Dagblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 7
nagblaðið. Fimmtudagur 13. nóvember 1975.
7
Erlendar
fréttir
REUTER
Atvinnu-
leysi
í Sviþjóð
1.7%
Atvinnuleysi fer sifellt
minnkandi i Sviþjóð. A fyrstu
10 mánuðum þessa árs höfðu
100 þúsund fleiri vinnu en á
sama tima i fyrra, að þvi er
segir i sænska blaðinu Dagens
Nyheter.
Astandið á vinnumarkaði
kvenna og ungs fólks hefur
batnað tiltölulega mest.
Atvinnuleysi i Sviþjóð, er nú
aðeins 1.7%, en á sama tima i
fyrra var það 1.9%, sem
jafnvel er mjög lágt.
Eins og áður er atvinna
mest á þéttbýlissvæðunum, en
i skógar- og útkjálkasvæðum
er minna um hana.
Ástralía:
Fraser segist taka við
efnahagslífi í rústum
Hinn nýi forsætis-
ráöherra Ástraliu/
Malcolm Fraser, hélt því
fram í morgun, aö efna-
hagur þjóðarinnar væri
mun bágbornari en fyrri
stjórn Verkamanna-
flokksins hefði viljað
viðurkenna.
Fraser sat I morgun með
embættismönnum i fjármála-
og atvinnumálaráðuneytum
landsins, og sagði frétta-
mönnum þar á eftir, að hann
efaðist ekki „hið minnsta um,
að ástandið i efnahagsmálum
Ástraliu er töluvert alvarlegra
en fyrri stjórn vildi láta ibúa
landsins vita um.”
Ráðherrar fyrri rikisstjórnar,
undir forystu Goughs Whitlams,
þverneituðu að Fraser færi með
rétt mál. Fyrrum fjármálaráð-
herra landsins, William
Hayden, sagði fullyrðingu
Frasers vera „vitleysu”.
Ýmsar mótmælaaðgerðir og
útifundir verða i Ástraliu i dag
og er lögreglan við öllu búin.
Miklar mótmælagöngur gegn Sir John Kerr landstjóra eru nú farnar i Astraiiu. Þessi mynd er frá Can-
berra, þar sem göngur voru farnar þegar er fréttist um brottvikningu Whitlams.
BROTIZT INN HJÁ
ÞINGMÖNNUM SCM
RANNSAKA CIA
Lögreglan i Washington rann-
sakar nú dularfullt innbrot i
heimili öldungadeildarþings-
mannsins Charles Mathias (Repú
blikani). Er það i annað skipti á
þremur mánuðum, sem brotizt er
inn heima hjá þingmanni, er sæti
á í rannsóknarnefnd þingsins um
starfsemi leyniþjónustunnar CIA.
Innbrotið var framið um helg-
ina. t byrjun ágúst var brotizt inn
heima hjá þingmanninum How-
ard Baker. Þar var engu verð-
mætu stolið. Lögreglan rannsak-
ar það innbrot ennþá.
Innbrotið á heimili Mathias var
svipaö. Þar var engu stolið nema
25 svissneskum frönkum — og
voru þó ýmsir dýrir munir, þar á
meðal silfur, i húsinu. Aftur á
móti var leitað i öllum skúffum, á
sama hátt og hjá Baker á sínum
tim a.
Engin fingraför hafa fundizt i
húsunum og þykir lögreglu það
benda til, að engir viðvaningar
hafi verið á ferð.
Eftir innbrotið á heimili Bakers
sögðu starfsmenn þingmannsins,
að þjófarnir hefðu greinilega ekki
verið á höttunum eftir peningum
eða öðrum verðmætum, heldur
væri liklegra að leitað hefði verið
að leyndarskjölum, sem þing-
maðurinn hefði verið talinn hafa
tekið með sér heim til yfirferðar.
Ekvador:
Andstœðingar stjórnar-
innar reknir úr landi
— sakaðir um samsœri er hálf milljón manna
býst til að fara í verkfall
Herforingjastjórnin i Ekvador
hefur rekið fyrrum forseta lands-
ins, Carlos Julio Arosemena, og
leiðtoga ihaldsflokksins, Julio
Cesar Trujillo, úr landi. Eru þeir
sakaður um að hafa lagt á ráðin
um samsæri gegn stjórninni.
Mennirnir tveir voru sendir
með fiugvél til Bóliviu eftir að
stjórnin hafði tilkynnt að komizt
hefði upp um samsæristilraunir
þeirra. Heraflalandsins var skip-
að I viðbragðsstöðu.
Tilkynningin var birt skömmu
áður en eins dags allsherjarverk-
fall átti að hefjast i landinu. Búizt
er við að um 50 þúsund manns
taki þátt i þvi.
Guillermo Rodriguez Lara,
forseti landsins, hvatti launþega
til þess i morgun að taka ekki þátt
i verkfallinu: Það er skipulagt af
þrem stærstu verkalýðssambönd-
um landsins til að leggja áherzlu
á kröfur um bætt laun og vinnu-
skilyrði.
Allur heraflinn hefur verið
kvaddurútog skipað i viðbragðs-
stöðu. Þrjár deildir hersins hafa
verið skipaðar til að hafa með
höndum gæzlu á útifundum.
Vörður um forsetahöllina hefur
verið efldur til muna.
Um þrjátiu manns féllu og 100
særðust i átökum stjórnar-
hermanna og uppreisnarmanna
1. september. Leiðtogi
uppreisnarmanna er óánægður
hershöfðingi, sem nú er i útlegð.
„Engar aftökur
í Kambódíu"
— segir Sihanouk
Þjóðhöfðingi Kambódiu,
Sihanouk prins, sagði i viðtali i
Paris i morgun, að enginn hefði
verið liflátinn i heimalandi sinu
siðan kommúnistar tóku völdin
þar i vor — nema nokkrir af.
þeim sjö „einstöku landráða-
manna”, sem stjórn Khmer
Rouge handtók.
t viðtalinu við vikuritið
Afrique-Asie sagði prinsinn:
„Auðvitað er ekki hægt að úti-
loka að nokkrir flugmenn hafi
orðið fórnarlömb skyndiréttlætis
er þeir féllu i hendur bændanna i
landi okkar. Þeir voru svo
sannarlega hataðir úti á lands-
byggðinni, þar sem þeir sáðu
dauða og eyðileggingu.
Er Sihanouk var spurður álits
á þeirri yfirlýsingu Kissingers.
utanrikisráðherra Bandarikj-
anna, að 80 flugmenn hefðu
verið teknir af lifi ásamt eigin-
konum sinum, sagði prinsinn:
„Kissinger hefur alltaf verið
hræðilea illa upplýstur um
ástandið i landi okkar.”
Landráðamennirnir sjö, sem
Sihanouk kallar „einstaka”
svikara, voru stjórnmálalegir
og hernaðarlegir foringjar fyrri
stjórna landsins. Þeirra á meðal
voru forsætisráðherrarnir In
Tam, Long Boret og Son Ngoc
Thanh auk fyrrum forseta, Lon
Nols.
Norodom Sihanouk ásamt Kiev Samphan, forsætisráðherra Khmer
Rouge -stjórnarinnar i Kambódiu.
Maður heldur sig innan dyra
//
n
„Maður passar sig einfaldlega
á þvi að halda sig innan dyra, þvi
alls ills er von” sagði Þór
Gunnlaugsson, lögreglumaður á
vegum Sameinuðu þjóðanna i
Jerúsalem, i samtali við frétta-
mann blaðsins frá Israel i morg-
un.
„Astandið er vægast sagt held-
ur ógnvekjandi eftir samþykkt SÞ
um zionismann,” sagði Þór. „Hér
hafa verið stöðugar mótmælaað-
gerðir allt siðan samþykktin var
gerð og andstaðan við Sameinuðu
þjóðirnar gifurleg. Maður finnur
augngoturnar hvar sem maður
fer, en ég er sjálfur svo heppinn
að búa i hverfi, þar sem ibúarnir
hafa tekið mér vel."
Ungir mótmælendur i
Jerúsalem slitu niður fána SÞ við
höfuðstöðvar samtakanna i
borginni i gærkvöldi. Kröfðust
þeir þess, að samtökin hefðu sig
þegar á brott frá borginni.