Dagblaðið - 05.12.1975, Page 24
Hœnurnar hœttar
að hafa undan
— eggjaskorfur farinn að segja tii sín
Hún varð allmyndarleg biðröð-
in, og sumir biðu allt upp i þrjá
tima.
Hún varð all myndarleg bið-
röðin. sem myndaðist i Vöru-
markaðnum i gær. Og hvað var
að gerast? Jú, það var eggja-
laust, og húsmæðurnar lögðu á
sig að standa i lengri tima i röð
til að ná i eggin i jólabaksturinn,
— sumar allt upp i þrjá klukku-
tima.
„Svona er þetta fyrir hver
jól,” sagði Ebenezer Ásgeirsson
forstjóri Vörumarkaðsins.
„Eggjanotkunin er langmest
fyrir jólin og bændurnir anna
engan veginn eftirspurninni.
Þess vegna verðum við að
skammta eggin, þegar þau
koma, svo að allir fái eitthvað.”
Vörumarkaðurinn fær egg
tvisvar i viku frá Ásmunda-
staðabúinu. Þáð er langstærsta
hænsnabú á landinu og meðal
annarra viðskiptavina þess má
nefna Hagkaup.
—AT—
Þarna eru eggin loksins komin,
og allir fá eitthvað. DB-myndir:
Ragnar Th.
frjálst, áháð dagblað
Föstudagur 5. desember 1975.
t
Fimm
fluttir
of
Öxna-
dalsheiði
Lögregla á Akureyri og
sjúkrabill þaðan voru kvödd á
slysstað á öxnadalsheiði,
skammt vestan við Giljareiti
i gærdag. Hafði orðið þar mjög
harður árekstur milli bifreiða
úr Skagafirði og frá Akureyri.
Þar sem slysið varð er
blindhæð á veginum og munu
ökumennirnir ekki hafa sýnt
nægilega aðgætni, þvi bif-
reiðarnar skullu beint framan
á hvor aðra. Mikil hálka var
einnig á veginum.
Fimm manns, sem i bifreið-
unum voru, slösuðust nokkuð,
skárust i andliti og stúlka i
annarri bifreiðinni fótbrotn-
aði.
Var allt fólkið flutt á sjúkra-
hús á Akureyri og liður þvi
eftir atvikum vel.
— HP.
INNANLANDSFLUG TEFST
VEGNA YFIRVINNUBANNS
Smávœgilegar skemmdir
og ónœði af hvass-
viðrinu í nótt
Yfirvinnubann 16 „hlað-
manna” tafði i gær allt inn-
anlandsflug Flugleiða. Allar
flugvélar nema ein voru á eftir
áætlun. Þó mun verðið hafa átt
nokkurn þátt i töfum. Ágrein-
ingur er um vetrarorlof.
Þegar halda átti fund um
málið i fyrradag, reyndust við-
ræðumenn Flugleiða farnir úr
landi á fund. Við þetta reiddust
starfsmenn og lögðu niður yfir-
vinnu.
Heldur dró Ur hitanum 1
morgun. Sveinn Sæmundsson,
blaðafulltrúi Flugleiða, sagði,
að sér virtist sem hlaðmenn
mundu fresta yfirvinnustöðvun
fram yfir helgi. Einn hlað-
manna sagði við blaðið, að i' ráði
væri, að aðgerðirnar yrðu ein-
staklingsbundnar, þannig að
hver og einn hætti yfirvinnu án
samtaka og mundu þær aðgerð-
ir koma aðsömunotumfyrir þá.
Hlaðmenn þessir eru
Dagsbrúnarmenn, sem starfa á
vellinum.
Sveinn Sæmundsson sagði, að
ágreiningur væri um túlkun
samninga. Að sögn eins hlað-
manna segir i samningum, að
vetrarfri skuli vera 12 dagar,
sem koma til viðbótar sumarfri-
um. Stjórnendur Flugleiða hafi
ekki viljað reikna nema 5
klukkustundir á dag við greiðslu
á vetrarfrii og þeir vildu reikna
vinnuvikuna 7 daga, af þvi að
hlaðmenn ynnu á vöktum.
Hlaðmenn teldu vinnuvikuna
hins vegar vera 5 daga.
Hann sagði, að viðræður hefðu
fariðfram annað veifið siðan 15.
september en ekki gengið sam-
an.
—HH
Suðvestan hvassviðri, sem
gekk yfir suðurhorn landsins i
gærkvöldi og I nótt, olli vand-
ræðum, en ekki stórfelldu tjóni.
Vestmannaeyjar eru alltaf
fyrsta fórnarlamb suðvestan
áttarinnar, en þar varð ekki
teljanlegt tjón, þrátt fyrir 12
vindstig, sem án efa hafa verið
fleiri i mestu hviðunum. Lausar
járnplötur fuku þar á einum
stað og bátur i höfninni losnaði
að aftan, ,en fljótlega tókst að
binda hann. A Selfossi hafði
brotnað gluggi og eitthvað laus-
legt dót fokið. Á Akranesi lá
Akraborgin bundin við bryggju.
Ekki er talið vogandi að ögra
brimöldum á Faxaflóa þegar
tryggingar eru litlar sem engar
á bifreiðum, eins og i ljós kom
við óhappið nú fyrir nokkrum
dögum.
1 Reykjavik olli veðrið
ekki teljandi tjóni, þó brotnaði
stór rúða i Tónabæ undan virid-
inum.
ÞORSKURINN KOSTAR MEIRA
EN NAUTAKJÖT í DANMÖRKU
hefur farið allt upp í 500 krónur kílóið
„Eftir þvi sem færri þorskar
eru eftir i hafinu, þeim mun
hærra verð fæst fyrir þennan
fisk. Þessi staðreynd á eftir að
endurspeglast á fiskmörkuðum
i framtiðinni,” sagði Kristján
Ragnarsson, formaður Lands-
sambands islenzkra útvegs-
manna, er Dagblaðið bar undir
hann eftirfarandi frétt:
Þorskverð hefur hækkað um
800% frá þvi meðalverði, sem
fengizt hefur fyrstu þrjá árs-
fjóröungana 1975 á dönskum
fiskmarkaöi. I Fiskhöllinni i
Hvide Sande i Danmörku var
úrvalsþorskur nýlega seldur á
allt að 18.05 krónum dönskum
kilóið. Þetta jafngildir um 500
islenzkum krónum fyrir hvert
kiló af úrvalsþorski. Meðalverð-
ið á þorskkilóið fyrstu þrjá árs-
fjórungana var D. kr. 2.15, eða
um isl. kr. 60.00.
Kristján Ragnarsson sagði
ennfremur, að Danir væru nú
búnir með sinn kvóta
samkvæmt samkomulagi Norö-
austur-Atlantshafsnefndarinnr.
Hann kvað Dani að visu hafa
fengið hluta af þorskveiðikvóta
Norðmanna gegn ónotuðum
lýsukvóta.
„Danir hafa ekki leyft sölu á
islenzkum þorskihjá sér,” sagði
Kristján. „1 dönskum fiskibæj-
um rikir nánast striðsástand
vegna óánægju danskra sjó-
manna yfir þvi að fá ekki að
veiða þær fisktegundir, sem út-
lendingar eru aö veiða á þeirrg
nálægustu miðum. Þetta er
meðal annars ástæðan fyrir þvi,
að islenzku sildarskipin hættu
veiðum i Norðursjónum áður en
þau höfðu fyllt kvótann. Við höf-
um ekki sótt fast á um sölu I
Danmörku vegna þessa á-
stands,” sagði Kristján Ragn-
arsson.
Verð það sem greint er frá i
fréttinni er einstakt hámarks-
verð, en þó liklega raunhæf
bending um þá þróun, sem er i
mótun á þorskverði á fleiri
mörkuðum. Staðfestir þetta þvi
ótvirætt þýðingu þess, að þorsk-
stofninn nái þeim vexti og gæð-
um, sem allir eru sammála um
að stefna beri að með vemdun
hans og skipulegum veiðitak-
mörkunum. —BS—