Dagblaðið - 05.02.1976, Side 9
Dagblaðið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976.
.........
sga
FRÍMERKJABÓKIN SEM TÝNDIST: iS il ilill) ■ illi
DÝRASTA BÓK Á ÍSLANDI
FYRIR 3100 KRÓNUR
Árið 1973 var haldin frímerkjasýn-
ing hér á landi í tilefni 100 ára
afmælis frímerkisins hér á landi. Þá
tilkynnti póststjórnin að hún ætlaði
að gefa út „Sögu íslenzka frímerkis-
ins” sem Jón Aðalsteinn Jónsson
cand. mag. myndi skrifa.
í bókinni áttu að vera litmyndir af
öllum íslenzkum frímerkjum sem út
hafa komið og bókin að vera ein
vandaðasta og dýrasta bók sem út
hefur komið á íslandi.
Verð bókarinnar var ákveðið 3100
krónur (í vandaðri öskju og heim-
send) og tilkynnti töluverður hópur
fólks áhuga sinn á kaupum með þar
til gerðum pöntunarseðlum.
Síðan hefur ekki bólað á bókinni.
„Hún hefur verið í smíðum allar
götur síðan,” sagði Rafn Júlíusson
póstmálafulltrúi í viðtali við Dag-
blaðið. „Stutt er síðan Jón Aðal-
steinn lauk við að skrifa bókina og er
hún nú í prentun.”
Sagði Rafn að mikill tími hefði
farið í rannsóknir, auk þess sem
ákveðið hefði verið að hafa bókina
stærri og meiri en ætlað var í fyrstu.
T.d. hefði litgreining reynzt tímafrek
en litmyndir eru í bókinni af öllum
íslenzkum fímerkjum eins og áður er
sagt.
„Það var töiuvert af fólki sem
pantaði* bókina á sýningunni, en þá
létum við ganga pöntunarlista til
þess að kanna áhuga fólks,” sagði
Rafn ennfremur. „Þeir sem ennþá
hafa haldið pöntun sinni fá bókina
fyrir gott verð því ég er hræddur um
að 3100 krónur séu orðið gamalt verð
fyrir þessa bók, eins vönduð og hún
verður.”
Ekki treysti Rafn sér til þess að
áætla verð bókarinnar þegar hún
verður tilbúin til sölu en sagði að
áformað væri að láta prenta hana í
8000 eintökum. „Helmingurinn
verður á íslenzku og hinn á ensku
vegna áhuga erlendra aðila á íslenzk-
um frímerkjum,” sagði Rafn.
Bjóst hann við að bókin yrði tilbú-
in síðla sumars. —HP.
[Saga íslenzka frímerkisins
ler í samningu, og ér stefnt a5 því, að hún komi út, meðanl
á frímerkjasýningunni stendur. í bókinni verður greint frál
öllum útgáfum íslenzkra frímerkja og birtar litmyndir afl
þeim. Bókin verður prentuð á vandaðan pappír. Verkið er|
' samið af Jóni Aðalsteini Jónssyni, cand. mag.
FÍB skorar á ríkisstjórnina:
Vill að bensínhœkkun
verði bremsuð af
Stjórn Félags ísl. bifreiðaeigenda
hefur í bréfi til fjölmiðla sett fram
áskorun á ríkisstjórnina að heimila
ekki þá hækkun á eldsneyti bifreiða
sem olíuinnflytjendur hafa sent verð-
lagsráði beiðni unv. Nemur þessi
hækkunarbciðni 4 kr. á bensínlítra
vegna erlendra hækkana.
FÍB bendir á að viðurkennt sé að
eldsneytishækkanir flutningatækja
séu einn mesti verðbólguvaldur hér á
landi.
FÍB bendir á að nálægt helmingur
þessarar boðuðu hækkunar muni
ekki mæta erlcndri verðhækkun
heldur renna í ríkissjóð sem aúknar
tollatekjur og söluskattstekjur. Slíkt
hið sama hafi gerzt við fyrri hækk-
anir bensíns, að nálægt helmingur
hækkunarinnar hefur runnið til ríkis-
sjóðs.
Fram hefur komið frumvarp á Al-
þingi um breytingu á tollalögum,
þannig að eldsneyti verði tollað með
magntolli í stað verðtolls, en með því
móti mundu tollatekjur ríkisins ekki
aukast sjálfkrafa vcgna erlendra
verðhækkana, og þannig yrði hafður
hemill á verðbólguáhrifum olíuhækk-
ana. Þetta frumvarp hefur ekki náð
fram að ganga.
í bréfi FÍB segir ennfremur: „Full
ástæða er til að benda á enn einu
sinni að 16 kr. af verði hvers bensín-
lítra renna sem sérskattur til Vega-
sjóðs. Síðan er þessi sérskattur auk-
inn með söluskatti um kr. 3.20.
Þannig hefur ríkið um árabil inn-
heimt söluskatt af skattlagningu
sinni, rétt á sama hátt og fjármála-
ráðuneytið drýgði tekjur sínar á kom-
andi sumri með því að bæta sölu-
skatti ofan á tekjuskatt.
Stjórn FÍB er ljóst að erlendar
verðhækkanir verða ekki umflúnar
en telur sig hér hafa bent á fullnægj-
andi leiðir til að mæta erlendum
verðhækkunum án þess að þær komi
fram í hækkuðu útsöluverði, ef ríkis-
valdið vill aðeins láta af þeim leiða
sið að grípa erlendar olíuhækkanir
fegins hendi sem forsendu til öflunar
aukinna toll- og skatttekna.”
henni og komizt verður. í gær hvarf
talsvert af snjómagninu, ísklumparn-
ir minnkuðu að mun en illfært er þó
enn um sumar götur. Gangstéttir
voru með versta móti og fréttamaður
sá konu eina flutta í sjúkrabíl af
gangstétt á Laugaveginum. Sand-
burður þar hafði ekki einu sinni
tilætluð áhrif.
Myndin er úr Síðumúlanum þar
sem blöðin hafa mörg aðsetur sitt.
Ástandið þar hefur verið með því
allra versta í mörg ár. (DB-mynd
Björgvin.)
nýtt í Kverri Viku
- Ný athyglisverð framhaldssaga — Ótrúlegt minni Harry
— Austurlenskur yndisþokki — Karlinn á þakinu —
GUSUGANGUR, -
OG ÓFÆRT FYRIR
VEGFARENDUR
Það er ekki tekið út með sældinni
að vera reykvískur vegfarandi — og
sama gildir víst um allt land. Stjórn-
endum gatnahreinsunar verður ekki
hælt fyrir stórkostleg afrek eftir snjó-
komu síðustu vikna. Hlutverk þeirra
virðist hefjast á götunni og enda við
gangstéttarbrún, eða eins nærri