Dagblaðið - 15.11.1975, Side 2
Pagblaðið. Laugardagur 15. nóvember 1975.
Utvarp
Sjónvarp
Sjónvarp kl. 21,30 í kvöld:
Ástir og ósam-
komulag í kvik-
mynd kvöldsins
Kl. 21:30 er kvikmyndin
Sviptibylur (Wild is the wind) á
dagskrá sjónvarpsins. Er þetta
bandarisk kvikmynd frá árinu
1957 og með aðalhlutverk fara
Anthony Quinn, Anna Magnani
og Anthony Franciosa. Leik-
stjóri er George Chukor, þýð-
andi Stefán Jökulsson.
Myndin fjallar um bóndann
Gino sem býr i Nevada. begar
kona hans deyr fær hann systur
Sjónvarp í kvöld kl. 20,30:
Lœknarnir á
sínum stað í
dagskránni
Að vanda eru læknarnir á
dagskrá sjónvarpsins i kvöld kl.
20:30 og nefnist þátturinn ,,Vis-
indastörf”. Þýðandi er Stefán
Jökulsson.
Það stendur til að aðla
prófessor Loftus ef hann getur
komið upp góðri rannsóknar-
st. Hann hyggst fá Duncan til
aðst. við það verk, en Duncan
er grúttimbraöur eftir veizlu
heima hjá Loftusi. Paul og Dick
telja honum trú um að hann hafi
hagað sér mjög ósæmilega i
veizlunni. Hann trúir þeim þvi
hann man ekki sjálfur hvað
gerzt hafði. Og þegar Loftus
kallar á hann inn til sin heldur
hann að nú ætli karlinn að setja
ofan i við hann. Léttir honum
mjög þegar hann heyrir erindið
en likar miður að heyra að
Bingham eigi að aðstoða hann
við verkið.
1 rannsóknarstofunni kviknar
rautt ljós ef vart verður geisla-
virkni frá tækjum sem eru i her-
berginu fyrir neðan, en það er
leynisamkomustaður lækna og
hjúkrunarkvenna og einnig
bruggherbergi Pauls.
Loftus segir Bingham að
bandariskur prófessor eigi að
halda áfram starfi hans á rann-
sóknarstofunni, verður Bing-
ham þá sárreiður og stekkur á
barinn til að drekkja sorgum
sinum.
Þar er Dick staddur ásamt
blaðamanni sem hann er að
fræða um vandamál sjúkra-
hússins. Bingham blaðrar og
blaðamaðurinn verður spenntur
að fá æsifrétt og rýkur i rann-
sóknarstofuna til þess að taka
myndir.
Loftus kemur að honum og
verður mjög undrandi, — vill
fyrir alla muni komast hjá
hneyksli eins og á stendur...
Það er ekki vert að fara
lengra út i söguna, endalok
hennar verður að sjá i ,,varp-
inu”ikvöld. —A.Bj.
Anna Magnani og Anthony Quinn f hlutverkum sinum I kvikmynd-
inni I sjónvarpinu i kvöld.
hennar, sem var búsett á Italíu,
til þess að koma og taka við bú-
stjórn með sér. Hann reiknar
ekki með þvi að skjólstæðingur
hans verður ástfanginn af stúlk-
1 kvikmyndahandbók okkar
hefur þessi mynd fengið þrjár
stjörnur, sem þýðir að hún sé
góð. Sýningartimi myndarinnar
er 2 klst.og 10 minútur. A.Bj.
Góðum útvarpstíma
ekki nógu vel varið
Einhver allra bezti útvarps-
timinn finnst mér vera eftir há-
degið á laugardögum. Það er sá
timi sem ég hlusta einna helzt á
útvarpið og þá um leið og hús-
verkin eru gerð. Ég efast ekki
um að likt sé farið með margar
fleiri húsmæður sem stunda
vinnu utan heimilis alla vikuna.
1 sumar var einstaklega
skemmtileg dagskrá eftir há-
degið á laugardögum, sérstak-
lega minnist ég og þá með sökn-
uði þáttar Páls Heiðars, ,,Á
þriðja timanum”. Einu sinni
var framhaldsleikrit fyrir böm,
— það var einnig mjög
skemmtilegt. Svo minnist ég
einnig þáttarins hans Atla
Heimis. Með fullri virðingu
fyrir Atla og þvi efni, sem hann
flytur, þá finnst mér þetta ein-
um ,,of góður” timi fyrir þennan
þátt. Það væri nú kannski sök
sér ef hann væri annan eða
þriðja hvern laugardag, en að
hlusta á hann á hverjum einasta
laugardegi allan veturinn út i
gegn, finnst mér fullmikið af þvi
góða.
Iþróttaþáttur á fullan rétt á
sér að minum dómi, áheyrenda-
hópur iþróttaþáttanna er áreið-
anlega mjög stór.
bá finnst mér einnig að þáttur-
inn á bókamarkaðinum, sem nú
hefur hafið göngu sina, eigi
heldur heima eftir hádegið á
laugardögum en i kvölddag-
skránni. Sá þáttur er einkar vel
til þess fallinn að hlusta á um
leið og húsverkin eru gerð. Mér
finnst ég blátt áfram komast i
jólaundirbúningsskap við að
hlusta á bókaþáttinn.
Sama er að segja um is-
lenzkuþátt þeirra orðabóka-
manna, sem hefur nú verið á
dagskrá útvarpsins i 20 ár.
Slikum þætti verður maður
aldrei leiður á og verður margs
visari um islenzkt mál.
A.Bj.
^Sjónvarp
Laugardagur
15. nóvember
17.00 iþróttir. Umsjónarmaö-
ur Bjarni Felixson.
18.30 Dóminik. Breskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga, sem gerist
snemma á öldinni sem leið.
Faðir Dóminiks, Bullman
skipstjóri, verður skipreika
fyrir ströndum Norður-Af-
riku og er ekki vitað um af-
drif hans. 1. þáttur. Talinn
af. Þýðandi Ellert Sigur-
björnsson.
19.00 Enska knattspyrnan
lllé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Læknir I vanda. Breskur
gamanmyndaflokkur. vis-
indastörf. býðandi Stefán
Jökulsson.
20.55 D ixiela ndh I jóms vei t
Arna isleifssonar i sjón-
varpssal. Arni Isleifsson,
Bragi Einarsson, Guð-
mundur Steingrimsson,
Gunnar Ormslev, Kristján
Jónsson, Njáll Sigurjónsson
og Þórarinn Oskarsson
leika. Söngkona Linda
Walker. Stjórn upptöku
Tage Ammendrup.
21.15 Mvndir af H.C. Ander-
sen.H.C. Andersen hafði af
þvi mikið yndi að fara til
ijósmyndara. 1 þættinum
eru sýndar allmargar ljós-
myndir af skáldinu. Ander-
sen skrifaði i dagbækur sin-
ar um þessar myndir, og
texti þáttarins er tekinn upp
úr þeim. Þýöandi og þulur
Jón O. Edwald.
21.30 Sviptibylur.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
23.20 Dagskrárlok.
Sunnudagur
16. nóvember
18.00 Stundin okkar. Fyrst er
mynd um Misha og siðan
teiknimynd um Jakob og
fólkið, sem býr i sömu blokk
og hann. Mússa og Hrossi fá
kött i heimsókn, krakkar,
sem heita Hinrik og Marta,
leika minnisleik og loks
verður sýndur leikþáttur,
byggður á sögum um
Sæmund fróða. Umsjón
Hermann Ragnar Stefáns-
son og Sigrlöur Margrét
Guðmundsdóttir. Stjórn
upptöku Kristin Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Maöur er nefndur Jón
Norðmann Jónasson. Jón
býr einn á Selnesi á Skaga
og er margfróður. Magnús
Gislason á Frostastöðum
ræðir við hann. Kvikmynd
Sigurliöi Guömundsson.
Stjórn upptöku Rúnar
Gunnarsson.
21.30 Samleikur á tvö píanó.
Gfsli Magnússon og Halldór
Haraldsson leika verk eftir
Georges Bizet og Witold
Lutoslawski. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.50 Valtir veldisstólar.
Breskur leikritaflokkur. 2.
þáttur. Enska prinsessan.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son.
22.40 Brosandi land.Mynd um
Thailand. Þýðandi og þulur
Ingi Karl Jóhannesson.
23.05 Að kvöldi dags. Páll
Gislason læknir flytur hug-
leiöingu.
23.15 Dagskrárlok.
| Útvarp
Laugardagur
15. nóvember
7.00 Morgunútvarp Veður
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10'
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guörún Guðlaugsdótt-
ir les „Eyjuna hans Múmln-
pabba” eftir Tove 'Jansson
i þýðingu Steinunnar Briem
(15). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög á milli atriða. óska
lög sjúklinga kl. 10.25:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 tþróttir Umsjón: Bjarni
Felixson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan Bjöm
Baldursson kynnir dagskrá
útvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir
16.15 Veöurfregnir. tslenzkt
málDr. Jakob Benediktsson
flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi
17.30 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 A minni bylgjulend Jök-
ull Jakobsson við hljóðnem-
ann I 25 minútur.
20.00 Hljómplötusafnið Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 Á bókamarkaðinum
Andres Björnsson útvarps-
stjóri sér um þáttinn. Dóra
Ingvadóttir kynnir. Létt
tónlist frá hollenzka útvarp-,
inu.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sunnudagur
16. nóvember
8.00 Morgunandakt Herra
Sigurbjörn Einarsson
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar.
11.00 Messa i Langholtskirkju
Prestur: Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson. Organ-
leikari: Jón Stefánsson.
12.15 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Islenzku selastofnar.nir
Sólmundur Einarsson fiski-
fræðingur flytur hádegiser-
indi.
14. Staldrað við i Þistilfirði —
annar þáttur Jónas Jónas-
son litastum og spjallar við
fólk.
15.00 Miðdegistónleikar:
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaidsleikritið: