Dagblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 11
10
Dagbla&ið. Laugardagur 15. nóvember 1975.
Pagblaðið. Laugardagur 15. nóvember 1975.
11
<
ÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN
Það væri synd að segja að þessi unga dama hafi
mikið álit á sjálfri sér en hún virðist hafa gert var-
úðarráðstafanir á meðan hún æfir sig á rúllu-
skautunum. En æfingin skapar meistarann og
væntanlega sleppir hún púðanum með tið og tima.
HÁ IÐGJÖLD AUKA LÆKNISKOSTNAÐ ALMENNINGS í BANDARÍKJUNUM
LÆKNAMYNDIR í SJÓNVARPI
ORSÖK MARGRA MÁLAFERLA
Eins og alkunna er rikir hiö
mesta ófremdarástand varð-
andi samband sjúklinga og
lækna i Bandarikjunum. Sjúkl-
ingar, sem verða fyrir hinum
minnstu vonbrigðum með ár-
angur af læknismeðferð sinni,
eru ekki seinir á sér að fara i
mál við læknana.
Tryggingafélögin álita á-
hættusamara að vátryggja
lækna en fjöllistamenn sem
leika hættulegar listir.
Staðreynd er, að þetta skaðar
læknana meira en orð fá lýst og
um leið skaðar það allan al-
menning.
Á sl. sumri þurfti fólk að fara
á slysavarðstofur til þess að ná
sambandi við lækna i New York,
Californiu og Texas. Hundruð
lækna drógu saman seglin I
mótmælaskyni við hækkun
tryggingafélaganna á iðgjöld-
um þeirra.
Sums staðar fóru trygginga-
félögin fram á að læknar
greiddu allt að fjórðungi launa
sinna i iðgjöld.
Sú tegund sérfræðinga sem
verður einna mest fyrir barðinu
á tryggingafélögunum eru
beinasérfræðingar og tauga-
skurðlæknar. Þeirra verk er að
skeyta saman brotna limi og
gera vandasamar aðgerðir, sem
i sumum tilfellum geta ekki
annáð en mistekizt, burtséð frá
hæfni læknisins.
Þessum sérfræðingum var á
sl. ári gert að greiða frá tæpum
780 þús. upp i tæpa millj. kr. i ið-
gjöld. I desember sl. var öllum
læknum i New York tilkynnt að
iðgjöld ársins 1975 yrðu þreföld
upphæð ársins 1974. Þetta þýddi
6—7 millj. kr. iðgjaldagreiðslur
fyrir beinasérfræðinga og
taugaskurðlækna. Næstirá eftir
þeim eru taldir brjóstholsskurð-
læknar, kvensjúkdómalæknar,
svæfingalæknar, plastik-skurð-
læknar og venjulegir skurð-
læknar.
Jafnvel barnalæknum og
venjulegum heimilislæknum,
sem sárasjaldan er stefnt, var
gertað greiða alltað 500% hærri
iðgjöld en fyrir tveimur árum.
Það er ekki erfitt að imynda
sér hvers vegna þessir læknar
og aðrir sögðu tryggingafélög-
unum að fara til fjandans og
kröfðust þess að opinberir aðil-
ar gerðu eitthvað raunhæft til
þess að leysa þennan vanda.
Margir læknar muna þá daga,
fyrir aðeins 15 árum, þegar ið-
gjöld þeirra voru ekki nema
rúmlega 30 þúsund kr., álika
háa upphæð og þeir þurftu að
greiða i bifreiðatryggingu. Þá
áttu sárafáir læknar i málaferl-
um við sjúklinga sina.
Sjúklingarnir báru ótta-
blancjna virðingu fyrir læknun-
um. Þetta var fyrir þann tima
sem bæði sjónvarp og kvik
myndaframleiðendur voru
farnir að framleiða hinar svo-
kölluðu læknamyndir og al-
menningur þekkti hvorki haus
né sporð á algengustu læknis-
tækjum.
Þá sjaldan læknar þurftu að
svara til saka i réttarsalnum
unnu þeir 8 mál af hverjum 10.
Kviðdómurinn dró frekar taum
læknisins, jafnvel þótt málaferl-
in ættu fullan rétt á sér og sjúkl-
ingarnir hefðu á réttu að standa.
A siðari árum hefur þetta
breytzt. Almenningur veit
miklu meira um almenn lækna-
visindi og margir sinnulausir og
of störfum hlaðnir sérfræðingar
hafa komið þvi til leiðar að
gamla máltækið: Læknirinn
veit bezt, er orðið úrelt.
Læknafélagið i Bandarikjun-
um, The American Medical As-
sociation, álitur að almenningur
hafi séð of margar ævintýraleg-
ar og óraunverulegar lækna-
myndir i sjónvarpinu. Fólk sé
farið að búast við miklu meiru
af læknum en er i þeirra valdi
að framkvæma. Þannig verður
fjöldi fólks fyrir vonbrigðum
þegar það fær ekki ævintýraleg-
an bata, rétt eins og i sjónvarps-
myndunum, og er staðráðið i að
láta einhvern greiða sér skaða-
bætur.
Einn af hverjum tiu læknum
stendur nú i málaferlum og 40%
þeirra munu tapa málinu að
sögn talsm. tryggingafél. þess
sem um það bil fimmtungur
allra bandariskra lækna er
tryggður h já. F jórði hver læknir
getur átt von á a.m.k. einni
málssókn á ferli sinum, segir
tryggingafélagið, og hjartahlýir
kviðdómendur hallast æ meir á
sveif með siúklingunum. Fyrir
bragðið héiur iðgjaidahækkunin
orðið gifurleg.
Þetta er einna erfiðast fyrir
ungu læknana, sem nýlokið hafa
námi, margir hverjir með
skuldabagga á bakinu. Margir
hætta við að hefja læknisstörf
meðal almennings og kjósa
heldur að fara i herþjónustu til
þess að vinna fyrir námsskuld-
um.
1 herþjónustu eiga þeir ekki
málssókn yfir höfði sér þvi her-
menn geta ekki farið i mál við
herlækna. Aðrir taka það ráð að
setjast að i rikjum eins og Ala-
bama og Georgia, þar sem ein-
hverra hluta vegna eru færri
málaferli og þar af leiðandi
lægri iðgjöld.
Þessi háu iðgjöld hafa haft i
för með sér að læknar hafa
neyðzt til að hækka þóknun sina
til þess að geta staðið i skilum
með iðgjöldin. Lækniskostnaður
fyrir allan almenning hefur
einnig hækkað að öðru leyti
vegna þessa. Læknar eru nú
mjög varkárir og senda sjúkl-
inga sina i rándýrar röntgen-
myndatökur og alls kyns kostn-
aðarsamar rannsóknir til þess
að þurfa ekki sjálfir að bera
ábyrgðina. Einnig leggja þeir
mun fleiri sjúklinga inn á
sjúkrahús til þess ef til mála-
ferla kemur, að þeir hafi sann-
anlega sýnt fyllstu varkárni.
GAMLIR EN SAMT
í GÓÐU FORMI
Þessar gömlu kempur hafa
leitt saman hesta sina á ný, er
þeir sungu saman inn á
hljómplötu i London fyrir
skömmu.
Bing Crosby og Fred Astaire
hafa ekki sungið saman i næst-
um 30 ár, siðast sungu þeir
,,Blue Skies” árið 1946.
Bing, sem orðinn er 71 árs
hefur verið i skemmtanaiðnað-
inum i 50 ár en Fred sem er 74
ára hefur skemmt fólki i 70 ár
Geri aðrir hetur
AAætti ég fá að sjá
Veskú
verðlistann þinn?
Þú ættir að lagfæra
verðskrána, svo að
þú missir ekki
lækningaleyf ið
Eftirlitsmaðurinn.
Ég verð að hækka
taxtann.
Hver var
Verðin þín eru til hreinnar
skammar.
Finnið fimm villur
— lausnin er á
bls. 14
þeim, scm stillt hefur heilann, heldur aö 6 sinn-
utn 7 séu 54!
Aðeins til að gefa Erni færi á sér til að skjóta!
\j Hvað,
s hefði get
* að svarið I
í þetta var1
?(í konuhróp
Næsta vika: Englar dauðans.
i