Dagblaðið - 04.11.1975, Qupperneq 6
6
Dagblaðið. Þriðjudagur 4. nóvember 1975.
Ens árs tugthós
fyrír hórmang
— og svipting mann-
réttinda í þrjú ár
Frönsk kona, sem talin var
hafa rekið einhvern glæsilegasta
simavændishring Frakklands,
var i gær dæmd i eins árs skil-
orðsbundið fangelsi fyrir hor-
> mang.
Maddama Fernande Grudet,
sem betur er þekkt undir nafninu
Maddama Claude og hafði sem
slik vakið á sér athygli með
„heimili” er hún rak á Rue
Damremont, var einnig dæmd i
15000 franka sekt (um hálfa millj.
isl. kr.). Þá var hún svipt al-
mennum borgararéttindum i
þrjú ár.
I bók, sem út kom fyrr á þessu
ári, sagði „Maddama Claude” frá
mörgum frönskum og erlendum
háttsettum mönnum, er höfðu
heimsótt „heimili” hennar. Hún
lýsti einnig hvernig hún hafði
skipulagt útflutning færra
vændiskvenna til annarra landa,
þeirra á meðal Bandarikjanna og
Bretlands.
I bók sinni sagði hún að afrakst-
ur hennar hefði aðeins verið 20%
af gjaldi upp að sem svarar 100_
sterlingspundum og var þá matur
innifalinn.
1 réttarhöldunum var hún sökuð
um að hafa haft fé af rúmlega
2600 „fundum” stúlkna hennar og
viðskiptavina þeirra. A undan-
förnum mánuðum hafa nokkrar
kvikmyndir og bækur um við-
skipti hennar komið á markaðinn.
Allar halda þvi fram, að franska
stjórnin hafi útvegað erlendum
gestum vinskap fagurra og blíð-
lyndra kvenna fyrir milligöngu
Maddömu Claude.
1 bókinni segir hún frá þvi er
hún varð að fá flygil inn á eitt her-
bergið, þar sem franskur ráð-
herra vildi fá að leika Bach áður
en hann sneri sér að stúlkunni, og
afrikanskur þjóðhöfðingi vildi fá
gitar. — Maddama Claude vinnur
nú við almannatengsl fyrir
klæðafyrirtæki.
f/
Vörumerki harð-
##
stjórnarmnar
— segir Church um tilraunir Fords
til að stöðva birtingu
CIA-skýrslu þingsins
Frank Church, öldungadeildarþingmaður, for-
maður rannsóknarncfndar deildarinnar um
starfsemi leyniþjónustunnar CIA, sakaði Ford
Bandarikjaforseta um það i gærkvöldi, að brott-
vikning Williams Colbys úr embætti yfirmanns
CIA væri tilraun til að hindra rannsókn nefndar-
innar á misbeitingu valds leyniþjónustunnar.
Ford forseti hefur að undan-
förnu beitt sér mjög gegn þvi, að
skýrsla rannsóknarnefndarinn-
ar um morðáætlanir CIA verði
gerð opinber. Búizt hefur verið
við þvi siðar i þessum mánuði.
Skrifaði forsetinn nefndinni bréf
nýlega, þar sem þessi ósk for-
setans er itrekuö.
Church sagði i gærkvöldi, að
tilraunir forsetans, brottvikning
Schlesingers varnarmálaráð-
herra og Colbys auk þeirrar
skoðunar nefndarinnar, að
Kissinger utanrikisráðherra
ætti ekki siður hlut að máli en
sjálfur forsetinn, sýndi ákveðna
viðleitni til að stöðva rannsókn
nefndarinnar.
Oldungadeildarþingmaðurinn
varð á köflum svo reiður, að
rödd hans brást. „Hvað mig
varðar,” sagði hann, „þá
verður þessi rannsókn ekki
trufluð. Nefndin ætti ekki að
láta kúgast undan þrýstingi for-
setans á elleftu stundu.”
Hann kallaði bréf forsetans
hreinlega „svivirðilegt”, og
sagði að með þvi að „fela hið illa
kemur i ljós vörumerki harð-
stjórnarinnar.”
Ýmsir embættismenn stjórn-
arinnar hafa gagnrýnt Colby
fyrir að hafa verið of skrafhreif-
inn við þingnefndir, er grafast
fyrir um starfsemi CIA og ann-
arra bandariskra leyniþjónusta.
Grœnland fyrir
Grœnlendinga!
Sprenging og bruni varð á norskum oliuborpalli Ekofisk I Norðursjó
á laugardaginn og biöu þrir menn þar bana. Nokkrir hlutu brunasár
og var þessi mynd lekin þegar verið var aö flytja einn þeirra á
sjúkrahús i Stafangri.
Náttúruauðæfi Græn-
lands tilheyra ibúum
landsins. Það ætti að
taka fram i lögum um
leið og heimastjórn
verður innleidd. Tillaga
um þetta efni var sam-
þykkt á fundi græn-
lenzku landsstjórnar-
mnar i Godthaab sl.
þriðjudag.
Samþykkt lands-
stjórnarinnar kom i
kjölfar umræðu um til-
lögu grænlenzka þing-
mannsins Odaks Olsens
um breytingar á lögum
um námuvinnslu á
1/4 milljón
dollara fyrir
upplýsingar
um JFK-morðið
Bandariska timaritið Satur-
day Evening Post hefur boðið
kvart milljón dollara — rúm-
lega 40 milljónir islenzkra
króna — fyrir upplýsingar, er
geti leitt til sakfellingar ein-
hvers er tók þátt i samsæri um
að myrða John F. Kennedy,
fyrrum Bandaríkjaforseta.
Blaðið bauðst einnig til að
greiða allan lögfræðikostnað
er kynni að hljótast af þvi að
veita nýjar upplýsingar, þ.e.
ef viðkomandi yrði lögsóttur.
Áhugi á Kennedy-morðinu
1963 hefur aukizt að undan-
förnu vegna nýrra upplýsinga,
sem komið hafa fram um mál-
ið.
Brjálaður símnotandi
hirtur í Los Angeles
Grænlandi.
í tillögunni gerir Odak
það mjög ljóst, að öll
hráefni, er kunna að
finnast i grænlenzkri
jörð, séu i eigu Græn-
lendinga sjálfra og að
allar rannsóknir, til-
raunir og vinnsla heyri
undir landsstjórnina.
Danska blaðið BT
skýrði frá þessu um
helgina.
Lögreglan i Los Angeles hefur
handtekið simnotanda nokkurn.
sem kallað hefur sjálfan sig
„Dauða” — og hafði lýst þvi yfir,
aðh hann sé valdur að dauða
tveggja manna og héldi þeim
þriðja lifandi, en vildi frá 100
þúsund dollara lausnargjald fyrir
hann.
Maðurinn viðhafði þessar stað-
hæfingar i simasamtölum við
dagblað og sjónvarpsstöð i borg-
Bianca fœr að leika
Bianca Jagger, eiginkona
söngvara rokkhljómsveitarinnar
Rolling Stones, Micks Jaggers,
hefur fengið leyfi til að verða
kvikmyndastjarna — og leika
fallega rika konu i kvikmynd um
lesbiur.
Þegar henni var fyrst boðið
hlutverkið i myndinni, sem ber
beitið „Trick or Treat” kvartaði
brezka leikarafélagið harðlega
yfir þvi að hún væri ekki i stéttar-
félagi þeirra og hótaði að neita
allri aðstoð.
A endanum lét félagið undan —
gegn þvi skilyrði, að Bianca sem
er 28 ára, yrði siðasti utanfélags-
maðurinn, sem gengi beint inn i
aðalhlutverk i brezkri kvikmynd.
inni. A föstudagskvöld kom lög-
regluforingi i Los Angeles fram i
sjónvarpi þar og hvatti „Dauða”
til að láta til sin heyra, svo vitað
yrði hvar ætti að skilja peníngana
eftir handa honum. Skömmu
siðar var maðurinn handtekinn á
rútubilastöð, þar sem hann var að
hirða peningapokann.
Lögreglan hefur enn ekki nafn-
greint manninn eða úttalað sig
um hvort hann hafði i rauninni
einhvern i gislingu. Ekki var
heldur getið um hvort „Dauði”
var valdur að dauöa þeirra
tveggja manna, sem hann þóttist
hafa liflátið.
Hann kallaði gisl sinn „Frank”.
Lögreglan vissi um engan, sem
var horfinn, með þessu nafni.
Missti
nebhann
í innbroti
Lögreglumenn, sem rann-
sökuðu innbrot i verzlun i
London í gær, fundu allt i' einu
óvænta visbendingu og hana
ekki sérlega pena. Á miðju
gólfi lá nefbroddur af manni.
Er nú skoðun lögreglunnar,
að innbrotsþjófurinn sem stal
sigarettukveikjara með þvi að
brjóta gluggarúðu i
verzluninni, hafi skorið sig svo
hraustlega við átökin,
aðnebbinn hafi fallið af.
Afgangs mannsins er nú
leitað.
Dýrlegasti dagur lífs hennar
Fimmtudagurinn 6. nóvem-
ber ætti að verða dýrlegasti
dagurinn i lifi Nadezhdu
Pavlovu, risandi stjörnu á
himni sovézks balletts: hún
dansar þá i fyrsta skipti með
Bolshoi-ballettinum og giftist
sólódansara við ballettinn, Vya-
cheslav Gordeyev.
Nadezhda dansaði á siðasta
ári við ballettinn og óperuna i
iðnaðarborginni Perm i úral-
fjöllum, en hún er þegar þekkt
og virt um allan heim.
Nýlega lauk hún við sinn þátt i
gerð kvikmyndarinnar „Blue
Bird”, sem er fyrsta kvikmynd-
in, er framleidd er sameigin-
lega af Bandarikjunum og So-
vétrikjunum. Þar kemur hún
fram ásamt bandariskum
stjörnum á borð við Elizabeth
Taylor og Jane Fonda.
Á fimmtudaginn dansar hún i
ballettinum „Giselle”. Þar á
eftir dansar hún ásamt brúð-
guma sinum, sem er 27 ára og
hefur verið hjá Bolshoi siðan
1968, i „Hnotubrjótnum”,
„Þyrnirós”, „Don Quixote” og
nýjum ballett eftir Tikhon
Khrennikov, „Mikil læti um
ekki neitt”.
„Auðvitað hlakka ég mikið til
frumdansins,” sagði Pavlova i
samtali við Tass i gærkvöldi.
„Ég verð að leggja mikið á mig
til að vera traustsins verð.”
Nadezhda er ekkert skyld
heimsfrægu ballerinunni önnu
Pavlovu, sem uppi var á fyrri
hluta þessarar aldar. Ungu
hjónaleysin kynntust i Moskvu
fyrir tveimur árum þegar þau
unnu að undirbúningi alþjóð-
legrar danskeppni — þar sem
þau unnu bæði til gullverðlauna.