Dagblaðið - 05.02.1976, Blaðsíða 8
8
Dagblaðið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976.
Vopna-
fjörður:
Einhverjir erfíðleikar virðast enn
vera á því að atvinnulausir Vopn-
firðingar fái greiddar atvinnuleysis-
bætur á tilsettum tíma.
Allmikið atvinnuleysi hefur verið á
staðnum nú í haust og vetur og
ENN TAFIR Á ÚTBORGUN
ATVINNULEYSISBÓTA
— sýslumoður lofar skjótri afgreiðslu
kvarta þeir sem fyrir barðinu á því
hafa orðið, mikið undan því að þurfa
nú að fara að borga skatta af bótum
sem þeir hafa ekki einu sinni fengið
í hendurnar.
Þannig hefur einn aðili á Vopna-
firði, sem er með konu og barn á
framfæri sínu, ekki fengið bætur
síðan í lok nóvember og er að vonum
orðinn langeygður eftir bótum sínum
sem nú eru orðnar rúmlega níutíu
þúsund krónur. Kenna menn sem
fyrr um seinagangi á afgreiðslu hjá
sýslumannsembættinu á Seyðisfirði
og hafði blaðið samband við Erlend
Björnsson sýslumann þar.
„Strax og rnér berast bótaskýrslur
fer ég yfir þær og bæturnar eru síðan
sendar til þeirra sem þær eiga að fá,”
sagði Erlendur. „Ég kannast ekki við
þetta einstaka dæmi sem nefnt er en
það hefur ekki staðið á peningum til
greiðslu bótanna.”
Sagði Erlendur að ekki innheimtist
nægilega mikið fé í sínu umdæmi til
þess að greiða atvinnuleysisbæturnar
og hefði Tryggingastofnunin því
hlaupið undir bagga með sér. „Og
það hefur ekki staðið á peningum frá
henni. Ég reikna því með að bæturn-
ar verði sendar út nú innan
skamms.”
—HP.
STJORNUBLIK
KVÖLDSTUND
með Lise Ringheim og Henning
Moritzen í Iðnó
Hver var að tala um fásinni? Allt í
einu snjóar tveimur dönskum leikur-
um niður í geirfinnsmál og land-
helgi: Lise Ringheim og Henning
Moritzen sem þessa dagana hafa
kvöldskemmtanir í Iðnó. Það verð ég
að játa að ekki þekkti ég þau fyrir, en
ósköp var notalegt að kynnast þeim í
Iðnó á þriðjudagskvöld. Og margir
hafa sýnilega átt sér góðs von af
heimsókn þeirra: það seldist upp á
þrjár sýningar þeirra á skammri
stund. Þessvegna hefur verið ákveðin
aukasýning þeirra í Austurbæjarbíó
á föstudagskvöld, og rennur ágóðinn
af henni í húsbyggingarsjóð Leik-
félagsins.
Það er að skilja að þau Ringheim
og Moritzen' hafi til skamms tíma
starfað við Kongunglega leikhúsið í
Kaupmannahöfn, vinsælir og vel-
metnir leikarar á þeim bæ. Þau hafa
nú sagt skilið við leikhúsið, að
minnsta kosti í bili, og starfa á eigin
spýtur, og hafa þau í haust og vetur
farið víða um Danmörku með dag-
skrá þá sem nú gat að líta í Iðnó.
Þetta er að mestu leyti kímilegt efni
og létt í vöfum og höfðar væntanlega
til vísrar hylli á meðal áhorfenda sem
þekkja leikarana fyrir.
Og vel má það vera að fyrri hlut-
inn á dagskrá þeirra hljóti meiri
merkingu meðal áhorfenda sem
þekkja nokkuð fyrir til leikaranna, en
okkar sem komum allsendis ókunnug
þeim til sýningar. Þar fluttu þau
nokkur leikatriði sem öll varða sam-
skipti karls og konu í og utan hjóna-
bands, en efnið var fellt í kátlega og
kímilega umgerð sem Klaus Rifbjerg
hefur samið. Fjögur þessi atriðj voru
sótt til klassískra leikbókmennta, eft-
ir Shakespeare, Moliére, Strindberg
og Bernard Shaw — prófessor Higg-
ings og Elísa úr Pygmalion. En hið
fimmta var úr hinu vinsæla músíkali
Ernst Bruun Olsens, Teenagerlove,
sem á sínum tíma var líka sýnt hér á
landi.
Þetta var fyrir alla muni ásjálegt,
leikandi lipurt með efnið farið, en
einhvern veginn ekki nóg til að veita
neina umtalsverða hugmynd um
leikendurna, né þá efni leiks, —
aðeins svipmyndir, stjörnublik af
meðal voru ljóð og vísur eftir
Halfdan Rasmussen og Benny
Andersen, en Moritzen brá fyrir sig
kostulegri eftirhermu eftir Maurice
Chevalier, Lise Ringheim fór af leik-
andi list með hringekjusöng cftir
Jacques Brcl. Annars var það „dönsk
kímni” og „dansk hygge” sem svip-
inn sctti á þessa deild dagskrár-
innar — þóíl hitt væri óþörf
meinsemi að segja að hnyttið ljóð
Benny Andersens om „det danske
smil” hafi að sínu leyti lýst sýning-
unni. En danska brosið er eftir kvæð-
inu dálítið óþægilegt fyrir það að það
fer ekki af eftir að það er eitt sinn
orðið fast á andliti manns.
En þetta var fyrir alla muni
ánægjuleg kvöldskemmtun — þótt
---- li
Tónlist
L________4
hlutverkum. En ráða mátti af síðast-
nefnda atriðinu að Henning
Moritzen hafi á sínum tíma verið
aldcilis bráð-magnaður Billy Jack í
Teenagerlove.
Það kemur heim við þetta að mér
þótti meira gaman að seinni hluta
dagskrárinnar þar sem þau leik-hjón
fluttu Ijóð og söngva og revíubrot
eftir vellátna danska höfunda við
undirlcik Niels Rothenborgs. Þar á
hitt hefði að vísu verið fróðlegt um
mikilhæfa leikendur að sjá þau fást
við veigameira /veigameiri viðfangs-
efni. Ég finn að minnsta kosti að af
heimsóknum danskra leikara hingað
til lands á undanförnum árum, sem
nokkrir hafa komið í Norræna húsið
og annarsstaðar, hefur mér orðið
langsamlega eftirrninnilegast upp-
lestur Erik Mörks úr H.C.Andersen á
listahátíð fyrir nokkrum árum.
V
Henning Moritzen og Lise Ringheim í nokkrum hlutverka sinna.
/
Bör Börsson fer
austur fyrir f jall
Leikfélag Kópavogs hefur nú sýnt
söngleikinn Bör Börsson í alls þrjátíu
skipti fyrir fullu húsi í Kópavoginum.
Er sýningum á söngleiknum að ljúka
og tvær síðustu sýningarnar verða að
Flúðum núna um heigina, nánar til-
tekið klukkan þrjú og hálftíu á Iaugar-
dag.
45 manns taka þátt í þessari leikför
leikfélagsins austur fyrir fjall og búast
má við að fólk þar í sveitum noti
tækifærið til þess að njóta þeirrar ágætu
skemmtunar er af sýningunni má hafa.
—HP.
MIKLAR SVEIFLUR
f ATVINNULÍFINU
Atvinnuleysið var mjög árstíðabundið í
fyrra. Hámarki náði það í maí þegar
togaraverkfallið stóð, 1281 maðuráöllu’
landinu. Hins vegar voru ekki nema
274 á skrá í ágúst og 275 í september.
Atvinnuleysingjar voru 1136 í
desember síðastliðnum.
YFirleitt þýðir það að fólk vantar í
störf fremur en hitt þegar aðeins nokkur
hundruð eru á atvinnuleysisskrá á
landinu öllu. Þó getur verið tilFinnan-
legt atvinnuleysi við slíkar aðstæður í
cinstaka þorpúm eða bæjum eða í ein-
stökum greinum.
936 voru atvinnulausir í janúar fyrir
ári. Atvinnuleysingjar eru nú miklu
fleiri, eins og Dagblaðið hefur skýrt frá.
—HH.
Þorskveiðar bannaðar
með flotvörpu
Þorskveiðar með flotvörpu eru bann-
aðar á svæði sem takmarkast að austan
af línu sem dregin er í réttvísandi
austur frá Stokksnesi og að vestan af
línu sem dregin.er réttvísandi vestur frá
Látrabjargi. Gildir þetta bann að sjálf-
sögðu um svæði það sem er innan
íslenzkrar Fiskveiðilandhelgi.
Þetta bann er lagt á með reglugerð
sem sett hefur verið samkvæmt 6. gr.
laga nr. 102 frá 1973 um veiðar með
botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fisk-
veiðilandhelginni, svo og samkvæmt 1.
gr. laga nr. 44 frá 1948 um vísindalega
verndun fiskimiða landgrunnsins.
Reglugerðin er sett samkv^mt tillögu
fiskveiðilaganefndar að fenginni um-
sögn Hafrannsóknastofnunarinnar.
Veiðibannið samkvæmt reglugerðinni
gildir frá 10. febrúar til 1. júní 1976.
—BS
Það gerist alltaf eitthvað
í þessari Viku:
Hjalti Rögnvaldsson leikari / Alan Strang i Equus — Pétur poppari
Lorayne — Graham Hill í bílaþœtti — augað kemur upp um okkur