Dagblaðið - 05.11.1975, Qupperneq 7
nagblaðið. IWiðvikudagur 5. nóvember 1.975
Argentfnska þingið gerir
sig líklegt til að setja
Mariu Perón ór embœtti
Búizt er við að argentínskir öldungadeildarþingmenn muni í dag ræða leiðir til að
skipa eftirmann Mariu Estelu Perón ef hún lætur af völdum á næstunni.
Maria er nú á sjúkrahúsi vegna óþægðar í gallblöðru. Að sögn heimilda innan
stjórnarandstöðunnar hefur innanrikisráðherra landsins, Angel Robledo, verið
kallaður á fund með stjórnarskrárnefnd þingsins til að ræða gangverk mála ef
frú forseti segir af sér.
Sífellt vaxa kröfurnar um að frú
Perón segi af sér eftir að upp
hefur verið ljóstrað um hneyksli,
þar sem frú Perón leikur eitt
aðalhlutverkið. Er henni gefið að
sök. að hafa misnotað almannafé
á 16 mánaða valdaferli sinum.
Rodolfo Roballos, félagsmála-
gefin út á hendur Demetrio
Horacio Vasquez, fyrrum einka-
ritara Jose Lopez Rega, sem var i
rauninni valdamesti maður
stjórnarinnar og jafnframt
félagsmálaráðherra þar til i júli.
Þá fórhann úr landi grunaður um
samstarf við dauðasveit hægri-
ráðherra um þriggja vikna skeið i
sumar, var handtekinn i gær skv.
skipun dómara, sem rannsakar
meinta spillingu i ráðuneytinu.
Áður höfðu tveir nánir
samstarfsmenn hans verið hand-
teknir.
Handtökuskipun hefur verið
manna.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar hafa farið fram á, að komið
verði i veg fyrir að bróðir
Vasquez, Dr. Pedro Eladio
Vasquez, fari úr landi. Hann var
iþróttafulltrúi Lopez Rega og
hafði að aðalverkefni að skipu-
leggja heimsmeistaramótið i
knattspyrnu i Argentinu 1978.
Dómari hefur einnig til athug-
unar háa ávisun, framlag úr opin-
berum sjóðum til góðgerða-
starfsemi Perónistaflokksins.
Frú Perón skrifaði undir þetta
framlag og tók við þvi fyrr á
árinu.
Tilraunir þingsins til að
rannsaka þetta hneykslismál, þar
á meðal ,,el cheque”, hafa til
þessa verið hindraðar af hægri-
mönnum Perónista, sem eru
tryggir og dyggir fylgismenn
forsetans. bá hefur stjórnin hótað
að lýsa rannsóknina andstæða
anda stjórnarskrárinnar.
Tveir leiðtogar Róttæka flokks-
ins, helzta stjórnarandstöðu-
ílokksins, hafa hvatt frú Perón til
að segja af sér og kom sú áskorun
fram innan sólarhrings eftir að
hún var lögð inn á sjúkrahús.
Aður höfðu leiðtogar verkalýðs-
sambands Perónista hvatt til hins
sama. Herma fregnir, að við það
hafi frú forseti fengið taugaáfall
og þvi sé hún á sjúkrahúsi nú.
Beirút:
Vopnahléið að mestu
leyti virt í morgun
Spánn:
Prestur sektaður
fyrir predikun
Sóknarprestur i Pamplona á
Spáni hefur verið sektaður um
300 þúsund peseta fyrir predik-
un,sem yfirvöld töldu vera árás
á félagslega- og pólitiska ein-
ingu þjóðarinnar.
1 opinberri tilkynningu sagði
að faðir Jesus Lezaun hafi i pre-
dikun sinni 5. október ,,hvatt til
undirróðurs og ýtt undir hryðju-
verk.”
Öruggar heimildir Reuters
herma að faðir Lezaun hafi
byggt predikun sina á umræðu
um aftökur skæruliðanna fimm
27. september.
Opinberum starfsmönnum i
Libanon var i morgun skipað að
mæta aftur til vinnu eftir að hafa
verið fjarverandi og lokaðir inni á
heimilum sinum i nokkrar vikur
vegna stöðugra bardaga á stræt-
um borgarinnar.
,,Þið hafið verið svo lengi
heima, að letin er farin að setjast
að i ykkur,” sagði Karami forsæt-
isráðherra i sjónvarpsávarpi i
morgun og glotti um leið.
1 nótt og morgun var kyrrt i
borginni og virðist nú sem vopna-
hlé hafi raunverulega tekið gildi.
1 hóteli • einu við sjávarsiðuna
er þó ekki allt með kyrrum kjör-
um, og þar sögðu leiðtogar
Falangista i' nótt, að þeir byggjust
ekki við að vopnahléið stæði nema
fram að helgi.
Karami forsætisráðherra var
mjög bjartsýnn i sjónvarpsávarpi
sinu og sagði eina áhyggjuefni sitt
vera öryggi þeirra gisla, sem
fylkingarnar striðandi hafa tekið.
Að sögn segjast Falangistar enn
hafa að minnsta kosti 22 gisla og
hafa ekkert látið uppi um hvenær
þeir verða látnir lausir.
Alls hafa 1140 manns faliið i
Beirút og nágrenni siðan átök
hófust fyrir alvöru um miðjan
september.
Táningsstúlka i Beirút, félagi i
hægrisamtökum Falangista.
stendur vopnaðan vörð á götu-
horni i borginni á sunnudaginn.
EKKERT AÐHAFZT GEGN FÖDUR
KYRKTU STÚLKUBARNANNA
Saksóknarinn i Norðymbra-
landi ÍEnglandi hefur fyrirskip-
að að frekari aðgerðir i máli Al-
freds McNalls verði látnar niður
falla.
Tvær dætur McNalls fundust
kyrktar i rúmum sinum 19.
september sl. Daginn eftir
fannst kona hans, Mary, látin af
of stórum lyfjaskammti.
McNall fannst skömmu siðar
grátandi á akri ekki langt frá
heimili sinu. Lögreglan hefur
visað málinu aftur til likskoðar-
ans, sem upphaflega fékk
dauðsföllin þrjú til meðferðar.
Squeaky vitt fá Manson
ttt að bera vitni!
Lynette Fromme, sem ákærö er fyrir tilræöi við
Bandarikjaforseta, hefur óskaö eftir aö hippa-
moröinginn svokallaöi, Charles Manson, beri vitni i
rétlarhöldunum yfir henni.
Fromme, sem er 27 ára og til-
heyrir „Manson-fjölskyldunni”,
lékk i gær leyíi til að afþakka
aðstoð lögfræðingsins, sem
rétturinn skipaði handa henni.
Lögfræöingurinn hreyfði mót-
mælum þegar Fromme fór þess á
leil við dómarann i gær, að
Manson og aðrir íangelsaðir úr
fjölskyldunni fengju að bera vitni
i máli hennar.
Manson og fjórir fylgifiska hans
afplána lifstiðarfangelsisdóm
fyrir moröin á Sharon Tate,
leikkonu og sex öðrum i Holly-
wood 1969.
Lynnette „Squeaky” Frorame
hefur nú algjörlega tekið að sér
eigin vörn og hyggst breyta
framburði sinum. sem upphat-
lega var „ekki sek”.
Líknarmorð
framið í USA?
Lögregia og spitalayfirvöld i
Mineola i New York i Banda-
rikjunum rannsaka nú dauða
stúlku, sem haidin var ólækn-
andi sjúkdómi. Ilún lézt þegar
stállunga. sem hélt henni á ltfi.
var lekið úr sambandi.
Stúlkan, Mary Jane Dahl. lézt
á sunnudaginn skömmu eftir að
nióöir hennar og framka konnt i
heimsókn.
Að sögn sjúkrahússyfirvalda
kviknaði aðvörunarljós utn leið
og stállungað var tekið úr sam-
bandi og konnt þá hjúkrunar-
konur þegar inn á sjúkrastof-
una.
Að sögn likskoðarans á staðn-
um hefur fjölskyida stúlkunnar
verið vfirhevrð vegna látsins.
Marv Jane var aðeins 16 ára.
Hún þjáðist af krabbameini og
nyrnaveiki.