Dagblaðið - 05.02.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 05.02.1976, Blaðsíða 2
Dagblaðið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976. OFFITU- HÁALOFTI SIGURÐAR SVARAÐ: LJÓTT AÐ AÐ FEITA GERA GRIN FÓLKINU Hvers vegna eru upplýsingar ekki gefnar í síma? VIÐSKIPTAVINUR SPYR: „Hvers vegna er ekki hægt að fá upplýsingar í síma um hver innstæða manns er á ávísanareikningum (manns eigin, vitaskuld)? Ég skipti við Múlaútibú Lands- bankans og hringdi þangað um daginn til þess að spyrja um inn- stæðu mína. Ég fékk það svar að það væru ekki gefnar upplýsingar um þetta í síma. Ég yrði að koma þangað til að fá þær. Svo vildi til að ég hafði verið þarna viku áður og bar þá upp þessa spurningu. Það var rétt eftir ára- mótin og stúlkan, sem fyrir svörum varð. sagði að é.g fengi sent heim reikningsyfirlit eftir fáeina daga. Þá var ég á staðnum en fékk engu að síður ekki um beðnar upplýsingar. Yfirlitið kom ekki fyrr en nákvæm- lega viku seinna og þegar ég hafði lokið við að yfirfara reikninginn var komið langt fram í mánuðinn og ég vildi gjarnan hafa allt á hreinu og hringdi því. En það var ekki hægt að fá þessar upplýsingar símleiðis. Ég skil ekki hvers vegna. Hvaða not getur ókunnugur haft af því að vita hver innstæða er á ávísana- reikningi manns? Ef einhver hefur stolið ávísana- hefti, fer hann varla að skeyta um hver innstæða á reikningnum er. í leiðinni vil ég bæta því við að mér finnst afgreiðsla í þessu útibúi með afbrigðum sein — annaðhvort þarf að bæta þarna við starfsfólki eða þá að brýna fyrir því að vinna með .örlítið meiri hraða. Afgreiðslufólkið er mjög kurteist, það vantar ekki, og ekkert yfir framkomu þess að kvarta nema hvað það er dálítið seinlátt.” Nú verður Óli Jó oð slíto samstorfinu Allt virðist vera að fara í háaloft vegna Háaloftanna í Dagblaðinu — grínþáttanna hans Sigurðar Hreiðars. Hér er eitt bréf frá MARGRÉTI SÖLVADÓTTUR vegna Háaloftsins síðasta laugardag. „í grein í Dagblaðinu 31. janúar 1976, undir fyrirsögn.irT»i 1 .LTTIST UM 15 KG — eftir Sigurð Hreiðar Hrciðarsson, gerii hann lítið úr þeim stofnunum sem hjálpa fólki sem á við offitu að stríða. Mig langar áðéins að fá hann til að sjá málið frá annarri hlið, enda er ég viss um að hér hefur aðcins verið um vanhugsun að ræða hjá jafn fróðum manni og Sigurði Hreiðari. Þar sem málið snertir mig og starf mitt veit ég, að ég get gefið honum betri upplýsingar en hann hcfur fengið um málið áður en hann tók sér penna í hönd. BEZTA SKEMMTUN SIGURÐAR AÐ GERA GRÍN AÐ FEITUM MÖNNUM? Siguröur 'Hrciðar talar um vin sinn í grein sinni og lýsir honum á kostulegan hátt. Sjá má í gegnum greinina að hann vill fyrir alla muni ekki að þessi vinur hans grennist, svo að Sigurður Hreiðar missi nú ekki af þeirri skemmtun sem þessi vinur hans færir honum með veiklun sinni. Mér virðist koma fram hjá Sigurði að feitt fólk ætti bara að vera áfram feitt til að hann og aðrir geti haft skemmtun af. Og auðvitað ætti slíkt fólk ekki að fara á sólarstrendur því að ætla má að Sigurður haldi að farið sé þangað til að sýna spengilegan vöxt en ekki til hressingar og heilsu- bótar. Ef við höfum slíkt hugarfar eigum við langt í land með að teljast mannúðleg. VINURINN FÆR ENGA KANARÍFERÐ Ég get glatt Sigurð Hreiðar með því að engin hætta er á að vinur hans hljóti Kanaríferð í verðlaun fyrir frábæran árangur í megrun sinni, því að svo er mál með vexti að stofnun mín ('megrunarfabrikka, eins og Sig- urður kallar það) er sú eina á íslandi sem býður slík verðlaun, og hún er aðeins fyrir konur. Þá langar mig að leiðrétta Sigurð er hann segir að fyrirsögn sú er hann notar í grein sinni sé komin úr aug- lýsingu. Rétt er að fyrirsögnin var á frétt sem birtist í Dagblaðinu að frumkvæði Dagblaðsins og skrifuð af blaðamanni Dagblaðsins, þótt Sigurður fari að vísu ekki rétt með hana. OFFITA ER EINS OG ALKÓHÓLISMI En nóg um það. Ég hef starfað í nær fimm ár við að hjálpa þeim konum scm eiga við það vandamál að stríða að vera of feitar. Offita er sjúkdómur sem á sínar orsakir hvort sem er af líkamlegum eða sál- arlegum orsökum. Við getum sagt við alkóhólistann að hann ætti bara ekki að drekka og eins við þá offeitu: Þú átt ekki að borða svona mikið. En erum við ekki orðin svolítið þroskaðri og vitum að svona auðvelt er það ekki? Þeir sem ekki vita hvaða sálar- raun það er að neita sér um mat og drykk, eins og hverjum og einum finnst hann þurfa, ættu ekki að dæma þær þjáningar að óreyndu. Þeir sem eiga við offituvandamál að stríða þurfa fyrst og fremst á stuðningi að halda, að marki að keppa og er þá ekki verra að verð- laun séu að launum til að létta hugann. Ég hvet eindregið þá karl- menn sem vilja að konur þeirra grenni sig til að heita þeim einhverj- um verðlaunum, og einnig þær konur sem vilja hjálpa mönnum sínum til að grennast. Því megum við, sem erum aðeins mannleg og kunnum ennþá að hlakka til, ekki hjálpa hvert öðru og styðja til betri árangurs án þess að verða fyrir hef talað við foreldra sem eiga of feitar unglingsstúlkur sem ekki geta umgengizt skólafélaga sína eðlilega af ótta við að verða fyrir háði, og loka þær sig því inni í sinni sálarþjáningu. Ég þekki konur sem fara ekki á almennar samkomur af ótta við að verða að athlægi fólks sem skilur ekki að offita er vandamál, en ekki til komin svo að aðrir geti haft gaman af. Ég veit um hjónabönd sem hafa batnað við að konan fór að hugsa um útlit sitt. Það má vera að í augum Sigurðar Hreiðars skipti það ekki miklu máli hvernig við lítum út en ég veit að sálfræðingar eru mér sam- mála um að oft sé það lykillinn að læstu sálarlífi. Og þá skulum við taka heilsufars- hliðina. Ég get sagt Sigurði Hreiðari að læknar senda okkur oft konur til meðferðar, ekki aðeins of feitar konur heldur einnig þær sem haldnar eru öðrum kvillum. Því má ætla að citt- hvað gott sé gert á þeim stöðum sem , Sigurður kallar megrunarfabrikkur. GLAÐNINGUR TIL SIGURÐAR Mig langar til að leiðrétta og um leið gleðja Sigurð Hreiðar með því að láta hann vita að skinnið á líkaman- um getur líka gengið saman alveg eins og það getur teygzt út, og þar af leiðandi er öryggisnæla óþörf. Mér fannst heldur óviðeigandi að greinin hans Sigurðar skyldi merkt HÁALOFTIÐ. Þar sem ráðizt er á garðinn þar sem hann er lægstur. Ég vona eindregið að í framtíðinni noti SigurðurHreiðarkímnigáfu sína fólki til skemmtunar en ekki til lítillækk- unar. Að lokum vil ég benda Sigurði á að honum er velkomið að snúa sér til mín ef offita skyldi hrjá hann með aldrinum. Ég skal reyna að gefa honum góð ráð.” kaldhæðni þeirra sem eru svo heppnir að vera grannir og vita því lítið um það sálarstríð sem offita getur orsakað? MEGRUN GERIR FITUBOLLUR AÐ FALLEGUM STÚLKUM Ég þekki ólál dæmi þess að hin svokallaða megrunarfabrikka (svo ég noti orð Sigurðar) hefur orðið mör- um til góðs. Ég hef séð ungar stúlkur breytast úr óframfærnum, klunnaleg- um stúlkum í bráðfallegar, sjálf- stæðar verur — og hefur það að mörgu leyti gjörbreytt lífi þeirra. Ég Úr Múlaútibúi Landsbankans. Þær eru stundum svolítið seinar til, blessaðar afgreiðslustúlkurnar. HAFÞÓR HRINGDI: „Eins og alþjóð nú þekkir mæta- vel • hafa dómsmálaráðherra lands- ins, Ólafi Jóhannessyni verið bornar á brýn þungar — allt að því glæp- samlegar — sakir. Hann hefur verið sakaður um að hefta framgang rétt- vísinnar með því að hafa látið opna Klúbbinn á sínum tíma, svo og að stöðva yfirheyrslur t Geirfinnsmál- inu. Ásakanir þessar eru lúalegar — auvirðilegar. Sprottnar upp frá smá- krötum og þar í ofanálag komnar frá yfirboðurum þeirra í Sjálfstæðis- flokknum. Þar virðast vissir menn líta á Ólaf Jóhannesson sem sinn helzta andstæðing og kemur þar til :andstaða hans gegn svikasamrtingum Geirs við Englendinga. Svo virðist sem koma hafi átt höggi á Ólaf og Lesendur, Lesendum skal bent á að svar Eiríks Ásgeirssonar forstjóra Strætis- vagna Reykjavíkur við lesendabréfi í þannig losna við einn helzta and- stæðing samninga. Þegar svo smákratinn, Sighvatur Björgvinsson — fyrrum útibússtjóri hjáleigu Vísis, hóf raust sína á Al- þingi var eins og púsluspilið gengi upp. Jú, auðvitað er þessi aðför runnin undan rifjum Sjálfstæðis- manna. Smákratar eins og Sighvatur og Vilmundur eru aðeins verkfæri í höndum meiri manna. Ólafur svaraði fyrir sig í gær (mánudag — innsk. hh) og mun sú ræða verða lengi í minnum höfð. Lítið varð úr verkfærinu þar sem hann sat í stól sínum — og er nú vonandi að Ólafur sjái að sér í þeirri sæng er hann nú liggur með Geir. Eftir þessa lúalegu aðför á — og beinlínis — verður Ólafur Jóhannes- son að slíta stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn — þar sem ljóst er hvaðan þessi aðför er gerð.” athugið Dagblaðinu í gær barst áður en strætisvagnafyrirspurnin á þriðju- daginn barst. I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.