Dagblaðið - 05.11.1975, Síða 6

Dagblaðið - 05.11.1975, Síða 6
6 Pagblaðift. Miðvikudagur 5. nóvember 1975 Ainut, 200. - . houU1 dcclare . o“f Bn'?'"'}umi- alld Pol-jCi“: reapea from thf mile f'sh'tRMP, said last than. a wh° I v/antéd cmtíd the''lcc- ■ ^Æ’SíÆ - » d" on 1 “ caid he í>»d I '"fS- m, 0fe %;;r for dishing not theirs time the the sea plund*' attd ’ We &§&r' /j. sp, r« .rX'^>oo, .Aw" ll"' ’*-»C« SC'V » , ' //I. ' 7j 200 mílna físk- veiðiiögsögu fiu, ,'0rc1 *»//i "4/, L. ‘*VV >/' °^efe /cvw. "e,/ u J'r u*>8 a ; fistfíp'S^ 1,1 C C° /A ,'í //. °"4 í\„ fQ,,a ,/>>,* %'*AC s<yiJi á&&- *'*•- ‘°‘S toA *4.% JjO, c% ^XÍ * ^7» S oX ‘ itett íd|> •*>>/"< elihopc.ot/)„ ^í. ss°»í^ss&‘i(»- íftíaaiöfii t-í ;******* >£* '<■!* S°f's"'SiS' i °"íi > 3.0 H ° * 'the’ selfsame P®°P háve suas'W — onists. fyrir Bretland — þá getum við farið að eins og islendingarnir, segir Enoch Powell Bretland ætti að lýsa yfir 200 mílna fiskveiðilandhelgi og vernda hana vel, sagði brezki Brezkir togaramenn bera saman bœkur sínar Samstarfsnefnd brezka fisk- iðnaðarins, sem sett var á laggirnar i siðasta þorskastriði, kom aftur saman til fundar i Hull i gærkvöldi. Togaraeigendur, skipstjórar, stýrimenn og fleiri aðilar eiga sæti i nefndinni. í siðasta þorska- striði setti nefndin ákveðnar reglur um hegðun í „striðinu” og brotá þeim reglum, auk þess sem hún veitti brezku stjórninni góð ráð um hæfa skipstjóra til samstarfs við skipherra herskip- anna sem voru hér viðland. Brezka blaðið Times, sem skýrði frá þessu i frétt á fimmtu- daginn, hafði eftir togara- skipstjóra, Tom Neilsen, ritara félags yfirmanna á togurum i Hull, er hann kom frá viðræðum við yfirvöld i London, að menn hans hefðu „áhyggjur af þvi einu, hvert öryggi skipa okkar og áhafna verður eftir 13. nóvember.” 1 annarri frétt Times hefur diplómatiskur fréttamaður blaðs- ins, David Spanier, það eftir áreiðanlegum heimildum i London að brezka stjórnin sé reiðubúin að fallast á allt niður i 90 þúsund tonna ársafla brezkra togara hér við land en ekki sé talið liklegt að íslendingar fallist á það. Þvi sé nær öruggt að til nýs þorskastriðs komi eftir að samkomulagið renni út, enda hafi tillaga Hattersleys utanrikisráð- herra um að láta gamla samkomulagið gilda þar til annað hefur verið gert ekki fengið góðar undirtektir islenzku stjórnar- Palme enn við sig í Svíþjóð Samkvæmt opinberri skoð- anakönnun i Sviþjóð fer fylgi tveggja stærstu flokkanna þar vaxandi á kostnað minni flokk- anna tveggja. Gerð er skoðanakönnun um afstöðu kjósenda til flokkanna mánaðarlega, en kosningar fara fram i september á næsta ári. Samkvæmt könnun október- mánaðar nýtur Hægriflokkur- inn nú íylgist 17.5% kjósenda og helur bætt við sig tveim af hundraði siðan i september. Þjóðarflokkurinn nýtur stuðn- ings 7.5% kjósenda og hefur tap- að einum hundraðshluta. Mið- flokkurinn nýtur fylgis 23.5% kjósenda og heíur tapað hálfum öðrum hundraðshluta, Vinstri flokkurinn — kommúnistar (VPK) hefur bætt við sig einum nu hundraðshluta og nýtur stuðnings 5% kjósenda. Stjórnarílokkur Palmes, Sósialistaflokkurinn, hefur bætt við sig 1% og nýtur nú stuðnings 44.5% kjósenda. Þjóðarflokkur Gunnars Heléns, sem nýlega sagði af sér embætti flokksformanns, tapar stöðugt og var það m .a. ástæðan fyrir afsögn Heléns. þingmaðurinn Enoch Powell í ræðu á föstudagskvöldið. ,,Þá gætum við samið við hvern sem er á okkar eigin skilmálum eins og Islendingar eru að neyða okkur tilað gera,” bætti hann við. Þingmaðurinn sagðist ekki vera hlynntur einhliða aðgerðum af þessu tagi en hvað varðaði réttindi á hafinu þá hefðu timarnir breytzt að undanförnu. „Við höfum í rauninni ekkert að vinna og öllu að tapa eins og málin ganga fyrir sig núna. Við biðum og biðum eftir alþjóðlegu samkomulagi, sem — ef það kemur nokkurn tima — gefur okkur ekkert fyrir alla biðina,” sagði Powell, að sögn brezka blaðsins Times. ,,Það er betra fyrir okkur að gera þegar grein fyrir stöðu okkar svo ekkert fari á milli mála.” Enoch Powell sagði það bera augljóst vitni um dvinandi þjóðaranda og sjálfstraust að hver rikisstjórnin á fætur annarri hafi ekki getað varið fiskimið og hagsmunasvæði brezkra sjó- manna. Ein frumskylda hverrar stjórnar væri að verja þegna sina og lifsafkomu þeirra fyrir græðgi og árásarstefnu annarra þjóða. Þingmaðurinn, sem yfirleitt er ómyrkur i máli, sagði það ekki hafa verið eitt risavelda heimsir.s, sem kúgaði Breta, heldur eitt af minnstu rikjum ver- aldar, nefnilega tsland. Siðan sagði hann, að sögn Times: „Það er ekki lengra siðan en i gær (fimmtudag 30/10) að Island beitti valdi til aðmeina okkur rétt sem ekki einungis er óvefengjanlegur heldur nýtur einnig alþjóðlegrar viðkurkenn- ingar. tsland hefur nú neytt okkur til að slaka á kröfum okkar, svo niðurlæging er að, og fallast á bráðabirgðaástand er verið er að semja um að enn frekar verði dregið úr. Eftir sjö ár verður landhelgi okkar nákvæmlega engin hvað varðar önnur lönd Efnahagsbandalagsins. Sama fólkið og hefur eyðilagt sin eigin strandmið verður frjálst að þvi að gera það sama við okkar mið.” anna sem voru hér við land. Heath ferðamaður ársins á Costa Edward Heath, fyrrverandi íorsætisráðherra Bretlands, var um helgina kjörinn „ferðamaður ársins 1974” á Costa del Sol á Spáni. Heath hefur eytt sumarleyf- um sinum á Costa del Sol und- anfarin tvö ár ásamt vinum sinum. I Reutersfrétt sagði að borgar- og bæjarstjórnir á spænsku ströndinni hefðu sæmt Heath þessum titli, en akki var getið um hvort út- lagastjórn íslendinga þar suð- urfrá hefði verið með i ráðum. Hvað hefur orðið um Francoise Claustre? „Franska stjómin hefur hœtt afskiptum sínum" — segir þjóðarleiðtogi Chad Bretar þrœta fyrir að hafa grœtt á Diego Garcia Brezka stjórnin hefur neitað ásökunum um að hún hafi stungið undan tveimur millj- ónum sterlingspunda af þeim íimm sem hún fékk frá Bandarikjunum i stað her- stöðvaraöstöðu á eynni Diego Garcia i Indlandshafi. Greinir frá þessu i fréttum frá Delhi á Indlandi, þar sem þingmenn samveldislandanna eru nú á árlegum fundi sinum. Fulltrúi Máritius á fundinum bar fram þessar ásakanir og sagði brezku stjórnina aðeins hafa veitt þremur milljónum punda til stjórnar Máritius „og stungið hinum tveimur i vasann eins og góður verzlunareigandi gerir”. Fulltrúar brezku stjórnar- innar i Delhi sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þessu var neitaö — og bentu á að Bret- land hefði greitt 1.35 milljón pund til einkafyrirtækis á Máritius vegna lands sem tek- iö var undir herstöðina. Bora göng niður að mammútnum Ull af mammút hef- ur fundizt saman við borkjarna er tekinn var við tilrauna- boranir norður undir Norður-Í shafi i Jakútiu i Sovétrikjun- um. Verið er að skipu- leggja gröft á staðn- um og hafa sovézkir sérfræðingar i hyggju að bora göng niður að dýrinu. Reikna þeir með að heilan mammút sé að finna varðveittan i sifros- inni jörðinni. Verkinu stjórnar virtur jarðfræðingur frá Jakútsk, B. Rusanov. að þvi er segir i frétt frá sovézku fréttastof- unni APN. Áhugi fransks almennings — og heimsins alls — á máli franska mannfræðingsins Francoise Claustre hefur minnkað stórlega að undanförnu, eins og ljóst hefur verið af þögn um mál hennar. Hún hefur verið í haldi hjá skæruliðum i Tibesti i Afrikurik- inu Chad i hálft annað ár. Mál hennarvakti heimsathygli nýlega er franska sjónvarpið sýndi viðtal við hana — en áhuginn virðist hafa dvinað jafnskyndilega, að þvi er segir i fréttum frá Paris. Franska stjórnin virðist siður en svo vonsvikin yfir þessum gangi málsins, enda hefur öll meðferð hennar á þvi verið með. eindæmum klaufaleg og stjórn- laus. Tilraunir stjórnarinnar til að fá Hissene Habre, leiðtoga skæruliðanna, til að láta frú Claustre lausa höfðu ekki ein- ungis stórlega skaðað samband Frakklands við Chad heldur voru þær einnig ógnun við samband landsins við önnur Afrikuriki. Franska stjórnin sendi skæru- liðaflokki Habres ýmis hergögn sem eiginmaður frú Claustre, Rierre, samdi um. Malloun hershöfðingi, þjóðar- leiðtogi i Chad, hefur lýst þeirri skoðun sinni að bæði franska stjórnin og pressan hafi hætt af- skiptum sinum af frú Claustre. Þvi væri sér óskiljanlegt hvers vegna hún væri enn i haldi. Samvinnumálaráðherra frönsku stjórnarinnar, Abelin, hefur borið þessa staöhæfingu til baka en aftur á móti lét hann ekk- ert uppi um hvað stjórn sin hygð- ist taka til bragðs. Hann vildi ekkert segja um hvort hergögn hefðu verið send til skæruliðanna en gat þess að hefði svo verið þá væri frúin nú frjáls manneskja, þar sem vopnaafhendingin hefði verið oddakrafa Habres og manna hans. Brezka blaðið Times segir þetta svar ráðherrans ekki það skyn- samlegasta, sem hægthefði verið að hugsa sér. Habre hefur nefni- lega fyrir löngu gert sér ljóst að mun hagstæðara er fyrir hann að halda frú Claustre enn um stund og draga þannig athygli að sér og málstað sínum i stað þess aö láta hana lausa eða taka hana af lffi.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.