Dagblaðið - 05.12.1975, Blaðsíða 1
. '
fgs
t#A’
á
f
já
P
f
A
p
#
t
í
i
i
i
i
;i
1. árg.—Föstudagur 5. desember 1975 —74. tbl. Ritstjórn Síðumúla 12, simi 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022
EWW KUPPT ÞRATT
FYRIR HERSKIPIW
Loftskeyta-
Landhelgis-
gœzlunnar
bilaði
Varðskipin halda áfram að
klippa þrátt fyrir herskipa-
verndina fyrir austan. Klukkan
fjögur i nótt var klippt á að
minnsta kosti annan togvir
Grimsby togarans Ross
Ramilles, 45 sjómilur út frá
Glettingi.
Loftskeytastöð Landhelgis-
gæzlunnar var i ólagi frá þvi i
gærkvöldi og fram undir hádégi
i dag. „Það er vonandi, að þetta
komi ekki fyrir aftur, meðan
þorskastriðið stendur,” sagði
Jón Magnússon, talsmaður
gæzlunnar, i morgun. Hann
sagði, að þó hefði verið unnt að
hafa samband við vaktmann, ef
i nauðir hefði rekið. Orsök sam-
bandsleysisins voru athafnir
starfsmanna bæjarsimans, sem
voru við vinnu i húsi Land-
helgisgæzlunnarog tókst svo illa
til að sambandslaust varð.
Það var brezki fréttamaður-
inn Archie McPhee, sem hafði
verið hér i leyfisleysi en er nú
um borð i dráttarbátnum
Loydsman, sem „skúbbaði”
með fréttinni um klippinguna i
nótt. Hún kom i brezka rikisút-
varpinu BBC um sjöleytið i
morgun, og islenzka útvarpið
fékk hana þaðan. Það hefur
gerzt áður, að fréttir um
klippingar hafa borizt islenzk-
um fjölmiðlum frá BBC nokkuð
löngu áður en Landhelgisgæzlan
hefur getað sagt frá þeim.
— HH.
Ólofi H.
kastað ó
markstöngina
— hlaut
skurð
— sjó íþróttir í opnu
lónleikum iiennhr i Háskóla-
biói. Fyrr.um daginn fór Iram*
æfing. og þá var þessi mynd 4
tekiú af stjórnandanum með?
sina stóru sveiflu (DB-mvnd*
Jón Kristinn Cortes). — Bjá |,
nánar um tonleikana, sem eru %
á dagskrá útvarpsins i kvöld.
á bls. 23.
Stólu benzíni
ó benzínstöð
15—16 karton af sigarett-
um og nokkur þúsund krónur
i skiptimynt hurfu við inn-
brot i bensinsöluna Lyngholt
i Garðahreppi i nótt.
Höfðu þjófarnir stungið
stykki úr dyrakarmi og
spennt upp hurð, en ekki
unnið aðrar skemmdir á
húsakynnum.
Þá tóku þeir með sér bens-
in af vörubifreið, sem stóð á
stæði við stöðina.
HP.
Hér slösuðust
fjórir
Tvær fólksbifreiðar skullu
harkalega saman á gatnamót-
um Höfðatúns og Laugavegar i
gærkvöldi. Moskvitch-bifreið,
sem kom upp Höfðatúnið, var
ekið i veg fyrir Mini-bifreið á
leið eftir Laugaveginum. Við á-
reksturinn kastaðist stúlka, sem
sat i hægra framsæti Moskvitch-
bifreiðarinnar út á götuna og
mun hafa slasazt nokkuð.
ökumenn og farþegar beggja
bifreiðanna, alls fjórir, voru
fluttir á slysadeildina. HP.