Dagblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 6
6 Dagblaðiö. Fimmtudagur 13. nóvember 1975. Finnska útvarpið stöðvaði um sl. helgi sjónvarpsviðtal við brezka blaðamanninn George Lennox, sem hefur haldið þvi fram, að við bandariska sendi- ráðið i Helsinki starfi 13 menn á vegum leyniþjónustunnar CIA. Tor Högnas, fréttaritari Dag- ens Nyheter i Helsinki, segist hafa góðar heimildir fyrir þvi, að það hafi verið finnska utanrikis- ráðuneytið, sem stöðvaði viðtalið, en hann hefur einnig eftir hátt- settum embættismanni ráðuneyt- isins, að svo hafi ekki verið. Til stóð að taka viðtalið við Lennox upp á myndsegulband i Tammerfors og var upptakan um það bil aö hefjast er hringt var frá Helsinki, þar sem ákveðið hafði verið að viðtalið yrði ekki tekið upp. Jafnframt var starfsmönn- um sjónvarpsins i Tammerfors fyrirskipað, að hafa ekkert eftir Lennox. Að öðrum kosti gætu þeir átt á hættu að missa vinnu sina. Þessi boð voru sögð koma frá Erkki, Raatikainen, útvarps- stjóra. Það mun hafa komið Lennox, sem starfað hefur i Stokkhólmi i nokkur ár, töluvert á óvart, þegar hann áttaði sig á þvi, að i Finn- landi gengur ekki eins vel fyrir sig og I Sviþjóð að opinbera efni, er varðar erlend riki. Sœnska stjórnin rœður sér málvöndunarmann — svo þjóðin skilji hvað hún meinar Sænska stjórnarráðið er um það bil að ráða sér- stakan málverndunar- mann svo að embættis- málið verði skiljanlegt venjulegu fólki, segir í frétt Dagens Nyheter um sl. helgi. Það var Olof Palme, forsætis- ráðherra, sem átti frumkvæðiö að þessu eftir að rikisráðsrit- arinn, Thage Peterson, var skipaður samræmingar- ráðherra á dögunum. Sænska rikisstjórnin hefur beðið sænsku málverndar- nefndina um tillögur um heppilegan mann til starfans. Málvöndunarmaður sænsku stjórnarinnar fær það hlutverk, að leiðbeina embættisvaldinu um einfaldara og auðskiljan- legra mál en venjulegast er notað af hálfu hins opinbera. Þetta ernýjasta nýtt i gjafaúrvali handa fristundamálurum á itallu, segir i texta með þessari mynd frá norsku fréttastofunni NTB. Ef léreft til að strekkja i rammann er ekki fyrir hendi má alltaf nota fyrirsætuna. „landráðamenn OG FÁVITAR" — segir einn héraðsstjóra Argentínu um samstarfsmenn Isabellu Perón Isabel Perón, forseti Argentfnu, kemur af sjúkrahúsi i dag — og þarf þegarí stað að horfast i augu við nýja uppreisn gegn sér i Perónistahreyfingunni. Skömmu áöur en læknar Isabel gáfu út tilkynningu i gærkvöldi um að hún væri orðin heil heilsu og reiðubúin að hefja störf að nýju „hvenær sem er”, sagði hér- aðsstjórinn i Buenos Aires, að helztu samstarfsmenn hennar væru „landráðamenn og fávitar”. Perón forseti var lögð inn á sjúkrahús 3. nóvember. Opinber- lega er þvi haldið fram, að gall- steinar hrjái hana. Hún hefur ein- ungis sézt opinberlega siðan i sjónvarpi þar sem hún tilkynnti, að hún myndi ekki segja af sér embætti. Héraðsstjórinn, Victorio Cala- bro, er jafnframt formaður Sam- Rumsfíeld varafor- setaefni Fords? taka verkamanna i málmiðnaði, en þau samtök eru einn helzti burðarásinn i Perónistahreyfing- unni. Calabro var rekinn úr hreyfingunni i siðustu viku. Á úti- fundi i höfuðborg héraðsins, La Plata, i gær voru hátt i 25 þúsund manns. Þar varaði hann hægri menn i „kliku forsetans” við þvi, aö dagar þeirra væru taldir. „Bylting fólksins mun eyði- leggja þá,” sagði Calabro og lagði á það mikla áherzlu, að ,,hin raunverulega Perónistahreyf- ing” yrði að lifa. Hann var rekinn úr hreyfing- unni fyrir þau ummæli sin i sið- asta mánuði, að ef rikisstjórnin breytti ekki stefnu sinni, þá yrði ekkert úr forsetakosningunum, sem fyrirhugaðar eru 1977. Ekki er ljóst hversu viðtæks stuðnings Calabro nýtur. Perón: þrjózkast enn við að segja af sér embætti og á ný í vaxandi striði við andsnúin öfl f landinu. Likur þykja nú benda til, að Donald Rumsfield, sem Ford Bandarikjaforseti hefur tilnefnt i embætti varnarmálaráðherra i staðinn fyrir James Schlesinger, verði varaforsetaefni forsetans i kosningunum að ári. Rumsfield hefur ekki viljað neita þvi algjörlega, að hann verði i framboði. Hann er nú einn af nánustu samstarfsmönnum og helztu ráðgjöfum forsetans. A fundi meö hermálanefnd þingsins, sem hefur tilnefningu hans i ráðherraembætti til athugunar, sagðist Rumsfield ekki vera að bjóða sig fram i eitt eða neitt, en það væri út i hött fyrir sig að útiloka sjálfan sig úr einhverju starfi, sem hann hefði ekki fengið boð um. Ford forseti sagði i siðustu viku, að enginn væri útilokaður til að taka við embætti varaforseta af Nelson Rockefeller næði hann (Ford) kosningu á næsta ári. A fundi nefndarinnar sagði Rumsfield, að hann myndi þjóna forsetanum eins og hann óskaði. Látinn laus úr fíjúgandi diski Fimm menn i Heber i Arizona i Bandarikjunum, sem segjast hafa séð fljúgandi disk ræna einum félaga sinum, Travis Walton, i fyrri viku, hafa gengizt undir lygamælispróf á vegum lögreglu þar i bæ. Stóðust þeir allir prófiö. Walton er á sjúkrahúsi. Hann segisthafa verið tekinn um borð i diskinn og þar hefði verið potaö i sig, sér ýtt til og hann rannsakaður allur áður en hann var látinn laus, Bróðir hans, Duane, segist hafa fundið Travis i simaklefa, fúlskeggjaðan og kvartandi sáran um verk i höfði og hálsi. Lögreglustjörinn i Heber, Marlin Gilaespie, segir málið mjög athyglisvert en fremur taugatrekkjandi. Einn undirmanna hans segist þó fullviss um að Walton- bræðurnir hafi skáldað söguna frá upphafi til enda. CIA-mennirnir 13 í Helsinki: Sjónvarpsviðtalið með sönnununum stöðvað Skipar Ford íhaldssaman dómara \ stað Douglas? Talið er nær öruggt, aö Ford Bandarikjaforseti muni skipa Ihaldssaman dómara i stað Willi- ams Douglas, sem sagði af sér störfum hæstaréttardómara i gærkvöldi. Ford reyndi sjálfur fyrir nokkrum árum að fá Doguglas.sem er frjálslyndari en gerist og gengur með hæstarétt- ardómara, dreginn fyrir rikisrétt. Doguglas lætur af störfum vegna heilsuleysis. Hann fékk að- kenningu að slagi á gamlárskvöld i fyrra og hefur ekki náð sér al- mennilega siðan. Nixon fyrrum forseti reyndi ár- angurslaust að skipa ihaldssama dórnara i hæstarétt — eins og menn muna ef til vill — og er nú talið vist að Ford muni halda þvi baráttumáli á lofti. Ford hefur ekkert látið uppi um hvern hann muni tilnefna i em- bættið en eiginkona hans, Betty, hefur sagt að hún muni reyna að beita áhrifum sinum til þess að kona verði fyrir valinu. William Douglas hefur þjónað sjö forsetum Bandarikjanna. Hann hefur alla tfð verið i fremstu viglinu og barizt einarð- lega fyrir almennum mannrétt- indum i heimalandi sfnu. A árun- um upp úr 1950, þegar kommún- istagrýlan óð yfir Bandarikin, stóð Douglas oft á tiðum einn á- samt dómaranum Hugo Black gegn ýmsum tilraunum hæsta- réttar til að hefta málfrelsi og fundafrelsi. Er fram liðu stundir komust frjálslyndir i meirihluta i hæsta- rétti og var Douglas oftast i fyrir- svari. Hann átti stóran þátt i þvi, að kynþáttaaðskilnaður var ban- aöur, dregið úr valdi lögreglu og ritskoðun bóka og kvikmynda bönnuð. Douglas var alla tið andsnúinn striðsrekstri Bandarikjanna i Vietnam og taldi að stjórnvöld væru algjörlega réttlaus i baráttu sinni gegn andstæðingum striðs- ins heima fyrir. 1969, þegar Gerald Ford var leiðtogi Repúblikana i fulltrúa- deild þingsins, reyndi hann ao koma þvi til leiðar að Douglas yrði dreginn fyrir rikisrétt, sak- aður um siðleysi. Douglas hafði þá skrifað greinar i frjálslynd blöð og timarit, hafði ákveðna samúð með umbóta- og byltingar- öflum og „skrifaði i klámblöð”, eins og núverandi Bandarikjafor- seti sagði þá. 1 gær skrifaði forsetinn Douglas bréf, þar sem hann þakkaði hon- um langa, kjarkmikla og vilja- sterka þjónustu iþágu lands sins.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.