Dagblaðið - 15.11.1975, Qupperneq 5
5
\
Dagblaöið. Laugardagur 15. nóvember 1975.
■
■■■'■ ■'■■■ :: -V
N ' -■ ■
:
.
i - ■■■■'-'-■ ■
l
■
iilil
HCS
SííS
ISi
■ ■■
■ v. '■'
1 ..
Tann-
viðgerðir
skólabarna
og annarra
hópa nú
greiddar af
almannafé
Það eru ekki litil hlunnindi að sjiíkrasamlagið greiöi annaðhvort allan reikninginn eða hluta hans.
Þrjú sjúkrasamlög hafa
greitt rúmlega 71 millj.
kr. í ór
Fjölmennasti hópurinn á
aldrinum 6-15 ára.
Ljósm. Bjarnleifur
1 september 1974 voru sett lög
á alþingi um þátttöku almanna-
trygginga i greiðslum vegna
tannlækninga ákveðinna hópa i
þjóðfélaginu.
í fyrsta lagi er þarna um að
ræða skólabörn á aldrinum 6-15
ára, en fyrir þau eru tannlækn-
ingar greiddar að fullu hafi við-
gerð farið fram eftir 1. septem-
ber 1974.
Fyrir börn á aldrinum 3-5 ára
og 16 ára unglinga, ellilifeyris-
þega, örorkulifeyrisþega og
.vanfærar konur eru tannlækna-
reiknir.gar greiddir að hálfu,
hafi viðgerð farið fram eftir 1.
janúar 1975.
Þó er ekki greiddur kostnaður
við gullfyllingar, krónu- eða
brúargerðir.
t bæklingi sem Trygginga-
stofnunin hefur gefið út er það
tekið fram að reikningar séu
einungis greiddir frá tannlækn-
um sem hafa samið við Trygg-
ingastofnun rikisins en ekki frá
öðrum. Langflestir tannlæknar
hafa þó samið, en ganga ber úr
skugga um það áður en viðgerð
hefst.
Þá hafa sérfræöingar i tann-
réttingum og tannlæknar, sem
hjá þeim vinna, ekki gerzt aðil-
ar að samningnum og eru að-
gerðir þeirra ekki greiddar.
Tannréttingar sem samlags-
tannlæknar vinna greiðast eftir
sömu reglum og aðrar aðgerðir.
Einnig er rétt að taka fram að
gervitennur eru greiddar að
hálfu, þó ekki oftar en á þriggja
ára fresti, nema sérstaklega
standi á.
Vegna þeirra sem dveljast
langdvölum á sjúkrastofnunum
og eiga e.t.v. ekki gilt örorku-
mat er rétt að taka eftirfarandi
fram:
Þurfi langlegusjúklingur á
tannlæknisþjónustu að halda
verður að útvega honum ör-
orkuskirteini sem fæst i lifeyr-
isdeild Tryggingastofnunarinn-
ar eða umboðum hennar. Þegar
tannlæknishjálp er þáttur i
lækningu annars sjúkdóms mun
sjúkrastofnunin bera kostnað af
henni.
Þetta eru ekki svo litil hlunn-
indi þvi eins og allir vita eru
tannlækningar stór liður i út-
gjöldum t.d. barnmargra heim-
ila og fróðlegt að kynna sér hvað
þetta kostar riki og bæjarfélög.
Við höfum samband viö
sjúkrasamlögin i Reykjavik,
Kópavogi og Hafnarfirði og
fengum athyglisverðar upplýs-
ingar.
Höfðu þessi þrjú sjúkra-
samlög greitt fyrir tannviðgerð-
ir til októberloka samtals rúm-
lega 71 milljón kr. Gunnar Möll-
er, framkvæmdastjóri Sjúkra-
samlags Reykjavikur, sagði
okkur að greiðsla fyrir skóla-
börn á aldrinum 6-15 ára næmi
til októberloka 23,7 millj. kr.
Fyrir alla hina hópana er upp-
hæðin 16.976 millj. kr. Gunnar
tók fram að sjúkrasamlagið ætti
endurgreiðslukröfu á hendur
borgarsjóði fyrir helming þess
sem greitt hefur verið fyrir
skólabörnin, en aftur á móti hef-
ur borgarsjóður reikning á
hendur samlaginu fyrir þess
þátt i greiðslu viðgerða sem
farið hafa fram i skólum borg-
arinnar.
Hjá Sjúkrasamlagi Kópavogs
fengum við þær upplýsingar að
fyrir skólabörn á aldrinum 6-15
ára hefði verið greitt kr.
17.666.215, þar af á bærinn eftir
að greiða sinn helming til sam-
lagsins, og fyrir hinn flokkinn
væri búið að greiða 1.916.453.
Sjúkrasamlag Hafnarfjaröar
hafði i októberlok greitt fyrir
skólabörn frá 6-15 ára kr.
Gullfyllingar, krónu- og brúar-
geröir fást ekki greiddar af
sjúkrasamlögum.
8.757,816, fyrir börn 3-5 ára kr.
733.659, fyrir 16 ára skólabörn
kr. 434.447, fyrir örorkulifeyris-
jiega kr. 181.025, fyrir ellilifeyr-
isþega kr. 337.865 og fyrir van-
færar konur kr. 397.084. — End-
anlegur kostnaður allra þessara
sjúkrasamlaga vegna tann-
lækniskostnaðar liggur ekki fyr-
ir fyrr en á næsta ári og verður
fróðlegt að fylgjast með þvi
hver útkoman verður.
A.Bj.