Dagblaðið - 15.11.1975, Síða 14
14
Pagblaðið. Laugardagur 15; nóvember 1975.
Hvað segja stjörnurnar?
Spáin gildir fyrir sunnudaginn 16. nóvem-
ber.
Vatnsberinn (21. jan.—19. feb.): Einhver
nákominn þérreynist uppspretta styrks á
stund neyðarinnar og muntu læra mikið
þar af. Reyndu að slaka á i kvöld þvi taug-
arnar virðast nokkuð spenntar.
Fiskarnir (20. feb.—20. marz): Mikilvægt
reynist að ekki verði gert of mikið úr at-
burði innan fjölskyldunnar. Ef þú færð ó-
vænt heimboð ættirðu að nota tækifærið
og fara i ferðalag.
Hrúturinn (21. marz—20. april): Vinur
þinn kynni að sækja ráð til þin i ástamál-
um. Vandaðu val orða þinna. Félagslifið
virðist ósköp rólegt og ættirðu að nota
tækifærið og hvila þig vel.
Nautið (21. april—21. mai): Vertu ekki að
hamast svona mikið heima fyrir. Fáðu
aðra til að hjálpa. Mót þitt við einhverja
manneskju virðist e.t.v. ekki svo merki-
legt i fyrstu en gæti reynzt mikilvægt eftir
á.
Tviburarnir (22. mai—21. júni): Ræddu
málin við félaga þinn eða kunningja áður
en þú aðhefst eitthvað, sem snertir ykkur
báða. Stattu fastur fyrir hvað viðkemur
eigingjörnum kröfum ættingja þins, þvi
hætt er við að þær eigi eftir að aukast.
Krabbinn (22. júni—23. júli): í dag er
mælt með að þú fáir útrás fyrir likamlega
orku þina i viðeigandi iþróttum. Hvað við-
kemur skipulagðri skemmtan er liklegt
að eitthvað fari úrskeiðis á siðustu
stundu.
I.jónið (24. júli—23. ágúst): I sambandi
við fjölskyldulifið er liklegt að þetta verði
ánægjulegasti dagur mánaðarins. Nú er
rétti timinn til að bæta nýju fólki inn i
vinahópinn.
Meyjan (24. ágúst—23. sept.): Smávægi-
legar skærur gætu komið upp innan fjöl-
skyldunnar. Skaltu ekki eyða fleiri hugs-
unum i þær en vert er. Spennan mun
minnka er á daginn liður og ættirðu að
enda hann i skemmtilegra skapi en hann
hófst.
Vogin (24. sept,—23. okt.):Settu upp silki-
hanzka ef þú þarft að fást við tilfinningar
vinar þins, eðlislæg kimnigáfa þin getur
stundum tekið gönguhlaup. Forðastu öll
óvænt uppátæki i kvöld — stjörnurnar
segja að þú eigir að halda þig á venjuleg-
um leiðum.
Sporðdrekinn (24. okt.—22. nóv.): Leggðu
áherzlu á að gæta heilsunnar núna. Ef þú
finnur til streitu er þér ráðlegt að taka lif-
inu með ró og hvildum. Þú hefur tilhneig-
ingu til að slita þér út núna, bæði andlega
og likamlega.
Bogmaðurinn (23. nóv.—20. des.): Þú
kannt að þurfa að draga úr áherzlunni á
persónuleg áhugamál þin vegna fjöl-
skylduaðstæðna. Færðu þessa fórn á sjalf
sagðan og virðulegan máta og munt þú
hljóta aðdáun allra viðkomandi fyrir.
Steingeitin (21. des.—20. jan.): Gestur
kynni að færa þér góðar fréttir af ungum
ættingja þinum. Þú munt uppgötva að á
þig leggjast auknar félagslegar skyldur,
en taktu þvi bara vel þvi þér mun verða
vel launað.
Afmælisbarn dagsins: Bjart er yfir þessu
viðburðarika ári og virðist vera mikið um
að vera i félagslifinu. Nýr vinur leikur
stórt hlutverk i áætlunum þinum. Spáð er
einu frekar stormasömu ástarsambandi
undir lok ársins. Miðmánuðirnir eru
heppilegastir til sumarleyfa og ferðalaga.
Guðsþjónusta i Kópavogskirkju
kl. 11. Bindindisdagurinn. Séra
Helgi Tryggvason predikar. Séra
Þorbergur Kristjánsson.
Langholtsprestakall: Barna-
samkoma kl. 10. Séra Arelius
Nielsson. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðuefni: Með klærnar i eigin
brjósti (ath. breyttan messu-
tima). Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson. Óskastundin kl. 4.
Séra Sig. H.
Ytri-Njarðvikursókn: Sunnu-
dagaskóli i Stapa kl. 11 árdegis.
Keflavikurkirkja: Guðsþjónusta
kl. 2 siðdegis.
Innri-Njarðvikurkirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 5
siðdegis (sunnudagspósturinn).
Séra ólafur Oddur Jónsson.
Fella- og Hólasókn: Barna-
samkoma og messa falla niður
vegna leiksýninga i Fellaskóla.
Séra Hreinn Hjartarson.
Kirkja Óháða safnaðarins: Messa
klukkan 2. Séra Emil Björnsson.
Filadelfia: Safnaðarguðs-
þjónusta kl. 14. Minnzt Verður
Ásmundar Eirikssonar. Almenn
guðsþjónusta kl. 20. Ræðumenn
Gunnar Bjarnason ráðunautur og
Einar Gislason. Einsöngvari
Svavar Guðmundsson.
Háteigskirkja : Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Séra Jón
Þorvarðsson. Messa klukkan 2.
Séra Arngrimur Jónsson.
Kársnesprestakall:
Barnaguðsþjónusta I Kársnes-
skólakl. llárdegis. Guðsþjónusta
I Kópavogskirkju kl. 2. Séra Arni
Pálsson.
Hjálpræðisherinn: Laugardaga-
skólinn i Hólabrekkuskóla kl. 14.
Allir velkomnir.
Sunnudagur: Æskulýðsvikan
hefstsunnud. 16. nóvember. Kl. 11
helgunarsamkoma. "Kl. 14 sunnu-
dagaskóli. Kl. 20.30 hjálpræðis-
samkoma. Séra Jónas Gislason
lektor talar. Mikill söngur og
hljóðfærasláttur.
Verið velkomin
Laugarneskirkja: Messa kl. 2.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. Séra
Garðar Svavarsson.
Neskirkja: Barnasamkoma kl.
10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra
Frank M. Halldórsson.
Digranesprestakall: Barnasam-
koma I Vighólaskóla kl. 11.
Þórscafé: Gömlu dansarnir.
Tónabær: Dögg. Opið frá 9-1.
Sesar: Ðiskótek. Opið frá 8-2
Klúbburinn: Kaktus og
Experiment.
Hótel Saga: Hljómsv. Ragnars
Bjarnasonar.
Sigtún: Pónik og Einar.
Glæsibær: Ásar.
Skiphóll: Hljómsv. Birgis
Gunnlaugssonar.
Hótel Borg: Kvartett Arna
Isleifs.
óðal: Diskótek.
Leikhúskjallarinn: Skuggar.
Festi: Paradis
Hlégarður: Haukar og Cabaret.
Borgarnesbió: Mexikó.
Barðstrendingafélagið
i Reykjavik
Sveitakeppni Barðstrendinga-
félagsins i bridge hefst mánu-
daginn 17. nóvember. Þátttak-
endur eru beðnir að mæta tiu
minútum fyrir klukkan átta.
Barðstrendingar, eflið bridge-
deildina og mætið stundvislega.
Spilað er i Domus Medica.
Kvenfélagið Seltjörn.
Basarinn verður i Félags-
heimilinu á morgun, sunnudaginn
16. nóvember, klukkan 2 e.h.
Mæðraféla gskonur
Fundur verður haldinn þriðju-
daginn 18. nóvember kl. 8 að
Hverfisgötu 21. Spiluð verður
félagsvist. Félagskonur, mætið
vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin
Basar
Hinn árlegi basar Kvenfélagsins
Fjólu á Vatnsleysuströnd verður
haldinn sunnudaginn 23. nóvem-
ber kl. 3 sd. Stjórnin.
Basar.
Basar Húsmæðrafélags
Reykjavikur verður haldinn
sunnudaginn 16. nóvember kl. 2
að Hallveigarstöðum.
Kvenfélag Langholtssóknar
heldur basar i Safnaðarheimilinu
laugardaginn 15. nóvemberkl. 14.
Skrifstofa félags
einstæðra foreldra
Traðarkotssundi 6, er opin mánu-
daga og fimmtudaga kl. 3—7 e.h.,
þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1—5. Simi 11822. Á
fimmtudögum kl. 3—5 er lögfræð-
ingur FEF til viðtals á skrifstof-
unni fyrir félagsmenn.
EIGNAÞJÓNUSTAN
FASTEIGNA- OG SKIPASALA
NJÁLSGÖTU 23
SfMI: 2 66 50
Til sölu m.a.:
í Heimahverfi
Góð 4ra herb. ibúð á 1. hæð.
Þvottaherbergi á hæðinni.
Laus strax. Skipti á 2ja herb.
ibúð koma til greina.
i Breiðholti
Stór og góð 6 herb. ibúð
ásamt bilskúr við Æsufell.
Vönduð 2ja herb. ibúð við
Blikahóla.
Mjög stór 4ra herb. ibúð með
sér þvottaherbergi við tra-
bakka. Skipti á minni koma
til greina.
Við Bergþórugötu
Nýstandsett 3ja herb. ibúð á
2. hæð. Laus strax.
Opið í dag, laugardag,
til kl. 16.
Laugard. 15/11 kl. Í3
Inn með sundum. Fararstj.
Friðrik Danielsson. Verð 500 kr.
Sunnud. 16/11. kl. 13
Utan Straumsvlkur. Fararstj.
Gisli Sigurðsson. Verð 500 kr.
Fritt fyrir börn i fylgd með full-
orðnum. Brottfararstaður B.S.t.
(vestanverðu).
Otivist.
Sunnudagur 16.
nóvember, kl. 13.00.
Gönguferð um Alfsnes og ná-
grenni. Fararstjóri: Sigurður B.
Jóhannesson. Verð kr. 500,-
Farmiðar við bilinn. Brottfarar-
staður Umferðarmiöstöðin (að
austanverðu.)
Feröafélag tslands.
Kammermúsikklúbburinn.
Kammermúsikklúbburinn er
nú að hefja tónleikahald sitt á
nýju starfsári. Fyrstu tónleikarn-
ir verða haldnir 16. nóvember nk.
Þá verða fluttar tvær af flautu-
sónötum J.S. Bachs og auk þess
partita fyrir einleiksflautu. Flytj-
endur verða Manuela Wiesler
(flauta), Helga Ingólfsdóttir
(sembal) og Pétur Þorvaldsson
(selló).
A timum Bachs tiðkaðist mjög
að semja tónverk fyrir flautuleik.
Nokkur óvissa rikir um það hve
margar flautusónötur Bach
samdi. Þær hafa oft verið taldar
sex. Af einni eru reyndar aðeins
til tveir kaflar. í þrem af sónötun-
um er leikið á sembal með flaut-
unni, en i hinum þrem er gert ráð
fyrir ,,basso continuo” með flaut-
unni. Til þess voru áður notuð
sembal og eitthvert bassahljóð-
færi, t.d. fagott eða „viola da
gamba”, strengjahljóðfæri svip-
að litlu sellói en með fleiri
strengjum. Viola da gamba er fá-
gætt hljóðfæri nú og er oftast leik-
ið á selló i staðinn.
Flautusónötur Bachs eru taldar
meðal merkustu tónverka sem
samin hafa verið fyrir flautu.
Kammermúsikklúbburinn beitir
sér nú fyrir þvi að þær verði allar
fluttar hér, likt og hann hefur gert
um Brandenborgar-konserta og
sellósvitur Bachs. Er ráðgert að
þær fjórar flautusónötur, sem eft-
ir eru, verði fluttar siðar á vetrin-
um.
Eftir nýár er ennfremur gert
ráð fyrir tónleikum sem helgaðir
verða kammertónlist eftir
Brahms.
t stjórn Kammermúsikklúbbs-
ins eru Guðmundur Vilhjálmsson
lögfræðingur, formaður, Einar B.
Pálsson verkfræðingur, dr. Jakob
Benediktsson og Þórarinn Guðna-
son læknir.
Bindindisdagurinn —
Hafnarfjörður
I tilefni bindindisdagsins 16. þ.m.
verður sérstök guðsþjónusta i
Hafnarfjarðarkirkju. Sr. Bragi
Friðriksson þjónar fyrir altari en
sr. Helgi Tryggvason predikar.
Inga Maria Eyjólfsdóttir syngur
einsöng. Um kvöldið sér ung-
templarafélagið Depill um sam-
komu i Góptemplarahúsinu.
HVAÐ ER AÐ?
„finnið fimm villur"
— lausn á
bls. 10.
Sjómannablaðið Vikingur. 9. tbl.
37. árg. er komið út. Meðal efnis I
blaðinu er grein um nýju Vest-
mannaeyjaferjuna, rætt er við
Gisla Konráðsson um Ctgerðar-
félag Akureyrar, sagt er frá skip-
inu „Mayflower”, Hjálmar Bárð-
arson ritar greinina Samstarf um
björgunarmál og Guðfinnur Þor-
björnsson ritar minningargrein
um Erling Þorkelsson, sem lézt
15. júli siðastliðinn. Margt fleira
efni er i blaðinu, sem er 80 siður
að stærð.
Ritstjórar Vikings eru Guð-
mundur Jensson og Jónas Guð-
mundsson.
Æskan 10. tölublað 76. árgangs
er komið út. Meðal efnis má nefna
greinum enska sæfarann Francis
Drake. Sagt er frá nokkrum
fáránlegum veðmálum, og einnig
er grein um sovézka geimfarann
Juri Gagarin. Fjöldamargt annað
efni er i blaðinu. Æskan er 64
siöur að stærð. Ritstjóri er
Grimur Engilberts. Blaðið er nú
selt I um 18.000 eintökum og er
langstærsta barna- og unglinga-
blaðið á landinu.
Starfsfólk Kópavogs-
hælis safnar fé fyrir
sundlaug.
Starfsfólk á Kópavogshæli,
rúmlega 100 manns, tók sig til
fyrir 4 árum og stofnaði sjóö sem
nefnist Leiktækja-og ferðasjóður
Kópavogshælis. Sjóðurinn hefur
farið með vistmenn hælisins I
ferðalög á sumri hverju, sl.
sumar var farið austur að Úlf-
ljótsvatni þar sem fenginn var að
láni skátaskáli. — Einnig hefur
sjóðurinn keypt nokkuð af leik-
tækjum fyrir hælið.
Nú er sjóðurinn að safna fé til
þess að leggja i sundlaug, en
fyrirhugað er að framkvæmdir
hefjistnæsta vor. Sjóðurinn hefur
boðið fram 500 þús. kr. framlag
sitt til laugarinnar.
Næstkomandi sunnudag heldur
sjóðurinn kökubasar og böggla-
sölu I Félagsheimili Kópavogs kl.
2 e.h.
Vistmenn á Kópavogshæli eru
nú um 200 á aldrinum frá 3 til 4
ára og upp undir sextugt.
ABj.
Peningalán — Laxveiði
Sá sem getur lánað 1 milljón til 12 hundruð
þúsund krónur i nokkra mánuði getur
fengið privat laxveiði á sumri komanda i
góðri á, ásamt veiðihúsi með öllum þæg-
indum. Fritt i 10 til 12 daga, 3 stangir.
Vinsamlega sendið tilboð til blaðsins
merkt„Trúnaðarmár’ fyrir nk. þriðjudag
18. nóvember.