Dagblaðið - 05.02.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 05.02.1976, Blaðsíða 6
6 Dagblaðið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976. FróCIA Frú CIA, eiginkona George Bush, nýskipaðs yfirmanns bandarísku leyniþjón- ustunnar, þiggur koss Fords Bandaríkjaforseta eftir að maður hennar hafði svarið embættiseið sinn. í texta erlendis frá var nafns konunnar ekki getið. S-Jemen hýsir fímnt v-þýzka skœruliða Stjórn Suður-Jemen hefur skýrt vestur-þýzku stjórninni svo frá, að hún treysti sér ekki til að framselja fimm 'dæmda skæruliða, sem látnir voru. lausir fyrir ellefu mánuðum í skiptum fyrir v-berlínska stjórnmálamanninn Peter Lorenz, scm rænt var. Frá þessu var skýrt af opinberri hálfu í Bonn í gær. Sendiherra Vestur-Þýzkalands í Aden, höfuðborg S-Jemen, Giinther Held, hafði hvað eftir annað farið fram á skýr svör af háflu stjórnar S-Jemen, en án árangurs, — þar til nú. Embættismaður Jemenstjórnar skýrði sendiherranum þá svo frá, að hann gæti ekki staðfest hvort umræddir fimm menn væru í landinu, en jafnvel þótt svo væri, þá væri framsal útilok- aður möguleiki. Fyrir tíu dögum fór vestur-þýzka stjórnin þess formlega á leit, að menn- irnir yrðu framseldir. Þeir voru látnir lausir úr vestur-þýzkum fangelsum og flogið með þá til S-jemen þegar Lorenz var rænt, eins og áður segir. Ræningjar Lorenz eru sem stendur í gæzluvarð- haldi og bíða réttarhalda. Yfirvöld í Vestur-Þýzkalandi telja sig hafa komizt á snoðir um að fimmmenn- ingarnir hafi í hyggju að snúa aftur til heimalands síns og frelsa ræningja Lorenz úr fangelsi. Talið er víst, að einn fimmmenning- anna, 22 ára gömul stúlka, Gabriele Kroecher-Tiedemann, hafi tckið þátt í jólaárásinni á OPEC-skrifstofurnar í Vínarborg. Shirley Black sendiherra USA hjá SÞ? Sænska lögreglan handtók kvik- myndagerðarmanninn Ingmar Berg- man í Stokkhólmi á föstudaginn. Hann var yfirheyrður í fimm klukkustundir en síðan látinn laus. Áður var honum sagt að hann væri grunaður um að hafa dregið hálfa mílljón sænskra króna (nær 20 millj. ísl.) undan skatti. Bergman var sviptur vegabréfi sínu og bannað að fara úr bænum. Um leið og Bergman var handtekinn var gerð húsleit í íbúð hans og lög- fræðings hans. Sænskr leikstjórinn, sem nú er 57 ára gamall, er grunaður um að hafa „falið” fimm hundruð þúsund sænskar krónur árið 1971. Hann er sagður hafa sett peningana í svissneskan banka, eins og raunar hefur komið fram áður. Ingmar Bergman handtekinn Shirley Temple Black, sendiherra Bandaríkjanna í Ghana, hefur ekkert viljað segja um getgátur þess efnis að hún taki við stöðu sendiherra lands síns hjá Sameinuðu þjóðunum í stað Daniels Moynihan. ,,Sjálf óska ég þess að fá að vera •áfram í Ghana og halda starfi mínu áfram,” sagði Shirley Temple Black í viðtali við Ghana-fréttastofuna. Moynihan sagði af sér á mánudaginn en kvaðst myndu gegna embættinu áfram þar til eftirmaður hans yrði val- inn. Hann sagði að Ford forseti hefði ,,mjög virðulega manneskju” í huga, en vildi ekki nefna nöfn. Erlendar fréttir Flýtum framkvœmdum við Cyrarsundsgöngin — segir samgöngumálaráðherra Dana Ríkisstjórnir Svíþjóðar og Danmerkur hafa komið sér saman um breytingar á samgöngusamning- um ríkjanna. Til þessa hafa báðar stjórnirnar verið þeirrar skoðunar, að rdtt væri að leggja járnbrautargöng undir Eyrarsund á milli Helsingborg og Helsingör. Málið hefur lengi beðið endan- legrar afgreiðslu Eyrarsunds- nefndarinnar, sem einnig hefur með höndum athugun á bættum sam- göngum á milli Malmö og Kaup- mannahafnar, auk Salthólmaflug- hafnarinnar. í ræðu á danska þinginu fyrir skömmu sagði Niels Matthiasen, samgönguráðherra Dana, að ráð- herrarnir væru sammála um að leggja bæri frekari áherzlu á af- greiðslu HH-ganganna svokölluðu en Malmö-Kaupmannahöfn og Salt- hólmann. AFTÖKUR í PERÚ Tveir Perúmenn, sem báðir voru dæmdir fyrir morð á einum lögreglu- þjóni, voru leiddir fyrir aftökusveit og skotnir í dögun í gær. Dómstólar höfðu í tvígang reynt að sanna hvor mann- anna hefði hleypt af banaskotinu, en án árangurs. Mennirnir tveir voru 24 og 25 ára gamlir. Þeir hófu skothríð á lögreglu, er þeir rændu banka í nóvember sl. Tvisv- ar var réttað yfir þeim, eins og áður segir, en í hvorugt skiptið komust dóm- ararnir að niðurstöðu. Samkvæmt perúönskum lögum eru því báðir mennirnir dæmdir til dauða. báðir sekir. Dauðarefsins liggur undantekningar- laust við lögregluþjónadrápi í Perú. Radio Free Europe böimuð í Innsbruck Framkvæmdanefnd Ólympíuleik- anna í Innsbruck hefur skipað starfs- mönnum bandarísku áróðursútvarps- stöðvarinnar Radio Free Europe í Munchen að skila aftur fréttamanna- skírteinum sínum. Skipunin kemur í kjölfar mikilla mótmæla Austur- Evrópulanda, að sögn talsmanns út- varpsstöðvarinnar. Talsmaðurinn sagði að fréttamenn- irnir, tólf talsins, hefðu fengið boð um það símleiðis frá framkvæmdanefnd leikanna, að þeir yrðu að skila skírtein- um sínum fyrir laugardag. Opinberar fréttastofur í Austur- Evrópu höfðu kvartað yfir því, að um- sóknir Radio Free Europe-mannanna hefðu ekki verið rétt útfærðar. Talsmaður útvarpsstöðvarinnar kvaðst ekki vita raunverulega ástæðu þess, að skipun þessi hefði verið gefin út, en taldi það hafa eitthvað að gera með umsóknarfrestinn sjálfan. Radio Free Europe útvarpar til allra ^ustur-Evrópulanda nema Sovétríkj- anna. Það hlutverk hefur „systurstöð- in,” Radio Liberty. Sovétríkin og bandalagsríki þeirra halda því fram að leyniþjónustan CIA reki þessar útvarpsstöðvar. KYNBOMBAN RITA Koma kynstjörnu fimmta áratugs Hollywood-myndanna, Ritu Hayworth, til London í síðustu viku vakti töluverða athygli. Þegar vélin lenti á Heathrow neitaði Rita, sem nú er 57 ára, að fara frá borði. ,,Hún hrópaði og veifaði handleggjunum,” sagði talsmaður flugfélagsins, „hún vildi alls ekki fara frá borði.” Umboðsmaður hennar sagði leikkonuna ekki hafa verið drukkna, aðeins þreytta eftir flugið. Að auki hefði hún tekið nokkrar taugaróandi töflur. „Þess vegna skartaði hún ekki beinlínis sínu fegursta,” sagði hann. Á myndinni eru þau saman, Rita og Burton Moss umboðsmaður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.