Dagblaðið - 23.12.1975, Blaðsíða 8
8
Dagblaðið. Þriðjudagur 23. desember 1975.
Lynette Fromme, 27 ára gömul, er leidd i klefann, þar sem hún á
að dvelja um aldur og ævi fyrir að hafa ætlað að ráða Bandarikja-
forseta af dögum. Tilraunir hennar við réttarhöldin til að vekja at-
hygli á alvarlegum umhverfisvandamálum, m.a. eyðingu rauð-
viðarskóganna i námunda San Francisco i Kaliforniu, mistókust.
Hafa þó margir umhverfisverndarmenn staðið slælegri vörn um
málstaðinn.
Afsögn Agnews, fyrrum varaforseta USA
Öl II gögi i á •1 borðii
— segir dómarínn
Frú June Greene alrikisdómari
lyrirskipaði rikisstjórn Banda-
rikjanna að afhenda sér öll sönn-
unargögn, sem leiddu til afsagnar
Spiro Agnews, fyrrum varafor-
seta. Vill hún fá þau til lestrar
áður en hún ákveður hvort þau
megi birta opinberlega.
Tveir stúdentar við háskólann i
Washington höfðu beðið um skjöl-
in á grundvelli laga um upplýs-
ingarskyldu opinberra aðila i
Bandarikjunum.
Farið hafði verið fram á, að
skjölum þessum yrði haldið
leyndum til þess að vernda ,,sak-
laust fólk”, eins og verjandi
Agnews hafði komizt að orði.
Agnew var sem kunnugt er sak-
aður um skattsvik.
Eftirmanni Agnews i embætti
rikisstjóra, Marvin Mandel, var i
siðasta mánuði stefnt fyrir spill-
ingu.
r
Astralía:
Ný stjórn dregur
yfirlýsingar fyrri
stjórnar til baka
Ný hægrisinnuð rikisstjórn i
Astraliu hefur fyrirskipað
sendimönnum sinum i Moskvu
að Astralia viðurkenni ekki
lengur Eistland, Lettland og
Litháen sem hluta af Sovét-
rikjunum.
Stjórn Verkamannaflokks-
ins, sem féll i siðustu kosning-
um, hafði látið fara frá sér
yfirlýsingu þess efnis að hún
viðurkenndi yfirráðarétt
Sovétrikjanna yfir þessum
löndum.
DANIR KÁTIR YFIR
OECD-SKÝRSLUNNI
Danir eru kátir að vonum: í skýrslu Efnahags-
og framfarastofnunarinnar, OECD segir að
Danir muni á komandi ári búa við meiri hagvöxt
en nær öll önnur vestræn riki. Framfarirnar birt-
ast helzt i minnkandi atvinnuleysi, segir i skýrsl-
unni.
Þar segir einnig, að á næsta (5%), Japan og Kanada (4.25%)
ári muni þjóðarframleiðslan munu gera betur en Danmörk.
aukast um fjóra af hundraði. 1 i Sviþjóð, Sviss, Austurriki,
ár hefur hún minnkað um hálfan Belgíu, Finnlandi og Englandi
annan af hundraði frá þvi sem verður árið 1976 nær alveg eins
áður var meðaltal. Aðeins og árið 1975, svo gott sem það nú
Bandarikin (5.75%), Noregur var.
FÆR BIANCAFRIIÐ?
Hörð stéttarleg bar-
átta geisaði i nóvember
i hópi enskra leikara
um hvor Bianca, eigin-
kona rokksöngvarans
Mick Jaggers, fengi
aðalhlutverkið i kvik-
myndinni „Trick and
Treat”.
Kvikmyndafyrirtækið vildi fá
að nota Biöncu i kvikmyndina,
enda nafn hennar talið gullin
trygging. Leikarafélögin
börðust gegn þessari ráðstöfun
og vildu láta atvinnulausan leik-
ara leika hlutverkið. Kvik-
myndafélagið vann.
Nú eru menn farnir að sjá
eftir öllu saman.
Bianca Jagger hefur orðið slik
pina fyrir kvikmyndafélagið, að
dæmi um annað eins munu ekki
þekkt i heimi kvikmyndanna.
„Hún er álika erfið og
Marilyn Monroe og Judy Gar-
land báðar,” skrifaði Lundúna-
blaðið Daily Mail.
Kvikmyndafyrirtækið ihugar
nú að hefja kvikmyndunina á
nýjan leik — með aðra aðalleik-
konu, að sögn sænska Afton-
bladet.
Viröisaukaskattur er nokkuð niisjafn i Evrópu, þar sem hann er
fyrir, eins og sjá má af meðfylgjandi korti. Upplýsingarnar eru frá
bankayfirvöldum i Sviss.
Hve mikill
virðisauka-
skattur?
í prósentum