ekki
viðeina fjölina felld i ástarmál-
um, þar sem hún hafi getað
skrifað slika bók.
„Ástin og fyrsta nóttin” heitir
sú næsta. Tvö á táningaaldrin-
um álita sig vera reynslumikið
fólk i ástum sem öðru. Þau ætla
sér að sanna þetta og fara á
mótel þar sem þau ætla að gista
einanótt. Ýmislegtkemur iljós,
meðal annars það að þroskinn
//
er ekki eins mikill hjá ung-
ménnunum eins og þau höfðu
haldið.
„Ástin og kóngurinn” heitir
svo þriðja myndin. Maður á
miðjum aldri vinnur á skrif-
stofu nokkurri og er álitinn afar
trúr og dyggur bæði i starfi og i
kvennamálum.
Þá kemur i heimsókn til hans
gamall kappi úr hernum en þeir
höfðu verið saman i herdeild.
Hin trúa og dygga kempa hafði
þá verið anzi fjörug á sinum
sokkabandsárum. Nema hvað,
það á að hafa parti og svo vel
vill til að kona þess dygga er
ekki heima. Um það bil sem
veizlugleðin er að hefjast kemur
forstjórinn i heimsókn og það
berst eins og eldur um sinu á
skrifstofunni að hin dygga
kempa sé ekki eins saklaus og
áður var haldið.
EVl
PRJONAKONUR
- ATHUGIÐ
Okkar vinsœli þríþœtti
lopi í öllum sauðalitun-
um verður seldur á
sama lága verðinu
meðan á útsölunni
stendur
Magnafsláttur
VERKSMIÐJUUTSALAN
★ TEPPI - MOTTUR ★ TEPPABÚTAR
★ RYA GARN - MARGIR LITIR
★ TEPPAHREINSARAR - 3 GERÐIR
★ TEPPASHAMPO Á SPRAYBRÚSUM
Póstsendum
samdœgurs
TEPPI H/F
SÚÐARVOGI 4 REYKJAVÍK
36630 - 30581