Dagblaðið - 23.12.1975, Blaðsíða 19
Dagblaðið. Þriðjudagur 23. desember 1975.
Spáin gildir fyrir mánudaginn
29. desember.
Vatnsberinn (21. jan.—19. feb.):
Það er mikið að gerast allt i
kringum þig, svo að þú þarft á
allri þinni orku að halda. Veltu
hlutunum fyrir þér, áður en þú
framkvæmir nokkuð — flas er
ekki til fagnaðar.
Fiskarnir (20. feb.—20. marz):
Ef þú þarfnast ráðlegginga frá
öðrum, vertu þá viss um að
velja réttan ráðgjafa. Stjöm-
urnar eru þér hagstæðar i dag,
svo að þér ætti að vera öhætt að
taka smá áhættu.
Hrúturinn (21. marz—20. april):
Fréttir, sem þú heyrir utan að
þér, hjálpa þér i máli, sem rugl-
ar þig þessa stundina. Nú virðist
vera góður timi fyrir smá við-
skipti, og þú ættir að bera þar
eitthvað úr býtum.
Nautið (21. april—21. mai): Allt,
sem viðkemur sölu, ætti að
blessast i dag. Einhver ættingi
þinn minnir þig á verk, sem þú
átt að vera búinn að fram-
kvæma. Rifjaðu upp, hvort það
er fleira, sem þú hefur gleymt.
Tviburarnir (22. mai—21. júni):
Það eru viss skyldustörf, sem
þú verður að reikna með i dag,
svo að það verður litill timi af-
lögu fyrir sjálfan þig. Vertu
hreinskilinn við aðra, þegar þú
ræðir um áætlanir þinar.
Krabbinn (22. júni—23. júli):
Þetta er rétti dagurinn til að
gera framtiðaráætlanirnar, sér-
staklega þær, sem hafa áhrif á
starfsferil þinn. Þú tekur ef til
vill ákvörðun um að breyta til,
en þú ættir að veita ráðlegging-
um sérfræðinga áthygli.
Ljónið (24. júli—23. ágúst):
Taktu þvi rólega i smátima og
láttu ekki utanaðkomandi
pressu valda þér áhyggjum. Ró-
legt kvöld með nánum vini ætti
að vera ykkur báðum hag-
kvæmt.
Meyjan (24. ágúst—23. sept.):
Það er óráðlegt að opinbera
persónulegt leyndarmál, eins og
sakir standa. Farðu varlega ef
þú hefur peninga undir höndum
— þeir eru leiðin til vissra vand-
ræða.
Vogin (24. sept.—23. okt.): Bak-
tal viss manns eða konu virðist
vera að valda þér vandræðum.
Þú færð sennilega góða hug-
mynd til að auka tekjur þinar, ef
þú beitir heilafrumunum ræki-
lega.
Sporðdrekinn (24. okt.—22.
nóv.): Smá hliðarspor frá stig
vanans eykur áhuga þinn á
starfinu. Ástarsamband virðist
vera i dauðateygjunum, en það
er aðeins léttir fyrir þig. Nýjan
félaga ber liklega að garði á
næstunni.
Bogmaðurinn (23. nóv.—20.
des.): Þú missir af góðu tæki-
færi til að eignast nýjan vin,
nema þú sýnir meiri skilning.
Snúðu þér fyrst og fremst að
viðskiptamálunum.
Steingeitin (21. des.—20. jan.):
Ef þú ferð i gegnum alla gömlu
pappirana kemstu að þvi þér til
mikillar undrunar að þú hefur
skuldað smáupphæðum dálftinn
tima. Borgaðu hana bara með
brosi á vör og afsökunarbeiðni,
— þá fer allt vel.
Afmælisbarn dagsins: Einkalif-
ið ætti að vera skemmtilegt
strax og fyrstu mánuðir ársins
eru liðnir. Gift fólk verður enn
sáttara. Sumarfriið endar
sennilega með góðu ævintýri.
Vissara er að sýna vissa varúð i
fjárfestingarmálunum.
19
Þórður Guðmundsson, skipstjóri,
Vifilsgötu 21, lézt að Vifilsstöðum
18. desember. Hann verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni i dag
kl. 13.30. — Þórður var fæddur að
Gerði I Innri-Akraneshreppi 23.
desember 1895 og hefði þvi orðið
áttræður i dag, hefði hann lifað.
Foréldrar hans voru hjónin Val-
gerður Jónsdóttir og Guðmundur
Brynjólfsson. Fimmtán ára að
aldri hóf Þórður að stunda sjó-
mennsku. Hann sigldi á ýmsum
skipum frá Akranesi, Reykjavik
og Hafnarfirði, unz hann gerðist
hafsögumaður hjá Reykjavikur-
höfn árið 1952. Við það starfaði
hann til ársins 1955, er hann fór
sem skipstjóri á Akraborgina. Á
henni var hann, þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Að
launum fyrir frábært starf sitt
sem skipstjórnarmaður var hann
sæmdur heiðursmerki sjómanna-
dagsins á Akranesi árið 1961 og
riddarakrossi fálkaorðunnar ár-
ið 1964.
Þórður kvæntist árið 1921
Mariu Sigurjónsdóttur frá
Bakkagerði i Reyðarfirði. Hún
lézt árið 1958. Þau eignuðust tvo
syni.
Jón B. Iljálmarsson, prent-
smiðjustjóri, Brúnavegi 12, lézt i
Borgarspitalanum 18. desember.
Otför hans fer fram frá Dóm-
kirkjunni laugardaginn 27. des-
ember kl. 10.30.
Hjörtur E. Guðmundsson, for-
stjóri, Hrisateigi 27, lézt i Land-
spitalanum 18. desember. Hann
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju i dag kl. 13.30.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Álfa-
byggð 24, Akureyri, lézt 15. des-
ember. Hún verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju laugardag-
inn 27. desember kl. 10.30.
Guðrún Jónsdóttir, saumakona,
Hrauntungu 33, Kópavogi lézt 19.
desember. Hún verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju mánudaginn
29. desember kl. 13.30.
Magnea Einarsdóttir frá Bræðra-
tungu, Stokkseyri, lézt i Borgar-
spitalanum 18. desember.
Aðalsteinn Norberg, forstjóri,
lézt i Landspitalanum 19. desem-
ber.
Sigriður Þóra Traustadóttir lézt
af slysförum 19. desember.
Jónfriður Eliasdóttir.frá Miðhús-
um, Vatnsfjarðarsveit, andaðist
20. desember.
Lúðvik Jónsson, meinatæknir,
Hátúni 32, Keflavik, lézt 20. des-
ember i Landspitalanum.
Ólafur G. Jónssonlézt 21. desem-
ber.
Aðalfundur
Islenzka mannfræðifélagsins
verður haldinn mánudaginn 29.
desember 1975 i' Norræna húsinu
kl. 18. Formaður ræðir um mann-
fræðilega starfsemi s.l. ár. Til-
lögur um lagabreytingu.
Arni Björnsson tónskáld er sjö-
tugur i dag, 23. desember. Hann
verður að heiman i dag.
Afsagnir vixla
Vixlar, sem falla 22. desember
verða afsagðir þann 24.
Vixlar, sem falla 23., 24., 25. og 26.
desember verða afsagðir þann 29.
Vixlar, sem falla 27. og 28. des.
verða afsagðir þann 30.
Vixlar sem falla 29. des. verða af-
sagðir þann 31.
Vixlar sem falla 30., 31., 1. og 2.
verða afsagðir þann 5.
Vixlar sem falla 3. og 4. janúar
verða afsagðir 6. janúar.
r
X
Sýning á Borgar-
spitalanum
Hringur Jóhannesson listmálari
sýnir tólf myndir i anddyri
Borgarspitalans nú um jólin. Það
erstarfsmannaráðspitalans, sem
gengst fyrir sýningunni.
Vikan meðvölvuspá
Siðasta tölublað Vikunnar á
þessu ári er komið út. Það efni,
sem eflaust vekur mesta forvitni,
er völvuspáin fyrir 1976. Hin
viðfræga völva Vikunnar reynir
nú i fjórða sinn að sjá fyrir at-
burði næsta árs, en alltaf hefur
talsvert komið fram af spádóm-
um hennar og er enn i minnum
haft, hve furðúlega sannspá hún
reyndist um atburði ársins 1973.
Af öðru efni má nefna
borðskreytingar þriggja karla og
einnar konu, sem skreyttu hátiða-
borð fyrir Vikuna, og þar má fá
margar skemmtilegar hug-
myndir. Sagt er frá
pylsukappáti, sem Vikan efndi
til, sem lauk með þvi, að sigur-
vegarinn borðaði 29 pylsur — geri
aðrir betur! Rætt er við Jón
Jónsson klæðskera á Isafirði,
sem hefur frá ýmsu að segja.
Viðtöl eru við framkvæmdastjóra
Tónabæjar, dyravörð og nokkra
krakka i Tónabæ.
S-/C
— Þelta var bara þetta venjulega með Þingey-
inga, Boggi minn. Það van stungið á, og ekkert
koin nema ioft!
fö Bridge
9
í bridgekeppni i New»York fyrir
nokkrum dögum réð eftirfarandi
spil — hið siðnsta i sveitakeppni
— úrslitum.
V KG96
♦ D9
* AD10983
♦ akdg V 10853 ♦ K1087 ♦ 2 10972 V 74
4k 8653 ♦ 6543
V AD2 ♦ AG2 *G64 *K75
Sagnir gengu þannig á öðru
borðinu.
Suður Vestur Norður Austur
pass 1 lauf dobl pass
2lauf , -pass 3 lauf dobl
pass 4lauf pass pass
4sp. pass pass pass
Eftir að suður hafði passað i
fyrstu hendi var hann ákveðinn
að ná gamesögn og krafði þvi með
tveimur laufum. Vestur spilaði út
laufaás og meira laufi — góð
vörn. Trompað var i blindum og
tromp tvivegis tekið. Legan kom i
ljós og suður spilaði nú tigli á
ásinn og siðan tigulgosa.
Drottning vesturs kom — og
tiglar blinds voru teknir. A þann
fjórða kastaðisuður siðasta laufi
sinu.
Svo virðist sem vörnin fái tvo
slagi á hjarta og einná tromp -
laufaásinn hefur þegar gefið
slag— svo suður stefnir i tap. En
hann fann ráð. Spilaði hjartatiu
frá blindum og þegar austur gat
ekki lagt á — lét suður tvistinn
heima. Vestur átti slaginn. en
var varnarlaus — hjarta i gaffal
suðurs, en lauf i tvöfalda eyðu,
tryggja sögnina. Sama lokasögn
var á hinu borðinu — en tapaðist.
Á Olympiuskákmótinu i Nizza
1974 kom þessi staða upp i skák
Donelly, sem hafði hvitt og átti
leik, gegn Harston. Hann fann
ekki vinningsleiðina og Harston
fékk þar mesta heppnissigur sinn
i keppninni. Getur þú fundið
hana? Hæfni 10 sek. stórmeistari.
20 sek. meistari, minúta sér-
fræðingur, 3. min. 1. flokks skák-
maður, 7. min. 2. flokks skák-
maður. 12 min. sæmilegur. 20.
min. byrjandi.
T 1 é i
... ■■ 1 1 i i
* •* © 1 *
V; ■ II
l 0 is i
::ý." r?-> -m & s .1
n t-.-) e?
1. Hxf7+ ! — Kg8 2. Bh6! — gxh6
3. Df3 — Rxe5 4. Df6 og vinnur. 1
skákinni lék Donelly i 2. leik.
Hxb7? og tapaði.