Dagblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 13.11.1975, Blaðsíða 12
Það skeði, er ham71>ú hefðir gert það ætlaði að hjálpa I sama fyrir hann ------__________' V' " _ Bommi_______ Hvernig líðurj v honum? J Ég er viss um, að hann ________jafnar sig___ m Svíinn frá Bayern Sænski landsliðsmaðurinn Conny Thorstensson leikur sennilega sinn siðasta leik með Bayern Munchen nú i vikunni. Samningurinn hans við Bayern rennur út á laugardag og formaður Bayern sagði i gær, að hann hefði það á tilfinningunni að Thorstensson væri að fara frá fé- laginu. Hann og Sviinn hafa ekki komizt að samkomulagi um nýjan samning, en boð formannsins mundi hafa i för með sér tckjumissi hjá Thorstensson. Hann hefur leik- ið 21 landsleik fyrir Svíþjóð og sagði i Munchen i gær: — Ég hef ekki ákveðiðtil hvaða félags ég fer — en ég hef sambönd i Sviss”. Sennilega verður siðasti leikur hans með Bayern á laugardag á útivelli gegn Bochum. Skellur hjá Manch.Utd. Manchester City vann stórsigurá nágrönnum sinum Manchester United i fjórðu umferð deildabik- arsins i gærkvöld. Lokatölur leiksins urðu 4—0 og fór leikurinn fram á Maine Hoad — heimavelli City. Dennis Tueart skoraði eftir aðeins 35 sekúndur — glæsilegt mark en skömmu siðar meiddist Colin Bell — maðurinn á bak við City og leikreyndasti leikmaður enska landsliðsins. Ljóst er að Bell leikur ekki með Englandi i Portúgal næsta miðvikudag. Senni- lega verður Béll ekki með i mánuð og er þetta mikið áfall fyrir City — sem nú hefur ekki tapað i siðustu 11 leikjum sinum. En United tókst ekki að notfæra sér þetta áfall City. Asa Hartford skoraði annað mark City og Tueart bætti þvi þriðja við fyrir hálfleik. Áfram hélt City og Joe Royle bætti fjórða markinu við — óvæntur stórsigur eftir sigur- göngu United að undanförnu. En litum á úrslitin i fjórðu umferð. Manch. City — Manch. Utd. ... 4-0 Mansfield —Wolves ..... 1-0 Tottenham — West Ham .. 0-0 Einn leikur var háður i 2. deild: Oxford — WBA 0-1. Allt gengur nú á afturfótunum hjá Úlfunum. Að þessu sinni töpuðu þeir fyrir neðsta liðinu i 3. deild — Mansfield. Mark Mansfield skoraði MacDonald skömmu fyrir hlé og hefðu mörk 3. deildarliðsins getað orðið mun fleiri — slikir voru yfir- burðir þess. Sjálfsagt er þess nú ekki langt að biða að Bill McCarry, framkvæmdastjóra Crlfanna verði vikið úr starfi. 1 London börðust Tottenham og West Ham i frekar slökum leik — hvorugu liðinu tókst að skora. Athygli vekur uppgangur WBA eftir slæma byrjun — en greinilega eru áhrif Johnny Giles farin að segja til sin — liðið hefur nú ekki tapað i 11 leikjum i röð. h.halls Olympíuleikir í knattspyrnu F'rakkland sigrað Holland 3—2 i gær i 4. riðli i forkeppni Olympiu- leikanna i knattspyrnu. Leikið var i Veendam i Ilollandi og voru áhorf- endur 1200. t sömu keppni gerðu Búlgaria og Spánn jafntefli i 3. riðli 1—1. Leikið var i Sofia. t Evrópukeppni landsliða, leik- menn 23ja ára og yngri, gerðu Tékkóslóvakia og Portúgal jafn- tefli 1—1 I Teplice I Tékkóslóvakiu. JDjSH Pagblaðið. Fimmtudagur 13. nóvember 1975. Pagblaðið. Fimmtudagur 13. nóvember 1975. Jón Karlsson var snjall með Valsliðinu — og þessi gamli Vikingur skor- aði niu mörk hjá islandsmeisturunum i gær. Tónninn orðinn falskur í bjöllum meistaranna! — Valur vann stórsigur á íslandsmeisturum Víkings í 1. deildinni í gœrkvöld, 28-18 — Ólafur Benediktsson átti enn einn stórleikinn í marki Vals Markvörðurinn er hálft liðið i handknattleik. Þetta gamla slag- orð sannaðist rækilega, þegar Valur lék sér að tslandsmeistur- um Vikings í 1. deildinni i Laug- ardalshöll i gærkvöld. Tiu marka sigur Vals, 28-18, og Ólafur Benediktsson lagði grunninn að þessum stórsigri með frábærri markvörzlu i marki Vals — með- an næstum allt lak inn hinumeg- in, enda varnarleikur Vikings i einu orði sagt hörmulegur. Það var stórkostlegt að sjá landsliðs- markvörðinn Óla Ben. i þessum ham — og afar ánægjulegt. Von- andi að hann haldi forminu — og þá gæti jafnvel orðið bjart fram- undan í hinu mikla Iandsleikja- prógrammi islands. Það var eng- in meðalmennska ráðandi i markvörzlunni hjá Val i gær og þegar óli Ben. er I þessum ham ræður sennilega ekkert islenzkt lið við Val. Valsliðið lék skinandi vel allan Tékkar öruggir — segir enski landsliðseinvaldurinn Tékkar fóru til Portúgal til að ná jafntefii og það tókst þeim — úrslit leiksins urðu 1-1 og nú eiga Tékkar alla möguleika að komast up úr 1. riðli Evrópukeppni lands- liða. Þrátt fyrir þunga sókn að marki Tékka náðu Tékkar forustu þegar á 7. minútu. Markvörður Portúgala, Damas, sendi boltann beint til Tékkans Ondrus sem þakkaði gott boð og skilaði bolt- anum i markið. Én minútu siðar voru Portúgalir búnir að jafna — Nene skoraði eftir sendingu Moinhos. Aðeins.tveimur minútum siðar var Octavio felldur innan vita- teigs og dæmd var vitaspyrna á Tékkana. Nene spyrnti yfir — hinum 40 þúsund áhorfendum til mikilla vonbrigða. Þó varð Don Kevie — sem var á leiknum — fyrir mestum vonbrigðum. — Hann greip um höfuð sér. Þrátt fyrir þunga sókn að marki Tékkanna tókst Portúgölum ekki að skora fleiri mörk. Þessi úrslit gera það að verkum að Tékkar eru nú svo gott sem öruggir áfram — meira að segja Revie lét hafa það eftir sér. Staðan i 1. riðli er nú: England 5 3 11 10-2 7 Tékkóslóvakia 5 3 11 12-5 7 Portúgal 4 12 1 3-6 4 Kýpur 4 0 0 4 0-12 0 Leikir sem eftir eru: Rortúgal — England 19. nóv. Kýpur — Tékkar 23. nóv. Portúgal — Kýpur 3. des. h.halls Celtic í ef sta sœti á ný þrenna Jóhannesar — Celtic sigraði Ayr United 7-2 á útivelli í gœrkvöldi — Jóhannes átti stórleik og skoraði þrjú mörk — þar af tvö fyrstu mörk leiksins Það var ákaflega gaman að leika þarna á Ayr i gærkvöld' — Celtic-liðið var i miklu stuði og lék fallega og árangursrika knattspyrnu. Við sigruðum með sjö mörkum gegn tveimur og ég skoraði þrjú af mörkum Celtic — tvö þau fyrstu og það sjöuuda. Celtic er komið i efsta sætið á ný I aðaldcildinni og hefur þó leikið einum leik minna en flest hin lið- in, sagði Jóhannes Eðvaldsson, þegar Dagblaðið hafði samhand við hann i Glasgow i morgun. Þessi stórsigur Celtic var ó- væntur, þvi Ayr-liðið hefur náð mjög góðum árangri á heima- velli. Hefur reynzt þar nær ósigr- andi i haust — en það hafði ekkert aðsegja i Celtic i þeim ham, sem leikmenn þess voru i þarna á vell- inum i Ayr. Og tslendingurinn kom Celtic á sporið með mörkun- um sinum i byrjun. — Þetta er sennilega bezti leik- urinn, sem Celtic hefur leikið sið- an ég byrjaði með liðinu — og ég er ákaflega ánægður með minn hlut. Tók mikið þátt i sókninni og árangurinn lét ekki á sér standa. Skozku blöðin eru mér ákaflega vinsamleg i skrifum sinum um leikinn i morgun, sagði Jóhannes ennfremur. Eg skoraði fyrsta markið með skalla fljótt i leiknum — og einnig annað markið skömmu siðar. Það var skemmtilegt mark. Eg lék upp miðjuna með knöttinn — gaf siðan út á Poul Wilson. Fékk góða sendingu frá honum aftur fyrir markið og renndi knettinum inn- anfótar i mark. Poul átti ákaflega góðan leik og var með i flestum markanna, þó svo hann skoraði ekki sjálfur. Siðasta markið skor- aði ég einnig með skalla, sem markvörður Ayr hafði ekki möguleika að verja. Staðan i hálfleik var 4-0 fyrir Celtic — i'fyrsta skipti i aðaldeild- inni i haust, sem lið hefur haft svo mikla yfirburði. Auk Jóhannesar skoruðu þeir Dixie Deans, tvö, Kenny Dalglish og Roddy MacDonald. Glasgow-Rangers lék á heima- velligegn DundeeUtd. i gærkvöld og vann með 4-1. Staðan i aðal- deildinni er nú þannig: Celtic 10 6 2 2 23-11 14 Motherwell 11 4 5 2 20-15 13 Rangers 11 5 3 3 15-11 13 llearts 11 5 3 3 14-14 13 Hibernian 10 4 4 2 14-10 12 Ayr 11 5 1 5 16-18 11 DundeeUtd. 11 4 2 5 15-16 10 Dundee 11 4 2 5 17-24 10 Aberdeen 11 3 2 6 16-20 8 St. Johnst. 11 2 0 9 10-21 4 Leikirnir tveir i gær voru þeir, sem frestað vará dögunum vegna úrslitaleiks Rangers og Celtic i deildabikarnum. Hvernig gengur með aðdáenda- klúbbinn, spurðum við Jóhannes að lokum — en i Glasgow hefur verið stofnaður „Jóhannes Eðvaldsson fan Club”. — Það gengur prýðilega, sagði Jóhannes. Það eru þegar komnir um 200 manns i hann og fer fjölg- andi. Þeir fara i'sérstökum bilum á leikina, sem merktir eru nafni minu. Það er bara gaman að þessu — og 8. desember verður mikilhátið hjá þeim mér til heið- urs. Þetta er ágætt — kitlar mann og forráðamenn Celtic eru yfir sig hrifnir af þessu. —hsim. fyrri hálfleikinn og fram i hinn siðari og var komið i 12 marka forustu, 21—9. „Dauði kaflinn” kom þá i leik Valsmanna — að venju má reyndar segja — Vik- ingar skoruðu fimm mörk i röð án þess að Valsmenn svöruðu fyrir sig. Þá varði Sigurgeir vel i Vik- ingsmarkinu smákafla —en hinn slaki kafli Valsmanna kom ekki að sök. Munurinn var orðinn allt- of mikill. Það var mikill hraði i leik Vals lengstum eftir heldur rólega byrj- un — og liðið tók siðan öll völd með ágætum leik Jóns Karlsson- ar, Stefáns Gunnarssonar, Jóns Péturs Jónssonar og Guðjóns Magnússonar, sem loksins komst á skrið á ný. Að baki sér höfðu þeir snillinginn Óla Ben. sem al- gjörlega lokaði marki sinu, það svo, að Vikingar gátu varla skor- að mark nema úr vitaköstum i um 20 minútur. En Vikingar gerðu Valsmönnum leik sinn auð- veldan — það var beinlinis hægt að ganga i gegnum Vikingsvörn- ina að vild. Rósmundur Jónsson varði vel i byrjun — en siðan var markvarzla Vikings i algjöru lág- marki. Valsmenn þurftu aðeins að hitta markið — þá lá knöttur- inn i netinu. Skiljanlegt kannski, að Vikingsmarkverðirnir færu úr sambandi með þá vörn, sem þeir höfðu fyrir framan sig. Það er ár og dagur siðan ég hef séð Vikingsliðið leika eins illa og i gærkvöldi. Varnarleikurinn, sem var orðinn aðall liðsins á siðasta leiktimabili, bókstaflega enginn. Valsmenn, sem áttu i hinum mestu erfiðleikum að skora 11 mörk i úrslitaleik Islandsmótsins gegn Viking i vor, og það með Ólafi H. Jónssyni, skoraði nú næstum þrisvar sinnum fleiri mörk. Það er eitthvað meira en litið að hjá Vikingum á þessu sviði — og maður hugsar næstum til þess með skelfingu að eftir nokkra daga á liðið að leika við bezta lið heims — Evrópumeist- arana þýzku Gummersbach i Evrópubikarnum. Það verður eitthvað róttækt að ske ef það á ekki að vera hörmung. Uppstill- ing Vikingsliðsins kom lika á ó- vart i gær — bezti varnarmaður liðsins, Magnús Guðmundsson, litið sem ekkert notaður framan af — og heldur ekki skotharðasti maður liðsins Viggó Sigurðsson. Það hlýtur að vera hægt að hegna leikmönnum á öðrum sviðum en i leik. Framan af i gær virtist ekkert benda til þess að Vikingar fengju þessa hroðalegu útreið. Þeir skoruðu tvö fyrstu mörk leiksins, en Valur jafnaði. Vikingur náði aftur forustu og um miðjan hálf- leikinn var jafnt 5-5. Óli Ben. fékk þá á sig óheppnismark — það fimmta — sló knöttinn i eigið mark. En eftir það sagði hann. — Hingað og ekki lengra. — Mark- varzla hans til loka hálfleiksins er ein hin bezta, sem sézt hefur á fjölum Laugardalshallarinnar. Valsmenn gengu á lagiðog staðan i hálfleik var 13—7. Og áfram lokaði Óli marki sinu. Valsmenn skoruðu fimm fyrstu mörkin i siðari hálfleik — og kom- ust siðan i 21-9. Vikingum tókst ekki að skora nema úr vitum fram i miðjan hálfleikinn — en þá kom slaki kaflinn hjá Val, og staðan breyttist i 21—14. En Vals- menn réttu sig af — byrjuðu að skora á ný. Lokakafli leiksins var teikleysa — allt leystist upp i mik- inn darraðardans og sóknarlot- urnar stóðu aðeins nokkrar sekúndur. Markaregn. Eftir heldur daufa leiki að und- anförnu náði Vatsliðið sér vel á strik — jafnt og gott. Jón Karls- son var markhæstur með 9 mörk, tvö .viti, Guðjón og Jón Pétur skoruðu 5 hvor, Stefán 4, Steindór Gunnarsson 3 og Jóhannes Stefánsson 2. Mörk Vikings skor- uðu Páll Björgvinsson 8 (5 viti), Viggó Sigurðsson 4, Stefán Halldórsson, Ólafur Jónsson og Skarphéðinn Óskarsson 2 hver. Hannes Sigurðsson og Karl Jóhannsson komust vel frá dóm- gæzlunni i auðdæmdum leik. hsim. Guðjón Magnússon —fyrrum Vikingur nú i Valsliðinu —jók markatölu sina um helming i gær. Skoraði fimm mörk — og á DB-myndinni að ofan skorar hann eitt án þess að horfa á markið. — Ljósmyndir Bjarn- leifur. Enn varð reynslu- leysi fall Þróttar FH-átti I mestu erfiðleikum með Þrótt i 1. deild tslands- mótsins i gærkvöld. Þrátt fyrir að Bjarni Jónsson þjálfari Þróttara hefði orðið að fara útaf strax i byrjun þegar var brotið illa á honum. Að visu reyndi Bjarni að koma inn á i vörnina en að missa Bjarna var mikið áfall fyrir hið unga lið Þróttar. FH-ingar voru afskaplega máttlausir i leik sinum — engin ógnun og hefði það ekki verið fyrir einstaklingsframtak Viðars Simonarsonar, þá hefði Þróttur sjálfsagt farið með sigur af hólmi. Jafnræði var með liðúnum i fyrri hálfleik — Þróttur var yfir- leitt markinu yfir. Ungur piltur i liði Þróttar — Konráð Jónsson — vakti þá athygli, skoraði á stuttum tima þrjú ágæt mörk. En reynsla FH varð þyngri á met- unum og i hálfleik leiddu þeir 11—10. Hafi FH-ingar haldið að Þrótt- arar gæfust upp, þá var það mikill misskilningur. Afram börðust Þróttarar og spiluðu oft á tiðum ágætlega — náðu forustu og þegar 12 minútur voru eftir höfðu Þróttarar tvö mörk yfir 18—16. Þeir höfðu þá spilað ágæt- lega og virkuðu mun sterkari. En eins og hefur komið fyrir áður — þá einfaldlega kunnu þeir ekki að vera yfir. Taugaveiklun gerði vart við sig og öll ógnun hvarf úr spili þeirra. Trausti lét reka sig út af fyrir kjánalegt brot og FH — seig fram úr — 19—18. Þá höfðu Þróttarar ekki skorað i 8 minútur. Að visu tókst Jóhanni að jafna fyrir Þrótt 19—19 en reynsla FH- inga ásamt reynsluleysi Þróttara varð þyngri á metunum. FH slapp með skrekkinn og til að kóróna vitleysuna skoraði Viðar siðasta mark leiksins frá miðju — 24—21 — tvö dýrmæt stig i stiga- safn Hafnarfjarðarliðsins. En ætli þeir sér að verða með i topp- baráttunni, þá verða þeirað leika betur en i gærkvöldi. Eins og áður sagði var Viðar langdrýgstur FH-inga — skoraði 11 mörk — 1 viti. Geir Hallsteins- son og Þórarinn skoruðu sin 5 mörkin hvor — Þórarinn 3 viti. Guðmundur Stefánsson, Sæmundur Stefánsson og Orn Sigurðsson skoruðu eitt mark hver. Af leikmönnum Þróttar var Friðrik Friðriksson drýgstur — skoraði 8 mörk — 2 viti. Konráð Jónsson skoraði 4 mörk, Jóhann Frimannsson og Halldór Braga- son skoruðu 3 mörk. Sveinlaugur Kristinsson 2 og Trausti Þorgrimsson 1 mark. Leikinn dæmdu Jón Friðsteinsson og Kristján Orn. Reknir út af — í 10 mínútur i dag hefst i Monaco keppni átta þjóða i unglingaflokki i knatt- spyrnu — keppt i tveimur riðlum. Með keppninni verður fylgzt af athygli, þvi sú nýjung verður reynd að reka leikmenn af velli i tiu minútur sýni þeir grófan leik. Farið þar inn á braut handknatt- leiksmanna. Formaður FIFA, dr. Joao Havelange, hefur i hyggju að bera fram tillögu að setja slika brottvikningu i knattspyrnulögin, cn hún reynist vel i Monaco. Löndin sem leika eru, A-riðill Frakkland, ttalia, sem sigraði á samskonar móti i fyrra, Rúmenia og Finnland, B-riðill Júgóslavia, Belgia, Spánn og Pólland. Vinir Polla biða órólegir á biðstofunni. Hann er ungur og sterkuú'^V Það er mikil spenna, er læknirinn birtist J OPERATING kOOM Valsmenn á toppnum Úrslit leikja i gærkvöld: Þróttur-FH 21-24 Vikingur-Valur 18-28 Staðan i 1. deild: Valur F'H lluukar Vikingur F'ram Grótta Ármann Þróttur 6 4 1 1 122-91 9 6402 124-113 8 5311 89- 78 7 6 3 0 3 124-123 6 Markhæstu menn eru nú: Páll Björgvinsson, Vik, 41/15 Hörður Sigmarsson, Haukum 34/11 Pálmi Pálmason, Fram 32/5 Viðar Simonarson, FH 29/7 F'riðrik F'riðriksson, Þrótti 27/5 Þórarinn Ragnarsson, F'H 27/13 Björn Pétursson, Gróttu 26/14 JónKarlsson, Val 26/4 Geir Hallsteinsson, F'H 25/3 Stefán llalldórsson, Vik., 23/3 Jón P. Jónsson, Val 22/5 N'iggó Sigurðsson, Vikingi 22/- Næstu leikir verða sunnudaginn 16. nóvcmber i iþróttahúsinu i llaf narfirði. Þá leika kl. 20.05 Grótta og Þróttur og siðan leika llaukar og Armann. Sovétríkin í úrslit Sovétrikin — Dinamo Kiev — sigruðu Sviss i 6. riðli Evrópu- keppni landsliða — 4—1. Mörk Sovétrikjanna skoruðu Konkov, Onishenko 2 og Veremeyev. F'yrir Sviss skoraði Risi. Sovétrikin eru nú komin áfram í 6. riðli. Sovétrikin írland Tyrkland Sviss Heimsmet þess sterka Sterkasti maður heims —sovézki lyftingagarpurinn Vasily Alexsev — setti i gær ný heimsmet i yfir- þu ngavigt i landskeppni Sovétrikj- anna og Austur-Þýzkalands I Arkangelsk. Samkvæmt frétt frá Tass jafn- hattaði Vasily 246 kg i keppninni — og lyfti samtals 430 kg. Hvort tveggja ný heimsmet, og sam- kvæmt þvihefur Vasily snarað 184 kR-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.